úff hvað er búið að vera mikið að gera hjá mér uppá síðkastið!
Ekkert smá, en ég ætti kannski að segja ykkur frá hápunktunum...
3. júlí fórum við í paramount kings somthing skemmtigarð, en þetta var risa tívolí með ógeðslega stórum rússíbönum og skemmtileg heitum og svo var þessi líka HUGE Water world , sem að ég stóð í klukkutíma í biðröð eftir að komast í eina rennibraut (var reyndar alveg þess virði..) En annars var líka hægt að hitta ýmsar teiknimyndapersónur eins og Scobby doo og spongebob vin minn. En ég missti af honum, hann var klukkan 3 á einhverjum ákveðnum stað og við vorum alveg hinum megin í garðinum og komum hálftima of seint eða eitthvað, en ég á nú alveg eins von á að við skellum okkur aftur í þennan garð, allavega mæli ég með að þið skellið ykkur í hann ef að þið eigið leið um Virgina fylki.
Nú 4 júlí var auðvitað eins amerískt og hugsast getur, extra Amerískt hjá okkur því að við vorum inná Base í washington og já, eins og allir vita þá snýst líf flestra ameríkana um Herinn. (og rendar líka frægt fólk og þyngd, en það er allt annar handleggur) Þannig að við vorum þarna umkringd hermönnum og hermanafamelíum (uh reyndar eru þau hermannafamelía sem að ég bý hjá en þau dýrka ekki herinn fyrir það;)) Nú við borðuðum bara á Burger King og til að gera þetta aðeins amerískara fékk ég mér super size pepsi, svona í tilefni dagsins, en þá fékk ég glas sem að var einn og hálfur lítri og svo auðvitað fríar áfyllingar..uhh, þarf kannski ekki að taka það fram að ég fyllti aldrei á glasið, en allavega...
Svo þegar að þjóðsöngurinn var sunginn stóðu allir upp, horfðu í einhverja ákveðna átt og voru með tárin í augunum og hægri hendina í hjartastað..hihi Allt voða væmið og amerískt eitthvað. En svo voru líka þvílík skemmtiatriði og flugeldar um kvöldið (þvílíkt stórir flugeldar)
En voðalega gaman að upplifa þetta allt.
Eva María varð svo eins árs 7 júlí og þá var sko farið á tjökkí tjís, og haldið uppá afmælið þar, voða gaman.
Svo skelltum við okkur í sumarbústað um helgina, sem var allt ótrúlega nice, flottur bústaður og á flottum stað, ég var reyndar heima á laugardaginn með stelpurnar litlu Alexöndru (7 vikna) og Evu Maríu (1 árs) fór eitthvað inní herbergi með aðra hvora þeirra til að sipta á bleyju þegar að ég heyrði eitthvað þrusk, og kallaði "halló" en fékk ekki neitt svar, svo þegar að ég kom fram aftur var þá ekki bara eitt stykki íkorni á eldúsborðinu í góðum gír að éta kókópoffs!! En þetta er ekki allt, svo þegar að dömurnar áttu að fara að lúlla, ákvað ég að setja þær í kerruna og rölta um svæðið og kíkja á mannlífið þarna í skóginum, þá kom nú bara eitt stykki huge eðla takk fyrir góðan daginn, og labbaði bara samferða okkur þarna í svona eina mínútu eða svo. Já þetta var ekkert smá mikill lífsháski fyrir mig, og nú hef ég komist að þvi að íkornar borða kókópöffs og eðlur vilja félagsskap þegar að þær eru úti á röltinu!
Aðal fréttirnar héðan frá ameríkunni eru þær að ég fékk tilboð um að framlengja ferðina, eð vera fram til næsta sumar. Ég er búin að vera þetta undir nefndina, sem gaf grænt ljós og ég verð sem sagt hérna þangað til næsta sumar, En ætla nú að skreppa til múttu um jólin og fá eitthvað almennilegt að éta!
Annars vildi ég nú óska Sæunni og hilmari til hamingju með nafnið á spriklu litlu, hún heitir þessu líka falega nafni Bergrún Sól (ég vissi reyndar Sólar-nafnið) en allavega til hamingju með nafnið, og knúsið nú Bergrúnu Sól frá mér :)
Uhh, held að þetta sé allt. nema kannski að það er farið að hitna hérna, ég er ekki alveg að meika þennan ógeðslega hita og er farin að taka strákana oní sundlaugina og hanga þar oní í boltalek og svona, því að það er eiginlega eina leiðin til að vera úti, eða bara gera eitthvað yfir höfuð. Og svo er mér sagt að ágúst sé langheitasti mánuðurinn, en svo fer aftur að kólna pínu í september og október, svo kemur veturinn í janúar og svo vorið í mars...NICE!!
Jámms, allavega. þá langar mig að minna á msn-ið mitt sem er kristinalma@hotmail.com og svo e-mailið sem er kristinalma@torg.is svona ef að þið viljið frekari fréttir...
4 ummæli:
hahahahah ertu bara orðinn e-r dýravinur þarna úti kristín mín? alla vegana það var mjög gaman að heyra einhverjar fréttir...ég sakna þín eins og HELL!!!! óska að ég gæti hitt þig bráðum...og það sérstaklega í ágúst, verð e-ð ein og yfirgefin hérna heima meðan binni verður á spáni í 3 vikur..en oh well svona er lífið :( en hey krútta ég heyri bara vonandi í þér bráðum...er ekkert símasamband þarna eða 8-) i wanna talk to you...
ohh biturleikinn alveg að fara með mig herna! haha...eg gæfi MIKIÐ fyrir að vera þarna i ameríkunni með þer!!!:D ...meiraðsegja uppblásnu kindina sem eg á reyndar eftir að kaupa;) en það er aukaatriði, amk hafðu þessa uppástungu á bakvið eyrað:D
... svo er ég ekki að trúa að þu ætlir að beila á verslunarmannahelginni stelpa! ÞJÓÐHÁTIÐ BEIBÍ! woohoo! stelpan fer eftir nákvæmlega 10 daga!:D *brjálæði!*
...well farðu svo að drífa þig aftur i heimsókn á klakann! Fengum nu ekkert almennilegt Tjútt herna saman þegar þu varst herna nuna i júní;) haha...allaveganna skemmtu þer bara æðislega þarna úti sólinni á meðan við rotnum herna i "íslenska veðrinu" sem er svo ekkert að gera sig!;*** (biturleikinn alveg i botni;) hehe)
Hæ sæta,
Gott að það er svona gaman hjá þér og þú lentir á góðri familíu... Hrossanesið er nú ekki samt án þín sko ;)
En passaðu þig bara á því að koma ekki ALL AMERICAN heim og drekka tvö súpersize glös af pepsi ;) heheheh ... En þú mátt nú svo sem alveg við því ;) ...
Kveðja úr Horsens, Ásta
úff.. þú ert að fara að vera ALLTOF lengi þarna úti stelpa! við söknum þín öll alveg á milljón! og satt hjá Lindu.. það var ekkert almennilegt tjútterí hérna þegar þú varst hér! sem er ekki nógu gott! má ég koma í heimsókn til þín e-n tíman=) ;* luw:* það er alltaf jafn tómlegt hérna á klakanum án þín!
Skrifa ummæli