19.3.07

Bara ein 1.árs Katla

Eitt ár líður alltof hratt.
Fyrir ári bloggaði ég svona og svona.
Æji mér fannst svo gaman að fá hana til okkar. Hún er svo skemmtilegt barn, svo mjúk og falleg.
Ohh hvað ég er að verða gömul.







17.3.07

A-Manneskja dauðans!

Mamma og Gúmmípabbi minn eru í einhverri "menningarferð" á Ítalíu. Þannig að ég er búin að vera heima með Eyjólf minn síðan á Miðvikudaginn. Búið að vera alveg ofboðslega hugglegt hjá okkur og erum við búin að brasa margt saman , systkinin.
Það er bara einn galli á þessu. Það er alveg pain in the ass fyrir mig að vakna með barnið. Hann vaknar alltaf eins og Reynir Pétur. Svo glaður og talar algjörlega útí eitt. Mér líður stundum eins og ég sé með Hemma Gunn á spítti, munnræpan er svo mikil.
Þetta væri samt ekki mikið mál að höndla ef að ég væri ekki svo mikil B-manneskja að ég sprengi eiginlega skalan og fer eiginlega bara yfir í að vera Þ-manneskja og hef ALLTAF verið.
Þannig að þegar við Jójó litli erum að gera okkur klár í skóla og leikskóla þá þarf ég að bíta í tunguna á mér til þess að segja ekki eitthvað hræðilegt. Því það er ekki nóg með það að ég sé hrikaleg B/Þ manneskja, heldur er ég svo morgunfúl að kölski má vara sig. Þetta vita ALLIR sem hafa einhverntímann umgengist mig fyrstu 2 tímana eftir að ég vakna, alveg frá því að ég var lítil. Og Salka Systir er eins. (Hvaðan skildum við hafa þetta? Ha, Pabbi?)
En allavega þá var Vilborg mín að passa Jójó í gærkvöldi svo ég kæmist í afmæli til hennar Vinnie, hún lét hann fara að sofa klukkan 22.00 og barnið var vaknað klukkan 08.00 í morgun. "Góóóóóóóðaaaaan daaaaaaagiiiiiinnnnnnn Kriiiiiiiistííííííín, það er kominn DAAAAAAAGUR" vaknaði ég við í morgun.
Þess vegna er ég nú vöknuð, búin að klæða og fæða barnið, planta honum fyrir framan barnaefnið, taka til, setja í vél, búin að lesa netið, svara smsum frá fylleríis liðinu sem ég beilaði á klukkan 2 í nótt til þess að vakna með barninu og er að fara út að láta hundinn pissa. Klukkan er ekki orðin 10.00 á laugardagsmorgni. Svo ætlum við Jójó að leyfa unglingnum henni Vilborgu að sofa (Eitthvað sem ég hef skilning á) og skella okkur í sund.
Hressleikinn er alveg að gera útaf við mig..

Vá hvað ég ætla mér aldrei að verða svona A-manneskja.

16.3.07

Stóra Tillamálið

Í gær sat ég hérna í mestu makindum í sófanum, með tvo kíló af nammi og með því og var að spjalla á msn. Þegar að gæludýrið gaf frá sér öskur um að það væri komið nýtt skilaboð. Ég ákvað að standa upp og ná í kvekindið, enda ekki á hverjum degi sem að maður fær skilaboð (Reyndar fæ ég nokkur á dag frá Abdul, en það telst ekki með). Ég hoppaði af gleði þegar að ég sá að þetta var myndskilaboð, en reyndar úr óþekktu númeri.
Skilaboðið hét "Den". Þegar að ég opnaði skilaboðið brá mér heldur betur í brún. Þetta var mynd af einhverjum tilla og textinn sem fylgdi með var "Hann hlakkar svakalega mikið til" (á dönsku).
Ég var að sjálfsögðu við það að láta lífið úr forvitni og fletti númerinu upp á Krak og Gulu síðunum en fann ekkert.
Mikið svakalega vona ég að þetta sé einhver sem er að senda í vitlaust númer, því ég bara höndla ekki að hafa fleiri geðsjúklinga á eftir mér.

Ég er með þessa mynd inní tölvunni, en kann nú ekki við að pósta henni hingað. Við erum nokkur búin að reyna að leysa þessa ráðgátu en ekkert gengur. Enginn kannast við þennan typpaling. En allir þeir sem eiga hvítar Björn Borg nærbuxur liggja undir grun...

15.3.07

Angelina Guðmundsson?

Ég skil ekki af hverju Pabbi og Angelina Jolie giftast ekki.
Þetta er hið fullkomna par. Sama hobbý, safna börnum..

(Kann samt mjög vel við Þóru)

14.3.07

Fyrir 19 árum!

Fæddist þetta litla og reiða grjón.
Dáldið flippað að hugsa til þess að maður hafi einu sinni verið u.þ.b. 50 cm og 15 merkur, í dag er ég orðin 173 og hálfur sentimetri og aðeins meira en 15 merkur.







Í dag held ég uppá 19 ára afmælið mitt.
Já, í dag er einmitt ár síðan að ég fékk leyfi til að keyra í Danmörku, spila í spilakössum og kaupa tóbak. Guði sé lof. Hef keypt sígarettur 2 sinnum, bæði skiptin fyrir Lindu sem varð 18 ára 1. október og mátti ekki kaupa sjálf. Aldrei spilað í spilakassa í lífinu samt. Eitthvað sem ég verð að prufa fyrir 20 ára afmælið. Þá fer ég full í spilakassa. (Má maður ekki annars kaupa áfengi 20 ára á Íslandi?)
Annars er fínt að frétta. Búin að heyra danska afmælissönginn full oft í dag reyndar svo hann glymur í hausnum á mér. 2 skyndipróf í skólanum, sem er auðvitað bara eitthvað til að vera með leiðindi á afmælisdaginn minn, það eru aldrei skyndipróf í Danmörku.

Reiða grjónið..

13.3.07

1árs


1. árs Salka



Næstum því 1. árs Katla með slef
Jahá!

Djöfull eru danir klikkaðir.

Vorið

Það er svo mikið sól og sumar hjá mér að það er eiginlega bara fyndið.

Froggie bara búin að rífa hjólið útúr bílskúrnum og farinn að hjóla um allt með Ipod í eyrunum og D&G sólgleraugun á hausnum. Stefnir á að kaupa línuskauta sem fyrst, því hann er kominn með særindi í rassinn sökum hjólasportsins. Leiðinlegt ef að hann þarf að sitja á klakapokum það sem eftir lifir vors.
Nú Froggie er búinn að ná sér í frekar slæmt tilfelli af tanorexíu og hugsar nú einungis um það hvernig hann getur náð að worka tanið sem mest.

Afmælis á morgun og er Froggie að standa sig eins og hetja í bakstirnum, ef einhver skildi líta við í kaffi hérna í Stensballe slotið í dag og á morgun í næstum því stórafmælið.

Hí á ykkur í kuldanum.

12.3.07

Svo gaman að lesa blogg hjá svona hálfvitum.

11.3.07

Svart-Hvíta hetjan mín..

Hvernig ertu í lit?

Ég er að henda inná tölvuflakið mitt 100 íslenskum sumarsmellum og þetta er nú meiri snilldin. (Tekur hálftíma fyrir hvert lag að hlaðast inn) Allskonar ódauðlegir slagarar á borð við "Toppurinn að vera í teinóttu", "Frækorn og flugur" og "Rabbabara Rúna". Mæli með þessu!

Helgin var aldeilis tekin með trompi.
Byrjað á fimmtudaginn í afmæli á Nørregade 9 þar sem allir 40 fermetrarnir voru pakkaðir af karlmönnum og mér. Svo lá leiðin á Koks þar sem að nokkrar gajol (Vá, fer ósjálfrátt að syngja Gajol lagið góða) flöskur fengu að fjúka. Var dáldið svakalegt að horfa uppá þetta, en skemmtilegt engu að síður.

Á föstudaginn var svo kíkt á skólabarinn um 4 leytið. Páskabjórinn kominn og stemmning í liðinu. Um kvoldið var það svo innflutningspartý hjá Ara og Sigrúnu en ég var ekki alveg að standa mig í að vera hressa gellan og geispaði næstum golunni þar. Ekki vegna þess að það hafi verið svo leiðinlegt, heldur vegna þess að ég hafði sofið tvo tíma nóttina áður. En reif mig uppúr þessu þar sem ég var búin að lofa fólki að vera hress til klukkan 6 um morguninn. Og aftur var ferðinni heitið á Koks þar sem að leiðinlegi trúbadorinn í gulltakkaskónum var að spila, reyndar hætti hann mjög fljótlega eftir að við komum og þá tókum við uppá því að syngja Íslensk dægurlög, barnalög og þjóðlög okkur til mikillar skemmtunar og öðrum til ekki jafn mikilla skemmtunar. Síðan hvenær fór dönum að finnast íslenski þjóðsöngurinn leiðinlegur?
Crazy Daisy beið svo og það var sko dansað af sér rassgatið. Síðan var það bara pizza hjá Ronní og félögum á Delons og þeir gáfu mér rós. Spurning um að slaka aðeins á í pizzu átinu eftir djömm, ef að maður er orðinn svona uppáhaldskúnni.

Laugardagurinn var heldur ekki á verri endanum, en Jói varð 25 ára og að sjálfsögðu var partý á The mansion bar. Við Stjáni,Herra Bjarni baun,Einar og Jón Pétur létum okkur ekki vanta og það var líka þetta feiknastuð á liðinu. Afmælisbarnið í Buffaló skóm með dead bindi á hausnum, ráptuðra sem tók hvern sem vildi í kirtlaskoðun og notaði pikköpplínur eins og "Þú ert bara eins og selur" og önnur sem tjáði fólki að hún elskaði að fara í 3-some.
Ég var bara dömuleg í þessu partýi. Var í hælum með sléttað hár og glossuð. Með rakaðar lappir og Gucci tösku. Ekki á hverjum degi sem það gerist, en er farið að verða æ algengara.
Kom svo heim, fór í tölvuna og ropaði. Enda búin að vera dama frekar lengi og það er ekki létt.

Rétt að taka það fram svona áður en að fjölskyldan á Íslandi pantar fyrir mig pláss hjá SÁÁ að ég var edrú allahelgina og á bíl, skemmti mér samt alveg konunglega - Ekki allir sem geta það.

Í dag var ekki nema 15 stiga hiti og glampandi sól svo ég og Fróðinn minn skelltum okkur út að hlaupa. Næstum 5 kílómetra, sem ég hélt að ég myndi ekki lifa af og var orðin blá í framan af súrefnisleysi þegar að ég loksins náði heim. Svo var líka heitt.
Reif fram D&G sólgleraugun og (sem eru orðin þokkalega last season by the way) fór með sálufélaganum og Stjána á kjúklingastað. Og það var étið. Tók því að fara út að hlaupa...

Þetta er ógeðslega leiðinlegt og langt blogg. Sá sem nennti að lesa allt fær að senda mér Heilsu tvennu frá lýsi, 2 karton af silfurlituðu extra (Ég á 3 pakka eftir og það gerist eitthvað hræðilegt þegar að þeir klárast, veit það.), nammi og litla, hvíta apple kvikindið...

10.3.07

Ljótasta mynd í heimi..

Jesús Pétur hvað þessi mynd er fyndin!
Var búin að gleyma henni.
Quarashi tónleikar í höllinni hérna um árið...
Sjittafokk, hvað þetta er vangefin mynd!

9.3.07

Meira af alí baba

Abdul hefur ekki látid heyra í sér í 25 tíma og 40 mín. Greinilega gefist upp á mér. Vona thad. Stelpurnar í bekknum héldu ad ég væri komin med kærasta thví ad síminn minn var alveg raudglóandi allan daginn. En svo reyndar sáu thær ad ég svaradi aldrei og upphófst mikil strídni. Theim fannst thetta fyndid. Thad fannst/finnst ollum odrum lika. Mommu leyst reyndar ekki á blikuna og bjóst vid heilum ættbálk í heimsókn, thvi hann var víst búinn ad segja foreldrum sínum frá mér. Lucky me! Svo módir mín bad mig vinsamlegast um ad hætta ad dadra vid svona menn.
Ég get sagt ykkur thad ad ég kann ekki ad dadra. Eda er allavega jafn léleg í thvi og ad vera med godan humor, svo eins og thid sjáid thá er thetta alveg dautt. Ég dadra ekki.
Ad sjá mig dadra er eins og ad sjá Mikka mús med boner..

Fyrir utan hversu sorgmædd ég er yfir ad Abdúl hafi hryggbrotid mig thá er allt gott ad frétta. Fór í afmæli í gær og kom heim klukkan 5 í morgun. Mætti svo í skólann í morgun, en ég var reyndar edrú í gær svo thad er ágætt.
Komst svo ekkert til Koben ad hitta Aron, en hann er thar um helgina. Er pínu brjálud yfir ad hafa ekki komist. En svona er lífid bara.
P-dagur í dag. Páskabjórinn kemur út í dag og ég ætla mér ad smakka thann horbjód í dag eftir skóla.
Nú thess má kannski einnig geta ad samkvæmt sónar átti ég ad fædast í dag, en ákvad bara ad bída fram til 14. mars, sem er flottasti dagurinn. Mikid er ég fegin hvad ég var nú skynsamt fóstur.

Ég er farin í vax, láta fjarlægja vetrarpelsinn..

8.3.07

8. mars

67. dagur ársins og ekki nema 298 dagar thangad til ad thetta ár rennur úr gildi.
8. mars er mikill merkisdagur fyrir okkur allar, enda er thessi dagur verid althjodlegur baráttudagur kvenna sídan 1908. Thennan dag árid 1972 fæddist einning Jakob Sveistrup á Fyn í Danmorku, en hann song sig inní hug og hjortu evrópubúa 19. maí 2005 med laginu "I'm talking to you" sem heitir á frummálinu "Jeg tænder på dig".
En thad er ekki thad eina sem er merkilegt vid daginn í dag. Kristján Heidar Kristjánsson, betur thekktur sem partý-Stjáni fæddist nefninlega thennan líka ágæta dag.
Stjáni ólst upp í Vesturbænum og spiladi thar handbolta ad miklum mód fram eftir ollum aldri. Kristján villtist hingad til Danmerkur árid 2005 og stundar nú nám vid Vitus Bering Háskólann hérna í Hrossanesi og er med 10 og 11 á ollum prófum. Já, thetta er klárt kvikindi og thess vegna er hann líklega sá eini sem má vid ollu thessu áfengi sem innbyrgt er hérna um helgar og stundum á virkum dogum líka.
Thad sem Kristján er líklegast thekktastur fyrir er ad halda skemmtilegustu partýin og blanda bestu G&T drykki í heimi. Thu hefur ekki upplifad neitt nema hafa komid í partý á Nørregade ni.
Kristján Heidar er ekki bara partýljón, heldur kann hann líka ad elda og spila á gítar. Hann er líka vinur vina sinna og hægt ad stóla á hann hvar og hvenær sem er!

Kristján Heidar verdur ad heiman á afmælisdaginn, í skólanum og svo má orugglega berja kvekindid augum á café Koks í kvold, morgun og hinn...

TIL HAMINGJU MED DAGINN KONUR OG STJÁNI MINN!!



Herra baun og Stjáni í gódum gír med G&T

7.3.07

Súrmjólk í hádeginu og cheerios á kvöldin..

Bordadi súkkuladi í morgunmat og fékk illt í magann eftir tvo bita.
Í hádeginu fékk ég mér 3 sopa af gosi.
Verd á æfingu thegar kvoldmaturinn er thannig ad ég fæ mér orugglega eina dós af tunfisk í kvoldmat thegar ég kem heim i kvold.

Ef thetta er svona thegar ég bý heima med nóg af hollum og gódum mat, hvernig verdur thetta eftir nokkra mánudi thegar ég flyt út og mun líklega aldrei nenna ad versla inn né elda.

"Peanut butter fingers" a la Joey verdur adal uppistadan í fædinu :)

Annars er frábært ad sjá hvad thid erud æst í ad koma med mér i thetta ferdalag mitt.
Ég fer bara ein thá, eda tek Abdúl med mér, eda jafnvel Alibaba af Delons..

6.3.07

Ferðafélagi óskast!

Mig langar svo ótrúlega mikið í ferðalag.
Tími samt ekki að borga fyrir að fara heim til mín, enda kostar það svo ógeðslega mikið, þegar að mánaðar innkoman er 27.000 kr. Reyndar eiga Katla, Salka, Alma Diljá og Pabbi afmæli í lok mars og byrjun apríl, sem og Hilmar Björn litli frændi minn er að fermast á annan í páskum. Svo Ísland tosar í mann.
Annars langar mig að fara til Barcelona eða eitthvað svona spennandi um hvítasunnuhelgina. Í einhverja svona rólegheita menningarferð. Hvítasunnuhelgin er í lok maí, þannig að ég auglýsi hér með eftir ferðafélaga/ferðafélögum. Verið í bandi ef þið viljið koma með mér í menningarferð. (Af hverju hef ég á tilfinningunni að það eigi enginn eftir að hafa samband?)
Ég á afmæli eftir viku. Mikið tilhlökkunarefni, eða þannig. Er að íhuga að hafa kaffiboð, held samt að það komi enginn ef að ég baka sjálf..

