28.4.04

PIRRRRINGUR!!!

OHHH, Ég er svo pirruð á þessum skóla...Ég er komin me'ð uppí kok á honum, Liggur við að ég sjái eftir að hafa farið í Garðaskóla!!! Leiðinlegir kennarar, Leiðinlegir krakkar (ekki allir) og ömurlegir gangaverðir ARG djö! ég er svo pirruð yfir að foreldrar mínir hafi valið að flytja í Garðabæinn að það hálfa væri alveg fínt!!!!

En Annars þá er Birna nýkomin frá Ameríkunni og var að færa mér þessa yndislegu PUMA skó... Rosalega flottir. en ég er að fara til tannlæknis á morgun og hann er að fara að troða einhverjum hringjum utanum tennurnar mínar :'( og svo verður hert á hringjunum 2svar á dag í 15 daga þannig að efri gómurinn minn klofni í sundur og það komi nýtt bein á milli...(ég get ekki útskýrt betur)

En ég er farin að sprengja á mér heusinn með stærðfræði verkefnum fra kristínu Bjarna
bæ bæ

27.4.04

JEBBBA

Ég er hress að vanda og allt gengur vel.. ég er að læra núna heima hjá honum pabbalabba. ég er búin að vera hér ein þi smá tíma og er að fara að læra eitthvað athyglisvert;) Eg var að læra stærðfræði í 2 tíma áðan og er nú bara nokkuð ánægð með það.

Svo er ég að fara að sýna á eftir HÁRIÐ, svo að það er mikill stemmari í gangi eins og venjulega...Annars var stuð um helgina maður, ég var að sýna á Fös.kvöld, og allt gekk alveg ljómandi vel, Svo fór ég með nokkrum krökkum heim til Steinunnar og vorum eikkað að tjilla bara, svo fór ég bara kl 12 heim vegna þess að ég var orðin svo þreytt og var svo að fara að passa um morguninn kl 10, hana sölku(sem er alltaf jafn líka mér að vanda),á lau.kvöld fór ég til ingu rósar, og þar voru einnig, Kristín hin, ásta og eva bébé! við vorum eikkað að flippast í karíókí og fórum níðrí bónusvideo að leigja spólu sem að varð aldrei leigð!! en það var keypt nammi og eitthvað gotterí!!

(set myndir kannksi bráðum..)

En í gær var svo bara lært allan dagin farið svo og hjólað til pabba að gefa kisu að borða, Viskas koddana þarna úr auglýsingunni með kisunni og´teiknimyndamúsinni, og fór svo bara aftur heim að læra..Svo kom Óskar og mamma að sækja mig, og við fórum í mat til ömmu Stínu og afa minna, þar Var hann Gummi Sem er svona Uppáhaldsfrændinn minn (nema þegar hann klípur mig eins og áðan...ARG) Það var gott að sjá hann aftur eftir nokkara mánaða fjarveru frá honum:)

Svo í Dag var þessi einstaklega skemmtilegi og lærdómsríki skóladagur, En það var sund hjá honum ingvari sem er víst góðvinur okkar ingu...eða var, hann lét okkur labba skátahringinn í þessu ógeðslega veðri og ég var ekki einusinni með úlpu!!! En svo þegar það var búið sagði hann að ég og Inga Rós þyrftum að koma í aukatíma til þess að taka eitthvað asnalegt próf í björgunarsundi!!! er það nú! Ég og inga r+ós komumst að þeirri niðurstöðu svo í hádeginu að hann vildi bara hafa okkur eftir samræmdu líka:) við erum svo skemmtilegar, en hann er ekki lengur í það miklu uppáhaldi hjá okkur eftir þennan ömurlega "sundtíma"....En ég er farin að læra smá og svo þarf ég að fara að koma mér niðrí skóla!! Sýning kl 9 held að það sé ekki uppselt þannig að endilega komið að sjá!! en við bara heyrumst og sjáumst, ég er farin því að ég er farin að tala um hluti sem að bara skipta engu máli!!!

bæbæbæ

P.S Röggi á afmæli í dag, orðinn sextán kallinn!!! TIl HAMINGJU MEÐ ÞAÐ!!!

