15.10.05

Játs, veðrið leikur við okkur hérna á Washington svæðinu í dag, 25 stiga hiti og glampandi sól, þó að ég nenni ekki út, alltof kalt fyrir mig, hitabeltisrottuna.
Annars er ekki mikið búið að ske síðan síðast, fór reyndar í Target og fann diskana ekki þar heldur svo að ég er orðin alveg ráðþrota. En ég keypti reyndar Tvær jólagjafir, belti og svo gallabuxur. Já ég keypti mér gallabuxur í Target á 25 dollara og er stolt af því. Fínustu buxur alveg hreint.
Það er reyndar alveg búið að vera mikið að gera hjá mér síðustu daga, Atli, Valdís og Hildur Helma komu á sunnudaginn þannig að það er búið að dröslast með þau í einhverjar búðir, moll og núna í augnablikinu eru þau á einhverjum "Farm" að elta geitur. Þessar geitur virkuðu ekkert sérstaklega hrífandi á mig þannig að ég var dauðfegin þegar að ég fékk að velja á milli þess að fara að skoða geiturnar eða vera heima með litlu músina hana Alexöndru, en hún gerir nú ekki mikið, enda bara 4. mánaða. Svo nú er hún sofandi og ég í einhverju letikasti að éta ís uppúr dollunni...lekkert!
Í gær var ég heima með allt stóðið meðan að foreldrarnir fóru út, var með 6 börn í 6 klst og get alveg sagt ykkur að þetta var engin afslöppun. Börnin eru á aldrinum 4 mánaða-3 og hálfs árs. Og svo náttúrulega April mín, en það þarf nú ekkert að passa hana, hún er svo stór. (9 ára)
En mér tókst nú að koma öllum nema April í rúmið fyrir klukkan hálf níu. Svo að þetta gekk alveg hreint stórvel, enda er ég kannski ekkert óvön að vera með svona mörg börn í einu.
Er að hugsa um að fara að leggja mig bara með snúllunni, voðalega sybbin eitthvað...

Hvernig ætli það sé að vera svona sætur?!

Sakna hennar Sölku minnar endalaust mikið!

11.10.05

Because of you!

Þetta lag hljómar í eyrum heimilisfólksins hérna þesa dagana, þar sem að barnapían er orðin klikkuð og komin með æði fyrir Kelly Clarkson. Gaman að segja frá því að þessi umtalaða barnapía gerði sér ferð í Wal-Mart til að kaupa nýja Franz Ferdinand diskinn, en kom heim með Nýja Kelly Clarkson diskinn, Coldplay X&Y diskinn (sem hún átti að vera búin að kaupa fyrir fjórum mánuðum) og svo Forest Gump á DVD. Þetta kostaði allt reyndar ekki nema 2264 kr eða um $37 svo að það er svosem ekki dýrt - En það er sama, kom ekki heim með Franz Ferdinand, sem er þvílíkur skandall, en hann var ekki til í Wal-Mart. Þannig að á morgun verður það eitt stykki kaupóð barnapía sem brunar í Target og kemur heim með James Blunt og Franz Ferdinand, þó að það muni kosta hana lífið...

ókey kannski ekki alveg en þið náið pointinu!

9.10.05

þá er ég búin að horfa á báða þættina af "leitinni" og ég er ennþá með kjánahroll. Almáttugur hvað þetta er halló, en eflaust þá venst þetta vel. Maður ber þessa þætti jú ósjálfrátt saman við Amerísku þættina og er þar af leiðandi mjög fljótur að dæma að þetta sé bara ömurlegt og allt það.
Kynnirinn þarf að gera eitthvað í sínum málum, ef að hann ætlar ekki allt lifandi að drepa, voðalega leiðinlegur, ætlar greinilega að vera svaka flottur á þessu en það er ekki að takast nógu vel og kemur út eins og hann sé að lesa beint uppúr bók. Svona einskonar sögustund.
En mikið svakalega er piparsveinninn sætur, almáttugur minn, ef að þetta er ekki mín týpa þá veit ég ekki hvað. Þoli nefninlega ekki svona gaura sem að eru appelsínugulir af ljósabekkjanotkun, vagúnpakkaðir inní bolinn sinn og með þrjár dollur af hárvörum í hárinu. (Sbr. Ásgeir Kolbeins)
Þannig að mér lýst bara vel á þennan Steina.

Annars er ennþá rigning hjá okkur hérna í Ameríkunni. Í gær rigndi svo mikið að froskarnir voru farnir að leita sér skjóls hérna á útidyratröppunum, og engin smá flikki. Ég var auðvitað mjög glöð, því eins og glöggir sjá þá er ég svoddan froskur í mér. Það gekk samt ekki vel að reyna að ná þeim og þeir hoppuðu bara í burtu.
Vonum nú að þessi rignin fari að ganga yfir svo að það verði hægt að fara út og gera eitthvað. Svo eru líka að koma gestir hingað á morgun, en það eru frændfólk "mömmunar" þau verða hérna alveg framm yfir Hrekkjavöku svo að það verður svaka stuð og manni ætti ekki að leiðast á meðan.

6.10.05

Þvílíka úrhellis rigningin sem er búin að vera núna í dag. Hitarigning svokölluð, en það er búið að vera þvílíkt heitt og rakt í dag. Kannski er fellibylurinn Kristín Alma að fara að skella á, það kæmi mér nú ekkert á óvart, því að skapið hefur verið þannig í dag.
En yfir í aðra sálma, Ef að ég vissi ekki betur þá myndi ég halda að ég væri komin 7 mánuði á leið. Ég er alltaf að fá svona Weird crawings eins og versta ólétta kona. Þetta er stórdularfullt mál, um daginn þá varð ég hreinlega bara að fá sólblómafræ, eins undarlega og það hljómar, stökk útí Wal-Mart og keypti mér sólblómafræ í poka á 99 cent. Át hann upp til agna áður en að ég var komin hálfa leiðina heim. Skil þetta ekki, því að ég hef aldrei smakkað sólblómafræ áður...frekar skrýtið mál. Alltaf að fá einhverja svona crawing í eitthvað, og alltaf eitthvað ótrúlega skrýtið, eins og í hádeginu í dag langaði mig bara alltí einu alveg svona rosalega mikið í kalkúnaálegg, allsbert, ekki í brauði eða neinu. Já þetta er skrýtið, en samt í lagi á meðan að þetta er svona í hollara lagi.
Ég sé svolítið eftir því að hafa ekki skráð mig til leiks í íslenska piparsveinin. En ég fer bara eftir nokkur ár, eða verð fyrsta piparsveinkan. Annars fæ ég alltaf kjánahroll bara við tilhugsunina að það sé komin íslenskur piparsveinn, hugrekkið í fólkinu sem að þorir að taka þátt í svona dæmi á Litla íslandinu okkar, þar sem að allir þekkja alla og Hér&Nú hikar ekki við að búa til fréttir um þig ef að þú hefur fengið 5 mínútna frægð. Ég býð spent eftir að love boat hefji göngu sína, það verður nú meiri sýran.
Segjum þessu lokið að sinni, vil minna á nýtt og endurbætt Kastljós, strax eftir fréttir mánudaginn 10 október, verið þið sæl

(ef að ég tek ekki við af pabba í framtíðinni þá veit ég ekki hvað, djöfull næ ég þessu vel :))

3.10.05

Hvurnig er það, drepast þessar helvítis moskító flugur ekki? Þær eru ennþá að éta mig eins og það sé bara alveg sjálfsagður hlutur. En vonandi fara þær að hætta þessu blessaðar, því að ég er öll útí örum eftir þessi bit, sem er ekki vinsælt.
Það er svo mikið af kvikindum hérna að það hálfa væri alveg hellingur. Flugurnar, engispretturnar, köngulærnar, kribburnar og allt þetta drasl er ógeð. Nú sannast líka enn og aftur kenningin að það sé ALLT stórt í Ameríku, því að þessi Helv... kvikindi eru HUGE.
Svo eru mýs hérna, en þær eru sauðmeinlausar greyin. Um daginn fann ég skjaldböku í garðinum eins og ég var buin að segja ykkur, það eru íkornar útum allt, ég var næstum búin að pissa í mig þegar að ég var að fylgja April i skolan einn morguninn, þegar að það kemur allt í einu bara stærðar snákur rétt við lappirnar á okkur...OJ barasta. Það var þvottabjörn hérna í garðinum líka um dagin og svo núna rétt í þessu var ég að spotta eina risa könguló á gólfinu!
Svo að það er nóg af gæludýrum hjá okkur - Bara misskemmtileg, ég er eiginlega bara mest hryfnust af gullfisknum hennar April.
En nú fer að styttast í heimkomu hjá froskinum, rúmlega tveir mánuðir í langa ferðalagið mitt, og langþráða fríið. Það verður svo gott að komast heim, fá mömmu mat, hitta vini og fjölskyldu og hafa nice.
Ég er búin að hafa uppá einni íslenskri stelpu hérna og við ætlum endilega að fara að drífa okkur að hittast og skella okkur í bíó eða eitthvað skemmtilegt. Það verður fínt að hitta einhvern annan í sömu sporum.
Ég er annars komin í frí, svo að það er nokkurskonar föstudagskvöld hjá mér, þannig að ég ætla að leggjast uppí sófa með tásurnar uppí loft og horfa á sjónvarpið.

1.10.05

Til Hamingju með Afmælið Linda mín!

Annars sá ég umræðu á netinu þar sem að fólk var að kvarta undan því að starfsmenn rúv þyrftu ekki að borga afnotagjöld. Þar fannst flestum þetta mjög ósangjart og þar fram eftir götunum!
Fólk er svo þröngsýnt, svo kannski þessar kellingar sjálfar að vinna sem leikskólakennarar og með börnin sín frítt á leikskóla, Nú eða þá þau vinna í fataverslun og fá x mikinn afslátt af fötunum þar.
Mér finnst líka ótrúlega ósangjarnt að Linda fái 10% afslátt í Hagkaup en ekki ég!

Heimska fólk!

30.9.05

Til Hamingju með Árin 10 Mamma og (Gúmmí)pabbi :)


Kv, Kristín Alma, Vilborg Unnur, Sigríður Soffía, Ingibjörg Elín, Eyjólfur og Fróði



Þau eru sem sagt búin að vera gift í 10 ár í dag..
Ég keypti mér náttbuxur fyrir nokkru síðan, sem er ekki frásögufærandi nema hvað þetta eru æðislegar náttbuxur. En um daginn þá var ég að brjóta þær saman (ohh ég er svo húsmóðurleg) og var svona að snúa þeim við rek ég augun í einhverja litla miða sem eru saumaðir inní brækurnar. Ég var ekkert að pæla í þessu fyrr en í fyrradag, þá sé ég hvað stendur á miðunum. Miðinn sem að var framan á þar var stórt "F" og stórt "B" aftan á. Og ég fór að pæla hvað í fjáranum getur þetta verið?!
Ég pældi ekki lengi og þá var ég komin með svarið...F-ið stóð auðvitað fyrir FRONT og B-ið náttúrlega fyrir BACK!
Sko só sorrý en hver er svona heimskur? Ég vil líka benda á að ég er búin að vera í buxunum rétt allan þennan tíma, þó að ég hafi ekki kíkt á miðana, er ég kannski bara svona rosalega gáfuð??

25.9.05

Er maðurinn eitt af sköpunarverkum Guðs?
Eða er Guð eitt af sköpunarverkum mannsins?
- Nietzsche

Fann þetta "kvót" á netinu og finnst þetta alveg þess vert að velta sér uppúr. Ég persónulega trúi því að Guð sé eitt af sköpunarverkum mannsins.
Bara alltof margt sem að bendir til þess að hann sé ekki til.
Mér finnst mjög skrýtið að maður eyðir öllum 8.bekk í kirkju og fermingarfræðslu til að læra um guð og jesú, svo fermist maður, alveg kominn á þá skoðun að guð og jesú séu cool og bara góðir gæjar. Jæja, maður lifir á þessu þangað til í 9. bekk þegar að maður lærir það í náttúrufræði að guð hafi ekki skapað heiminn, heldur hafi jörðin orðið til með miklakvelli og að dýrin og við hefðum bara þróast svona eins og við erum í dag.
Frekar skrýtið að það sé farið að þessum málum á þennan hátt. Eða það finnst mér allavega...

Jæja, útí léttara hjal.

Ég var að skoða mbl.is í gær (nótt á ykkar tíma) og sá að það voru -2 gráður í reykjavík, og snjór sumstaðar á landinu!
Ég væri löngu dauð ef að ég væri á íslandi, því að hérna á kvöldin fer hitinn niður í 22 stig og ef að við sitjum úti á kvöldin, þá er ég alltaf í þykkum peysum og með heitt kakó við hendina.
Skil bara ekki hvernig maður getur orðið svona háður þessum hita. Enda hef ég alltaf sagt að ég sé "dårlig Islending"!
Annars er ekki mikið að frétta frekar en fyrri daginn. Þau fóru í gær á einhvern svona búgarð to pick a pumkin, ég nennti ekki með, var ekki alveg að nenna einhverri svona ferð þar sem að mauður velur grasker, dröslast um í 35 stiga hita í einhverju heyi og matar kiðlinga. Svo að ég og Alexandra vorum heima að chilla, horfðum á laguna beach og the real world Austin og höfðum það bara nice saman.
Ég er alltaf að pæla svo mikið, en er alltaf búin að gleyma öllum pælingunum þegar að ég sest niður til að blogga. Verð að gera eitthvað í þessu, því að þetta eru oft mjög áhugaverðar pælingar sem að ég ætti að deila með ykkur. Því að þetta blogg er orðið svo slakt eitthvað...

21.9.05

Klukk

Já það hlaut að koma að því, það er búið að klukka mig!
Þetta er einhver leikur sem að er í fullum gangi núna í netheimum, sem gengur útá að "klukka" fólk og þeir sem að verða klukkaðir eiga að segja frá 5 staðreyndum um sjálfan sig og klukka svo 5 aðra, sem eiga að gera slíkt hið sama á sínu bloggi.

Held að ég sé að fara með rétt mál.