A stalker of my very own!

Thad virdist pirra sumt fólk alveg endalaust mikid ad ég skuli ekki vera i sambandi. Hlýtur allavega ad vera thegar ad fólk er farid ad dreyfa símanúmerinu mínu á nánast random gæja útí bæ.
Núna er ég til dæmis brjálud útí stelpu sem ég var ad vinna med, thví ad hún lét ástsjúkann Íraka fá númerid mitt og hélt ad hún væri ad gera mér gedveikann greida. Já, hann Abdul er ekki beint spennandi mannkostur get ég sagt ykkur. En thessari stelpu finnst hann greinilega eitthvad ædislegur. Thad finnst mér ekki. Hann sendir mér sms allann daginn um hvad hann sé búinn ad vera ad gera, hvad hann sé ad gera og hvad hann ætli ad fara ad gera. Í gærkvoldi hafdi hann sent mér sms medan ég var á æfingu og ég augljoslega ekki svarad i thessa tvo tíma. Thegar eg kom heim voru svo 7 sms til vidbotar fra honum um hvort eg væri sofnud, nennti ekki ad svara, hvort ég hefdi lennt i slysi og svo framvegis.
Seinna um kvoldid kom sms fra honum og eg var sofnud, thannig ad eg svaradi aftur ekki. I morgun kom annad um thad hvort ad thad væri allt i lagi med mig og ad hann hefdi ahyggjur af thvi ad eg hafi ekki svarad smsinu. Thegar ég svaradi svo "jeg sov" tha fékk ég "hvorfor" til baka. Hmm, er ég mjog ovenjuleg ad sofa klukkan eitt a nottunni?
Thess ber ad geta ad ég gerdi honum thad ljost thegar ad hann for ad sms-a á mig ad ég vildi ekkert med hann hafa, laug reyndar ad honum ad ég væri nýkomin úr longu sambandi, thannig ad ég væri ekki ad leita eftir neinu kærastadæmi. Thá vard hann bara enn æstari og sagdi "jeg vil gerne hjælpe dig med at komme over det med min kærlighed til dig og trøste dig!"
Ætli hann hætti ad bogga mig ef ad eg sendi a hann "Jeg er død"?

5.3.07

Ég fæ gæsahúð niðrí rass!

Var búin að gleyma þessu lagi. Rak svo augun í textann þegar að ég var að fletta í gegnum söngbók uppí sumarbústað. Það er búið að vera á repeat síðan.


Trúir þú á engla? - Bubbi

Það er garður við götuna þar sem ég bý
með gömlu fólki í stað blóma.
Þar finnurðu höfuð full af minningum
og augu sem einmana ljóma.
Vegna löngu liðinna kossa,
löngu liðinna ára,
þessi gömlu hjörtu þjást.
Hún lifir eins lengi og þau lifa
þessi gamla ást.

Trúir þú á engla sem villast í stórborg
og vafra einmana um götur og torg.
Trúir þú á engla sem komu til að gefa
gömlu fólki frið og ótta þess að sefa,
en villtust af leið,
en villtust af leið.

Það er bar í hverfinu þar sem ég bý
fullur af sektarkennd kvenna.
Þar finnurðu ótta og angist í glösum,
af innbyrgðri reiði þær brenna.
Vegna löngu liðinna högga,
löngu liðinna tára,
þessar köldu konur þjást.
Hún lifir eins lengi og þær lifa
lygin um sanna ást.

Trúir þú á engla sem villast í stórborg
og vafra einmana um götur og torg.
Trúir þú á engla sem komu til að gefa
brotnum konum frið og ótta þeirra að sefa,
en villtust af leið,
en villtust af leið.

Ungdomshuset jafnad vid jordu



2.3.07

Óje Baby!

Komin í helgarfrí og er ferdinni heitid i sumarbústadarferd-INA.
Ætlum 10 saman í bústad, og thad verdur klikkad fjor. Thetta er búid ad vera tilhlokkunarefni i margar vikur, sem segir ykkur kannski frekar mikid um hversu spennandi líf mitt er.
Rakadi meira ad segja á mér lappirnar í gær fyrir ferdina (veit samt ekki alveg til hvers, ætla mér ad vera í sídbuxum allan tímann) og thad gerist nú ekki á hverjum degi skal ég segja ykkur.

Ég er svo mikil dama.

Hvernig í andskotanum..

Er hægt ad ætlast til ad ég viti hvernig madur segir "stílhreint útlit", "fataslár" og "Gínur" á donsku klukkan korter fyrir níu á fostudagsmorgni?

Og af hverju er ég ad skrifa ritgerd uppá 7 sídur um SamsøeSamsøe?

Thad er friggíng fatabúd!!!

Partý-Froskur



Já, ég skellti mér í partý síðustu helgi, þegar að það var frost úti og ég sá mikla ástæðu til þess að dansa í 15 hettupeysum og leðurjakka.
Það var svona líka sveitt.

28.2.07

Sjitt, ég er með svo mikla vöðvabólgu í öxlunum að ég haltra!

Já, það er ekkert grín að vera svín og étinn á jólunum.

How do you like Iceland?

Ég á ekki eitt aukatekid ord yfir thessum rosalega tepruskap og hálfvitagangi sem hefur verid í gangi á Íslandi sídustu vikur.
Klámfólkinu hreinlega neitad um gistingu? Hvad er thad?
Af hverju mátti thetta fólk ekki koma hingad eins og hverjir adrir túristar, skoda gullfoss og geysi og drekka brennivín eins og allir hinir sem koma til Íslands? Ef ad thetta fólk hefdi titlad sig "Kínaforseti", "Gorge Bush" eda jafnvel "Osama bin Laden" thá hefdi thetta verid i lagi og fólkid fengid allt thad besta. En af thví ad ordid "klám" fer eitthvad fyrir brjostid a sumum tha var greyid fólkinu neitad um gistingu og ætlar aldrei ad koma til Íslands. Theim finnst oryggi sínu ógnad og og ég skil thad vel. Frábær landkynning thad, vona ad thid séud ánægd.
Ég er ekki ad segja ad mér finnist klám eitthvad ædislegt og frábært, alls ekki. En thad er svo margt annad sem skiptir svo miklu miklu meira máli en typpi og píkur...

20.2.07

Krónprinsessa Íslands kveður netið

Er farin úr netheimum í bili.
Ástæðan er einföld, tölvuleysi.
Tölvan mín er ónýt og ég get ekki pínt hana lengur. Slekkur á sér, slekkur á internetinu og lokar öllum gluggum, svona eftir eigin henntisemi. Það er ekki hægt að vera á msn, ekki hægt að vera í word, ekki hægt að blogga og ekki hægt að vera innaní internetinu.
Skólatölvurnar eru danskar og skal veðja að þið nennið ekki að lesa dönsk blogg eða tala við mig á dönsku í gegnum eitthvað glatað web-msn.
Reikna með að kaupa mér nýja tölvu um það bil árið 2010, en það er þá sem að ég sé fyrir endan á náminu mínu og verð farin að þéna meira en 2.500dkk á mánuði.
En ég fæ allavega ekki tölvuvírus á meðan :)
Sjáumst í kjötheimum. Vonast eftir mörgum bréfum, þýðir ekki að senda E-mail.


Kristín Alma Bergmann Sigmarsdóttir
Skovglimt 38
8700 Horsens
Danmark
gsm: 20 95 46 55

P.S. Pabbi/Þóra. Nennið þið að senda mér vísakortið mitt. Það er í drekanum. Þeinkjú.

Bolledag på dansk..

Ójá.
Það er alltaf jafn skemmtilegt að fara í skólann á bolludaginn þegar að maður býr í Danmörku. Það er nefninlega eitt sem að er alls ekki kennt í þessi 5 ár sem maður "lærir" dönsku á Íslandi. Það er að "bolle", er ekki bara eitthvað sem maður kaupir hjá bakaranum, heldur líka eitthvað sem maður getur gert með bakaranum. "Bolle", þýðir nefninlega líka að stunda kynlíf (þori ekki að segja ríða, það gæti sært foreldra, ömmur, afa og feminista, en bolle er beisiklí okkar ríða) .
Dönunum finnst alltaf jafn skemmtilegt að heyra það á leiðinlegum mánudegi að þetta sé í raun og veru Bolledag og finnst enn skemmtilegra að heyra að þessi dagur er bara einu sinni á ári. Einn strákur í bekknum mínum sagðist núna skilja afhverju ég flutti til Danmerkur, fattaði greinilega ekki djókinn.