24.4.04

Þetta er allt að koma!!

hæ hæ og góðan og blessaðan daginn! ég er aldeilis búin að vera dugleg í dag, ég vaknaði kl 09:00 í morgun og fór yfir til pabba og birnu og passaði sölku og Sindra. Svo þegar að salka fékk sér lúr þá hjálpaði ég sindra að instala Sims superstar! Voða skemmtilegur leikur með svona köllum sem að maður verður að stjórna og láta þá gera allskonar hluti. Allavega svo er ég aðeins búin að horfa Á tv og eitthvað svoleiðis!
Birna er að fara til NY eftir 2 tíma og ég verð ein hér að æra fram á þriðjud. ég er búin að ákveða að vera ekkert smá dugleg að gera glósur í þessum 4 sam bókum sem að ég er með, vinna verkefni uppúr því ofl. Svo verður maður nátúrulega líka að læra í stæ, ísl, ens,og dan, ég er að hugsa um að biðja hann gumma frænda um að hjálpa mér við Enskuna, því að hann bjó í bandaríkjunum í 4 ár or sum. Svo er hún Auður Stella búin að vera að hjálpa mér með stærðfræðina en ég verð líka að æfa mig sjálf í henni. Svo er Bara að rifja upp íslenskuna, ljóðin og það og ritun í Dönsku.

En ég held að þið séuð öll farin að geispa og hafið ekki mikinn áhuga á lærdómnum mínum. En ég skellti mér í leikhús um daginn með ölum sem eru að leika í hárinu. Við fórum í Þjóðleikhúsið að sjá Þetta er allt að koma. Snilldarleikrit þar á ferð og Leikstjórinn okkar hún Þórunn Erna Clausen er ótrúlega fyndin í þessu skemmtilega stykki.

En jamms, það eru tvær aukasýningar hjá okkur á mánudaginn kl 21:00 og þriðjudaginn kl 18:00, endilega hafiði samband ef þið viljið koma.

En ég er farin að kveðja Sölku sem verður hjá ömmu sinni fram á þriðjudag. En þess má geta að litla skottið sagði pabbi áðan, alveg í fyrsta skipti, algjör mús...

En ég er farin, það var verið að hringja í mig og segja að ég þyrfti ekki að passa í kveld, þannig sð ég annað hvort læri eða ef að einhverjum vantar pössun þá hafiði samband. :) en ég er farin að læra núna, bleble

20.4.04

Frumsýningin búin!!!

Við vorum að frumsýna hárið áðan og það gekk eins og íu sögu!! ótrúlega flott sögðu allir, þetta er nefninlega flottara en marigirt skólar eru með!!
En ég hef voðalega mikið að gera þesa dagana og bara hef því miður ekki mikinn tíma til að blogga. Það eru tvær vikur í samræmd próf, ég er að sýna hárið og fara í stærðfræði aukatíma...úff það er crazy að gera ég er liggur ´við bara búin að búa í skólanum...:(

En ef að ykkur langar að koma á hárið og eruð ekki í Garðaskóla þá endilega látiði mig vita og þið munuð komast!

Súningarnar eru á mið:kl19 og 21 á fim kl 19 og 21, og á fös kl 21

en ég er farin í háttinn, erfiður dagur að baki og annar á morgun...bleble

P.s Gummi frændi kemur á morgun í í í !!!!!!