  1. Ég er í fríi í dag og svaf til korter í tvö - það hefur ekki gerst síðan ég var í DK síðast.
  2. Mamma mín vann Kalla Bjarna í Söngvakeppni á Raufarhöfn árið 1998
  3. Mig hefur dreymt strák í fimleikabol
  4. Ég sef ennþá með Apaskottið mitt í rúminu mínu
  5. Í 10. bekk notaði ég alltaf "persónutöfrana" mína til að sleppa við sund - Gekk oftast ekki

Ég klukka hér með:

  • Ingu Rós
  • Mömmu
  • Lindu
  • Helgu
  • Sæunni

20.9.05

Jæja, sýndist það á kommentunum sem að ég fékk frá föður mínum á síðasta blogg að hann ætli að skutla mér í meðferð þegar að ég kem tíl íslands. Líklega vegna þessara grunsamlegu sveppa sem að maður fær að borða hérna í USA.
Annars er allt gott að frétta, ég fer til DK eftir tvo og hálfan mánuð og það á sko eftir að líða hratt, því að núna erum við með gesti sem að verða til 7 oktober, þann 10 oktober koma svo aðrir gestir og verða í 3 vikur, svo verður hrekkjavakan 30 oktober, íslendingamarkaður miðjan nóvember (nei, það er ekki verið að selja íslendinga þar, en íslenskar vörur og maður hittir fult af fólki) svo er thanksgiving i lok nóvember og þegar að Thanksgiving er búið þá koma útsölur sem ég gæti hugsanlega sleppt mér á, og svo loksins fer ég heim!
Eins og þið sjáið þá verður mikið að gera þangað til að ég kem heim svo að mér ætti ekki að leiðast. Ætla líka að fara að athuga hvort að maður ætti ekki að kaupa sér líkamsræktar kort eða sjá hvort að það eru einhverjir kvöldskólar hérna í nágrenninu sem að maður gæti skellt sér í, til að sýna sig og sjá aðra. Er líka aðalega að hugsa um að hitta annað fólk til að ná enskunni alveg 200% fyrst ég er hérna á annað borð.
Það er alltaf sami hitinn hérna, en mér fannst nú farið að kólna all verulega hérna um daginn, svo var keyptur nýr hitamælir og þá sýndi hann 35 gráður á celsius og er búin að vera um og yfir 35 stigunum núna allan september, og ég sem hélt að það væri komið niður í svona 25 gráður. Og þess má geta að það er alltaf sól og blíða, en ég er nú samt farin að drekka kaffi og um daginn fengum við okkur heitt kakó með rjóma í drekkutímanum, já þetta er klikkun að maður skuli vera orðin svona háður hitanum, veit ekki hvernig ég á eftir að vera í kuldanum á íslandi og danmörku um jólin.
Ég vil samt að þessar moskítóflugur fari að sofa í hausinn á sér, mikið voðalega er ég orðin þreytt á þeim. Ég er alltaf í síðbuxum og svona sweatshirt eftir klukkan hálf fimm á daginn, og ber á mig moskítóvarnir á hendurnar, andlitið og tásurnar, en það stoppar þær ekki neitt, í morgun vaknaði ég með tvo bit á sitthvorri hendinni, og annað bitð í liðamótunum á puttanum og puttinn á mér er 5-faldur, ÁN GRÍNS! Get ekki beygt puttann og klæjar og verkjar í þessu alveg til skiptis. Svo að í allan dag er ég búin að ganga um með svona benadryl penna útum allt í dag og hrúga þessu á hendurnar á mér á svona 2 min fresti.
Já, langaði líka að segja ykkur að ég var úti að leika með strákunum um daginn, og svo voru þeir að keyra eitthvað um garðinn á rafmagnsbílunum sínum og svo stoppar Christian og segir "Ég ætla að "park" á þessu "parkinglot"" og svo kom bara, Oh Oh, það er skjaldbaka hérna, og ég hleyp og tjékka á málunum, haldiði ekki að það hafi bara verið þessi líka myndarlega skjaldbaka föst ofaní svona holu, sem að var verið að gera til þess að setja niður staura, þið vitið, svona mjó og djúp. allvega þá var greyið skjaldbakan föst þar ofaní með rassinn uppúr, og hún var enn á lífi. Svo að ég tók málin í mínu færu hendur, og reddaði lífi skjaldbökunar, sem að var ekki lengi að koma sér í burtu!
Jæja, held að þetta sé allt í bili, vil minna á Gestabókina sem að "ég" setti upp, hún er þarna einhverstaðar...Froskurinn kveður að sinni...

Á meðan ég skrifaði þetta blogg drakk ég Hi-C blast fruit pow úr flösku - beat that!

18.9.05

Uhh, held að ferli mínum sem skyggn sé lokið!
Fékk símtal frá íslandi, var með hnút í maganum og allt þegar að síminn hringdi, en svo varð ég eiginlega bara fyrir "vonbrigðum" þar sem að það voru engar slæmar fréttir sem ég fékk.
Bara alveg glimrandi góðar og plús það þá er pakki með bankakorti og íslensku nammi á leiðinni, svo að þetta voru óþarfa áhyggjur.
En svo ætla ég að segja ykkur að þegar að litla systir mín fæðist þá mun hún að heita Berglind og ég mun að halda á henni undir skírn...
























Þó svo að þetta barn sé ógetið ennþá (held ég) þá dreymdi mig fyrir þessu barni og nafninu Berglind. Þetta er sem sagt mömmu megin en ekki pabba, (við þurfum nu að bíða í heil 13 ár eftir að pabbi komi með annað barn. Þannig að í Mars 2018 fæðist barn, samkvæmt mínum útreikningum. Þá verð ég 30 ára og líklega rétt búin að sækja fyrsta barnið mitt til Afríku.)
Allavega, þá á ég von á teimur litlum systkinum núna á næstu 13 árum.

P.S. vil taka það fram að þetta tengist ekki skyggnigáfu minni, heldur er þetta kenning.

13.9.05

Ég hef áhyggjur!
Mjög mikið af áhyggjum, þetta er ekki gaman!
Mjög skrýtið eiginlega, því að ég finn á mér að það er ekki allt með feldu á Íslandi og líka annar staðar.
Ég einhverstaðar útí heimi og get ekki gert neitt fyrr en ég fæ símtal...
Froskurinn kveður í þungum þönkum!

11.9.05

Orð dagsins er Aumingjabloggari.
Já og ætli það sé ekki bara best að bíta í það súra epli og sætta sig við það að ég hef ekki bloggað í 10 daga! Sem ég var ekki alveg að gera mér grein fyrir, finnst bara nokkrir dagar síðan að ég bloggaði síðast.
Oh, Well, Forvarnarstarfið er alltaf í fullum gangi hérna og er það að virka svona líka glimrandi að ég ætla ekki að eignast börn, allavega ekki fyrr en ég verð rík og fræg og borga einhverjum öðrum fyrir að ala þau upp! Ég verð svo gjörsamlega komin með ógeð af bleyjuskiptingum og þannig hlutum þegar að ég verð búin með árið, því skal ég lofa ykkur. En hef nú grun um að ég fái ekki algert ógeð en taki mér kannski pásu frá barnapíustarfinu í svona 10 daga, eða jafnvel 2 vikur. En þau eru nú svo yndisleg þessi börn sem að ég er að passa, þó að þau eigi það til að taka sínar aríur og öskra"sú dúgavabbi" á mann ef að maður er að skamma þau, en maður getur einhvernveginn aldrei nem bara brosað af þessum litlu manneskjum. Þessi börn sem ég er að passa eru til dæmis tvítyngd, og það er svo fyndið þegar að elsti strákurinn er að tala við pabba sinn einhvernskonar blöndu af íslensku og ensku, bara sætt..."no, pabbi þetta á að vera left, og má ég fá meet" krútt þessi börn.
En það sem að maður er með mikla heimþrá núna, jiminn, ég grenja náttúrulega yfir öllu, í dag var það "laguna beach og tarzan II" börnin eru hætt að biðja mig um að koma og horfa með sér því að það er ekki mikið skemmtilegt þegar að barnapían þarf að nota þrjá pakka af kleenexi yfir skrípó-inu. En ég man eftir því að ég tók svona tímabil í fyrra,eftir að ég flutti til DK og var með "Heimþrá" og hausverk eftir að hafa hlustað of mikið á dönsku. þá grét maður nú yfir pepsi auglýsingum í sjónvarpinu og hvað eina. En þetta tók enda. Svona er þetta, þetta er líklega bara mín leið til að fella tár, því að ég hef ekki yfir neinu öðru að gráta, það þýðir ekkert að vera vælandi yfir því að maður sakni landana sinna þegar að maður hefur sjálfur valið að vera hérna og líður vel.
En yfir í léttara hjal.
Amman og afinn eru hérna í heimsókn, voða gaman alveg eins og amma mín og afi séu í heimsókn, þó að það væri auðvitað miklu betra að hafa þau hjá mér, en þessi amma og afi duga nú alveg. Þau ætla að vera í heilan mánuð, og svo tveimur dögum eftir að þau fara koma aðrir gestir og verða í þrjár vikur. Þá er helloween næst á dagskrá og þar á eftir Thanksgiving. Daginn eftir Thanksgiving þá byrja útsölurnar og svo verður haldið af stað heim.
nenni bara engann veginn að blogga meira fyrir ykkur, því að ég er orðin vitstola af þreytu og ætla að skella mér í bað og svo að sofa, en þess má geta að ég er að breytast í nírætt gamalmenni hérna úti, er alltaf sofnuð fyrir allar aldir!!

31.8.05

James Blunt - Your Beautiful

My life is brilliant.
My love is pure.
I saw an angel.Of that I'm sure.
She smiled at me on the subway.
She was with another man.
But I won't lose no sleep on that,
'Cause I've got a plan.

You're beautiful. You're beautiful.
You're beautiful, it's true.
I saw you face in a crowded place,
And I don't know what to do,
'Cause I'll never be with you.

Yeah, she caught my eye,
As we walked on by.
She could see from my face that I was,
Fucking high,
And I don't think that I'll see her again,
But we shared a moment that will last till the end.

You're beautiful. You're beautiful.
You're beautiful, it's true.
I saw you face in a crowded place,
And I don't know what to do,
'Cause I'll never be with you.
You're beautiful. You're beautiful.
You're beautiful, it's true.
There must be an angel with a smile on her face,
When she thought up that I should be with you.
But it's time to face the truth,
I will never be with you

Fallegasta lag í geiminum!
Held stundum að ég hafi samið það sjálf..hoho

27.8.05

Hver setti glerbrot í vaselínið??
Já þetta er skemmtilegt lag sem 1/4 af öllum íslendingum er greynilega með á heilanum.
Ég hef ekki fengð neina skýringu á þessari pælingu sem að ég var að pæla í hér að neðan, ég er ennþá að bíða, annars er ég bara að pæla í að setja þetta í umræðuna á barnaland.is hlýt að fá svör þar. Allavega ekki hægt að treysta á ykkur sem að eruð vön að kommenta hjá mér, hvar eruð þið annars, það eru allir hættir að kommenta hjá mér, er ég kannski bara gleymd og grafin af því að ég sit hérna í makindum mínum í annari heimsálfu? Mér finnst allir eitthvað vera að yfirgefa mig, skil þetta ekki. Þetta er kannski svona "revenge of the nerds" því að ég er alltaf að yfirgefa alla, búin að flytja til 2ja landa á 10 mánuðum. Þannig að núna eru allir að yfirgefa mig, er ekki einu sinni búin að heyra í minni eigin móður, (þið vitið konunni þarna sem að fæddi mig og reyndi að ala mig upp, þið megið sjálf dæma hvernig henni tókst það til...) í yfir 48 klukkustundir, þetta er hræðilegt!
Vá báðir aðilarnir sem að lesa þetta blogg eru örugglega löngu hætt að lesa þetta núna, eða jafnvel er ég búin að drepa þá úr biturleikanum í mér.
Ok, út í aðra sálma, þá er alltaf jafn mikið stuð hérna í Ameríkunni, en Danmörk togar rosalega í mig, og stundum (sérstaklega þegar að ég tala við vini mína í DK) langar mig að skreppa aðeins heim, en mig langar samt alls ekki að fara burt héðan og aldrei koma aftur. Mér finnst samt alveg merkilegt að ég hafi ekki fengið neina svona heimþrá, svona alveg égvilfaraheimnúna-dæmi, en hins vegar þá er ég farin að taka eftir því að ég grenja yfir ÖLLU, sem að ég var ekki vön að gera áður. En þá erum við að tala um sjónvarpsefni eða bíómyndir, þar má tildæmis nefna: The Notebook, the O.C. og svo The real world: Austin..en það erverulekaþáttur, já ég sat og hágrenjaði yfir einum þættinum í því. En þetta er allt bara gott og blessað, maður verður nú einhverntíman að láta tilfinningar sínar í ljós.
Annars þá er ég nýbúin að uppgötva stórmerkilega uppfinningu, sem er vatnsheldur maskari, ég er ekki búin að mála mig einu sinni hérna í USA þvi að það var svo heitt að maskarinn rann bara útum allt þegar að maður svitnaði, og svo fer ég eiginlega á hverjum degi í sund, svo að það hefur aldrei verið inní myndinni að vera máluð. Svo var ég að pæla í um daginn þegar að Christian Karl var óþekkur um daginn, hann mátti ekki vera með garðslönguna því að hann var að sprauta á fólk í fullum klæðum (sjálfur var hann allsnakinn) og mamma hans sagði, Christian Karl! slepptu slöngunni núna, og hann bara nei! labbaði að mömmu sinni og sprautaði beint framan í hana (þetta er ótrúlega stríðin famelía sko, þannig að svona hlutir eru bara daglegt brauð) en maskarinn hélst á! ótrúlegt, já og ég fór sko med det samme út í wal mart og keypti mér svona undratæki, svo núna er maður alltaf svona líka flottur á því þegar að maður fer í sund, með augnhár dauðans, þó að maður fari í kaf, sniðugt ekki satt?
Já, í sambandi við jólafríið mitt, þá verður það líklega alveg í heilan mánuð. En nú þarf ég víst að fara að safna money, svo að eg komist heim,svo að ef að þið viljið vera sponserar þá bara ná mér á msn: kristinalma@hotmail.com, eða e-mail kristinalma@torg.is því að það kostar alveg slatta að fara þetta, ég þarf nefninlega að fljúga til íslands (ég á þann miða) frá íslandi til DK, (þetta verður bara millilending í klst á íslandi) svo þegar að ég fer til baka þá fer ég Danmörk-ísland-USA (stoppa þá á íslandi í ca viku) þetta ferðalag mitt verður að öllum líkindum einn mánuður, eða það er það sem að þetta er áætlað núna. Svo er óljóst hvenær ég kem heim aftur á næsta ári, en ég verð allavega í 3 mánuði eftir að ég kem heim úr jólafríinu.
Vááá, þetta blogg er orðin tóm steypa, enda klukkan hérna hjá okkur vestanhafs orðin 11:20 pm og ég búin að vera vakandi síðan klukkan 7:30 am í morgun...