Annars fékk ég bollur í gær, bakaðar. Arna sá til þess.
Núna er sprengidagur og ég þrái ekkert heitar en Salkjöt og baunir. Helst á S1, hjá ömmu og afa. Best að gleyma því bara strax og hugsa um rúgbrauð með makríl í staðinn, danskur matur sýgur!

19.2.07

Tölvulaus Froskur

Ég á afmæli eftir minna en mánud. Verd eldgömul. Thess vegna finnst mér rétt ad ég bidji um eitthvad dýrt í afmælis gjöf.
Mig langar í svona kvikindi. Thví sæti gaurinn í apple búdinni sagdi ad hún væri fullkomin fyrir mig. Mér finnst thad líka.










Mamma og pabbi segja ad madur eigi ad færa rök fyrir máli sínu, thannig ad thad er best ad ég geri thad. Ef ad ég fæ ekki thessa tölvu, thá get ég thví midur ekki haft samband vid umheimin, lesid blogg og verid á msn. Og heldur ekki lært. Svo ef thid viljid halda áfram ad heyra í mér og lesa thessa sídu til dæmis, thá er um ad gera ad rífa upp veskid og slæsa í eitt hvítt kvikindi fyrir froskinn.
Tölvan mín lést í gær, langt fyrir aldur fram, enda PC.

18.2.07

The Sukkerfrees

Það eru ekki allir sem eru heima og borða brauð með súkkulaði klukkan 3 á djammnóttu. En súkkulaði påleggið frá thoms svíkur fáa.
Auglýsingarnar frá Thoms eru reyndar soldið tristar, ef að maður er Íslendingur. En ég er búin að vera of lengi í Danmörku þannig að mér finnst þær alveg drepfyndnar. Komst að því í kvöld að ég hef eytt of miklum tíma af ævinni hérna úti. Er fljótari að skrifa sms á dönsku en Íslensku. Það tekur mig korter að skrifa "góðan daginn" á íslensku. Geri aðrir betur.
Finnum okkar innri dana og horfum á þessar líka skemmtilegu sjónvarpsauglýsingar.

Versgú:


I lommen på dig

Drops

Tyggegummi

17.2.07

Í gær var púki í mér og ég skellti mér á djammið, eftir svefnlausa nótt og 12 tíma ferðalag frá Íslandi til nýju Reykjavíkur hérna í Danaveldi. Það var gaman á djamminu og allt það, en klukkan 01.30 gat ég ekki meira og hringdi í Joð Pé og grátbað hann að ná í mig svo ég kæmist heim að sofa. Djöfull var gott að komast heim og uppí rúm.
Núna sit ég niðrí mosa, með ársbirgðr af brjóstamjólk í pela, 8 kílóa ungabarn og eina pregelgju. Þorrablót Íslendingafélagsins í Horsens er nefninlega í kvöld, og líka Kim Larsen tónleikar í Forum Horsens þannig að ég var bókuð í þetta pössunargigg í desember, þegar að ungabarnið sem ég er að passa var varla fætt. En það er fínt, þau eru voða góð og sæt, greyin :)
Langar samt að sjá Larsen. En hann kemur aftur, hann er fastagestur í Forum.

Uhh, tilgangslaust blogg, ég ætti kannski bara að byrja að skrifa dagbók?

15.2.07

Var vakin í morgun og vinsamlegast beðin um að fara út og keyra nýja bílinn hans pabba. Bílinn sem er búinn að vera í eigu hans í þrjá mánuði og ég hef varla fengið að vera farþegi í. Þegar ég á í hlut þá er bíllinn bara notaður "spari" eins og til að keyra mig útá flugvöll eftir Íslandsdvalir.
Í morgun fór ég út á kagganum með Sölkuna í baksætinu. Mér leið eins og lítilli pabbastelpu í versló.
En djöfull var gott að keyra bíldrusluna.
Örvænting.
Hvað er nú það?

Mig langar ekki neitt í blóm hvort eð er!!

14.2.07

Here i go again on my own..


Prísa mig sæla að búa ekki í Bandaríkjunum í dag. Leiðinlegasti dagur ársins er einmitt haldinn hátíðlegur í dag, með sykurplómum, candyfloss og hvítum dúfum. Já börnin góð, það er kominn Valentínusardagur. Dagurinn sem fær mig til þess að kasta upp eins og kona sem er á áttundu viku meðgöngu. Dagurinn sem fær Amor sjálfann til þess að vilja hengja sig.
Kaninn er ruglaður, en voðalega hlýtur það að hafa verið veruleika firrt manneskja sem ákvað að hafa einn dag í febrúar til að halda uppá ástina. Í minni sveit er talað um að ef að maður er ástfanginn þá er það eitthvað sem að manni þykir vert að halda uppá á hverjum degi. En ég er kannski bara gamaldags?
Fyrir mér er Valentínusardagurinn bara eitthvað til að minna einhleypa fólkið á að það er einhleypt. Allavega upplifir maður það þannig í US and A. Bara svona dagur sem er skylda að vera þunglyndur.
Ég er búin að undirbúa mig fyrir þetta. Deginum verður eytt uppí sófa, með kíló af ostapoppi, Titanic og kleenex.

13.2.07

Kvöldstund á Íslandi - Hent útaf Prikinu

Þegar að ég kem til Íslands þá þykir mér ótrúlega skemmtilegt að setjast inná gott kaffihús, með góðum vinkonum, slúðra og drekka kaffi. Oft er eini tíminn sem að við finnum til að hittast á kvöldin, eftir að ég er búin með heimsóknarkvóta dagsins og þær heimavinnuna.
Um ellefu leytið í kvöld ákváðum við Linda og Helga að henda okkur inná kaffihús og spjalla aðeins. Í þetta skiptið var Prikið fyrir valinu. Við löbbuðum inn, afgreiðslustúlkan brosti, bauð gott kvöld og við plöntuðum okkur í sæti á efri hæðinni. Sitjum þar í nokkrar mínútur og förum svo niður að ná í kaffi."Eruð þið með skilríki" spyr afgreiðslustúlkan. Ég rétti henni ökuskírteinið mitt, enda er ég orðin sjálfráða og 11 mánuðum betur. "Það er tuttugu ára aldurstakmark eftir klukkan níu á kvöldin" sagði afgreiðslustúlkan. Við urðum nú frekar hissa og sögðumst nú ekki ætla að fá neitt sterkara en kaffi, en það skipti víst ekki máli. Við máttum gjöra svo vel að yfirgefa staðinn. Strax.

Hvenær fullorðin?

Sjálfræðisaldurinn á Íslandi er 18 ár. Ekki erfitt að skilja þetta orð, maður ræður sér sjálfur. En þannig er það reyndar ekki alveg.
Þegar að maður verður 18 ára má maður taka lán, fá sér vísa, kaupa sígarettur, gifta sig og spila í spilakössum. Maður ræður sjálfur hvenær maður kemur inn á kvöldin og þarf ekki lengur að fylgja útivistareglunum. Skítt með það að maður megi ekki kaupa áfengi og megi ekki fara inná skemmtistaði. Skiptir mig engu máli.
Samkvæmt lögum mátti ég byrja að stunda kynlíf þegar að ég var 14 ára gömul, í mínu tilfelli var það mánuði áður en ég var tekin í fullorðinna manna tölu.
15 ára mátti dæma mig í fangelsi.
17 ára mátti barnið ég fara útí umferðina á stórhættulegu tæki og leggja líf mitt og annara í stórhættu.
18 ára má ég borða nammi á þriðjudögum og vaka til 5 á næturnar, ef ég vil. Má gifta mig en ekki drekka kampavín. Ég má kjósa.
18 ára og 11 mánaða má ég ekki sitja á kaffihúsi og drekka latte, en hey, ég má kjósa hverjir stjórna landinu.

12.2.07

Dagur 1 á Íslandi

Barkabólga og dýrar kjúklingabringur.

A slice of Iceland..

..stóð á matarbakkanum sem ég fékk í flugvélinni. Þegar að ég opnaði dýrðina blasti við mér Prins Póló í mjög svo pólskum umbúðum og Gordon blue. Íslenskt já, takk.
Ég át þetta ekki. Enda vissi ég að það væri hægt að treysta á pabba. Í Kórsölum beið mín íslensk dómínós flatbaka og íslenskt kók..

Galli við að koma heim til Íslands á nóttunni. Salka og Katla eru sofandi. Þóra reyndar líka, en efast um að hún sé búin að stækka og þroskast mikið síðan ég sá hana síðast.

Núna ætla ég að skríða í neðri kojuna til Sölku og lúlla þar í nótt.