12.4.04

Tilraun 2

ok, ég var að tala við ingu rós sem að talaði við bróðir sinn sem að sagði henni sem að sagði mér ´hvernig þetta virkaði með myndirnar... só lets tjekk it át!!
ok hér er ég að stæla ingvar GÓÓÐVIN okkar Ingu Rósar, og ég geri þetta bara helv..vel :D

Hér er svo hinn Raunverulegi Ingvar GÓÓÐVINUR okkar Ingu Rósar:D Djö...hvað ég er góð eftirherma(hann er að herma eftir Jónsa í "rosa góður draumur marr")

Og hér erum við svo saman....erum við ekki sæt? NOT!!

ohh ég vona að þetta hafi virkað, því annars eruð þið að missa af miklu!!!

skíðaferðin, og eitthvað meira

Svo fórum við til akureyrar í skíðaferðina daginn eftir og það var bara ekkert smá stuð!! ég steig í annað sinn á bretti og ég var drulluléleg fyrsta daginn en svo varð ég aðeins betri eftir því sem leið á ferðina, en ég og toglyftan eigum ekki samleið!! En ég og stólalyftan erum vinir, nema ég dett alltaf þegar að ég er að koma úr henni. ég vil þakka ásgeiri bróðir hennar ingu Rósar kærlega fyrir hjálpina og ÞOLINMÆÐINA Takk æðislega fyrir mig Ásgeir!!! En já það voru sem sagt ófáir marblettirnir eftir þessa ferð!!

Svo núna er bara verið að læra eins og brjálæðingur og æfa Hárið sem verður frumsýnt 20 apríl og verður sýnt í eina viku. Rosalega velgerð sýning, þó að ég segi sjálf frá;) og hvet ég alla sem að vilja til að koma!

Salka átti afmæli 25 mars og varð ! árs, ekkert smá stór!!
Pabbi átti stór afmæli 7 Apríl og varð hvorki meira né minna en 35 ára!!! Honum finnst það vera bara alveg hræðilegt en ég er ánægð með kallinn, hann verður alltaf ungur í anda allavega, því að salka á eftir að halda honum ungum næstu árin, og kannski að ég hjálpi eitthvað til við það!!
Svo á Eyjólfur afmæli á páskadag og verður 3 ára. ekkert smá mikill gaur.
Heiðdís beib átti líka afmæli um daginn og varð 16 ára.
og síðust en alls ekki síst þá varð Litla frænka mín og nafna 5 ára 24 mars, (Alma Diljá), og hún er líka að verða stóra systir í Mai!

En ég held að ég hafi ekki mikið meira að segja í bili og ég lofa að vera duglegri við að blogga á næstunni!!
Þangað til næst, bæ bæ

Starfsreynsludagurinn var hrein Snilld!!

En allavega þá var starfsreynsludagur um daginn, nánar tiltekið 16 mars og ég fór uppá norðurljós með Lindu og ingu Rós og við skemmtum okkur konunglega. Fyrst mætt og fylgst með Ísland í bítið, svo á fréttafund með helstu fréttahaukum okkar íslendinga. Svo var farið niðrá fm og chillað þar með "Einsa belg" og félögum (Einar ágúst), Og "Heiar sæti" var þar líka, þeir eru náttúrulega bara snillar þarna á fm. Síðan fórum við í kynningu með jóhonnu um Norðurljós og fræddumst um alla starfsemi fyrirtækisins. Svo kíktum við á strákana í 70 min og vorum bara að tjilla í settinu með þeim og fengum þessa fínu kennslu frá Pétri í selnum! en því miður fengum við ekki að sjá hann skauta eða sýna kúlurassinn :(
Svo fórum við og kíktum á Þór í vinnunni, þá var hann að klippa einhverja frétt og það var nú alveg nett fyndið því að hann smellir fingrunum eins og lífið sé í veði. En svo var kíkt á popptíví skrifstofuna og þar vorum við að tala við Audda og svo segir hann alltíeinu við okkur: er ekki gott veður úti og við alveg jú, það er sól og allt marr! þá kemur fíflið með risa vatnsbyssu og sprautar á okkur eins og einhver sækó!! og við rennandi blautar, þá segir hann nú þá þorniði fljótt!! en við dóum ekki ráðalausar frekar en fyrridaginn og tókum 3 vatnsglös og skvettum á hann, þegar að hann sá ekki til okkar, hann var ekki hress með það kallinn. Þegar að við vorum búnar að hefna okkar á honum fórum við niður á fm til hans svala, og hann var bara hinn hressasti og leyfði okkur að gefa leikhúsmiða, það var nú alveg fjör...
En ég er ekkert smðá ánægð með þennan dag og verð að segja við ykkur rúvara að þið verðið aðeins að hressa ykkur við og mæta með vatnsbyssur í vinnuna!!

10.4.04

Allt að Gerast!!

hæ hæ elskurnar mínar og fyrirgefiði biðina á blogginu... það er búið að vera crazy að gera hjá mér að læra og að æfa hárið, því að nú eru bara 10 dagar i frumsýningu.

En vá mikið af afmælum í gangi!!!

klikk

ég verð fkn crazy ef að þetta blogg sem að ég var að skrifa kemur ekki, það var ótrúlega langt!!!

Bæ bæ

16.3.04

Dagur á Norðurljósum

....Kemur seinna!! ég er að fara til Akureyrar á morgun og kem ekki aftur fyrr en á Sunnudaginn þannig að Samanburður minn á tvemur mjog álíum fjolmiðlum kemur einhvern tíma þá!!

14.3.04

Yndislegur Afmælisdagur

hæ hæ i dag a eg afmæli og er ordin sextan ara, Foreldrum minum til mikillar mædu! thau fottudu nefnilega i morgun ad ef ed eg er ordin svona"gomul" tha eru thau ordin hundgomul. Samt eru thau 33 og 34 thannig ad thetta er ekkert alvarlegt.

A thridjudaginn er svo Starfsreynsludagur og eg, Inga ros og linda ætlum ad skreppa i heimsokn a gamla vinnustadinn hans pabba sem er einmitt nordurljos. Sem verdur bara stud marr!! En jam eg akvad ad fara thangad vegna thess ad eg ætla ad tjekka a hvor stadurinn er liflegri og skemmtilegri! en thess ma geta fyrir ykkur sem ekki vitid ad tha for eg a RUV seinast thar sem pabbi minn vinnur nuna, og stundum var eg ekki viss hvort eg ætti ad hlæja eda grata eda bara vera skelfingulostin! eg vil ekki neitt vera ad fara uti einhver smaatridi en segjum bara ad i grofum drattum var tetta einhver´nvegin svona: Handarhlaup, úlpubrandarar, rifrildi milli unglingathattastjornenda og barnatimastjornenda og Leoncie!

Svo a thridjudaginn kemur pabbi heim, madur er bara farinn ad sakna hans!!:( A midvikudaginn er svo Snilldarlegasta og skemmtilegasta brettaferd sem ad hefur verid i mannkynssogunni!! en tha ætlum vid skvisurnar og fleira folk i skolanum ad skunda a akureyri!! Vid verdum i 5 daga og vid ætlum okkur ad gera allskyns hluti s.s. skela okkur a ball med Villa og co i mjog morgum naglbitum, Fara i sund og svo ymislegt sem er ekki hægt ad segja fra her, (kennararnir gera thad, (*host* INGVAR *host*)) En thad er ekki snjor a akureyri marr thannig ad thad verdur ekki mikid brettast en hverjum er ekki sama!!

eg gat ekki set inn myndirnar sem eg ætladi ad setja inn:( ef einhver kann ad setja myndir a svona blogg tha mega their alveg senda meil a kristinalma@torg.is

bæmm

9.3.04

Allt ad Gerast!!

hæ hæ eg er i thessari yndislegu tolvu sem ad tilheyrir Arnarasnum i Gardabænum, En hun var i vidgerd og er nuna på Dansk!! Ekkert sma Boggandi, En eg vona ad thid skiljid thetta blessada blogg mitt..

