19.4.07

Áiii

Við vorum eitthvað að ræða stjörnuspá áðan. Svo kem ég heim og ætla aðeins að lesa moggann. Nei þarf ekki helvísk stjörnuspáin mín að poppa upp. Ef þetta kom ekki eins og blaut tuska í andlitið á mér þá veit ég ekki hvað.


Fiskar:
Ef þú getur ekki byrjað á því í dag og heldur ekki í kvöld, hvenær þá? Eftir 17 ár viltu ekki vera að pæla í hvað þú gerðir í staðinn. Byrjaðu núna!


Oj, ég ætla ekki að vera einhver sveitt-þreytt-feit, einstæð og reykjandi Fella-mamma eftir 17 ár. Á örorkubótum, barnabótum og eiga 3 börn með 5 mönnum.
Hugsandi um að ég hefði kannski getað drullast til að opna bók í staðinn fyrir að horfa á 18. þáttinn af Desperate Housewifes, niðurhala tónlist til að setja á iPodinn og drekka sykurkók.
Oj oj oj. Sé þetta fyrir mér. Ætla að læra og er svo farin í megrun á mánudaginn..

(Samt geðveikt góður Despó þáttur.)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert nú alveg draumur, elsku kerlingin mín!!
Kveðjur frá ömmu Stínu

Nafnlaus sagði...

Þó ég sé enginn tölvusnillingur þá veit ég þó að MBL hefur cookies og getur munað eftir því að þú ert fiskur þegar þú hefur skoðað stjörnuspána einu sinni.

En Kristínu Ölmu bregður á hverjum degi, ótrúleg tilviljun! :-)

Ragga Rokkar sagði...

Sko það víkur sko allt fyrir Despó !!!