P.S. Ég verð á landinu fram á föstudag. Þið náið í mig í gamla númerinu mínu. 848-5313



11.2.07

Ferðalag

Ég er farin í ferðalag.
Fyrsti áfangastaður er Kaupmannahöfn.
Hvert ferðinni er heitið eftir það er ekki alveg víst.
Eyja í norður Atlantshafi kemur jafnvel til greina.

Blæjó

8.2.07

Mette Thomsen: "Plastic"

Barbie og Ken elsker på tæppet foran pejsen, det er et Kelimtæppe, og selv om det er varmt der, så sveder de slet ikke. Pludselig går Barbies arm af, og den ruller hen ad gulvet, hen foran Aalto-vasen med plastictulipaner med en lille lyspære i hver, men det gør ikke noget, den sætter vi bare på igen. Og de behøver ikke at bruge kondom, for de har ikke aids, og de kan heller ikke få børn.
Faktisk har de slet ikke nogen kønsorganer, Barbie og Ken, hverken hule eller bule, så det er en helt speciel form for sex, steril og uden kropskontakt overhovedet, men det gør heller ikke noget.
For de er så pæne, og lyset falder lige præcis, som det skal på deres kroppe, så der ikke dannes nogle uhyggelige skygger.

5.2.07

Ég er lifandi.
Meira að segja alveg sprell.















froggiebergmann.is þakkar Silvíu Nótt fyrir lánið á svipnum.
Og ég vil ekki heyra neinn brandara um gleraugun mín, þau eru kúl, þau eru Dolce

22.1.07

Þá er að koma að því sem að foreldrar mínir hafa hlakkað til síðan ég leit dagsins ljós fyrir nokkrum árum síðan. Litla barnið ég er að fara að flytja að heiman. Reyndar ekki alveg á morgun, en þetta er allt í fæðingu. Undirbúningstímabilið er að byrja og hef ég nú þegar eldað kvöldmat, boðið vinkonum mínum í matarboð, sett í þvottavélar, tekið úr uppþvottavél og hvað eina. Það sem er líka gert á undirbúningstímabilinu er að sanka að sér allskonar drasli í búið. Fyrsti hluturinn kom reyndar þegar að ég var 4 ára á einhverri plastboxa kynningu með móður minni og fékk hveitiskóflu. Síðan þá hefur eitt og annað safnast í búið. Ég á allavega nóg af glösum, þar sem að ég hef lagt það í vana minn að stela flottu bjórglösunum á Koks síðan einhvern tíman á síðasta ári. Og einhverntíman fyllti ég glasaskápinn í Kórsölum með ferlega ljótum glösum með myndum af svínum á. Endurspeglar heimilisfólkið. Þess má geta að þessi glös voru ekki keypt því það vantaði glös, heldur vegna þess að ég nennti ekki að vaska upp.
Áðan kíkti ég svo aðeins í bæinn til að kíkja á útsölurnar. Fannst ég vera orðin smá klikkuð þegar að ég var búin að fara í 4 búðir til að leita af Rosendahl hvítlauskpressu eins og amma og afi eiga.

20.1.07

Uppáhaldslagið mitt í dag.

sexy beast - Toggi og Drengjakórinn.


I know
you don't like to be used
you're not a toy
but let's face it you're such a pretty boy

and when you walk, you hardly touch the ground
and all the girls follow you around
and all the boys really want to break you down

Ooooooohhhhhh
Lalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalala

I know
That beauty leaves a bruise
I feel your pain
all pretty boys start crying when it rains

and boy, your voice has the sweetest sound
like all the girls, I follow you around
and all the boys really want to break you down

Ooooooohhhhhh
Lalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalala

You know, you've got my heart in your hands
you know, I simply adore your black leather pants
you make me weak in the knees (hell yeah, I love it!)
and I'm begging you please (please love me)

Ooooooohhhhhh
Lalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalalala

17.1.07

Al-heilsa 2007

Nú heilsa 2007 er komin á fullt skrið, fannst ég þurfa að sinna skyldum mínum sem meðlimur í Kórsalagenginu og taka þátt í heilsuátaki, óbeint. Geri þetta eiginlega mín vegna samt, því að ég veit að þegar að ég kem til íslands næst, þá má ekki borða sælgæti eða drekka gos í sama sveitarfélagi og faðir minn er staddur í á þeirri stundu. Ef einhver vogar sér að stinga uppí sig einhverju sem er ekki lífrænt ræktað og með spelti í þegar hann er í heilsuátaki verður hann önugur og jafnvel fer í fýlu. Svo þetta er best fyrir mig að stunda heilbrigt líferni þangað til að heilsuátakið í Kórsölum gengur yfir. Bara svona uppá fjölskylduandann.
Nú þangað til að það gerist þá hef ég tamið mér betri og bættan lífstíl. Nú er hér stundaðir hnefaleikar af kappi, þar svitnar maður þangað til að allur vökvi er búinn í líkamanum. Svo eru hlaupin langhlaup í tíma og ótíma, en það erum við Fróði sem að stundum það hérna seint á kvöldin þegar að það sér okkur örugglega enginn. Þess á milli eru ávextir og grænmeti innbyrgt í óhóflega miklu magni ásamt vítamínum og nokkrum lítrum af vatni á dag. Maður hefði haldið að maður myndi sofa betur eftir að heilbrigði lífstíllinn var tekinn upp, en svo er ekki. Manni kemur varla dúr á auga, enda er pissublaðran undir ótrúlega miklu álagi með allt þetta vatn í kropnum. Þetta þarf að fara út og það verður að sjálfsögðu að vera á meðan maður sefur, eða gerir tilraun til þess.
Nú líkamleg heilsa er ekki það eina sem að þarf að rækta heldur er það blessaða geðheilsan líka. Til þess að gera það hef ég reynt að koma fjármálunum svona á nokkurnvegin réttan kjöl. Borga gamlar skuldir og þess háttar. Finna aðferðir til að spara, eins og kaupa nýtt Wildcard, en þá fæ ég afslátt af lestarmiðum. Grófar brauðsneiðar með ógurlegri hollustu sem álegg, vatn í flösku, bananar, vínber og agúrkur hafa fengið að fljóta með í skólann, enda dýrt og óhollt að éta skólamatinn. Einnig hefur mér tekist að spara fleiri þúsundir á e-bay. Keypti nefninlega Gucci töskuna frægu á mun lægra verði en gengur og gerist. Á von á að fá hana í hendurnar eftir viku. Maður verður nú að verðlauna sig þegar að maður er í svona miklu átaki.
Áfengi hefur ekki komið inn fyrir mínar varir og hef ég ekki djammað síðan á gamlárskvöld. Gæti verið að maður kíki aðeins í bæinn annað kvöld og á föstudaginn, en þá verður maður keyrandi og með vatn í flösku.
Til þess að fullkomna heilbrigða lífernið hefur lestur bóka verið mikilvægur þáttur í daglega lífinu, nú er farið uppí rúm klukkan 22.30 og lesið smá í góðri bók. Svo eru ljósin slökkt klukkan 23.00 og Bubbi spilaður þangað til að maður svífur inní svefninn.

Svona hefur þetta gengið í 2 vikur núna. Ég spái því að ég endist fram á föstudag, þetta er nefninlega alltof langt, vanalega hef ég haldið út í 2 tíma í mesta lagi.

Eina sem er eftir af áramótaheitunum er að læra að elda, hvernig ég á að kenna sjálfri mér hver munurinn er á sleif og steikarpönnu er mér enn hulin ráðgáta. Hjálp, einhver?!

