Svo fórum við til akureyrar í skíðaferðina daginn eftir og það var bara ekkert smá stuð!! ég steig í annað sinn á bretti og ég var drulluléleg fyrsta daginn en svo varð ég aðeins betri eftir því sem leið á ferðina, en ég og toglyftan eigum ekki samleið!! En ég og stólalyftan erum vinir, nema ég dett alltaf þegar að ég er að koma úr henni. ég vil þakka ásgeiri bróðir hennar ingu Rósar kærlega fyrir hjálpina og ÞOLINMÆÐINA Takk æðislega fyrir mig Ásgeir!!! En já það voru sem sagt ófáir marblettirnir eftir þessa ferð!!
Svo núna er bara verið að læra eins og brjálæðingur og æfa Hárið sem verður frumsýnt 20 apríl og verður sýnt í eina viku. Rosalega velgerð sýning, þó að ég segi sjálf frá;) og hvet ég alla sem að vilja til að koma!
Salka átti afmæli 25 mars og varð ! árs, ekkert smá stór!!
Pabbi átti stór afmæli 7 Apríl og varð hvorki meira né minna en 35 ára!!! Honum finnst það vera bara alveg hræðilegt en ég er ánægð með kallinn, hann verður alltaf ungur í anda allavega, því að salka á eftir að halda honum ungum næstu árin, og kannski að ég hjálpi eitthvað til við það!!
Svo á Eyjólfur afmæli á páskadag og verður 3 ára. ekkert smá mikill gaur.
Heiðdís beib átti líka afmæli um daginn og varð 16 ára.
og síðust en alls ekki síst þá varð Litla frænka mín og nafna 5 ára 24 mars, (Alma Diljá), og hún er líka að verða stóra systir í Mai!
En ég held að ég hafi ekki mikið meira að segja í bili og ég lofa að vera duglegri við að blogga á næstunni!!
Þangað til næst, bæ bæ
Engin ummæli:
Skrifa ummæli