já komiði sæl og blessuð....Ég var rétt í þessu að stíga mínum sáru fótum inn um dyrnar hérna á heimili mínu in da Garðabær og ég er alveg að deyja úr þreytu eftir nokkuð viðburðaríkt kvöld:)
Já þetta byrjaði allt með því að Við nokkrir krakkar úr skíða og brettaklúbb garðaskóla hittumst uppí skóla til þess að fara að vinna á DANSLEIK Samfés sem haldinn var í Laugardalshöll að þessu sinni. Svo þegar við vorum búin að gera allt reddý í sjoppunni þá fór fólkið að streyma að úr öllum áttum og við vorum alveg á þönum að reyna að sinna þörfum 2500 ungmenna hvaðanæfa að af landinu! Svo var ég nátúrulega sett í að vinna aðeins meira, og svo bara pínu lengur, sem leiddi til þess að ég fékk eina pásu allt kvöldið semvar í korter í staðin fyrir að fá 2 klukkustunda langar pásur.
En ég náði vinum mínum í quarashi og besatsat vini mínum í öllum heiminum sem heitir LOVE gúrú! Hann er bara Flottur!
En ég missti af öllum hinum og ég er mest fúl yfir að hafa misst af naglbítunum,skímó og í svörtum fötum! En það gerðist margt skemtilegt í Sjoppunni og ég verð eiginlega að segja ykkur frá því;)
Sko þegar ég var nýbyrjuð á vaktinni þá kom Jón Benjamín og Daði að kaupa sér kók og ég fór bara og ætlaði að afgreiða þá, en jón var bara í einhverju hláturskasti og gat rétt svo ropað því útúr sér að hann ætlaði að fá kók, Svo þegar hann ætlaði að borga þá rétti hann mér 500kall og hann var RENNANDIBLAUTUR og ógeðslegur og þá hélt ´´i alvöru að jón myndi DEYJA því ahnn hló svo mikið. Þá sagði hann við mig að hann hefði geymt 500kallinn í sokknum sínum og farið að slamma og djöflast og peningurinn bara í hassi....mér fannst þetta ekki sniðugt fyrst en svo er ég farin að geta hlegið að þessu núna. Sérstaklega eftir að ég var samferða þeim heim áðan og shit hvað þeir eru CRAZY!!! Skondir piltar þar á ferð!
Svo var Gaur sem ég afgreiddi sem ætlaði að fá pizzu og sprite, orðaði það svona skemmtilega: Má ég´fá pizzu og blátt sprite? hvað þetta eru þínir peningar, þú ræður því sjálfur maður!! thhssss
Svo var það Evan mín sem að gjörsamlega toppaði kvöldið alveg þegar hún hoppaði ofaní poka með pizakössum og það fór eki betur en svo að hún DATT beint á bossann, eða réttara sagt hnéð. þá þurfti ég að taka mér pissuhlé því að ég var næstum því bæuin að pissa á mig þegar hún gerði þetta, Reyndar var ég að tala við hana áðan á msn og hún sagði að hún væri með marblett á hnénu eftir þetta, æ æ láttu þér batna eva mín. =*
ég ætla samt að segja ykkur það að ef þið haldið að það sé eithvað auðvelt starf að sörva pizzu, gos og nammi ofan í 2500 sveitta og freka unglinga í laugardalshöllinni þá er þaðp misskilningur, það er bara erfitt eins og fæturnir mínir fengu að kynnast í kvöld...ÁÁÁÁÁIIIIIIII... En þetta er orðirð nokkuð gott um Dansleikinn mikla og ég blogga kannski aftur síðar, hver veit?
P.S Flipplingurinn kemur heim á morgunn frá ítlaíu!!! (Inga Rós)
og svo er ég að fara á Sugarbabes með lindu og dízu 8 apríl og svo reddar marr sér miða á Korn á Sunnudag!!! Shit STUÐÐÐÐ
Engin ummæli:
Skrifa ummæli