Lifið heil

22.8.05

Biðst afsökunar á þessari hrykalega messt opp mynd sem að ég var að reyna að sýna en hún vill greynilega ekki vera birt svo að hún ákvað bara að mótmæla með því að afbirta sig.
Nú eru gestirnir að fara á morgun og það verður spennandi að vita hvort að planið með að ég verði hérna áfram standist, en það kemur í ljós á morgun...long story. Ég held reyndar að ég eigi eftir að eiga svoldið bágt í næstu viku, því að núna er ég orðin svo vön að hanga með henni Kareni Helgu, sem er litli strumpurinn minn frá Sandgerði, en þegar að hún verður svo farin, þá fer maður bara aftur í sama formið að vera lóner. Nema að maður fari að tala við eitthvað af þessum suddalega sætu svörtu guttum sem að búa hérna í hverfinu...
Annars er ekkert sérstakt að frétta, ég er búin að vera rosalega dugleg að Vörka tanið núna síðustu daga, en get sagt ykkur að það er ekki létt að reyna að liggja niðri í 40 stiga hita, en maður tekur þetta á þrjóskunni bara og í dag náði ég persónulegu sólbaðsmeti (þá erum við að tala um síðan ég kom hingað) en ég náði að liggja nánast í klukkutíma í einu, en eftir hvern klukkutíma þurfti líka að drekka hálfan líter af vatni, bera á sig sólarvörn númer 30 og skella sér í ískalda sundlaugina. Þetta virkaði líka svona anskoti vel, og ég er komin með heljarinnar tan eftir daginn, sorglegt að segja það en þessi litur sem að ég náði mér í í dag er líklega álíka mikill og allur liturinn sem að ég hef fengið hérna í USA, því að maður er aldrei úti hérna, og ef að maður er úti þá er maður með sunblock, því að sólin hérna er á einhverri túrbó stillingu.

En ég er með pælingu, sem að er hægt að fá staðfest með því aðfara nokkur ár aftur í tíman og fylgjast með í náttúrufræði, en þar sem að ég á ekki tímavél verð ég að koma með þetta á bloggið og vonanst til að einhversem að fylgdist með í tímum í Garðaskóla lesi þetta og kommenti.
Sko, ég hélt alltaf að Brúnt hefði alltaf yfir höndina þegar að kemur að augnlit, s.s. ef að Mamman er með brún augu en pabbinn blá, að þá myndi krakkinn vera með brún augu. Ókey, málið er að Pabbi minn er með brún augu, en mamma er með græn. Og hvernig eru augun í óskabarninu?? Dökk græn!! ég vil skýringu á þessu, af hverju er ég ekki með brún augu?? Ég vil brún augu!!!
Well þetta er ekki allt því að litla systir mín er með skærblá augu en ekki brún eins og pabbi...þetta meikar ekki neitt sens, eða kannski erum við systurnar bara einhver freaks of nature...

17.8.05

Ég var að fara í gegnum gömul e-mail og fann þessa líka fínu mynd sem er tekin baksviðs á quarashi tónleikunum í höllinni fyrir 2 eða 3 árum, tek það fram að þetta var ekki eina myndin sem að var tekin af þessum fagra hóp, en þessi mynd vakti þó mikla athygli og gengur nú á milli manna undir nafninu ''Ljótasta mynd í heimi''... skiljalega!





Hvað ætli maður gæti selt Hér og Nú þessa mynd á mikinn pening...??

16.8.05

Skellti mér í Six Flags of america í gær, þvílíka snilldin sem að þessi garður er.
Ég og Karen Helga hættum að vera pússýs og skelltm okkur bara í öll stóru hræðilegu tækin, veit ekki alveg hvað kom yfir okkur, því að við erum algjörir kettlingar og vorm altaf alvega að pissa í buxurnar á toppnum á rússíbönunum en svo náttúrulega hlógum við manna mest allan tíman, svaka stuð!
Skelli inn nokkrum myndum (seinna) af svona þessu helsta sem að við fórum í, og ég held reyndar að þið eigið ekki eftir að trúa mér þegar að þið sjáið þetta, því að þið vitið nú alveg að ég Kristín Alma Sigmarsdóttir líkist foreldrum mínum þegar að kemur að öllu svona, sem sagt, alla mína ævi hefur verið mikið afrek ef að ég sest í rólu án þess að verða hvít í framan og æla eins og múkki...

10.8.05

Ég er farin að halda að ég sé skólabókardæmi um uppflosnunarbloggara, eða það fer allavega að líða að því.
Nú eru gestir hjá okkur hérna í Ameríkunni, heil 5 manna famelía frá kalda islandi kom hingað að kvoldi 4 ágúst, með tvær fullar ferðatöskur af harðfiski, fiskibollum í dós og fleirum íslenskum afurðum. Svo að núna eru íslenskir dagar hérna á Bass court, sem er náttúrulega bara nice.
Annars gengur allt vel bara, ég geri 10 pela á meðaltali á dag, skipti á svona 15 bleyjum á dag og er iðulega með tvö börn í fanginu. Er líka orðin mjög sterk í höndunum, en það verður maður víst að vera þegar að maður er kannski með 15 og 13 kíló á sinhvorri hendinni.
Það er alltaf sami hitinn hérna í Ameríkunni, en samt í gær kom langþráð rigning, og vá hvað það var gott, maður sá alveg mun á gróðrinum í morgun, því að það var allt orðið uppþornað, þar sem að það er ekki búið að vera rigning í svolítið langan tíma.
Á Sunnudaginn skelltum við okkur til Washington og skoðuðum hvíta húsið, minnisvarðan og svona þetta helsta sem að maður sér þegar að maður fer til DC, en Jiminn eini hitinn þarna, það var ekkert grín að vera með 4 lítil börn í kerru, greyin litlu að stikna úr hita, það hefur verið, án gríns svona 50 stiga hiti, þvi að það var alveg logn og stór svartur marmaraveggur með nöfnunum á þeim sem að dóu í stríðinu, bara pain að labba þar í gegn en samt ótrúlega flott.
Jæja, best að hætta að rugla í ykkur, og drífa sig í sund áður en að ég ferst úr hita, bæjó

30.7.05

Well Folks...!

Nenni ekki að blogga frekar en fyrri daginn svo að ég set bara inn mynd af framtíðar eiginmanni mínum.
Eins og þið sjáið þá á ég ekki eftir að eiga í fjárhagslegum erfiðleikum í framtíðinni, og hann er ekki einu sinni ljótur gamall kall, heldur bara hot mother fucker...

Þetta er Jack Osbourne fyrir ykkur fáfróðu

Enjoy



19.7.05

Oh my lord!
Mig langar mest í heimi núna að fara heim til Danmerkur og Íslands að knúsa litlu systkini mín, veit ekki af hverju þessi löngun er svona hrikalega sterk akkúrat núna, en svona er þetta. Það er næstum hálft ár þangað til að ég fæ að knúsa þau og vera með þeim aftur, og þá verður það bara í smá tíma...:( En það er annars nóg af börnum hérna til að knúsa, það er ekki það, en ég sakna litlu snúðanna minna.
Annars þá hef ég það mjög gott eins og vanalega, er búin að afreka að þræða tvö HUGE moll á síðustu 3 dögum og eyða smá pening.
Dante, pabbi krakkana átti svo afmæli í gær og það var auðvitað gert ýmislegt skemmtilegt í tilefni dagsins, og það var auðvitað svaka gaman. Nú í gær skruppum við Dante einmitt líka í smá spítt-túr á mótorhjólinu, og Djísess hvað það var ógeðslega gaman og hressandi að fá vindinn á sig.
Í dag var svo haldið í leiðangur að ná í afmælisgjöfina frá fjölskyldunni, og það var þessi líka ógeðslega flotti Mustang blæjubíll, ekkert smá flottur bíll (verst að ég er ekki komin með bílpróf) En allavega þá á meðan þau voru að sækja græjuna í dag þá ég með Alexöndru og Evu Maríu í mollið á meðan, þar sem að þeim var svo heitt, og auðvitað loftkæling í mollinu, svo kom restin af famelíunni og við borðuðum auðvitað taco bell og svo fóru þau heim og kráfust þess að ég fengi almennilegan frítíma (nebblega alltaf þegar að ég fer í bíó eða í bæinn tek ég alltaf einhvað af börnunum með mér, þó að ég eigi að vera í fríi) Þannig að þau keyrðu heim og ég var ein eftir í mollinu, og ómægod hvað það var æðislegt! Bara fíla mig svo vel að vera ein að flakka á milli búða og rápa svona og dúllast ein með sjálfri mér.
Eníveis þá var ég svo sótt á blæjubílnum góða núna rétt áðan.
Hef ekki neitt meira að segja, nema vil koma skilaboðum til múttu minnar að Ég vil endilega fara heyra í systkinum mínum á skype...!!!

13.7.05

úff hvað er búið að vera mikið að gera hjá mér uppá síðkastið!
Ekkert smá, en ég ætti kannski að segja ykkur frá hápunktunum...

3. júlí fórum við í paramount kings somthing skemmtigarð, en þetta var risa tívolí með ógeðslega stórum rússíbönum og skemmtileg heitum og svo var þessi líka HUGE Water world , sem að ég stóð í klukkutíma í biðröð eftir að komast í eina rennibraut (var reyndar alveg þess virði..) En annars var líka hægt að hitta ýmsar teiknimyndapersónur eins og Scobby doo og spongebob vin minn. En ég missti af honum, hann var klukkan 3 á einhverjum ákveðnum stað og við vorum alveg hinum megin í garðinum og komum hálftima of seint eða eitthvað, en ég á nú alveg eins von á að við skellum okkur aftur í þennan garð, allavega mæli ég með að þið skellið ykkur í hann ef að þið eigið leið um Virgina fylki.
Nú 4 júlí var auðvitað eins amerískt og hugsast getur, extra Amerískt hjá okkur því að við vorum inná Base í washington og já, eins og allir vita þá snýst líf flestra ameríkana um Herinn. (og rendar líka frægt fólk og þyngd, en það er allt annar handleggur) Þannig að við vorum þarna umkringd hermönnum og hermanafamelíum (uh reyndar eru þau hermannafamelía sem að ég bý hjá en þau dýrka ekki herinn fyrir það;)) Nú við borðuðum bara á Burger King og til að gera þetta aðeins amerískara fékk ég mér super size pepsi, svona í tilefni dagsins, en þá fékk ég glas sem að var einn og hálfur lítri og svo auðvitað fríar áfyllingar..uhh, þarf kannski ekki að taka það fram að ég fyllti aldrei á glasið, en allavega...
Svo þegar að þjóðsöngurinn var sunginn stóðu allir upp, horfðu í einhverja ákveðna átt og voru með tárin í augunum og hægri hendina í hjartastað..hihi Allt voða væmið og amerískt eitthvað. En svo voru líka þvílík skemmtiatriði og flugeldar um kvöldið (þvílíkt stórir flugeldar)
En voðalega gaman að upplifa þetta allt.
Eva María varð svo eins árs 7 júlí og þá var sko farið á tjökkí tjís, og haldið uppá afmælið þar, voða gaman.
Svo skelltum við okkur í sumarbústað um helgina, sem var allt ótrúlega nice, flottur bústaður og á flottum stað, ég var reyndar heima á laugardaginn með stelpurnar litlu Alexöndru (7 vikna) og Evu Maríu (1 árs) fór eitthvað inní herbergi með aðra hvora þeirra til að sipta á bleyju þegar að ég heyrði eitthvað þrusk, og kallaði "halló" en fékk ekki neitt svar, svo þegar að ég kom fram aftur var þá ekki bara eitt stykki íkorni á eldúsborðinu í góðum gír að éta kókópoffs!! En þetta er ekki allt, svo þegar að dömurnar áttu að fara að lúlla, ákvað ég að setja þær í kerruna og rölta um svæðið og kíkja á mannlífið þarna í skóginum, þá kom nú bara eitt stykki huge eðla takk fyrir góðan daginn, og labbaði bara samferða okkur þarna í svona eina mínútu eða svo. Já þetta var ekkert smá mikill lífsháski fyrir mig, og nú hef ég komist að þvi að íkornar borða kókópöffs og eðlur vilja félagsskap þegar að þær eru úti á röltinu!
Aðal fréttirnar héðan frá ameríkunni eru þær að ég fékk tilboð um að framlengja ferðina, eð vera fram til næsta sumar. Ég er búin að vera þetta undir nefndina, sem gaf grænt ljós og ég verð sem sagt hérna þangað til næsta sumar, En ætla nú að skreppa til múttu um jólin og fá eitthvað almennilegt að éta!
Annars vildi ég nú óska Sæunni og hilmari til hamingju með nafnið á spriklu litlu, hún heitir þessu líka falega nafni Bergrún Sól (ég vissi reyndar Sólar-nafnið) en allavega til hamingju með nafnið, og knúsið nú Bergrúnu Sól frá mér :)
Uhh, held að þetta sé allt. nema kannski að það er farið að hitna hérna, ég er ekki alveg að meika þennan ógeðslega hita og er farin að taka strákana oní sundlaugina og hanga þar oní í boltalek og svona, því að það er eiginlega eina leiðin til að vera úti, eða bara gera eitthvað yfir höfuð. Og svo er mér sagt að ágúst sé langheitasti mánuðurinn, en svo fer aftur að kólna pínu í september og október, svo kemur veturinn í janúar og svo vorið í mars...NICE!!
Jámms, allavega. þá langar mig að minna á msn-ið mitt sem er kristinalma@hotmail.com og svo e-mailið sem er kristinalma@torg.is svona ef að þið viljið frekari fréttir...