Akkurat a thessum timapunkti tha eru 2 dagar i arshatidina og 5 dagar i sweet sixteen!! ohh eg er ad deyja ur spenningi. Vid i leiklistinni erum med otrulega fyndid atridi a arshatidinni, ohh eg er ad springa mig langar svo ad segja fra thvi en eg ma thad ekki...thetta atridi er nefninlega svona surprize!

Annars er ekki mikid buid ad gerast hja mer nama bara skoli fra 8-5 a daginn og thad er bara klikkun. Svo i gær for pabbi i kosningaeftirlit til Russlands, og mer finnst thad bara fyndid.

En eg er farin ad gera eitthvad ad viti thvi ad eg er of treytt til ad blogga!!!

5.3.04

Woodchuck

Ég er að tala við hann Gumma á msn núna og ji minn hvað drengurinn er mikil steik!!!! Hann var að senda mér þetta:

What would a woodchuck chuck if a woodchuck could chuck wood?

Woodchuck would chuck, all the wood he could chuck, if a woodchuck, could chuck, wood.

Lesiði þetta upphátt eins hratt og þið getið og sjáið hvað gerist!!!

kv, Kristinalma

4.3.04

Skrifleti, Skóli og Frank Mills

hæ hæ, og ég vona að mér verði fyrirgefið hvað ég er ekki að nenna að blogga mikið. En ég er nefninlega kominn með sjúkdóm sem heitir skrifleti og virkar þannig að maður nennir ekki að skrifa á bloggið.

En ég var í vetrarfrí alvegt í heila viku og það var sko ekkert smá gott!! En svo byrjaði skólinn aftur og það er ekkert verið að leyfa okkur að aðlagast eftir að hafa verið í fríi, Nei nei það er bara heimalærdómur dauðans og allskonar kannanir og þessháttar! Frekar leiðinlegt, en ég lifi það líklega af í einn mánuð þangað til páskafríið kemur.

Svo er búiðað vera klikkaðað gera í Leiklistinni því að við erum að gera surprize atriði fyrir árshátíðina, það er sko frumsamið og ekkert lítið fyndið, Svo áðan var ég í enn einni söngprufunni en bú var það fyrir Söngleikinn HÁRIÐ sem við erum að fara að setja upp í vor. Mér gekk eiginlega bara framar vonum og er svona nokkuð sátt við prufuna. Ég söng þetta æðislega lag sem emilía torríni söng í Hárinu þegar það var sett upp hér síðast, Auðvitað Frank Mills! Kruttlegt lag. Við erum líka búin að fara í "prufu" fyrir hlutverk í leikritinu, og ég las Shilu eða hvað sem hún heitir og það gekk líka bara frábærlega..En svo er bara að sjá hvort að ég verði valin í eithvað annað en búningahönnun!!!!

Svo var ég að fá útúr stóra Samfélagsfræði prófinu og ég fékk 8,5 og ég er ekkert smá stolt af mér maður!!!
Viktoría átti afmæli í gær og er orðin 16 ára, Algjör skvísa
ég man ekki eftir neinu öðru til að skrifa um en ég skal reyna að skrifa fljótlega aftur! bæmm

28.2.04

SAMFÉS!!

já komiði sæl og blessuð....Ég var rétt í þessu að stíga mínum sáru fótum inn um dyrnar hérna á heimili mínu in da Garðabær og ég er alveg að deyja úr þreytu eftir nokkuð viðburðaríkt kvöld:)

Já þetta byrjaði allt með því að Við nokkrir krakkar úr skíða og brettaklúbb garðaskóla hittumst uppí skóla til þess að fara að vinna á DANSLEIK Samfés sem haldinn var í Laugardalshöll að þessu sinni. Svo þegar við vorum búin að gera allt reddý í sjoppunni þá fór fólkið að streyma að úr öllum áttum og við vorum alveg á þönum að reyna að sinna þörfum 2500 ungmenna hvaðanæfa að af landinu! Svo var ég nátúrulega sett í að vinna aðeins meira, og svo bara pínu lengur, sem leiddi til þess að ég fékk eina pásu allt kvöldið semvar í korter í staðin fyrir að fá 2 klukkustunda langar pásur.
En ég náði vinum mínum í quarashi og besatsat vini mínum í öllum heiminum sem heitir LOVE gúrú! Hann er bara Flottur!

