Ég er búin að vera svo utan við mig síðustu vikur og daga að ég er alveg við hliðiná mér, eða jafnvel fyrir aftan mig, svei mér þá.
Ég gleymi ÖLLU sem er sagt við mig. Gleymdi að ná í bróður minn um daginn, gleymdi að fara til tannlæknis í tjékk útaf tyggjófíkninni, gleymdi slatta af afmælum, gleymdi að mæta í bíó og svo mætti lengi telja.
Ég var nú búin að vera góð í nokkra daga áður en ég fór til Íslands, en svo kom þetta aftur. Núna síðast gleymdi ég hleðslutækinu mínu á íslandi, Tax-Free nótunum heima þegar haldið var útá flugvöll (búin að hafa mikið fyrir að muna eftir að taka Tax-Free) og ég er búin að gleyma hvað þriðji hluturinn var.
Með þessu áframhaldi gleymi ég sjálfri mér einhversstaðar. Þakka guði fyrir að ég á ekki börn, þau væru löngu gleymd einhversstaðar, greyin.
2 ummæli:
Vona að þú gleymir ekki versluninni fyrir mig: Þú veist hvað ég yrði miður mín og hefði áhyggjur af framtíð þinni.
Kveðjur elskan.
Amma Stína
Gleymi aldrei að kaupa eitthvað. Enda með kaupsýki á háu stigi.
Skrifa ummæli