30.6.05

Já sæl verið þið, hvað segir folkið á þessum líka ágæta fimmtudegi??
Mikið rétt, ég hef það gott og er búin að vera í 8 daga í ameríkunni og líkar ennþá bara mjög vel, langar ekki neitt að fara heim og kvíði eiginlega bara fyrir að þurfa að fara eftir 5 vikur :( En svona er lífið og ég verð víst að ganga í skóla og þannig, dugar ekki bara að vera au-pair að eilífu.
Anýhú, þá er nú margt búið að gerast hjá mér hérna á þessari einu viku sem að ég er búin að vera hérna. Það er búið að vera geðsjúklega heitt hérna, við erum að tala 35-40 stiga hita og sól, og ég er búin að komast að því að það er eiginlega of mikið, allavega ef að á að gera eitthvað annað en að sitja á rassgatinu og gera ekki neitt, því að það er nefninlega ekki það sem að ég er að gera á daginn hérna. En við reynum að vera inni yfir heitasta tíman, en ég vil helst bara vera inni á daginn.
Í gær var farið með stóðið á tjökkí djís eins og Christian myndi segja, en það er einhver svona krakka veitingastaður fyrir þá sem ekki vita, það var nú aldeilis fínt, svo verður farið aftur þegar að Eva María verður eins árs núna í júlí.
Á sunnudaginn verður farið í vatnagarðinn og svo er 4th of july á mánudaginn og þá verður sko stuð, fólk er að tala um að það verði stærsta show frá upphafi hérna í ár, svo að það ætti nú að vera aldeilis gaman.
Held að það sé ekki neitt meira sem að ég hafi að segja ykkur, ég verð allavega að þjóta, það er að koma nap time, svo að það er einsgott að fara að skunda og setja mjólk í pela...bæbæ

26.6.05

Til hamingju með afmælið amma Stína!!!


hmm, maður ætti kannski aðeins að segja ykkur hvernig er búið að vera hjá mér síðustu daga.
Ég kom til Bandaríkjana Miðvikudaginn 22.6.2005 að kvöldi til, eftir lengstu og erfiðustu flugferð sem að ég hef farið í, því að við vorum tvær fullorðnar með 5 börn á aldrinum 11, 3, 2, 11.mánaða og 5.vikna. Og skiljanlega voru þau orðin frekar pirruð á því að þurfa að sitja kyrr í svona langan tíma. En þetta hafðist allt og við komumst heil á höldnu til USA.
Það er alltaf brjálað að gera hjá mér, svo að þið verðið bara að afsaka það að ég hef ekki tíma til að hafa heimþrá eða svoleiðis, enda væri það líka bara rugl, því að ég hef það svo gott hérna. Krakkarnir voru mjög fljót að venjast mér, og taka mér mjög vel og ekkert vesen með það. Algjörar krúsídúllur þessi börn, verð að sína ykkur myndir þeim bráðum, en þau eru öll voða dökk, með dökkt hár og stór dökkbrún augu.
Nú, það er frekar heitt hjá okkur eða eitthvað á milli 35-40 stiga hita þegar að það er heitast. minnstu tvær skotturnar (11. mánaða og 5. vikna) eru bara á bleyjunni og alveg að steikjast úr hita. En við hin stærri getum allavega kælt okkur með að fara í vatnsslag með tvær garðslöngur eða demba okkur í ískalda sundlaug.
Jæja, ætli það sé ekki tími til að fara að sofa bráðum, enda klukkan að verða tíu...(merkilegt hvað maður verður þreyttur í svona hita...)
Bið að heilsa ykkur þarna á íslandi, danmörku og hvar sem að þið eruð í heiminum, og ég lofa að reyna að vera dugleg að skrifa um hvað ég er að gera hérna á daginn í ameríku.

24.6.05

Well, well, well, Þá er maður komin í Ameríkuna og I´m loving it!

21.6.05

Jæja, þá held ég að það sé komin tími til að ég opinberi það sem að allir hafa verið að bíða eftir að myndi gerast hjá mér.
Ég er sem sagt í sambandi, já þið lásuð rétt, ég miss allirkarlmenneruaular er komin í samband.
Þetta er samt ekki svona hefðbundið samband heldur óhefðbundið því að þetta samband samanstendur af Mér, Ingu Rós, Binna og Kai. Já við Kai uppgötvuðum um helgina að þau inga og binni eru ekki ein í sínu sambandi heldur eru þau í sambandi með okkur líka. yeah, You don't wanna know!!!
Ég ætla ekki að útskýra þetta neitt frekar, en bara að segja ykkur það að ég er ekki á lausu, þannig að Bandarísku strákarnir eiga ekki séns í að bjóða mér út á einhver væmin deit...

Æji þetta er nú smá sprell, og eiginlega hljómar þetta ekki vel í ykkar eyrum þar sem að þið vitið ekki alla söguna. En mig langar bara til þess að segja bless við ykkur, guð má vita hvenær að ég kemst næst í tölvu, því að það verður brjálað að gera hjá mér í barnapassi á næstu dögum og vikum.
En ég segi þá bara bye bye, og þegar að þið sjáið mig næst að þá verð ég líklega svona supersize me gella, eftir allan mcdonalds matinn sem að ég á eftir að éta þarna úti...

16.6.05

Nú er maður búin að vera á íslandinu í næstum því eina viku, og það venst nú bara ágætlega. Það er samt ótrúlega fyndið hvað ég er mikil kuldaskræfa. Við erum að tala um að flíspeysan mín er búin að vera besti vinur minn hérna, þetta er ekki alveg normal þar sem að það er alveg 12-16 stiga hiti og sól flesta daga, mjög sæmilegt veður, en ekki nógu heitt fyrir mig. Svo er líka hugtakið "vindur" eitthvað búið að breytast hjá mér á þessari danmerkurdvöl. Því að ég segi að það sér vindur þegar að tréin hreyfast en fólkið á íslandi segir bara að það sé gola. og þetta "gola" er ekki lengur til í minni orðabók.
Það er búið að vera yndislegt að vera hérna, éta skyr, serjós og nóa súkkulaði í öll mál...mmmm
Það eru annars 6 dagar þangað til að ég fer í Ameríkuna í sólina og hitan...AHHH

9.6.05

SVINDL!

Fiðrildin eru farin og mín ekki ánægð með það. Ég var farin að kunna svo vel við þau, en þau koma örugglega aftur núna á morgun.
Já ég kem til ykkar í kuldan á íslandi á morgun. Sé fram á það að sofa ekkert alla helgina þar sem að það eru allir búnir að panta mig í heimsókn, djamm, heimsókn, djamm, næturheimsóknir (ég á að koma inn bakdyramegin og allt...) og ég veit ekki hvað og hvað. Ég verð reyndar nokkurnvegin munaðarlaus um helgina, þar sem að móðir mín verður fjarri góðu gamni í danmörku, og faðir minn verður að flytja inn í nýtt og betra húsnæði (þar sem að mer hefur verið lofað bleiku herbergi) En svona ef að heppnin er með mér þá fær Birna jafnvel bara að eiga mig um helgina, og kannski lengur ef að heppnin er með...henni.
Annars er ég aldeilis búin að skella mér í nokkrar fegrunaraðgerðir uppá síðkastið. Ég skellti mér á þriðjudaginn í vax, plokkun, litun og manicure, svo í gær fór ég í klippingu og strípur. Er alveg orðin vel ljóshærð, svo að núna vantar mig bara blá augu og þá er ég orðin voðalega norðurlandaleg.
En jæja, það verður púllað allnæter í nótt, því að ég hef ekki tíma til að sofa, þarf að pakka og læra fyrir dönskuprófið sem að er á morgun. Ég veit ekki alveg hvað ég var að pæla þegar að ég sagði já við að taka erfiðara levelið í dönskunni, því að dæmið sem að á að lesa og læra er ekkert smá erfitt, ég er með orðabókina á annari hvorri setningu og kann ekki að bera fram helminginn af þessum orðum og hugtökum. En við vonum bara það besta...
Annars þá sjáumst við bara á morgun, þá verð ég líklega orðin úthvíld eftir lestarferðina og flugferðina...

Þess má kannski geta að ég sleppti síðasta djamminu mínu í danmörku í bili, í kvöld. Til þess að vera heima að lesa. Ég var ekki vinsæl meðal vinana, en svona er þetta bara, maður verður stundum að forgangsraða.

7.6.05

Jæja, fiðrildin stækka enn, og eru orðin svoldið mikið fyrirferða mikil.
En það er nú bara gaman, ég er alveg uppfull tilhlökkunar og líður eins og þegar að ég var að fara til útlanda þegar að ég var lítil, þið vitið þegar að maður vaknaði um nóttina til að fara útá flugvöll.
Ég á eftir að gera alveg óteljandi hluti og er ekki að sjá þessa hluti framkvæmast á þessum 3 dögum sem að eru eftir hérna í DK. Sem er ekki gott því að þetta eru hlutir eins og að pakka niður og svona. Svo þarf ég að finna út aðferð til að eignast pening á þessum stutta tíma, þar sem að ég er svo blönk að ég á ekki krónu með gati. En þetta blessast allt vonandi.
Í kvöld er svo kynning í Handelsskolen, þar sem að ég þarf að gjöra svo vel að ákveða mig hvað ég ætla næsta ár, eða hvaða línu eða braut ég tek. Sem verður erfitt, því að allar línurnar eru mjög spennandi.
Annars þér var ég nú í enskuprófi í morgun, og fékk náttúrulega 10 á því, hvað annað??
Svo að ég lít nokkurnvegin svona út í dag...

3.6.05

Vika til stefnu og fiðrildin í maganum farin að gera vart við sig.
Ég er svo spennt að ég titra á höndunum, og held reyndar að þó að ég sé mjög spennt að koma til íslands og vera hjá ykkur öllum í nokkra daga, að þá eru fiðrildin og spenningurinn mest vegna þess að ég er svoldið mikið að fljúga útí óvissuna núna eftir ca 18 daga. Stundum þá hugsa ég: Hvað í fjandanum er ég að pæla með að vera að fara eitthvað til Bandaríkjana og vera hjá fólki sem að ég þekki sama og ekki neitt í allt sumar. En það er bara á góðan hátt, því að ég veit að þetta verður svo gaman og þetta er svo mikið tækifæri fyrir mig að gera eitthvað svona.
Ég má ekki segja við mömmu lengur "jeij það er bara vika þangað til að ég legg í'ann" því að hún segir bara við mig til baka "mig langar ekki einu sinni að hugsa um það" og mér fannst það bara krúttlegt að heyra hana segja þetta, því að maður veit að einhver annar en hundurinn á etir að sakna mans...
Það er svo mikið sem að ég á eftir að gera að það er ekki einu sinni fyndið, en ég þarf í alvörunni að fara að skipuleggja mig og byrja að pakka stuttbuxunum og sólgleraugunum svona núna á næstu dögum. Samt finnst mér svoldið fyndið að vera að pakka niður fyrir þessa ferð, þar sem að það verður úlpa, flíspeysa, trefill og síðar nærbuxur fyrir íslandið og svo stuttbuxur, hlírabolir, flipp flopps og sólarvörn númer 20 fyrir ameríkuna.
En jæja, ég er farin aftur að lesa einn bókmenntatexta fyrir dönskuprófið sem er eftir viku. ógeðslegur texti sem að ég er búin að vera að treina að lesa, því að hann er svo viðbjóðslegur, fjallar um kynferðislegamisnotkun barna, sögumaðurinn er misnotarinn! Og þetta ógeð er verið að láta mann lesa til prófs!

30.5.05

I dag er det sgu en stor dag...Min mor har nemlig 35 års fødselsdag i dag, og min hund/hvalp er 7 måneder..! Tillykke begge to!

Allavega þá hafði ég kannski hugsað mér að reyna að skríða uppúr þeim flokki sem að ég hef verið sett í, nefninlega "letibloggaraflokkinn" og koma mér kannski uppí bloggaraflokkinn, eða allavega byrja að æfa mig fyrir ameríkuna því að þá verður maður víst að vera dygtig að blogga svo að mamma og pabbi geti nú fylgst með litlu snúllunni sinni...(mér sem sagt..hoho)

Já síðan að ég bloggaði síðast hefur MARGT gerst og ekki gerst, samt meira gerst og hætt við að gerast, ok þetta var kannski aðeins of mikið. Allavega þá er ég barasta að pæla í að fara yfir síðustu 3 vikurnar eða svo, svo að þið getið fengið svona FLØDEN af því sem að hefur gerts hjá mér síðan að ég bloggaði seinast.

Pinsehelgin var vægast sagt SVAÐALEG! Byrjaði á föstudeginum þegar að móðir mín gaf mér þennan líka fallega miða á OPEN AIR. Sem að er svona tónlistarhátið einhversskonar hérna í Horsens, tveir dagar, laugardagur og sunnudagur frá klukkan 12-12 báða dagana, með tilheyrandi bjórdrykkju, fyrirpartý-um, eftirpartý-um og miklu fjöri.
Laugardagurinn var tekinn snemma, enda 25 stiga hiti og mikill spenningur í loftinu. Byrjað á að fara í fyrirparty hjá Láru, þar hittumst við nokkur, grilluðum mat og okkur sjálf (við grilluðumst í sólinni) svo var étið og drukkið öl (að dönskum sið) fram eftir degi. Klukkan svona hálf þrjú var svo ákeveðið að fara að trilla niðureftir í Parkinn sem að þetta var haldið, og þar með voru sólgleraugun sett upp og horft á Nik og Jay, góðvini mína. Þeir voru alveg fínir, eða svona skítsæmó, annars fíla ég ekki þetta danska wannabe negrapopp sem að þeir spila. En annars þá er annar þeirra algjör rúsína, smámæltur, ljóshærður og með hrikalega blá og dönsk augu. Samt vorum ég og Peter alveg að fíla þá í botn þarna á tímapunkti, en við vorum samt svoldið sorgleg því að við vorum bæði klædd í slitnar gallabuxur, svona t-shirt með mynd eða svona setningu (æji svona flottum bol) og svo með sólgleraugu, alveg þvílíkt rokkaraleg, og syngjandi með Nik og jay, þannig að það var kannski ekki alveg að ganga...
Dagurinn gekk svo bara útá það að horfa á flottar hljómsveitir og svona, ekkert smá gaman. rölt um svæðið og kíkt á ýmislegt Hot stuff og svona. Klukkan tólf fór ég svo í bæinn og gerði ýmislegt skemmtilegt þar líka..hoho Stefnan var tekin á eftir party á Crazy daisy (sem er skemmtistaður hérna í Horsens city) en því miður náðum við aldrei þangað, en það var samt gaman.
Sunnudagurinn var einnig tekinn snemma, þrátt fyrir mikla þreytu, en þreytan var fljót að fara eftir smá sólarsleik, pönnsur sem voru borðaðar úti í sólinni og sturtubað. Þá var farið í átfit dagsins, sem að samanstóð af gallabuxum sem að voru brettar uppað hnjám, converse skóm, og "be kind" t-shirtinum sem að ég fékk frá ingu rós. Og þessi bolur vakti mikla lukku fullra dana seinna um kvöldið...
Seinni dagurinn var eiginlega betri, allavega að sumu leyti, hljómsveitirnar voru betri myndi ég segja the Loft og svo náttúrulega Ædolið mitt hann Johnny deluxe. Oh hann var ÆÐI, kræst hvað ég var hrikalega að fíla hann í ræmur, eina manneskjan sem að kunni alla textana utanað, og söng með allan tíman. Týpískt ég eitthvað, sko því að textarnir eru allir á dönsku og ég er íslensk. Svona álíka eins og einhver dani kynni bara alla textana með Gylfa Ægis. (tek það samt fram að Johnny er Miklu flottari) Já restin af kvöldinu fór svo í að frjósa úr kulda, kíkja á meira hot stuff og okkur láru var bent á það að við værum alveg drullulélegir íslendingar, því að þarna um kvöldið var orðið alveg skítkalt, og við vorum báðar í sokkum, strigaskóm, síðumgallabuxum, bol, þykkum peysum, ég svo í leðurjakkanum, og hún í púmavindjakka, við vorum báðar með stóra trefla og báðar með svona stóra þykkar 66°norður lúffur úr flísefni. Og við skulfum gjörsamlega úr kulda. En við lára dóum ekki ráðalausar og sögðum bara að við værum allavega ekki lélegir danir, því að við erum nefninlega mjög góðar í bjórdrykkju, og höfum fengið að heyra það oft og mörgum sinnum að við erum efni í mjög góða dani, vegna hæfni okkar á þessu sviði.
Allavega, eftir þetta kalda kvöld var haldið af stað í eftirparty heima hjá My vinkonu minni, sem að endaði svo í öðru partyi og svo var það ég og Johnny (ekki deluxe þó) sem að héldum mjög hress og orkumikil í bæinn, og nú átti nú aldeilis að klára dæmið og koma sér á staðinn, sem að tókst ekki alveg hjá mér og fleirum nóttina áður. Jú við komumst í bæinn en ekki á rétta staðinn, föttuðum ekki að fara á fleiri staði, þannig að við fórum bara og fengum okkur pizzu, og skelltum okkur svo í eitt heimaparty sem að við fundum, mín skreið svo heim, alveg gjörsamlega búin á því eftir þessu yndislega skemmtilegu helgi klukkan að verða 7 um morgun.

Fimmtudagurinn eftir pinsehelgina fór í það að syngja "En dag tilbage, lev mens du gør det, elsk mens du tør det" sem er einmitt partur úr lagi sem að var hrikalega vinsælt hérna í DK þegar að ég var nýflutt, fyrir næstum ári síðan. En pointið með að vera að syngja þetta var jú af því að síðasti dagurinn í skólanum var þá. Eða síðasti kennsludagurinn réttara sagt. En þarna á fimmtudagskvöldinu töpuðum við sem sagt í júróvísjón, mér og láru til mikillar undrunar, því að við sendum báðar sms og kusum náttúruleg ísland. En við vórum nú svo mjög heppnar að geta bara haldið með Jakobi sjarmatrölli í staðinn, sem að stóð sig svo með prýði á aðalkvöldinu..6 sæti eða eitthvað, ekki dårligt Jakob minn!
En föstudagurinn var sko tekin með trompi, þrátt fyrir leiðinlegt veður þá druslaðist ég nú í skólann til að borða morgunmat með bekknum mínum. Svo átti að klæða sig í búninga, en þar sem að ég var búin að ákveða að það yrði gott veður, og búin að planleggja búninginn minn í samræmi við það, þá var ég ekki alveg að nenna að standa og frjósa allan daginn í rigningunni, svo að ég fór í venjulegum fötum. Svo var verðlaunaafhenfingin sem að Almar vann sinn flokk, årets dengse, eða proffi/nördi ársins, og var sagt þegar að þetta var tilkynnt; "og Dengse ársins er...(umslagið var opnað og..) já, hlaut að vera, þegar að maður er íslendingur þá verður maður víst svona þar sem að maður kann ekki alveg á danska skólakerfið" já það voru þrír íslendingar sem að mótmæltu með púi og einhverjum hrópum, sem að niðurbældustt reyndar í hlátri hinna í skólanum, ég var ekki sátt með það, en engu að síður þá veit ég það jú best sjálf að maður þarf ekkert endilega að vera Dengse þó að maður kunni ekki á skólakerfið, ég er lifandi dæmi um það sjálf, enda algjör andstæða við almar, lærlinginn mikla.
Já, þegar að þetta var búið þá var byrjað að drekka, já, þið lásuð rétt, klukkan 10 á föstudagsmorgni´byrjaði fólkið að drekka og hrökklaðist svo af stað, uppí svona lítinn park sem að við hittum svo nokkra skóla í viðbót, sem að voru allir klæddir í svona skemmtileg föt og blindfullir í þokkabót. En jiminneini hvað var nu gaman að vera þarna, en þetta var orðið svoldið mikið svona um 3 leytið, þá skellti ég mér bara heim, lagði mig í klukkutíma, svo var bara farið að sjamma sig fyrir kvöldið, þar sem að við fórum allur bekkurinn rosalega fínt út að borða, og allir voru annaðhvort fullir eða þunnir, nema ég ótrúlegt en satt. Þetta var sem sagt þannig að sumir höfðu ekki farið neitt heim að leggja sig, og svo þegar að átti að borða mátti ekki drekka á meðan, varð að taka smá pásu, eða eitthvað, man ekki alveg af hverju, en það skiptir ekki öllu. Maturinn var æði, og allt það. Svo kom mamma að sækja okkur nokkur frá bekknum og við vorum keyrð eitthvað uppí sveit þar sem að var svona félagsheimili, þar hittum við svo restina af skólanum aftur og það var svona lítið diskótek, og það var ótrúlega gaman að sjá alla svona í öðrum gír en vanalega. svo klukkan svona 2 um nóttina var komið og náp í okkur stelpurnar úr bekknum og við fórum niður i bæ. Þá var sko tekið á því, Lára kom líka og hitti mig ásamt fleirum, og við skemmtum okkur alveg konunglega. Svo kom að aðalmálinu, það var nefninlega FROÐUPARTY!! og váááá hvað það var gaman, það var sem sagt bara sprautað froðu þarna útum allt og allir oðnir rennandi blautir og málingin farin að leka, en hverjum er ekki sama...?

Núna er ég bara búin að vera í leseferie, og prófin byrja svo 7 júní og eru búin 10 júni...´þá fer ég til íslands ef að guð lofar.

Síðasta helgi var samt frekar skrautleg, allavega föstudagurinn. Þá fór ég til My í party, sem að var mjög skemmtilegt, ég drakk pepsi allt kvöldið, eða allvega næstum allt kvöldið. My og restinni til mikillar óánægju, allir að reyna að troða áfengi á mann alltaf, en þar sem að ég er svo frek, þá var ég edrú og það er ennþá verið að tuða í mér útaf því.
Er það bara ekki í lagi að vera edrú einstaka sinnum, ég meina, þegar að ég drekk þá er ekki eins og ég sé alveg á eyrunum eins og sumir, þannig að ég fatta ekki af hverju það er gert svona mikið mál úr því þegar að ég vil ekki drekka, því að ég er alltaf bara jafnrugluð, hvort sem að ég er í glasi eða ekki..bara smá spurning..?
allavega endaði þetta party þannig að My dó í sturtunni, löggan kom og eitthvað annað fólk að deyja útum alla íbúð..hrykalega smart.
En við restin sem að vorum ekki deyjandi útum allt fórum bara á pöbbinn, og skemmtum okkur konunglega þar. En urðum samt fljótt þreytt svo að við fórum ágætlega snemma heim það kvöldið.
Nú laugardagurinn fór í það að liggja inni og blása ásjálfan mig einhverju lofti, því að það var 33 stiga hiti allan daginn, og sól. Oj hvað það var heitt, ég er ekki alveg meika svona mikin hita, en er samt að fara vera í svona hita í allt sumar, vona bara þetta venjist þá.
Já, seinnipart hitadagsins þarna, var svo farið í hlírabol, flipflops og Dökk sólgleraugu sett upp, því að maskarinn lak bara, þannig að það var ekki valkostur að vera málaður. En ég var þarna að fara í kveðjuparty hjá láru, sem að var mjög gaman, fólk í misjöfnu ástandi eins og svo oft áður, en ég og lára tókum þetta bara með stæl, vorum þarna í garðinum hjá henni að kafna úr hita, með sólgleraugu og drukkum afkælt, ódýrt jarðaberjakampavín. Sem að var mjög frískandi, en áfengið svitnaði strax út svo að ég var komin í stand 3 klukkutímum seinna til að fara að passa..!

Já þetta er svona það helsta sem að á daga mína hefur drifið, og ég hef lært mína lexíu, og héðan í frá mun ég reyna að blogga oftar, því að ég er komin með krampa í hendurnar á að skrifa svona mikið og hausverk á að hugsa svona langt aftur í tíman...

10.5.05

Hvað er málið??

Í skólanum mínum er mikið af tyrkjum og svoleiðis fólki, svosum þvælast ekkert fyrir mér eða neitt þannig, þau eru bara þarna eins og ég og allir hinir, en ég blanda næu ekki mikið geði við þau greyin.
Um daginn, einmitt daginn áður en að við fórum á "fucking þúfuna" þá vorum við eitthvað að slúðra og þá kom ein kjaftasagan að ein tyrkjastelpan hefði verið send til Kananda því að hún hefði fengið danskan kærasta og pabbi hennar og mamma voru alveg crazy, því að hún á náttúrulega bara að giftast öðrum tyrkja og bla bla.
Allavegana þá var ég alveg hrikalega forvitin og fór að pæla í hvaða stelpa þetta væri og svona. Þar sem að þetta er jú ekki sérstaklega stór skóli, þannig að maður kannast við alla. Anýhú, þá fór ég að pæla hver þetta væri, og fór að spurja fólk hver þetta væri. Svorin sem að ég fékk voru eitthvað á þessa leið að þetta væri stelpan þarna með síða svarta hárið og stóru brúnu augun..hengur alltaf með hinni stelpunni með svarta hárið og brúnu augun og stelpunni með slæðuna á hausnum. Uhh fékk ekki mikið útúr þessum svörum þar sem að ALLAR múslimastelpurnar eru með svart sítt hár og stór brún augu eða stór brún augu og slæðu. Jæja allavega þá hætti ég að velta mér uppúr þessu og pældi ekkert meira í þessu.
Svo var það í gær að ég sat inní B-klassen og var að gera billedeanalyse með Mínum bekk og B bekknum, þá alltí einu kemur ein stelpan inn og haldiði ekki bara að hún sé með þessa þvílíku bumbu og giftingarhring!!!
Já já, þá á hún bara mann og det hele! sæi mig í anda með barn, og hvað þá KALL...

en hún fór sem sagt ekki til kanada...

6.5.05

Froskurinn stígur hraðahindrun Danmerkur

Á miðvikudaginn síðasta fór ég með öllum skólanum mínum í fjallgöngu. Eða það hélt ég.
Allavega, þá var ég mætt klukkan 08:10 uppí skóla með nesti og nýja skó (sko í alvöru) og var full eftirvæntingar eftir að fá að upplifa þessa fallegu og stórbrotnu náttúru sem að var búið að segja mér frá að væri á þessu svæði.
Og svo var lagt i'ann 3 rútur keyrðu þarna eitthvað útí buskann, keyrt var í ca klukkutíma og þá komum við að leiðarenda..að ég hélt. Neinei, þá tók bara við einhver bátur, OK við um borð og siglt af stað. ég bjóst við korteri í mesta lagi, en neinei, einn og hálfur tími takk fyrir góðan daginn sem að við máttum gjöra svo vel og dúsa í þessum bát.
LOKSINS eftir þessa skemmtilegu bátsferð þá stigum við útúr bátnum og ég batt á mig gönguskóna. Og allir stóðu í hring og peppuðu hvern annan upp og gerðu plan um hvar við ætluðum að hittast ef að við myndum tínast og þannig. Og svo var lagt af stað...
Löbbuðum í gott korter upp eina brekku sem að var alls ekki brött og svo komum við að nokkrum tröppum sem að voru svona um það bil 10 talsins. Þegar að við vorum á leiðinni upp tröppurnar þá spurði ég ótrúlega sakleysislega kennarann minn hvað það tæki nú langan tíma að labba uppá toppinn. Þá fékk ég það svar til baka að það væru ca 5 tröppur eftir og þá værum við komin. Já þá sprakk ég úr hlátri og spurði hana hvort að hún væri nú ekki að djóka. "nei" sagði hún og þegar að hún sleppti orðinu þá kom skilti sem sagði mér það að nú stæði ég á toppnum á HIMMELBJARGET!
Nú jæja fyrst maður var kominn þangað upp þá var nú alveg eins gott að rölta um og skoða staðinn og náttúruna og það allt. röltum 30 metra og þá vorum við búin að fara fram hjá 3 MINJAgripabúðum, 2 sjoppum, 1 ísbúð og 2 hótelum!!
Já allavega ef að þið farið einhverntíman á þessa hraðahindrun (eins og eg kýs að kalla það) þá mæli ég bara með því að sleppa þessari bátsferð og þessu rugli að LABBA uppá toppinn, heldur bara keyra í svona hálftíma frá Horsens og keyra bara uppá toppinn, því að það er HÆGT...
Skil ekki alveg þessa flóknu leið sem að þurfti að fara með okkur í.

