12.4.04

Starfsreynsludagurinn var hrein Snilld!!

En allavega þá var starfsreynsludagur um daginn, nánar tiltekið 16 mars og ég fór uppá norðurljós með Lindu og ingu Rós og við skemmtum okkur konunglega. Fyrst mætt og fylgst með Ísland í bítið, svo á fréttafund með helstu fréttahaukum okkar íslendinga. Svo var farið niðrá fm og chillað þar með "Einsa belg" og félögum (Einar ágúst), Og "Heiar sæti" var þar líka, þeir eru náttúrulega bara snillar þarna á fm. Síðan fórum við í kynningu með jóhonnu um Norðurljós og fræddumst um alla starfsemi fyrirtækisins. Svo kíktum við á strákana í 70 min og vorum bara að tjilla í settinu með þeim og fengum þessa fínu kennslu frá Pétri í selnum! en því miður fengum við ekki að sjá hann skauta eða sýna kúlurassinn :(
Svo fórum við og kíktum á Þór í vinnunni, þá var hann að klippa einhverja frétt og það var nú alveg nett fyndið því að hann smellir fingrunum eins og lífið sé í veði. En svo var kíkt á popptíví skrifstofuna og þar vorum við að tala við Audda og svo segir hann alltíeinu við okkur: er ekki gott veður úti og við alveg jú, það er sól og allt marr! þá kemur fíflið með risa vatnsbyssu og sprautar á okkur eins og einhver sækó!! og við rennandi blautar, þá segir hann nú þá þorniði fljótt!! en við dóum ekki ráðalausar frekar en fyrridaginn og tókum 3 vatnsglös og skvettum á hann, þegar að hann sá ekki til okkar, hann var ekki hress með það kallinn. Þegar að við vorum búnar að hefna okkar á honum fórum við niður á fm til hans svala, og hann var bara hinn hressasti og leyfði okkur að gefa leikhúsmiða, það var nú alveg fjör...
En ég er ekkert smðá ánægð með þennan dag og verð að segja við ykkur rúvara að þið verðið aðeins að hressa ykkur við og mæta með vatnsbyssur í vinnuna!!


Engin ummæli: