hæ hæ og góðan og blessaðan daginn! ég er aldeilis búin að vera dugleg í dag, ég vaknaði kl 09:00 í morgun og fór yfir til pabba og birnu og passaði sölku og Sindra. Svo þegar að salka fékk sér lúr þá hjálpaði ég sindra að instala Sims superstar! Voða skemmtilegur leikur með svona köllum sem að maður verður að stjórna og láta þá gera allskonar hluti. Allavega svo er ég aðeins búin að horfa Á tv og eitthvað svoleiðis!
Birna er að fara til NY eftir 2 tíma og ég verð ein hér að æra fram á þriðjud. ég er búin að ákveða að vera ekkert smá dugleg að gera glósur í þessum 4 sam bókum sem að ég er með, vinna verkefni uppúr því ofl. Svo verður maður nátúrulega líka að læra í stæ, ísl, ens,og dan, ég er að hugsa um að biðja hann gumma frænda um að hjálpa mér við Enskuna, því að hann bjó í bandaríkjunum í 4 ár or sum. Svo er hún Auður Stella búin að vera að hjálpa mér með stærðfræðina en ég verð líka að æfa mig sjálf í henni. Svo er Bara að rifja upp íslenskuna, ljóðin og það og ritun í Dönsku.
En ég held að þið séuð öll farin að geispa og hafið ekki mikinn áhuga á lærdómnum mínum. En ég skellti mér í leikhús um daginn með ölum sem eru að leika í hárinu. Við fórum í Þjóðleikhúsið að sjá Þetta er allt að koma. Snilldarleikrit þar á ferð og Leikstjórinn okkar hún Þórunn Erna Clausen er ótrúlega fyndin í þessu skemmtilega stykki.
En jamms, það eru tvær aukasýningar hjá okkur á mánudaginn kl 21:00 og þriðjudaginn kl 18:00, endilega hafiði samband ef þið viljið koma.
En ég er farin að kveðja Sölku sem verður hjá ömmu sinni fram á þriðjudag. En þess má geta að litla skottið sagði pabbi áðan, alveg í fyrsta skipti, algjör mús...
En ég er farin, það var verið að hringja í mig og segja að ég þyrfti ekki að passa í kveld, þannig sð ég annað hvort læri eða ef að einhverjum vantar pössun þá hafiði samband. :) en ég er farin að læra núna, bleble
Engin ummæli:
Skrifa ummæli