27.5.07

Babyland dot com

www.barnaland.is er frábær vefur.
Á barnalandi snýst nefninlega ekki allt um börn, eins og svo margir halda. Síður en svo. Á þessum vef má vissulega finna nytsamlegar upplýsingar um bleyjuskiptingar og brjóstagjöf. Þar má einnig finna heimasíður misfagra ungbarna og hægt að kaupa og selja allt milli himins og jarðar. Allt frá sprækum ánamöðkum uppí bíla og megrunarkúra.
Spjallþræðir fyrir tilvonandi verðandi mæður, verðandi mæður og mæður. Gasalega sniðugt ef að maður er ekki viss hvað gera skal ef barnið manns er með 41 stiga hita og með krampa. Eða hvað gera skal ef ungbarnið vill ekki taka snuð.
Svo er aðal giggið. Spjallþráðurinn "Annað". Þar er allt fjörið. Á þeim þræði er sko ekki rætt um hvort Nuk eða Avent pelarnir séu betri eða hvort sé betra, Huggies eða Pampers. Aldeilis ekki. Þar er rætt um hin ýmsu málefni. Og ómálefni (Ég má segja Ómálefni. Ég bý í útlöndum og segi Óframtakssemi. Get over it).
Stundum er meira að segja talað um pólitík og mál líðandi stundar. En það gerist ekki oft. Mest er verið að tala um hvað Brynja Björk á ljóta skó eða hvað konan í næsta húsi er glötuð móðir að láta barnið sitt sofa úti í 3 stiga hita og rigningu. Sem sagt svona eldhúsborðaumræða svokölluð. Eins og fer fram útá landi, þar sem að nágrannakonurnar hittast, sitja við eldhúsborðið, drekka kaffi og baktala fólkið í plássinu.
Oftar en ekki hefur maður lesið eitthvað ógurlega skemmtilegt um sína eigin fjölskyldu. Sem maður vissi ekki áður, nota bene. Best fannst mér þó þegar að Byrgismálið stóð sem hæðst að eitt gáfumennið hélt því fram að Guðmundur væri pabbi Sigmars í Kastljósinu.
Stundum gerist þó að maður dettur niðrá eitthvað djúsí. Eins og í kvöld. Það var ekki lærdómsfriður fyrir þessum kellingum. Það var auðvitað framhjáhald í beinni. Maður að halda fram hjá konu, bróðir konunar sendur til að staðfesta grun konunar, sem komst ekki sjálf, löggan mætt á svæðið, maður með kúbein í bílnum og 16 ára barn fylgdist með öllu saman meðan konan sat við tölvuna, með barnið í símanum og póstaði inn jafnóðum hvað væri að ske.
Nákvæmlega það sem ég myndi gera ef einhver myndi halda fram hjá mér. Pósta því á barnaland.
Stundum er líka einelti, flett ofan af nikkunum og ég veit ekki hvað og hvað.
En oftast er samt bara verið að tuða yfir ömurlegum eiginmönnum, monnta sig af ljótum börnum og slúðra.
Elzka barnaland.is :)

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hollywood hvað!!!!!!!! Ég bara spyr Barnaland er aðalmálið hehe

Ragga Rokkar sagði...

Hahah snilld !!

Gubjug sagði...

Gvuð ég er sammála...Ef mér leiðist hrikalega þá fletti ég í gegnum slúðrið á Barnalandi.
Ég hins vegar stend við það að falla ekki í þann pakka að svara eða taka þátt í umræðunum - finnst ég nógu "óhrein" að skoða þetta hehe :)

Brynja Björk sagði...

Og ég elska þig. Þú ert fyndnust. Barnaland.is er sneiðmynd af hvíthyskinu á Íslandi.

Ég tók nauðgunarsturtu síðast eftir að ég las þennan vef.

Nafnlaus sagði...

Haha þetta er ótrúlegt, þetta gerir þá fólk sem leiðist alveg hryllilega...skoða barnaland meina ég auddað:O

Nafnlaus sagði...

Ég er þeirrar skoðunnar að þarna eigi bara að ræða jú börn, barneignir og allt sem því viðkemur. Þessi síða er til skammar og leiðinlegt að hún skuli bera þetta baralands nafn. Getur fólk ekki fengið útrás fyrir ruglið einhversstaðar annarsstaðar? Maður spyr sig?
En virkilega skemmtilegur pistill hjá þér Stína Stuð ;)

Nafnlaus sagði...

Ja sammála síðasta manni, enda verður okkar gaukur víst ekki þarna heldur á barnanet.is sem er vonandi skárra:s