Það er alveg með ólíkindum hvað fólki virðist finnast eðlilegt að einhverjum útlendingi sé veittur íslenskur ríkisborgararéttur eftir einungis 15 mánaða dvöl á Íslandi. Allavega ef að þessi tiltekni útlendingur er tengdadóttir Jónínu Bjartmarz.
Svo talar fólk ekki um annað hvað Helgi Seljan hafi verið dónalegur og leiðinlegur við Jónínu í Kastljósi á föstudaginn. Jónína svaraði engum spurningum af ráði. Hún tuðaði bara og snéri útúr. Helgi spurði og Jónína svaraði.. ekki.
Fólk sakar Helga um að vera bara að klína svona "rugli" uppá Jónínu vegna komandi kosninga. Af hverju ætti hann að vera að því? Svo að fólk hætti við að kjósa framsókn og kjósi frekar Helga?
Nei, mér finnst kúkalykt af þessu. Fyrst það er góð og gild ástæða fyrir að stelpan fékk þennan ríkisborgararétt bara sísvona, af hverju þá ekki að gefa hana upp?
Fááááránlegt að veita útlendingi sem hefur verið hérna í ár ríkisborgararétt. Fáránlegt.
Aldrei kaus ég Framsókn.
4 ummæli:
Tísöss hvða ég er sammála þér! Fannst hún dónalegri en hann ef því er að skipta.
Ef þú kýst sjálfstæðisflokkinn, þá kýst þú framsóknarflokkinn, svo einfalt er það.
Hver sagði að ég hefði kosið Sjálfstæðisflokkinn?
Skrifa ummæli