hæ hæ, og ég vona að mér verði fyrirgefið hvað ég er ekki að nenna að blogga mikið. En ég er nefninlega kominn með sjúkdóm sem heitir skrifleti og virkar þannig að maður nennir ekki að skrifa á bloggið.
En ég var í vetrarfrí alvegt í heila viku og það var sko ekkert smá gott!! En svo byrjaði skólinn aftur og það er ekkert verið að leyfa okkur að aðlagast eftir að hafa verið í fríi, Nei nei það er bara heimalærdómur dauðans og allskonar kannanir og þessháttar! Frekar leiðinlegt, en ég lifi það líklega af í einn mánuð þangað til páskafríið kemur.
Svo er búiðað vera klikkaðað gera í Leiklistinni því að við erum að gera surprize atriði fyrir árshátíðina, það er sko frumsamið og ekkert lítið fyndið, Svo áðan var ég í enn einni söngprufunni en bú var það fyrir Söngleikinn HÁRIÐ sem við erum að fara að setja upp í vor. Mér gekk eiginlega bara framar vonum og er svona nokkuð sátt við prufuna. Ég söng þetta æðislega lag sem emilía torríni söng í Hárinu þegar það var sett upp hér síðast, Auðvitað Frank Mills! Kruttlegt lag. Við erum líka búin að fara í "prufu" fyrir hlutverk í leikritinu, og ég las Shilu eða hvað sem hún heitir og það gekk líka bara frábærlega..En svo er bara að sjá hvort að ég verði valin í eithvað annað en búningahönnun!!!!
Svo var ég að fá útúr stóra Samfélagsfræði prófinu og ég fékk 8,5 og ég er ekkert smá stolt af mér maður!!!
Viktoría átti afmæli í gær og er orðin 16 ára, Algjör skvísa
ég man ekki eftir neinu öðru til að skrifa um en ég skal reyna að skrifa fljótlega aftur! bæmm
Engin ummæli:
Skrifa ummæli