En ég missti af öllum hinum og ég er mest fúl yfir að hafa misst af naglbítunum,skímó og í svörtum fötum! En það gerðist margt skemtilegt í Sjoppunni og ég verð eiginlega að segja ykkur frá því;)

Sko þegar ég var nýbyrjuð á vaktinni þá kom Jón Benjamín og Daði að kaupa sér kók og ég fór bara og ætlaði að afgreiða þá, en jón var bara í einhverju hláturskasti og gat rétt svo ropað því útúr sér að hann ætlaði að fá kók, Svo þegar hann ætlaði að borga þá rétti hann mér 500kall og hann var RENNANDIBLAUTUR og ógeðslegur og þá hélt ´´i alvöru að jón myndi DEYJA því ahnn hló svo mikið. Þá sagði hann við mig að hann hefði geymt 500kallinn í sokknum sínum og farið að slamma og djöflast og peningurinn bara í hassi....mér fannst þetta ekki sniðugt fyrst en svo er ég farin að geta hlegið að þessu núna. Sérstaklega eftir að ég var samferða þeim heim áðan og shit hvað þeir eru CRAZY!!! Skondir piltar þar á ferð!

Svo var Gaur sem ég afgreiddi sem ætlaði að fá pizzu og sprite, orðaði það svona skemmtilega: Má ég´fá pizzu og blátt sprite? hvað þetta eru þínir peningar, þú ræður því sjálfur maður!! thhssss

Svo var það Evan mín sem að gjörsamlega toppaði kvöldið alveg þegar hún hoppaði ofaní poka með pizakössum og það fór eki betur en svo að hún DATT beint á bossann, eða réttara sagt hnéð. þá þurfti ég að taka mér pissuhlé því að ég var næstum því bæuin að pissa á mig þegar hún gerði þetta, Reyndar var ég að tala við hana áðan á msn og hún sagði að hún væri með marblett á hnénu eftir þetta, æ æ láttu þér batna eva mín. =*

ég ætla samt að segja ykkur það að ef þið haldið að það sé eithvað auðvelt starf að sörva pizzu, gos og nammi ofan í 2500 sveitta og freka unglinga í laugardalshöllinni þá er þaðp misskilningur, það er bara erfitt eins og fæturnir mínir fengu að kynnast í kvöld...ÁÁÁÁÁIIIIIIII... En þetta er orðirð nokkuð gott um Dansleikinn mikla og ég blogga kannski aftur síðar, hver veit?

P.S Flipplingurinn kemur heim á morgunn frá ítlaíu!!! (Inga Rós)
og svo er ég að fara á Sugarbabes með lindu og dízu 8 apríl og svo reddar marr sér miða á Korn á Sunnudag!!! Shit STUÐÐÐÐ

25.2.04

Wóóóóó!

Hehemm...Ég hef ekki skrifað lengi og ku það vera vegna alvarlegrar skrifleti og prófanna! Sá gamli er farinn að kvarta yfir því að ég bloggi bara aldrei núorðið. Hann segir að ég sé með svokallað Aumingjablogg en hann nennir nú ekki einusinni að blogga yfir höfuð þannig að, mér er sama hvað honum finnst.

Það hefur ekki mikið drifið á daga mína upp á síðkastið. Það er búið að vera allt allt á fullu í skólanum og það voru próf uppá hvern einasta dag, og plús það þá voru´heimsóknir í menntaskóla höfuðborgarsvæðisins og skrapp ég í Kvennaskólann við fríkirkjuveg og leist bara nokkuð vel á. Einnig fór ég í Versló í Janúar og leist mér líka rosalega vel á han. Ég ætla að sækja um í fyrsta val og Kvennó í annað, Versló er nefninlega nær og þá þarf maður bara að taka strætó í 10 min í staðin fyrir 20 min í kvennó.

