Það hefur aldeilis verið dekrað við þetta barn síðustu 6 árin, sást það best þegar að hann fór ekki að labba fyrr en hann var orðinn 18. mánaða gamall. Það var auðvitað bara vegna þess að hann þurfti ekkert að fara að labba þegar að hann var með 5 kvennmenn á heimilinu sem ruku til í hvert skipti sem að barnið gaf frá sér hljóð.
Núna er hann byrjaður í skóla, farinn að reikna og búinn að læra íslensku stafina og dönsku. Er að læra að lesa núna og það á tveimur tungumálum.
Til hamingju með afmælið, elsku litla skjaldbakan mín.


1 ummæli:
vááá hvað hann er orðinn stór! man nu herna í denn þegar ég passaði hann á kvöldin... guuuuð hvað það er langt síðan. mér finnst ég vera orðin gömul!!
Skrifa ummæli