En allavega þá er þetta saga fyrir blómapottinn minn, hún vildi endilega heyra hvernig var á Fucking þúfunni eins og ég kallaði þetta...já ekki bara þúfan heldur Fucking þúfan..mikilvægt að hafa fucking fyrir framan, því að ég er jú með eindæmum svo hardcore!!!

4.5.05

Ji, ég er alveg klárlega ekki að standa mig í þessu bloggi maður!
Það eru komnir átta dagar síðan að ég kom heim frá London og ég ekki búin að blogga.
Allavega þá er ég komin heilu á höldnu aftur til Danmerkur eftir þessa líka æðislegu Londonferð. Jæja í London uppgötvaði ég marga skemmtilega hluti, sá margt skemmtilegt og var náttúrulega með þessu líka skemmtilega fólki.
Græddi alveg slatta af dóti frá föður mínum, sem að þykir greinilega ekki leiðinlegt að versla föt. Ég kvarta nú ekki undan því, því að maður græðir allavega á meðan sá áhugi er hjá kallinum.
Svo fékk ég þennan líka svala Leddara (leðurjakki sko)
Allavega þá vil ég þakka fyrir mig og bið að heilsa ykkur Öllum...!

20.4.05

I´m off to London!

Eða næstum því, eftir tæpa tólf tíma verð ég í lestinni á leið til Lundúna að hitta blóðskylda og óblóðskylda ættingja. Það verður æði að hitta Pabba krabba og sindra eftir 4 mánaða aðskilnað, fráskilnað eða hvað þessi bölvaði skilnaður heitir nú. En það verður Frábært að hitta Almar, Gúu, Tómas orra, Ölmu Diljá og Fríðu Margréti, hef ekki hitt þau í 1 ár, hef reyndar aldrei hitt Minnstuna þeirra, en hún er svo lítil ennþá (held ég)
Allavega þá verður dagurinn tekin heldur betur snemma og það verður ræs á skutlunni klukkan 05:03 stundvíslega, svo að það verði nú hægt að þvo af sér skítinn, setja á sig andlitið, strauja hárið og velja föt. Trúið mér, þetta tekur sinn tíma. Nú svo verður lagt af stað út á lestarstöð klukkan 06:45 hoppað um borð í lestina klukkan 07:08, komið til Århus hovedbanegård klukkan 07:33, þá verður rölt af stað um Lestarstöðina og reynt að finna út hvaðan FLYbussen fer. FLYbussen leggur í'ann klukkan 08:20 og Svo er brunað af stað útá flugvöllinn og ég verð komin þangað klukkan ca 09:10 þá er það tjékk inn og svo bara bröttför til London klukkan 10:50, Lending í London er svo klukkan 11:40 að enskum tíma.

Já það er einsgott að mamma útbúi Madpakke fyrir mig, með Lu "heilsukexi" og eplasafa. Svo ætla ég að hafa með mér MP3 spilara, og nokkra texta sem að ég þarf að lesa fyrir prófin sem að eru í vændum. Nokkrir svona Danskir bókmenntatextar sem að eru ótrúlegt en satt mjög skemmtilegir. Eða allavega heita þeir skemmtilegum nöfnum eins og einn heitir "SEX" lofar góðu ha?

18.4.05

jæja gott fólk, þá er eins gott að fara að dusta rykið af diesel buxunum og Louis vuitton töskunni, því að ég er komin inn í Horsens Handelsskole!
Já daman fékk bréf um það að hún væri komin inní "Versló" Þeirra danamanna félaga minna, svo að það verður í nógu að snúast á næsta ári. Byrja 10 ágúst, svo að ég myndi ekki vera að kvarta yfir stuttu sumarfríi við mig ef að ég væri þið, því að sumarfríið mitt byrjar formlega 17 júní og er búið 10 ágúst. Og ég tek það fram að það er svona 30 stiga hiti hérna í júní, júlí og ágúst...
En ég er annars bara nokkuð sátt við næstu mánuði, London eftir næstum 2 daga, leseferie, sidste skoledag, nokkur próf, Island, USA, Danmörk og nýr skóli...
Hlakka mjög mikið til að byrja í Nýja skólanum og læra svona danskt versló tal, hvernig ætli marmarmotta þýðist yfir á dönsku??

14.4.05

Ég ætla að reyna að hafa þetta glaðlegt blogg, þó svo að það sé langt frá því að ég sé eitthvað glöð í dag. Er meðal annars komin með heimþrá sem er ekki gott, eiginlega alveg hræðilegt, ég má ekki hafa heimþrá!
Jæja förum nú samt yfir "alla" hlutina sem að ég er búin að gera í þessari viku.
Á mánudagin átti nú litli bróðir minn hann Eyjólfur afmæli, og vaknaði greyið barnið (og ég) við þann falskasta afmælissöng sem að hefur verið sunginn í sögu afmælissöngsins, og fékk nokkra feita pakka með.
Um kvöldið bauð krútti litli okkur á Massí dónas, já hugsið nú hvað í Fjandanum það er, en það er McDonalds á eyjólfsmáli. Svo þegar að við komum hiem fengum við íslenskt nammi og það þarf nú ekki að segja neitt um það hvernig það var.
Tja meira gerði ég ekki í vikunni, nema að læra og svona leiðindi einhver.

Langar samt að taka saman hérna smá lista sem að sýnir það að ég þarfnast virkilega íslandsferðar, vegna þess að ég er að breytast í FKN Kristín með Pølse i munden (eða dana)


-Ég á Eastpak skólatösku
-Ég borðaði epli í strætó í vikunni
-Drakk Tuborg síðustu helgi
-Nenni ekki að skrifa sms á íslensku, bara dönsku
-Nenni ekki að tala íslensku
-Þekki munin á København dansk og jysk dansk (ikke?)
-Tala Jysk dansk og er þar af leiðandi í ruglinu
-Það er eitthvað að ske með dönskuna mína, eða orðaforðinn er eitthvað að bæta við sig, sem skýrir ruglið með að ég nenni ekki að tala íslensku.
-Ég Horfi á Beverly hills 90210, Rundfunk, Real life.log, top model 2005 og de fantastiske fem!
-Sat ein inní herbergi og bókstaflega GRÉT úr hlátri yfir Gintbergs store aften, og í þokkabót þá var Casper Christiansen í þættinum sem að gerði þetta ennþá verra. (en þetta var svo fyndið)
-Allir að losna við spangirnar og ekki ég, þvílíka svindlið! (langaði bara að setja þetta þarna, kemur ekkert þessum lista við svosem)

í lokin koma svo tvær myndir af litla prinsinum sem er orðinn 4 ára :)





10.4.05

Klamydíusýkingar jaðra við faraldur í Danmörku


Dönum sem smitast af kynsjúkdómum fjölgar stöðugt og segir yfirlæknir á sjúkrahúsinu í Álaborg að klamydía sé orðin svo útbreidd í Danmörku að jaðri við faraldur. Segja heilbrigðisyfirvöld að látið geti nærri að tíundi hver danskur unglingur sé smitaður af klamydíu.

Frá þessu segir í blaðinu Nordjyske Stiftstidende en þar segir að dönsk yfirvöld áætli að allt að 50.000 ungir Danir séu með klamydíu. Tveir af hverjum þremur sem greinst hafa með smit eru konur.

Tove Højberg, yfirlæknir á sjúkrahúsinu í Álaborg, segir við blaðið að yfirleitt þurfi tvo til svo smit berist milli manna og því megi búast við að álíka margir karlar sem konur séu með klamydíu.

Klamydía er megin ástæða þess að dregið hefur úr frjósemi kvenna en erfitt er að kljást við þennan kynsjúkdóm þar sem sýktir átta sig oftast ekki á smitinu sem á þannig auðveldar með að berast milli manna.

Hlaut að vera..danskir unglingar eru eins og kanínur...

8.4.05

Já mér leiðist!

Mig vantar skoðun á hvernig Vans skó ég á að kaupa!
Ég vil náttúrulega bara eiga alla vans skóna í hieminum en það er víst ekki alveg hægt, þannig að ég er búin að þrengja valið frá 200 niður í þessa hér...


Þessir hérna koma til greina í svörtu og hvítu, Svörtu og rauðu og ég er ekki alveg viss með bleika litinn sko...

Annars er það sama snið nema bara svartir með rauðri hauskúpu, svartir með hvítri hauskúpu,hvítir með bleikri hauskúpu eða rauðir með svörtum stöfum sem stendur á einhverjir stafir, man ekki hvað stendur á þeim..
Ég hef ákveðið að reyna að taka mig á í sambandi við að nota rétta íslensku og nota fleiri og betri orð.
Ég veit ekki að svo stöddu hvað þetta mun endast lengi en við sjáum til. Þetta er ég að gera aðalega sökum þess að ég er gjörsamlega komin í marga hringi með að tala þessi tungumál mín, og á þessum tímapunkti hef ég tekið eftir miklum breytingum í málfari mínu.
Breytingar þessar lýsa sér aðalega með því að ég tala ranga íslensku, geri þónokkuð fleiri stafsetningarvillur en ég er vön og finnst .ægilegra að hugsa og skrifa á dönsku.
Ég vil ekki breytast í dana þannig að til að fyrirbyggja það að ég verði orðin dönsk eftir einhvern X tíma hef ég ákveðið að nota bloggið og æfa mig í að tala/skrifa rétta og góða íslensku...

Æji skítt með þetta...

Ég er hvort sem er orðin svo döns í mér að það er ekki alveg normalt...

7.4.05

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ PABBI KRABBI!

Já þá er Farmand orðin 36 ára!
Vil óska honum til hamingju með það, hafðu það nú gott í dag og við sjáustum eftir Sléttar tvær vikur!


Svona á maður nú sætan pabba, þarna lengra til hægri...

3.4.05

Þetta er fegurð!


2.4.05

Langaði bara að segja ykkur að það er 2 apríl í dag og það er sólbaðsveður hjá mér.

31.3.05

25.03.03
Fyrir tvemur árum uppá dag þá sat ég, gelgja í 9 bekk í skólanum og var í náttúrutíma í hádeginu. Svo hringdi síminn minn og ég hljóp útur tímanum, því að ég átti von á símtali með skemmtilegum fréttum, hljóp framá gang þar sem að allur skólinn nema minn bekkur var í hádegishléi og ég svaraði í símann. Það heyrðist ekkert þegar að ég svaraði en svo sagði ég halló aftur og heyrði þá splunkunýjan fjölskyldu meðlim gráta í símann, bara svona til að segja "hæ stóra systir og ég er komin"!
Ég grét svo mikið (af gleði auðvitað) að ég gat varla talað við pabba í símann og fengið að vita hvort að þetta væri stelpa eða strákur eða hvað. Ohh ég var svo glöð!
En núna er þetta litla skott sem að gret í símann til að láta stóru systur sína vita að hún væri komin í heiminn, orðin tveggja ára skutla, altalandi, og rosa sæt og skýr stelpa, Sem að grætur ekki lengur fyrir stóru systur í símann heldur spjallar eins og fullorðin manneskja og syngur fyrir hana á nokkrum tungumálum:)
Æji langaði bara að setja þetta hérna, ég sakna hennar svo mikið, ömurlegt að geta ekki verið með henni á afmælisdaginn, En svona er þetta víst, stóra systir bara í Danmörku og sú stutta á íslandi.
Æji það er kannski ekki mitt að vera að tala um hvað það er stutt síðan að hún fæddist og að maður trúi ekki hvað hún sé orðin stór. En þegar að maður eignast systkini þegar að maður er orðin svona gamall þá er þetta svona, maður upplifir það allt oðruvísi finnst mér, að eiga systkini sem er 15 árum yngri eða 5 árum yngri. En allavega litla systir mín orðin 2 ára og mér finnst eins og þetta hafi allt gerst í gær!
svona man ég fæðingardag litlu snúllu:)
Til Hamingju með afmælið um dagin salka mín!!!

14.3.05

Jæja!

Það var á þessum degi fyrir 17 árum, klukkan 12:14 á hádegi að foreldrar mínir fengu fallegasta barn sem að það höfðu á ævi sinni séð í fangið. Þetta var alveg undurfagurt barn, með mikið castaníubrúnt hár og stór blá augu.
Núna er Þetta barn orðið 17 ára og foreldrarnir bara gamlir, kannski ungir í anda..

Já fólk, ég á afmæli í dag! Det er min fødselsdag i dag! It´s my Birthday today! Kann ekki fleiri tungumál.

En langaði bara að segja takk fyrir allar kveðjurnar og gjafirnar!

Ég er farin að bíða eftir ADAM mínum...

9.3.05

Okay ég er endanlega orðin klikkuð í hausnum!
Ég sem að hélt að ég væri búin að jafna mig á gelgjunni, og komin yfir í það að finna út hver ég væri og svoleiðis. Var meira að segja búin að finna út að ég var orðinn þessi líka fíni rokkari, föður mínum til mikillar ánægju.
En nei, greinilega ekki því að ég er komin aftur útí píkupoppið og boyböndin, sem að minnir mig óneitanlega á 6-9bekk.
Hjálp!
Það sem að er inná Mp3 spilaranum núna er meðal annars:

Nik og Jay
Boys II men
98 degrees
Backstreetboys
Tænder på dig-Danska eurovision lagid (okay, það er kannski vegna þess að gaurinn er sætur)
Luna park-sem tóku þátt í undankeppninni fyrir eurovision. Garg, Þeir eru bara ungir og já.