Danir og Tölvur

Í næstum 3 ár hef ég búið í Danmörku. Eða eiginlega bara 2 því að ég fékk ævintýraþrá í eitt ár og skrapp út að skoða heiminn. En eftir þennan tíma þá er maður búin að kynnast ýmsu hérna í Danaveldinu og líkar flest vel. Það ver vel hugsað um mann og kerfið hérna býður uppá það að skólafólk geti sinnt náminu án þess að hafa áhyggjur af því hvort þeir eigi fyrir mat þegar að búið er að borga reikninga, leigu, bækur og allt það sem þarf að borga. Danir eru rosalega almennilegt fólk, flestir taka manni mjög vel, þrátt fyrir að maður sé útlendingur og eru voða duglegir að skilja íslensku dönskuna.
Eitt og annað fer samt voðalega í taugarnar á mér við þessa annars yndislegu þjóð og það er þegar danir þykjast kunna á tölvur. Þeir eru nefninlega dáldið í fornaldarstílnum á sumum sviðum ennþá, en vilja ekki viðurkenna það. Jú, ágætt að það sé ekki nýjasta tækni við allt, ef að "gamla" aðferðin gengur vel. Fínt, það er í góðu lagi mín vegna. En almáttugur minn, þegar á að fara að rembast við nýjustu tæknina þá er það saga til næsta bæjar skal ég segja ykkur.
Núna var ég til dæmis að ljúka við 1 önnina núna á föstudaginn. Á mánudag mæti ég í skólann til þess að fara inná Elevplan-ið (Vefsíða sem menntaskólakrakkar í DK nota ti að skipuleggja sig, sækja stundaskrár og fá einkunnir) og sjá hvort að ég væri fallin í einhverju og til þess að ná í nýju stundarskrána með nýju fögunum. Nei liggur ekki bara allt heila draslið niðri og ekki sjéns að komast inná það vegna álags á vefnum. Það var þannig á mánudaginn og svo í gær. Þannig að við vissum ekki í hvaða tímum við áttum að vera, hvar við áttum að vera eða hvort við værum fallin og fengjum yfir höfuð að halda áfram á næsta stig. Ég komst inn seint í nótt, sá þá að ég hafði náð öllu (að sjálfsögðu) en að stundarskráin mín var í bölvuðu rugli. Ég var með tíma sem ég átti ekkert að vera í og á einhverjum A og B stigum, sem námið mitt hefur ekki einu sinni. Talaði við skólann klukkan 7 í morgun og þeir sögðu að það þyrfti að finna útúr þessu og ég gæti bara komið á skrifstofuna klukkan 9, þá væri rétta stundarskráin komin og ég gæti byrjað önnina. Mætti í skólann klukkan 9 og þá var eitthvað að tölvunum þar, þannig að enginn vissi hvar ég átti að vera, ég var skráð á nafnalista inní einhverjum efnahagstíma (A stig) hjá HHX útskriftarkrökkunum á international línunni, sem gæti ekki verið meira útí hróa hött. Ég var beðin um að afsaka þetta og sagt að það væri verið að vinna í að laga tölvukerfið svo þau yrðu búin að þessu klukkan 10, áður en að næsti tími ætti að byrja. Klukkan 10.15 var loksins búið að finna útúr þessu og ég komst loksins í Samfundsfag á réttri línu og réttu ári.
Þegar að kennarinn var búin að reyna 50 sinnum að segja nafnið mitt var okkur svo sagt að í dag ættum við að horfa á mynd með hinum tveim bekkjunum. Átti að sýna þessa blessuðu mynd via tölvu. Við tók 30 mín. bið eftir að kennararnir fyndu útúr hvernig ætti að tengja hátalarana. Endað með því að það var hringt í tölvudeildina. Inn kom rauðhærður maður með krullur, horfði á vélina og hljóðið kom á. Skal veðja að hann er Írskur þessi gæji, allavega ekki danskur...

12.1.07

Búið

Spikfeit nía!! Gekk fínt. Sofa. Núna. bæ

11.1.07

Sjitturinn titturinn mellan og hóran..

Thomas 5
Camilla 7
Mark 5
Lotte 8
Kim 8
Er 9 raunhæft markmid thegar enginn hefur fengid hærra en 8? Veit ekki.

Hvernig er hægt ad ætlast til thess ad ég geti lagt lokahönd á verkefnin mín thegar ad fólk er ad koma grenjandi út frá kennaranum og sensornum. Bekkjarfélagar mínir eru nidurbrotnir sumir hverjir. Thad fer tími í ad hugga thá og hlusta á sögur theirra um hversu mikil heks sensorinn er og svo framvegis. Fólk heldur líka ad ég sé einhver enskunördi og geti endalaust verid ad hjálpa theim med einhverjar thýdingar og ordaval. Notid ordabækur.
Ekki nóg med thad, heldur er fyrrverandi, næstum thví, tilvonandi tengdamódir mín hér nánast vid hlid mér og horfir grimmdar augum á mig. Hún thráir líklega ekkert heitar en ad læsa klónum í mig. Samt hef ég ekki gert neitt af mér. Skil thetta ekki. *Flautar sakleysislega*
Veran sem situr á móti mér er heldur ekki sérstaklega frýnileg. Appelsínugul, aflitud med hárband. Get thví midur ekki sagt til um kyn thessarar veru, en hún virdist vera med skeggrót, thannig ad ég giska á ad thetta sé karlkyns. Mjög truflandi.
Annars er stemningin hérna í skólanum frekar rafmögnud eins og gefur ad skilja. Kaffi og coke hefur runnid ofaní nemendurna í lítravís og thar er ég engin undantekning. Hlakka til thegar ad ég klára thetta og labba heim med níuna mína..?
Mikið verð ég fegin klukkan 10 í fyrramálið. Þá verð ég búin að "selja" verkefnið mitt og á leið heim með eina níu. Vonandi.

Ég er bara eitthvað að fikta mig áfram með þessa síðu mína. Þetta er ekki endanlegt lúkk. Blogspot er með svo ljóta bakgrunna að það er til skammar. Ekkert nógu flott fyrir svona froskablogg.

9.1.07

Skiptibýtti.

Einbeitning óskast sem fyrst. Á sama stad er hægt ad fá nettar hardsperrur í: rassi, maga, baki, upphandleggjum og á furdulegum stad ská fyrir ofan brjóstin. Gefins.

Núna helst, takk.

6.1.07

Afsakið meðan ég æli smá

Er þetta nú það heitasta á Íslandi í dag?

Leiðinlegt fyrir Magna og allt það, en mér er alveg drullu sama. Yfirlýsing. Er það nú ruglið.

4.1.07

Betra er seint en aldrei

Best að þrykkja inn smá uppgjöri fyrir 2006.

Janúar:
  • Nýkomin heim frá Bandaríkjunum með mikla yfirvigt.
  • Fór til Íslands að til að vinna.
  • Hitti nýju tjéllinguna hans pabba og Kötlufóstrið.
  • Samþykkti þetta uppátæki
Febrúar:
  • Fór í fyrsta skipti í lífinu útá vinnumarkaðinn, 7.30 - 16.30 5 daga vikunnar.
  • Fílaði ekki að vakna svona snemma, en var alveg að slá í gegn hjá köllunum í vöruskemmu Samskipa.
  • Lærði að keyra bíl útá Álftanesi.
Mars:
  • Varð fullorðin 14.mars.
  • Katlan kom í heimin 19.mars
  • Salkan mín varð hálf stór líka 25.mars. 3 ára skvís.
  • Fékk grænt æfingarakstursskilti aftan á pabbabíl.
Apríl:
  • Hætti í karlaveldinu í Samskip
  • Byrjaði að vinna á Stelpuvinnustaðnum BabySam
  • Pabbi 37 ára
  • Páskarnir komu svo, með 30 páskaeggjum og frið á jörð eða einhverju krappi.
Maí:
  • Pabbi fór til Aþenu með Silvíu Nótt.
  • Júróvísjónpartý í Kórsölum (Þess vegna fann pabbi bjórdós undir sófanum sem ég neitaði að eiga, enda var ég edrú í partýinu.)
  • Kom í Séð og Heyrt- Á fokkíngs Forsíðuna!!
  • Áramótaheitinu náð.
  • Mamma 36 ára
Júní:
  • Guðmundur Óskarsson (móður)bróðir minn varð 30 ára
  • Partý á S1 - Og það ekkert litla partýið. Það verður talað um það þangað til að ég á stórafmæli 2008.
  • Á þjóðhátíðardaginn skellti ég mér til danmerkur, lagði lykkju á leið mína og kom við í Osló í tvo tíma - Því ég er með flugvallafettis.
  • Þegar ég komst til Danmerkur tóku Kristín og Gummi á móti mér og við keyrðum í gegnum Danmörku þvera og endilanga, framhjá Horsens og næstum til Álaborgar.
  • Þar tók við afslöppun í sumarhúsi, með ömmu, afa, mömmu og co og Óskari og Co.
  • Sund, Legoland, H&M, Skógarlýs á hundinum og lygasögur um að sólgleraugun hafi kostað undir 20 þúsund einkenndu þessa ferð.
Júlí:
  • Fékk mér eitt bílpróf
  • Komst inní skólann
  • Fór á SigurRós á klambró. Ótrúlega kósý og krúttlegt.
Ágúst:
  • Road trip til Akureyrar um verslunarmannahelgina
  • Mikið ævintýri, SigurRós í Ásbyrgi, sofið í bílnum, Sálin í sjallanum og Sund.
  • Komið heim á Sunnudegi og farið í miðbæinn um kvöldið.
  • Truntaðist til Danmerkur
  • Byrjaði í skólanum og var gjörsamlega málheft eftir að hafa verið í ár í burtu frá Baunaveldinu og líklega gleypt kartöfluna í millitíðinni.
September:
  • Námsmannalífið hófst fyrir alvöru.
  • Sagðist ætla að fara að mæta á fótboltaæfingar
  • Hef ekki enn mætt á eina einustu.
  • Bjór um helgar og bækur á virkum dögum.
  • Byrjaði að sakna Íslands.
  • Tók ákvöðrun um að fara til Íslands
Október:
  • Fór til Íslands
  • Á airwaves og það var alveg tussugaman.
  • Djamm.
  • 30 ára mömmustrákar
  • Famelíutjill í Kórsölum.
  • Keypti úlpu sem kostaði augun úr.
Nóvember:
  • Deitmánuður
  • Saknaði Íslands.
Desember:
  • Saknaði Íslands meira
  • Var óglatt fram til 24 des.
  • Þoli ekki aðventuna.
  • Fór til Íslands
  • Vann eins og mófó
  • Fékk pakka, gaf pakka.
  • Hitti fólkið mitt.
  • Borðaði á mig göt.
  • Fór út aftur, ósofin og úrill.
  • Gamlárskvöldið var líklega það skemmtilegasta sem ég hef upplifað.