ÉG er líka komin í viku vetrarfrí og það er alveg ekkert smá gott, en svo eftir vetrarfrí er svo mikið að gera þannig að áður en ég veit af verður komið páskafrí og þáer bara að setja sig í stellingar með námsbó í hægri og páskaegg í vinstri og læra eins og brjálæðingur fyrir samræmduprófin sem byrja 3 Maí.

Æji þetta blogg er komið útí vitleysu sökum þess að ég er tiltölulega nývöknuð og hef ekki fengið nien lyf við skrifleti.
ble ble í bili

24.2.04

Ég hef ekki koðið víða, en á samt góðar minningar

visited 7 countries (3%)
Put this map on your website/blog by pasting the following html code:

create your own visited country map
or write about it on the open travel guide

15.2.04

Síðustu Dagar

Ég veti ekki hvernig þetta blessaaða blogg á eftir að líta út því að ég er í annari tölvu og hún er neð skrýtnu lyklaborði. En þið bara reynið að geta í eyðurnar ef að þetta er eitthvað skrýtið.

Síðustu dagar hafa bara verið rólegir hjá mér, reyndar allt á fullu í skólanum og þess háttar. Karl faðir minn komst í hið merka morgunblað DV um helgina þar sem sagt var frá því að hann ætlaði að mæta galvaaskur í Kastljósið á Þriðjudaginn eftir mánaðar fæðingarorlof. Það var víst fólk útí bæ farið að halda að hann væri hættur vegna þess að hann hvarf bara af skjánum. En hann er mættur aftur og allt gengur sinn vanagang.

Á föstudaginn fór ég bara í skólann eins og vanalega og aldrei þessu vant var bara gaman. Sérstaklega í Lestur og Framsögn, það voru svona kappræður og ég var bara alveg að missa mig. Þetta virkaði þannig að Rósa (kennarinn) skipti okkur niður í 2 lið og svo fengum við viðfangsefni til að vera á með eða móti. Viðfangsefnið var auðvitað lýtaaðgerðir, og ég náttúrulega þurfti að vera í hópnum sem var á með lýtaaðgerðum! Það er bara eins og að neyða sjálfstæðismann yfir í vinstri græna. Ég er alveg hrikalega mikið á móti lýtaaðgerðum nema þegar það er verið að laga eitthvað LÝTI eins og er oft gert í Extrime make over þar er nefninlega verið að hjálpa fólki því að það þorir ekki útúr húsi vegna þess að það er svo hræðilega "ljótt" , því er ég alveg hlynt. En þegar að glæsilegar konur á bestaa aldri eru að fara í fitusog(það er eiginlega ekki neitt til að soga), varafyllingu, andlitslyftingu og þess háttar þá held ég aað það sé ekki alveg allt í lagi. þetta er bara alveg útí hróa hött. Ég er þá auðvitað að tala um hana Ruth Reginalds, ég get ekki séð nein LÝTI á henni. Ég held að ef hún myndi kannski fara í húðhreinsun, líkamsrækt, Tannviðgerðir og láta gera eitthvað við hárið sitt yrði hún alveg bara stórglæsileg. Af hverju fer hún ekki bara í breytt útlit í ísland í bítið? Það væri alveg nóg fyrir hana, að fá ný föt og nýtt make up og þess háttar.
En já ég er komin "pínu" útaf sporinu eftir skóla var ég bara í feitu tjilli og svo um kveldið fór ég útá seltjarnarnes með Ingu Rós og Ástu, það var nefninlega eitthvað ball. En ég hitti náttúrulega alla krakkana sem ég var með í skóla í den. Ótrúlega gaman að hitta alla aftur og sjá hvað þau hafa stækkað. En ég hitti auðvitað Viktoríu og það var bara snilld við erum ekki búnar að hittast ótrúlega lengi, en við erum samt eins og verstu kjaftakellingar á msninu. Svo þegar ég kom heim kl 11 þá fórum ég og Helga aðeins út og enduðum svo heima hjá Ingu,vorum þar í smá stund og sórum svo á rúntinn og það var alveg mergjuð snilld.