Jæja þetta er svona það væmnasta, en svo er líka:

Maroon 5
Jeff Buckley
Scissor sisters
Öll lögin úr Shrek 2

Annars er allt gott að frétta af mér.
Ég er ekki hátt á vinsældarlistanum hjá mínu fólki þessa dagana. Ég verð nefninlega bara í viku á íslandi í sumar. Var að fá vinnu, ekki á íslandi og ekki í Danmörku, heldur í USA. Verð þar að passa og hjálpa til inná heimili hjá íslenskri konu og Amerískum manni hennar. Hún er að fara að eignast barn tvem vikum áður en að ég kem svo að henni vantar svona stelpu sem að getur létt aðeins undir með henni. Þetta er rosa fínt, góð laun, góður staður og ég er rosalega ánægð með þetta.
Ég er reyndar alveg hrikaleg flökkukind núna þessa dagana. Er að fara eftir viku til Gumma frænda í Frankfurt að hjálpa honum að kaupa sér húsgögn og eitthvað svoleiðis í nýja húsið. Það verður örugglega mjög gaman að fara þangað, byrja páskafríið á að vera með stóra apakettinum mínum.
Svo í lok apríl er ég að fara til London með Pabba. Eða við ætlum að hittast þar, æji það verður æði, bara verst að salka kemur ekki með.
Jæja Ég er svo alveg að verða 17 ára. Jiminneini hvað maður er að verða gamall! Á afmæli á mánudaginn, svo að það verður líklega haldið uppá það eitthvað þegar að Linda kemur til mín í páskafríinu.
Shahad á afmæli á morgun, 10 mars, svo að ég óska henni til hamingju með það!
Eða held að það virki betur að segja Tillykke!

6.3.05

Ókei.
Held að núna gæti verið komið að því að ég ætti að fara að druslast út að reyna að finna mér eitthvað mannsefni. Það er greinilega að fara í taugarnar á fólki að ég skuli vera að verða 17 ára og ekki "gengin út"!
Af hverju er þetta að trufla fólk eitthvað?
Ég hef ekki áhuga á því að vera 17 ára og í einhverju voða sambandi. Allavega er það ekki á planinu en ef að Adam eða einhver álíka kemur til mín þá er ég tilbúin í að skoða málið´.
Annars er móðir mín alveg búin að planleggja hver er draumaprinsinn minn, og heimtar að fá hann fyrir tengdason daginn út og daginn inn, sjáum hvað setur mamma mín...
Annars er fínt að frétta af mér.
Held meira að segja bara ekkert meira heldur en þetta kærastaleysi mitt.
Blogga aftur seinna. Og þið þarna sem að eruð að reyna að koma mér saman við einhverja danska gaura: It's not gonna happen!

12.2.05

For du for lækker lækker lækker!!

ja nemlig ja!

For helvede Fucking pisse lort din luder gris idot! Og líka Fúff for satans!


Það er gaman að segja þetta þegar að maður er útlendingur og það er alveg þogn í bekknum! Prófaði það um dagin og fékk mjög góð viðbrogð, ja kannski ekki samt frá kennaranum sem að þessu var beint til (eða horfði á síman minn þegar að ég sagði þetta en ég meinti þetta með hjartanu til kennarans!) En krakkarnir segja að núna kunni ég donsku, og ég megi alveg koma með svona fallega blöndu af blótsyrðum aftur, eða góðu orðunum eins og þau orðuðu það!

Allavega ætti ég kannski að segja ykkur hvað þessi LORTA kennari sagði við mig á fimmtudaginn, helvítis rastista kelling!! Til að þið skiljið pointið í sögunni þá ætla ég að koma með svo aðdraganda svo þið skiljið hvað þessi *píp* er *píp*miklil *píp*
En skrifa soguna á morgun, er þreytt, var að koma af djamminu og klukkan er orðin 4, svo að ég er að fara í spinning klukkan 11 í fyrramálið svo að ég er farin að sofa!

8.2.05

Já ég er búin að komast að því að það er ekki sérlega sniðugt að blogga þegar að maður er svona þreyttur. Allavega í dag þegar að ég kíkti á síðuna mína þá varð ég voða hissa, og hélt að einhver hefði komist inná svæðið mitt og bloggað. En svo fattaði ég að ég hafði gert það sjálf í einhverju móki, og ekki munað eftir því daginn eftir. Skiljanlega því að 5 min eftir að ég bloggaði þá lá ég steinsofandi uppí rúmi.

Annars er bara allt gott að frétta, bara same old same old. Skólinn á sínum stað (mætti alveg skreppa i burtu en okei..) Dönsku kennarinn er gjörsamlega með þráhyggju af H.C. Andersen, sem að by the way ég veit allt um núna. Hann verður víst 200 ára á þessu ári og það eina sem að við verðum að vinna með eftir áramót er hann, hans verk og nútíma ævintýri. Svaka skemmtilegt, erum búin að lesa svona um það bil einhver skrilljon ævintýri eftir hann, og krifja þau niður í frumeindir, T.d veit ég núna að þegar að hann skrifaði Næturgalann þá skrifaði hann það útfrá því að hann væri næturgalinn. Ég veit að honum þótti einmitt svo gaman að skrifa ævintýrin útfrá þeim vínkli að hann væri inní einhverri personunni. Hann var líka víst lesblindur og fátækur.
En það besta er samt við þetta allt að við erum búin að Horfa á tvær myndir til að sálgreina svona eins og söguna um næturgalann. Það eru Kærlighed ved forste hik (nútískuævintýr) og svo Hans klaufa (H.C. Andersen ævintýr)Um kærlighed ved forste hik komumst við ekki að neinu um myndina sem að ég vissi ekki, eða ju reyndar. Robert Hansen (Victor) var´víst í einhverju dóprugli einu sinni, og ég vissi heldur ekki að danir flokki þesa sætu ástarsogu um 1.g-ara og 3.g-ara, sem ævintýr. En svo er líka Kosmos - Kaos - Kosmos. ég hélt nú að t.d allar Hollywood myndir væru þannig, byrja vel, svo kemur vesen og svo enda vel. En æji það er nú svo margt sem að maður ekki skilur í sambandi við þessa dani.
Svo í Dag var ekki danska því að donskukennarinn okkar er að vinna í kosningunum, eða er í framboði fyrir sosjal demokratana eða eitthvað svo hun fékk nú fréi á kosningadaginn sjálfann. En þá kemur þýskukennarinn og segir: jæja krakkar, þar sem að Charlote er ekki í dag þá er ég með verkefni fyrir ykkur. Það er að eftir vetrarfríið eigiði að skila inn nútímaævintýri. JESSS gaman fyrir mig að sitja og skrifa nútímaævintýri, sérstaklega þar sem að ég hef svo frjótt ýmundunarafl...
Ef að þið lumið á góðum hugmyndum plís skrifið í kommentin og segið mer hvað ég að að gera. komið með soguþráðin úr einhverri íslenskri bók eða whatever...




7.2.05

Jæja ég er formlega byrjuð í ræktinni!
Fór í dag og vígði kortið mitt, og tók brennslu, lyfti og fór í Maga, rass og læri tíma. Og OH MY DOG! hvað ég er með miklar harðsperrur, þetta eru eiginlega ekki harðsperrur heldur bara verkir. En það stoppar mig ekkert, og ég mæti á á morgun aftur.
Shahad vinkona mín er sko með mér, og við erum að fara á miðvikudaginn að tala við einkaþjálfara og han ætlar að gera prógrömm fyrir okkur, svona persónulegt prógram. svona hvaða vöðva við eigum að styrkja og eitthvað. Svo er ég nátturulega með minn persónulega þjálfara, einhver íslendingur sem að mamma fann í skólanum sínum, gaurinn er menntaður einkaþjálfari og sagði að hann myndi vera einkaþjálfarinn minn ef að ég talaði bara Dönsku við hann. Því að ég er náttúrulega snillingur í þessu kartöflutúngumáli..HUH

En eg held að ég sé bara farin að bulla nuna, og er heldur ekki að getað skrifað vegna verkja í hondunum (þetta sínir bara formið sem að ég er í ;))

Æji ég skrifa meira seinna, verð að fara uppí rúm.

Og gleðilegan BOLLE-dag, ég fékk reyndar engar rjómabollur, en einhver Bölvuð tófa sem ég kannast lítilega við stakk uppá að ég myndi bara mjóða einhverjum gaurum heim í Bollur...

(sumir fatta þetta síðasta:))
Flettiði Bolle upp í orðabók, þá fattiði hvað ég á við.

23.1.05

jæja, Haldidi ad eg se ekki buin ad thrusa frumburdinum i heiminn! og thad ekkert slæmum frumburdi skal eg segja ykkur, minn frumburdur fekk nebblast fyrstu verdlaun a kortfilmfestivalinu a fostudaginn.
Thetta var looong fæding, og mjog erfid. Verkirnir byrjudu a fostudaginn fyrir viku, og frumburdurinn var ekki fæddur fyrr en a fimmtudaginn klukkan 14.00 og mikid urdu foreldrarnir gladir. En mikid var samt otrulega skemmtilegt ad bua hann til, thratt fyrir blod svita og tar. (og af gefnu tilefni vil eg taka fram ad frumburdurinn er stuttmynd, svo ad thad verdi enginn misskilningur)
En nog tal um frumburdinn, madur er bara einn eftir i baunalandi, og that er verd eg ad segja midur skemmtilegt. Restin af hjordinni for til islands a fimmtudaginn, og eg sakna eiginlega ad koma heim og allt a fullu, Frodi kemur hlaupandi til manns adur en madur kemst innur dyrunum, mamma ad brjota saman thvott eda eitthvad alika, madur fer ad rifast i ungunum um TV-id eda bara eitthvad tilfallandi. Nuna kemur madur bara heima og allt hljott, og thad passar sko ekki vid mitt hus, thad er alltaf einhver heima thegar ad madur kemur heim ur skolanum. En nuna fær madur ad kynnast thvi fyrir alvoru ad vera fatækur namsmadur i utlondum. Modirin skyldi mig eftir med x haa upphæd fyrir mat, skemmtunum og neydartilfellum, thannig ad eg for a laugardaginn i bilka og versladi, A TILBODI!! Og eiginlega thad eina sem ad var a tilbodi var grænmeti, svo ad eg keypti fullt af thvi, svo poppmais, og eina jogurt. Fer svo ad versla aftur a moegun eda eitthvad. Svo var eg ad spara strætokortid mitt(er med klippikort, en ekki svona passa.) Svo ad eg labbadi fra Bilka til Stensballe, og thad eru um thad bil 8km.
En eg var veik i thokkabot, med sma hita, flokurleika, kvef daudans og hofudverk. Thegar ad eg kom heim var eg nær dauda en lifi og gat ekki hugsad mer ad fara ut ad djamma svo ad eg var heima, pantadi pizzu, drakk pepsi max og horfdi a nokrar danskar myndir.
Mjog kosy bara.
En eg get svo svarid fyrir thad ad eg er ordin hrædilega donsk i mer. nuna sidan ad mamma for tha er eg bara buin ad tala islensku i 55 minotur af 4 dogum. og eiginlega ekki buin ad heyra neitt annad en donsku. thvi ad eg tala nottla bara donsku i skolanum, svo kem eg heim og er bara eitthvad ad gera ritgerdina mina A donsku, og svo fer eg i mat til christine, søren og strakana, og thau eru donsk eins og nofnin gefa til kynna svo ad thad er bara tolud danska thar a bæ.
Svo kem eg liklega ekkert til islands fyrr en i sumar, ef ad eg kem tha i sumar. held samt ad eg lifi ekki svona langan tima af an thess ad hitta alla, Solku og bara alla;)
Jaa, nu ligg eg uppi rumi i Spongebob squarepants boxerunum og hlirabol, med fartolvuna ona mer og er ad blogga. thihihi thad er svo gaman ad vera eg nuna...

18.1.05

Well Well Welll.

Ég er farin að halda að ég sé eitthvað klikkuð. Alltaf bloggandi bara, einhver ritræpa á minni sko. Eníveis þá var þetta bara mjög góður dagur hjá mér í dag. Eða svona þannig lagað. Fór í skólann klukkan átta í morgun og hélt að ég myndi deyja fyrstu tvo tímana eða svo, því að kennarinn byrjaði bara að blaðra og blaðra um háskóla og eitthvað crap. Meðaleinkunina ef að maður ætlaði að fara að læra Pædego í Álaborg, sem er BTW 9,3.En hins vegar ef að þú ætlar að læra það sama í Árhus verður maður að hafa 7,5 - Svona bara svo að þið vitið það ef að þið ætlið að fara að læra Pædego.
Svo sagði hún þegar að hún var búin að blaðra um þetta í tvo tíma: jeh, men det var bare lidt saadan go´morgen til jer! - Jáh einmitt...
Svo um 11 leytið þá fórum við Trine, Shahad og Lulu að taka upp stuttmyndina okkar. Reyndar var það svolið mikið strætóferðir útum allt, en samt mjög gaman. Okkur tókst að gera myndina en það tók okkur líka hálfann daginn að gera hana, þvi að við hlógum svo mikið.
Við Trine komumst samt að mjög skemmtilegri niðurstöðu í dag. Ég var eitthvað að spurja Shahad um hvort að hún væri múslimi (hún er frá íran) En hún er það ekki, hún er kristin. Svo fórum við Trine að segja að við tryðum eiginlega ekki á Guð og jesús, og þá komum við með þessar líka brilliant kenningar.

-Jomfru Maria/maría mey hún hélt framhjá jósef með Guði, eða hún hélt ekki beint framhjá, en hún bar samt barn annars mans undir belti , og það telst jú til framhjáhalds.

-Jesús og allir hans lærisveinar voru alltaf Pisse-stiv

-hann var alltaf að breyta vatni í vín og þar fram eftir götunum svo að við höldum að hann hafi verið virkur alkahólisti.

-Þess vegna hefur hann bara verið á einhverju sírutrippi með lærissveinunum þegar að hann labbaði á vatninu. þá hefur hann og lærisveinarnir bara verið svo fullir og eiinhver hefur sagt, ji sjáiði, jesús labbar á vatninu...

Ja þetta eru okkar kenningar, þær voru fleiri en ég man ekki allar í augnablikinu. Annars þá trúi ég eiginlega ekki á þetta stuff., trúi bara á það góða í manninum. Og finnst að börn ættu ekki að fermast fyrr en um 16-17ára. ég allavega var svo lítil og vitlaus að ég gerði bara eins og allir hinir. Ef að þetta val hefði verið sett fyrir mig núna þá myndi eg pottþétt ekki fermast. Held að börn nú til dags velji þetta bara útaf gjöfunum.
Ég ætla heldur ekki að skíra börnin mín, bara að nefna þau og þau geta svo sjálf ákveðið þegar að þau verða stærri hvort að þau vilji skíra sig, eða ferma. Ég vil sko ekki taka svona ákvarðanir fyrir þau.