Soddann.

30.12.06

Froggie var ekki lengi í paradís...

Ég var svo fegin þegar að Þóra og Pabbi tilkynntu mér það 5 dögum fyrir jól að þau ætluðu að elda hreindýr í jólamatinn en ekki sjóða rjúpur. Hoppaði hæð mína af gleði og þakkaði almættinu fyrir að nú gæti ég loksins haldið gleðileg jól. Með tár í augunum hugsaði ég tilbaka til æskuáranna þar sem að við sátum við borðstofuborðið í S-einum og rjúpuhelvítið borið á borð. Þar sem að það var skylda að borða smá af jólamatnum sem amma hafði staðið sveitt og eldað allan daginn, áður en að pakkar yrðu opnaðir. En ég gat með engu móti komið þessum hræðilega fugl ofaní mig. Endaði með að ég át kartöflur, rauðkál, baunir og sósu í jólamatinn frá 1988-1998. En ALLTAF var reynt að koma ofaní mig þessum ógeðslega hundamat. Það var ekki fyrr en jólin 1999 sem að við fjölskyldan vorum orðin svo mörg að mömmu fannst kominn tími til að við héldum okkar eigin jól. Þá voru gleðileg jól. Hamborgarahryggur í matinn og það gat ungfrúin étið og hefur étið það síðan.
Þegar að ég kom innum dyrnar í Skovglimt áðan, eftir að hafa eytt deginum í flugvél með 15 grenjandi ungabörnum og í lest með heilu sambýli af fötluðum dönum á leið í julefrokost, var mamma mjög glöð. Eitthvað sagði mér að gleðiefnið væri ekki koma frumburðarins til baka eftir 2 vikna dvöl á Ísnum. Ég hafði rétt fyrir mér eins og svo oft áður. Djöfulsins rjúpurnar voru gleðiefnið. Konan var í svo mikilli geðshræringu að hún rétt mumlaði "hæ" og hélt áfram að dansa gleðidans. Geðshræringin var kannski pínu (ó)skiljanleg þar sem að vinafólk frá Raufarhöfn hafði sent okkur/þeim 15 rjúpur og móðir mín hefur ekki fengið Rjúpur síðan árið 1999. Rjúpurnar voru svo affiðraðar og afhausaðar núna áðan og verða svo étnar annað kvöld og engar refjar. Ég spurði mömmu hvort að ég mætti ekki bara éta á Delons, sem er tyrkjabúlla hérna í bæ en fékk svar um það að ég ætti að vera hjá þeim til 00.30. Punktur.
Ég verð bara að treysta á íslenska nammið sem að ég keypti í Bónus í gær. Fínn áramótamatur...

29.12.06

Sambýlisjól Á kaldri slóð

Sambýlið hérna að Kórsölum 1 hélt heldur betur gleðileg jól.
Hér er brotabrot af dýrðinni:
(það náðist því miður ekki mynd af Þóru, sem eldaði heilt hreindýr oní okkur hin...)









-------

Skellti mér á Kalda slóð áðan. Dröllu góð mynd sem að ég mæli eindregið með. (Frumsýnd á morgun)
Var með gæsahúð, tár í augunum og svita á efri vörinni til skiptis. Hélt varla þvagi fyrir spenning og kláraði neglur af höndum og fótum.
Keep up the good work Icelandic movie-makers.


Ég og Pabbi fórum svo í 10 bíó áðan á The departed. Bara prump miða við Köldu slóðina.

Já, hefði átt að röfla meira yfir því í morgun hvað væri langt síðan ég hefði farið í bíó..

27.12.06

Stjörnuspa 2007

Fiskarnir
19.febrúar - 20 mars

Nú í upphafi árs uppgötvar þú nýjar hliðar á sjálfri þér. Lisrænir hæfileikar þínir eru margir og fá nú að njóta sín sem aldrei fyrr. Þú hefur áhuga á og mikinn hæfileika til að tjá þig á rituðu máli. Leyfðu þeirri hlið að blómstra og njóttu þín. Treystu innsæi þínu og ekki vera of sjálfsgagnrýnin og upptekin af smáatriðunum. Þú ert heldur næm fyrir skapsveiflum annara og átt það til að taka hlutina inná þig og hafa áhyggjur af einhverju sem þú berð enga ábyrgð á. Einblíndu á jákvæðu hliðarnar og njóttu ástarinnar í lífi þínu og mundu hvað lífið getur stundum verið skemmtilegt.

...Jahá, það er aldeilis.

MAMMA!




Þessi mynd er fyrir þig.
Salka var himinlifandi með pólska stellið. Sagðist nú loksins geta haldið afmælisboð fyrir okkur öll.
Og ekki spillti bleiki pappírinn fyrir. Þetta var flottasti pakkinn sagði hún, enda á ákaflega bleiku tímabili núna. Það má til að mynda enginn koma í afmælið hennar sem er ekki bleikur...
Hérna er mynd af Sölku Stirðu á aðfangadagskvöld með pólska stellið...

22.12.06

Eg þoli ekki...

Fólk sem að gengur með jólasveinahúfur og eru ekki jólasveinar.
Enn meira þoli ég ekki fólk sem að lætur börnin sín ganga með jólasveinahúfur því það er svo "sætt".

...Er ekki í lagi heima hjá ykkur?

20.12.06



Katla var ekkert hrædd við þessa ókunnugu Kristínu Ölmu sem að tróð sér inná heimilið fyrir nokkrum dögum. Sem betur fer. Kvöldið sem að ég kom lögðumst við uppí rúm og hún sagði mér allt sem að ég hef misst af á síðastliðnum 2 mánuðum....

19.12.06

Lifði af og vil meina að 66 gráður norður vörurunar séu sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður. Því að kawasaki skórnir mínir blotnuðu í gegn og mér varð því kalt á tásunum.
Næsta svona tilraun verður með Cintamani vörur. Því að ég er ekkert of viss um að skítakuldi sé bara hugarástand, eins og segir í auglýsingunni.
Finnum útúr því næst.
-Tilraunahorn Kristínar Ölmu kveður að sinni...
Ég fattaði að ég á Þórsmerkurúlpuna frá 66 gráður norður plús flísfatnað og ullarnærföt. Þetta er allt sérhannað fyrir Íslenskar aðstæður. Var bara að pæla í hvort að ég ætti prufa dressið og sjá hvort að þetta sé í raun og veru hannað fyrir íslenskar aðstæður, eða hvort að það sé bara eitthvað rugl?
Ætla að kanna þetta, núna eftir 2 min. mun ég labba hérna útá videoleigu. Skulum bara vona að ég frjósi ekki í hel...!

Dagur 2

Við Ronja liggjum uppí sófa, undir sæng og þorum ekki út. Við erum nefninlega bíllausar og munum fjúka útí buskann ef að við förum út. Tjah, eða týnast, því það er komin nótt hérna á klakanum klukkan 13 á daginn.

Ronja hefur miklar áhyggjur af því að ég verði þunglynd ef að ég hangi bara hérna í Kórsölum 1 og læt mér leiðast. Ég held að hún hafi rétt fyrir sér.

Hvar eru allir?

Komið og bjargið okkur.

18.12.06

"Veðrið í Keflavík er milt, smá úði og 6 stiga hiti" Sagði flugmaðurinn við okkur 50 farþegana þegar að við vorum komin í loftið frá Köben.


Læt ekki plata mig svona aftur. Milt veður, smá úði og 6 stiga hiti, my ass. Ég labbaði útum dyrnar á Leifsstöð og fauk útí bíl. Hefði svo þurft að skipta um föt vegna þess að ég var rennandi blaut eftir þessa 7 metra. Og með kalnar tær og fingur.


Eruði ekki að grínast með veðrið??




