Æji kannist þið ekki við svona daga, þegar að það er komin 25 stiga hiti klukkan 11.00 og glampandi sól og það síðasta sem maður vill gera er að vera með nefið ofaní skólabókum?
Svo klukkan 12.00 kastar maður bókunum frá sér, gefur skít í lærdóm og leggst útá verönd með iPodinn til að "vörka tanið". En það er of heitt í garðinum svo að eftir klukkutíma er maður klístraður af svita og sólarvörn. Þannig að maður ákveður bara að fara á ströndina og flatmaga þar restina af deginum?
Æji þið vitið hvað ég á við, er það ekki?
Allavega svona var dagurinn hjá mér í dag. Heitt! Heitt! Heitt!
Skaðbrenndist annars í dag. Ekki útaf sólinni heldur af því að ég eldaði í kvöld. Gerði alveg rosa gott lasagne og mun líklega alltaf bera það utan á mér, á hendinni það er að segja.
Ég er núna að borga sektina fyrir að hafa farið á ströndina í dag. Verð örugglega að læra þangað til að ég fer í skólann í fyrramálið. En það er allt í lagi, get sofið allan daginn á morgun á ströndinni...
Vona að þið hafið það gott í stinningskuldanum og súldinni heima.
3 ummæli:
Já kannast við svona daga. Breki er bara ánægður með rigninguna og rokið í sveitinni og vill helst sofa allan daginn og vaka á nóttunni. Spurning hvort að hann megi ekki bara vera með þér bara, þið eruð með svipaðan sofutíma.
En gaman að við verðum með hendurnar í stíl, ótrúlega flott að vera með risa ör á hendinni eftir eldamennsku :)
Farðu nú að koma þér til Íslands
Issss gott veður ???
Ekki hérna á Íslandi hnusssss....
Tuðran þín!
Skrifa ummæli