22.4.07

Flosi

Þetta er Flosi.
Hann er skjaldbaka.







Eigandinn er farinn í praktík til Íslands svo ég tók litla greyið í fóstur á meðan. Held reyndar að það fóstur muni teygjast eitthvað svolítið mikið lengi.
Skjaldbakan hét ekki neitt, svo það var rifist um það hérna í heilann dag hvort að hún ætti að heita Mosi, Snati eða Flosi. Ég vann. Næst á eftir kom Eyjólfur með nafnið Snati og mamma skít tapaði með Mosa nafnið.
Hann heitir sem sagt Flosi í höfuðið á Írisi. Hljómar kannski svolítið bjánalega í eyrum ykkar, en hún Íris getur ekki munað nöfn og kallar Fróða (heimilishundinn) Flosa og Ingibjörgu, Margréti.
Þess má geta að Fróði er skíthræddur við Flosa litla. Stóð í gærdag fyrir utan herbergið mitt og gelti. Í dag þorði hann reyndar að kíkja aðeins innfyrir dyrnar, en honum lýst ekkert á þetta kvikindi sem er búið koma sér vel fyrir inní herbergi.

Þetta eru lélegar myndir. En nennti ekki að taka hann uppúr búrinu og eitthvað vesen.

9 ummæli:

Brynja Björk sagði...

Sjitt hvað hann er sætur!!!!

Ég er græn af öfund.

Kristín Alma sagði...

Ef ég væri strákur myndi ég nota þessa pick up línu: Hey, viltu koma heim og sjá skjaldbökuna mína?

Eða klappa skjaldbökunni minni.

:)

Nafnlaus sagði...

þú getur alveg notað það á stráka;)

Viltu koma heim og klappa skjaldbökunni minni? hmmmm ég myndi allavena segja já við þig;) hahah

Kristín Alma sagði...

Oj, þetta er ógeðslega perraleg lína!

En annars gott að þú myndir ;)

Nafnlaus sagði...

Mín uppástunga var reyndar Moldi en bara þangað til að Íris fór að kalla hundinn minn Flosa....

Brynja Björk sagði...

HAHAHA Oj þið eruð smekklegar! Klappa skjaldbökunni:D

Nafnlaus sagði...

Hverskonar subbuskapur er þetta hjá ykkur, stelpukjánar. Kristín, farðu að leika þér með ponyhestana þína.

Kristín Alma sagði...

Fyrirgefðu, en subbuskapur?

Hvað sérð þú ógeðslegt við það að klappa FLosa? Hann bítur ekki.

ohh, þetta fullorðna fólk er svo skrýtið.

Nafnlaus sagði...

hahaha þú ert æði;*