Svo var nú aldeilis gaman að lenda í Leifstöð og fá ekki töskuna sína. Hún var bókuð á vitlaust flug. Fæ hana á eftir, senda heim. Þá loksins kemst ég í sturtu og hrein föt.




Allra best var samt að koma í Kórsalina og sjá að það er búið að jafna herbergið mitt við jörðu. (En hin börnin í fjölskyldunni fengu ný glæsirúm og ég veit ekki hvað.)Usss, spurning um að fara að segja sig úr Kórsalafjölskyldunni. Okkur Ronju finnst þetta ekki sniðugt.




Hver vill eiga okkur?
(Haffi fylgir ekki með)





14.12.06

Driving home for christmas

Afmælis:
Christian á afmæli í dag orðinn fimm ára og ekkert smá stór og flottur strákur. Ótrúlegt að það er komið eitt ár síðan að ég yfirgaf Ameríkuna.
Til hamingju með afmælið snúðurinn minn og við sjáumst svo milli jóla og nýárs. Hlakka ekkert smá til að sjá ykkur skæruliðana mína :)


Heilsufar
Á sunnudagsmorgun/eftirmiðdag vaknaði ég raddlaus. Daginn eftir talaði ég eins og litill hrafnsungi. Á þriðjudaginn var ég komin með kvef, og vel af því. Í gær var eins og augun ætluðu að synda útúr augntotunum vegna kefs, var komin með hor uppí heila og með hitavellu. Í dag hósta ég eins og mófó og það er ekki gott, svona slímugt hóst og er frekar sloj, eins og afi myndi segja.
En ég er allavega með svona Sexy-voice eins og Phoebe í friends fékk hérna um árið. Þokkalega töff.

Danir

Skellti mér til læknis í gær og hann fór eitthvað að spurja hvaðan þetta "Sigmarsdóttir" nafn kæmi. Ég sagði að ég væri frá Íslandi. Þá spurði hann hvort ég ætlaði að halda jól þar. Já svaraði ég. Já, já, en gaman. Ætlið þið að keyra eða fljúga?? Ég skipti um lækni med det samme.

Annað
  • Búið að vera mikið í skólanum
  • Case opgaver i hverju fagi +Prófaundirbúningur
  • 2 jólagjafir í höfn 10 to go
  • Klára það í dag og á morgun
  • Var að uppgötva að ég lít út eins og fuglahræða um hárið
  • Klippikonan mín í barneignarleyfi
  • 0,3% líkur á að ég fái tíma á Hár Expó fyrir jólin
  • Á eftir að gera mikið
  • Nenni því ekki
  • Fer til Sjöppen um helgina
  • Ísland á Mánudaginn klukkan 11.50
  • Þið getið byrjað að plana móttökunefndina núna, ég tek enga fokkíngs rútu.
  • Rútur eru fyrir White trash
  • Ég á LV tösku og er þar af leiðandi ekki White Trash
Bless

11.12.06

Tag mig med til Johanna...

Á fylleríinu á föstudaginn endaði ég meira edrú en ég var í hádeginu á þriðjudaginn.
Var á bíl og allt. Veit ekki alveg hvernig það kom til, en svona er lífið bara.
Afmælisbarnið snargeðveik og segir að ég hafi svikið hana og segir að nú verðum við að fara aftur í djammgallann á föstudaginn og hella mig allavega hálfa. Fólk hefur líka verið með einhverjar óþarfa getgátur um það hvort að ég sé ólétt, því að ég hef endað á bíl síðustu 5 skipti sem ég hef farið á djammið. Heimurinn höndlar bara ekki blekaða Kristínu, er alveg nógu rugluð fyrir. Fékk til að mynda 3 sms daginn eftir afmælisdjammið mikla sem stóð í "Jæja, er maður þunnur í dag" það sér enginn mun á mér hvort að ég sé búin með kippu af túborg eða 3 orkudrykki. Og ég virðist alltaf geta skemmt mér vel, svo að það er ágætt.
En það verður "kveðjupartý" fyrir mig á föstudaginn. Því að ég er að fara í burtu í næstu viku og kem ekki aftur fyrr en 30 des, daginn fyrir gamlárs. Eins og þið sjáið þá er hvert tækifæri notað til að djamma hérna í Baunalýðveldinu. Það verður svosem ágætt, og bíllinn verður eftir heima.
En ég reyndar var að skoða myndir af djamminu frá föstudeginum og fann svolítið sem að mig langar til að sýna ykkur, ef að ykkur finnst þessi "úrkynjun" sem er í gangi heima slæm, þá skuluð þið koma til Horsens. Þessi bær er Selfoss sinnum 8. Það eru fyrirbæri hér sem að kalla sig karlkyns en eru í raun meiri konur en ég. Algjörar píkur.

Á myndunum eru strákar úr skólanum mínum. Ekki hommar. Og þetta er tekið á venjulegum föstudegi á týpískum skemmtistað hérna, sem meðal annars ég "stunda".

Langar ykkur ekki að koma í heimsókn?



...og hugsadu um thíns eigins typpi!!

Fékk allt í einu óstjórnlega löngun til ad horfa á Stellu í orlofi...

What's up with that??


8.12.06

Dóttir hvar er móðir þín, svona seint um nótt

Dísess. Ég er komin í fulla vinnu við að finna myndir af fólki sem að ég sakna og setti ekki inn myndir af pronte.

Móðir mín í föðurætt, hún Þóra, eða Fóra mamma eins og Salka kallar hana er auðvitað frábært og ég sakna hennar svo mikið að mig verkjar í hjartað.
Hlakka til að koma heim og fá alla ástina og hlýjuna. Líka matinn þinn. Enda jafnast ekkert á við þynnkupasta með Chilli og KFC-ið sem þú matreiðir af svo mikilli lyst.


Finnst viðeigandi að nefna það hérna að ég er svo að fara á fyllerí í kvöld því að tvillingarnir mínir eiga afmæli. Matur, partý og bærinn. Og McDonalds í fyrramálið.
Sjáááááumst

7.12.06

Ég skil ekki hvers vegna ég get ekki bara farið út í búð og keypt einhverjar jólagjafadruslur sem að slá í gegn og gera mig uppáhalds fram í janúar.
Nei, ég er búin að fara 5 ferðir niðrí bæ, kvickly, Bilka og Bytorvet so far er ég komin með eina jólagjöf. Skil ekkert í þessu því að í þessum ferðum mínum kem ég hlaðin pokum en það rennur líka upp fyrir mér þegar að ég er komin útí bíl aftur að ég hafi bara verið að spreða í sjálfa mig.
Var einmitt að koma úr einni Bilka ferðinni. Var þar í góða tvo tíma og verslaði fyrir 490,75 danskar. Inní því var ekki ein jólagjöf. En mér fannst hins vegar mjög mikilvægt að kaupa mér súkkulaði með kornfleksi í, alla fyrstu seríuna af Sex and the city, Christmas vacation, brjóstahaldara og bók með 300 uppskriftum af kokteilum frá 7 barþjónum í New York.
Nú get ég allavega verið í huggulegum brjóstahaldara þegar að ég horfi á Christmas Vacation og gæði mér á einhverjum framandi kokteil...

Yeah right.

P.s. Sef ekki á nóttunni því að ég sakna svo Hrossins og Hrossatemjarans...


4.12.06

Bjé manneskja

Eda kannski ætti madur bara ad hætta ad rjúfa nætursvefninn klukkan 5 á nóttinni til ad vera komin heim ádur en heimilisfólkid fer á fætur.
Madur spyr sig...

1.12.06

Heimaveiki

Ég á mjog bágt núna. Sakna Íslands alltof mikid. Thad má ekkert vera, tha er bara Orkin hans Noa all over again. Hrædilett.
En er ad reyna ad bita a jaxlinn thvi ad ég kemst ad ollum likindum heim rétt yfir jolin. Verdur stutt stopp, thvi midur. En thad verdur massa gott ad komast heim og hitta alla tharna heima i jolagedveikinni.
Nú, jólaundirbúningurinn byrjar hjá mér i dag, thvi ad amma og afi eru ad koma í heimsókn til okkar hérna á mánudaginn og ekki seinna vænna ad byrja ad taka til í ruslakompunni minni.
Sídan á eftir ad vera smá einkennileg næstu daga, thví ég er ad thykjast vera tolvunord og hakka mig i gegnum allskonar til ad reyna ad fá thessa sídu til ad líta út eins og hjá fólki.
Ef ad einhver er ofur duglegur ad fikta med svona htlm kóda (eda hvad thetta heitir) tha má sá hinn sami hakka sig inná msn-id mitt... (kristinalma@hotmail.com)

Gestur 30.000

Sá sem verdur gestur númer 30.000 fær verdlaun...


(Thetta er færsla 301)