Nú svo var leigardagurinn algjörlega feitt chill og ég gerði ekki niett nema horfa á video uppí rúmi og svo kl 5 fór ég til Pabba og Birnu því að þau voru að fara eitthvað útá lífið og ég og amma skiptum með okkur vöktum þar sem að ég var að fara að passa í Klettás um kvöldið.
og núna er kl orðin 4 um nóttt og ég er enn að passa, en það er allt í góðu því að ég er bara í tölvunni og svona allskonar, Var að lesa vouge áðan og svona ýmislegt sem maður gerir sér til dundurs á laugardagskvöldi.

en ég er farin bless bless

10.2.04

Góðan Dag, Kvöld eða what ever....
...jamms ég hef eiginlega gert voðalega lítið af mér síðan ég skrifaði síðast. Allaveg ekki mér en kannski af einhverjum öðrum. já á Fimmtudaginn var svo leiðinlegur dagur þangað til í stærðfræðinni í síðustu tvem tímunum (13:50 - 15:10) versti tími til að vera í tvöfaldri stærðfræði. En svo gerðist það að þegar um það bil 23 og hálf min voru búnar af tímanum kemur ekki hann Stymmi (var í tíunda í fyrra, ER í uppáhaldi hjá Kristínu Bjarna) og hún var svo ánægð að hún fór til hans og kyssit hann og talaði við hann (við vorum allur bekkurinn undir nákvæmlega engu eftirliti og vorum bara að tala og svona) þangað til það var um það bil hálftími eftir af tímanum þá spurði einhver hvort við mættum fara og hún bara já elskurnar mínar!! Og svo setti hún einhver skítlétt dæmi fyrir heima og við bara jæja og fórum heim. Þetta er í eina skiptið sem ég hef þakkað guði fyrir hann styrmi. En núna þá bið ég bara alla sem voru í stærðfræði hjá kristínu bjarna einhverntíman að koma í þessa tvo tíma og hielsa uppá hana skvísuna.

Á föstudaginn var ekki neitt merkilegt held ég, eða jú hann Ingvar beib átti afmæli og hann var hvorki meira né minna en 17 ára, Kagglinn nettur á því. En allavega ég óska honum nú til hamingju með Afmælið. Þið sjáið hann samt örugglega keyra um bæinn bráðum á kagganum. allir að vera heima næstu mánuðina. ekki samt útaf honum því ég er líka að fá æfingaleyfi og Guð minn góður annar hver ljósastaur í borginni eiga eftir að vera nett skakkir þegar Tjúttlingurinn fer að dræfa. já á föstudagskvöldið þá var dragkeppni niðrí skóla og Það var bara fyndið hvað sumir lögðu á sig fyrir þetta.

Á laugardaginn gerði ég ekki niett ég bara nennti ekki að gera neitt, ég reyndar ætlaði niðrí kringlu að hitta hana viktoríu sem er að vinna þar. en svo bara var eitthvað svo kósý að vera bara heima þannig að ég fór ekki neitt. Svo var bara eitthvað lítið gert um kvöldið.

Sunnudagurinn var bara venjulegur bara lesa og eitthvað, fór reyndar að passa um kveldið en annars bara eikki neitt sko.

svo er bara búið að vera skóli og þess háttar hjá mér. Alveg voðalega lítið að gerast hjá mér þessa dagana.

jæja best að koma sér í lúllið, ég er alveg að leka niður úr þreytu. bæjó spæjó