Allavega nóg um það.
Þá núna senni partinn þá komu Sören og Kristine með strákana í heimsókn. Eyjólfur og Marcus léku sér saman og ég og Viliam lékum okkur saman;) Svo ákváðum við að borða saman og svona, voða hygge í gangi...

17.1.05

STAY STAY AWAY!!!!

Nei plís ekki fara, þetta er bara úr lagi með Sahara Hotnights, sem að eru BTW aðalmálið núna.
Ahh þær eru ædolin mín eða eitthvað, það verður sko seint tekið af þeim coolið. Þetta er sko Sænskt STELPU-rokkband. Þær gera allt sjálfar, ekki bara eins og VÆLON eða ÆLON eða hvað þetta smápíkuband á ísland heitir. Sahara hotnigts þær spila meira að segja á öll hljóðfærin sjálfar.Geggjað COOLAÐAR píur.

Annars er allt gott að frétta, ég fer alltaf í þennan skemmtilega skóla minn og fyllist lífsgleði á að vera þar...eða ekki. Alveg komin með feitasta leiða á þessum ÓGEÐSLEGA LEIÐINLEGA skóla. En maður verður víst að klára. Það eina sem að er að halda mér í þessum skóla er að það eru ágætlega skemmtilegar og ruglaðar stelpur þar, eða allavega í mínum bekk. Og svo nottla íslendingarnir, sem að eru svossem í lagi;)

Jámm held að við segjum þetta bara gott af´bloggi í bili, og ég fari að gera eitthvað að viti.



COOLISTAR!!!!

12.1.05

Nei ég er ekki dauð, en var bara með smá munnlega/skriflega hægðatregðu sem að er komin í lag núna. (held ég)
Eníveis lets start the blogg:)

Eldsnemma um morgunin 18 desember var lagt í hann útá lestarstöð með fulla tösku af jólagjöfum og Mp3 spilarann til köben að hitta Ingu Rós serm var þar í shopping túr með foreldrum sínum, litla bróður og vinafólki. Ég ákvað að slást í hópinn þar sem að ég var hvort eð er á leið til Íslands með sama flugi og þau á sunnudagskvoldið, og alngaði að vera með ingu minni að versla og nennti ekki að gista einhverstaðar inná einhverju af þessu fólki sem ég þekki í köben.
En þetta var bara gaman og við versluðum soldið, bæði í Fields og á strikinu. Svo á Laugardagskvöldinu var skellt sér í tívolí, Jólatívolí. Það var ekkert smá gaman þótt að það hefði verið snjókoma og flest tækin lokuð. en við gerðum bara gott úr því og fórum í hringegjurnar og svona, og já töluðum við einhverja gaura sem að voru þarna og svona. Og reyndum að fatta af hverju Danirnir urðu svona skrýtnir þegar að snjórinn kom (allavega ég, inga skildi ekki hvað þeir sögðu:) hehe djók) En þeir voru eins og þeir hefðu barasta aldrei séð snjó áður.
Eftir umþað bil 3 to go (heitt kako í götumáli) fórum við að borða á geggjað góðum stað sem að heitir The Poul, því að Inga átti afmæli. Og að því tilefni fengum við kampavín og svona skemmtileg heit. Mjög Góður matur líka, við inga fengum okkur humar og graskerssúpu, rosa gott.

Svo á sunnudeginum var nú bara farið í búðir og flippað eitthvað á strikinu, sem var mjöög gaman. Um kvoldið var svo bara flogið heim, og það var náttúrulega seinkun eins og venjulega, því að einhver sigríður sem að var nbúin að tjekka sig inn í flugið, kom bara ekki og eitthvða vesen.
En við komumst heim í snjóinn á íslandi á endanum, þó að það hafi verið aðeins of seint að mínu mati. Og þá fékk ég að sjá sölkuna mína, sem er orðin svo stór og farin að tala svo mikið, ohh hún er algjört æði þetta barn! "klistín amla stóla systir" og svo segir hún "sakka er klútt og dúllurass" jæja egóið er allavega í lagi hjá henni, en þetta er reyndar satt sem hún segir.

Allavega þá voru svo jólin góð og áramótin líka. ég fékk auðvitað mín tíu tonn af jólagjöfum, og er mjög sátt bara, enda ekki annað hægt.

Það er of mikið að skrifa um allt sem að ég gerði á íslandi fir jólin, en það er mjöög mikið, hringiði bara í mig ef að þið viljið vita meira um dvöl mína á íslandi.

Hápunktur ferðarinnar (og ársins held ég bara) Gerðist samt þegar að ég var á Chillinu niðrí vinnu hjá pabba og það var áramóta þáttur hjá þeim í kastljósinu. Og ég var þarna eitthvað að glugga í séð og heyrt og spjalla við eitthvað fólk þegar að Idolið mitt birtist bara eins og þruma úr heiskýru lofti. Sjálfur meistari Múgison bara mætti á svæðið, og ég get svo svarið fyrir það að ég kikknaði í hnjáliðunum þegar að ég sá hann. Svo sætur er hann, og þvílíki hæfileikinn sem að þessi drengur hefur, jeminn eini, í hvert skipti sem að maður hlustar á hann þá fyllist maður svo miklu þjóðarstolti að maður veit ekki hvert maður ætlar. Allavega ég! Þessi drengur á pottþétt eftir að meika það á erlendri grundu.

Annars þá fór ég til baka til DK 6 jan, og þar beið mín skemmtilegur jólapakki, Sjálfur Fróði litli. Sem að er 9 vikna Beagle hvolpur. Ekkert smá sætur og góður. Gott að fá svona yndislega veru uppí hendurnar eftir frekar erfiðan tíma...

Allavega þá á þessi hvolpur sko hug og hjarta okkar allra, og sérstaklega mömmu held ég bara, þetta er búið að vera draumur hennar mömmu að fá svona hvolp síðan að hún sá hvolpin hennar katrínar sem að var með mér í bekk. En Já ég er alveg veik líka fyrir honum, og þykir rosa gaman að vera að standa í svona hundastússi.

Jæja held að það sé ekki mikið meira til að segja ykkur í bili. Það eru myndir af Fróða
Hérna

Og svo er mamma með blogg, ef að þið viljið vita öll fjölskyldu leyndarmálin og beuty leyndarmálin okkar:) það er
hérna

Annars held ég að það sé kannski kominn tími til að kynna ykkur fyrir Karlmanninum í mínu lífi, þar sem að það gegnur eiginlega ekki að halda þessu leyndu lengur. Þannig að mamma og pabbi, hérna er mynd af honum, ég veit að þið eruð búin að bíða spennt eftir að fá að sjá hann. Vessgú!






31.12.04

Gleðilegt nýtt ár, og gangið hægt í gegnum gleðinnar dyr og ekki vera öfurölvi þegar að nýja árið gengur í garð:)

22.12.04

já fallega!
Þá er ég skriðin yfir á klakan, lennti hér heilu á höldnu aðfaranótt mánudags. Eftir ansi skrautlega en SKEMMTILEGA köben ferð með Ingu Rós!
Við skemmtum okkur SVOO vel að það eru ekki orð sem lýsa Því.
Nenni ekki að skrifa meira, en ég hef það gott og allt það.
skrifa fljótt aftur, bæ bæ

14.12.04

Óskalisti!

Hmm, kannski að maður hafi átt að vera búin að koma með þetta hérna inn fyrir löngu síðan. En ég er búin að ákveða að það hlýtur að vera einhver þarna úti sem að vill vita hvað mig langr í í jólagjöf. Það er ekki ein manneskja búin að spurja mig svo að ég verð bara að hjálpa mér sjálf.
En ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar nema tvær, en klára það á morgun eða fimmtud. reyndar fer fimmtudagurinn í að pakka niður, því að föstudagurinn fer í einhverja vitleysu eins og að sofa eins mikið og ég get og party..thss ætti held ég frekar að vera heima og lesa pollíönnu...

1) Ipod eða Ipod mini,lífsnauðsyn fyrir mig. Þar sem að ég er tónlistarfíkill og er líka búin að klára plássið á tölvunni minni með tónlistinni sem að ég Downloada. Þess vegna er Ipodinn lífsnauðsin því að hann tekur um 10.000 lög inná sig, en Ipod mini um 1000 lög. sem er mjöög gott. (Ipod mini kemur í 5 rosalega flottum litum)


2)fyrir fólk með skódellu á haú stigi er þetta mjög sniðug gjöf. Og þar sem að ég er skósjúklingur þá langar mig að sjálfsögðu í skó í jólagjöf...


3)snyrtidót. Held að það skýri sig bara sjálft, ég get ekki litðið út eins og kjáni í kringum alla þessa myndarlegu, Søreni, kaspera og Rasmusa...


4)Einhver mjöög djúsí náttföt til að chilla í á íslandi í kuldanum...


5)Ugg boots er líka nauðsyn í vetur, og já þetta eru stígvél sem að ganga við allt, og eru GEGGJAÐ mjúk og æðisleg. Salka á einmitt eitt par af þessum skóm og Oprah winfrey líka:)


6)boxers strákanærbuxur til að sofa í...BARA þægilegt


7)Friends..Auðvitað!


8)Tónlist í hvaða formi sem er..bara góða tónlist. that´s my pachion!


9)Eyrnalokkar og eitthvað svoleiðis dúllerí, eða fylgihlutir...


10)Einhvern geggjaðan bol, með flottri mynd eða setningu. eins og bolirnir úr nonnabúð, Dogma og ósoma...


Okei, þetta er svona það helsta..og mig langar í miklu meira. En annars þá er þetta ekki topp tíu listinn,heldur bara raðað niður af handahófi. Fyrir utan Ipodinn, sem er NR EITT!!!!!

11.12.04

Ég ætla að reyna að tína saman svona Golden mometns frá DK, ætti ekki að vera erfitt en kannski skilja ekki allir ruglið í fólkinu hérna úti. En það kemur ekki strax. hehe, en líkleg með næsta bloggi.
Það er allt rosa gott að frétta frá mér, ég byrjaði í nýjum bekk á mánudaginn og er núna með Pernille í bekk. Sem er mjog fínt bara. Reyndar var ég orðin mjog þreytt í endann á vikunni, eftir að hafa talað dönsku nánast stanslaust síðan á föstudaginn í síðustu viku, og það er bara of mikið fyrir mig.
Annars er fátt sem að kemst að í hausnum á mér núna þessa dagana fyrir utan það að ég og Inga Rós erum að fara að hittast í Köben eftir eina viku! Ég er alveg að farast ég hlakka svoooo mikið til. Við erum að fara að versla og hygge os. Svo fljúgum við saman heim til íslands næsta sunnudagskvold. það verður æðislegt hjá okkur.
Svo á sunnudagskvoldið fæ ég að sjá Pabba gamla og Birnu og Sindra og svo Auðvitað aðal skvísuna, hana Sölku.Ég get ekki beðið eftir að fá að knúsa hana í kremju..!!!


2.12.04

já þetta var nú bara svona smá upplyfting í skamdegið. Engar áhyggjur, ég held áfram að blogga á íslensku. Þetta var bara Pernille sem að vildi fá að vita um hvað bloggin mín snérust, hún heldur að hún sé að missa af einhverju (sem er satt) svo að´ég er farin að kenna henni íslensku, og svo leiðréttir hún mig ef að ég segi eitthvað vitlaust a dönsku.Þessi kennsla gengur mjög vel, og Pernille mjög góður nemandi, hún lærir eina setningu á dag, en á reyndar mjög erfitt með framburðinn. En hann kemur, bara svona eins og þegar að íslendingar læra að tala "með kartöflu í hálsinum"...
Annars er allt gott að frétta ég er að fara að hitta ingu mína eftir rúmlega tvær vikur, og shiiit hvað ég hlakka til! Þá verður allt gert vitlaust í Köben maður, og í flugvélinni á leiðinni heim.
Svo kemur Pernille og Joinar á klakann 28 des og verður á áramótunum. og fer svo aftur heim með mér 5 janúar, það verður bara gott að hafa ferðafélaga báðar leiðirnar til og frá DK, og auðvitað gaman að fara til íslands og hitta alla og svo að fá að vera svona GUIDE um landið(höfuðborgarsvæðið)
En jólin eru að koma og ég bara komin í þetta fína jólaskap, en það veðrur líklega ekki neitt að alvöru fyrr en maður kemur heim í kuldann á íslandi.
Talandi um jólin, þá svona smá fyrir þá sem að vilja fá jólagjöf frá mér, þeir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við mig, svo að ég geti gefið þeim upp reikningsnr og kennitölu. Svo að þeir sömu geti lagt inná mig pening, svo að ég geti keypt jólagjafirnar. Þannig er nefninlega mál með vexti að ég er fátækur námsmaður í Útlöndum sem hefur ekki efni á jólagjöfum.
en ég er farin. blessbless

En í lokin kemur ein yndisleg mynd...

óóóó, hvað ég sakna hennar litlu sistur mikið!

29.11.04

OK, nu skal I få det afvide som skulle være en overraskelse. Det er at jeg skriver på dansk!
jeg håber bare at I kan godt forstå hvad jeg skriver, men hvis I ikke gør, kan I bare skrive det i "komments"

Aníhú, så var weekenden fin, altså meget rolig. Eller måske ikke fredag. Fordi at der var låra og jeg på Paddys. Det var jo herre sjovt men det var jo en fejl, at låra ikke kunne danse, og jeg savnede DING. Så jeg tror at jeg kom hjem ved 02:00 tiden.
I lørdags lavede jeg ikke en skid, fordi at jeg var så doven at jeg lå i min seng hele dagen og så fjernsyn. Om aftenen var jeg så pisse træt at jeg bare blev hjemme og hyggede mig, mor og far var til fest hos vores venner så det var jeg og de små som var hjemme.

I søndags var jeg også doven, og jeg havde fucking hovedpine og sådan noget.

Nu tror jeg ikke at jeg har mere at sige, så jeg smutter..HEJ

25.11.04

Á morgun, munið þið fá að sjá nokkuð sem hefur ekki sést áður á íslenskri bloggsíðu...