Ég er hress að vanda og allt gengur vel.. ég er að læra núna heima hjá honum pabbalabba. ég er búin að vera hér ein þi smá tíma og er að fara að læra eitthvað athyglisvert;) Eg var að læra stærðfræði í 2 tíma áðan og er nú bara nokkuð ánægð með það.
Svo er ég að fara að sýna á eftir HÁRIÐ, svo að það er mikill stemmari í gangi eins og venjulega...Annars var stuð um helgina maður, ég var að sýna á Fös.kvöld, og allt gekk alveg ljómandi vel, Svo fór ég með nokkrum krökkum heim til Steinunnar og vorum eikkað að tjilla bara, svo fór ég bara kl 12 heim vegna þess að ég var orðin svo þreytt og var svo að fara að passa um morguninn kl 10, hana sölku(sem er alltaf jafn líka mér að vanda),á lau.kvöld fór ég til ingu rósar, og þar voru einnig, Kristín hin, ásta og eva bébé! við vorum eikkað að flippast í karíókí og fórum níðrí bónusvideo að leigja spólu sem að varð aldrei leigð!! en það var keypt nammi og eitthvað gotterí!!
(set myndir kannksi bráðum..)
En í gær var svo bara lært allan dagin farið svo og hjólað til pabba að gefa kisu að borða, Viskas koddana þarna úr auglýsingunni með kisunni og´teiknimyndamúsinni, og fór svo bara aftur heim að læra..Svo kom Óskar og mamma að sækja mig, og við fórum í mat til ömmu Stínu og afa minna, þar Var hann Gummi Sem er svona Uppáhaldsfrændinn minn (nema þegar hann klípur mig eins og áðan...ARG) Það var gott að sjá hann aftur eftir nokkara mánaða fjarveru frá honum:)
Svo í Dag var þessi einstaklega skemmtilegi og lærdómsríki skóladagur, En það var sund hjá honum ingvari sem er víst góðvinur okkar ingu...eða var, hann lét okkur labba skátahringinn í þessu ógeðslega veðri og ég var ekki einusinni með úlpu!!! En svo þegar það var búið sagði hann að ég og Inga Rós þyrftum að koma í aukatíma til þess að taka eitthvað asnalegt próf í björgunarsundi!!! er það nú! Ég og inga r+ós komumst að þeirri niðurstöðu svo í hádeginu að hann vildi bara hafa okkur eftir samræmdu líka:) við erum svo skemmtilegar, en hann er ekki lengur í það miklu uppáhaldi hjá okkur eftir þennan ömurlega "sundtíma"....En ég er farin að læra smá og svo þarf ég að fara að koma mér niðrí skóla!! Sýning kl 9 held að það sé ekki uppselt þannig að endilega komið að sjá!! en við bara heyrumst og sjáumst, ég er farin því að ég er farin að tala um hluti sem að bara skipta engu máli!!!
bæbæbæ
P.S Röggi á afmæli í dag, orðinn sextán kallinn!!! TIl HAMINGJU MEÐ ÞAÐ!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli