13.5.07

Skotaveikin

Í dag var ég veik. Ég var með skotaveikina. Skotaveikin er veiki sem maður fær eiginlega bara á laugardags og sunnudagsmorgnum. Skotaveikin er einskonar ælupest. Mikil vanlíðan, mikið æl, mikill hausverkur og svo aðeins meira æl.
Neyddist svo til þess að fara fram úr rúminu klukkan 21.00 í kvöld því þá byrjaði Eurovision. Og til þess að forðast að kæfa sjálfa mig í koddanum þá ákvað ég að rífa mig uppúr veikindunum og koma mér á lappir. Þessi keppni er svo mikið djók. Algjört frat. Bara enn ein ástæða fyrir fylleríi.
Hlustaði samt á rás2 með öðru. En það var bara til þess að heyra í pabba. Sorglegt ég veit, en mér finnst pabbi minn sjúklega fyndinn. Sem kynnir. En barnalandskonum finnst það ekki og heldur ekki fólkinu sem kvartaði yfir nærbuxnabrandaranum. En ég er líka með lélegan húmor. Allir vita að barnalandskonur og öryrkjarnir sem kvarta yfir nærbuxnabröndurum í þjóðarsálinni eru með góðan húmor.

HEY, WHERE ARE YOU GOING???
-Gott dæmi um það sem mér finnst fyndið

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

haha Drykkjufrí þangað til á miðvikudaginn hehe

Nafnlaus sagði...

þú ert orðin meiri fyllibytta en ég hef nokkurn tíman verið!

Kristín Alma sagði...

Helga mín. Það mun aldrei ske. ;)

Nafnlaus sagði...

Amma Stína væri í sjokki yfir SKOTA lýsingunum ef hún vissi ekki betur

Brynja Björk sagði...

Mér finnst þú fyndnari en gamli.