Oh my lord!
Mig langar mest í heimi núna að fara heim til Danmerkur og Íslands að knúsa litlu systkini mín, veit ekki af hverju þessi löngun er svona hrikalega sterk akkúrat núna, en svona er þetta. Það er næstum hálft ár þangað til að ég fæ að knúsa þau og vera með þeim aftur, og þá verður það bara í smá tíma...:( En það er annars nóg af börnum hérna til að knúsa, það er ekki það, en ég sakna litlu snúðanna minna.
Annars þá hef ég það mjög gott eins og vanalega, er búin að afreka að þræða tvö HUGE moll á síðustu 3 dögum og eyða smá pening.
Dante, pabbi krakkana átti svo afmæli í gær og það var auðvitað gert ýmislegt skemmtilegt í tilefni dagsins, og það var auðvitað svaka gaman. Nú í gær skruppum við Dante einmitt líka í smá spítt-túr á mótorhjólinu, og Djísess hvað það var ógeðslega gaman og hressandi að fá vindinn á sig.
Í dag var svo haldið í leiðangur að ná í afmælisgjöfina frá fjölskyldunni, og það var þessi líka ógeðslega flotti Mustang blæjubíll, ekkert smá flottur bíll (verst að ég er ekki komin með bílpróf) En allavega þá á meðan þau voru að sækja græjuna í dag þá ég með Alexöndru og Evu Maríu í mollið á meðan, þar sem að þeim var svo heitt, og auðvitað loftkæling í mollinu, svo kom restin af famelíunni og við borðuðum auðvitað taco bell og svo fóru þau heim og kráfust þess að ég fengi almennilegan frítíma (nebblega alltaf þegar að ég fer í bíó eða í bæinn tek ég alltaf einhvað af börnunum með mér, þó að ég eigi að vera í fríi) Þannig að þau keyrðu heim og ég var ein eftir í mollinu, og ómægod hvað það var æðislegt! Bara fíla mig svo vel að vera ein að flakka á milli búða og rápa svona og dúllast ein með sjálfri mér.
Eníveis þá var ég svo sótt á blæjubílnum góða núna rétt áðan.
Hef ekki neitt meira að segja, nema vil koma skilaboðum til múttu minnar að Ég vil endilega fara heyra í systkinum mínum á skype...!!!
5 ummæli:
já eg vil líka knús!!!
en hvað heitiru á skype:D ætlað adda þér:D haha:D
stórt knús frá okkur englunum á engblommevej
( KNÚS OG KOSSAR )
gott að heyra að þu hefur það svonna fint þarna uti stina min, þrátt fyrir systkinaskort:) ...farðu nu samt að láta heyra meira i þer stelpa, etta er nu ekki alveg að gera sig!
en allaveganna... *stórt íslandsknús!* ...skal reynað skila skilaboðunum Til sölku að senda þer knus i pósti:)
djöfull hlýtur að vera gaman hjá þér úti...bara allt að gerast ;)!! en kristín i miss you....i need you so much arrrrrrrrrrrrrgggggg, hlakka til þegar þú kemur í desember híhí :D
Stína mín, stór og mikil knúúús og kissssssss frá okkur afa. Við söknum þín og hlökkum til að sjá þig í vetur. Njóttu þín kerlingin.
Skrifa ummæli