Fólk er brjálað...
Já það er nefninlega einhver þýskur karl sem ákvað að auglýsa á internetinu eftir manni sem hann mætti drepa og borða síðan. Hann valdi svo einn af mörgum umsækjendum og myrti hann og át! (huggulegt matarboð þarna?) hann tók þetta meira að segja upp á video. En svo var verið að rétta yfir blessaða manninum og þá sagði hann sér til varnar að það hefði verið draumur hans lengi að geta sameinast annari manneskju og þess vegna hafi hann bara verið að fylgja hjartanu. yeah right! Hann fékk einhvern átta ára dóm og sagði eftir réttarhöldin að hann væri bara rosalega sáttur við það.
Annars er bara allt fínt að frétta af mér, ég er reyndar búin að vera með einhverja flensu og hósta. En mér er eiginlega alveg batnað nema að ég er ennþá með hóstann og kvef en það hlýtur að lagast með tímanum.
ég er farin að læra bæjó
Engin ummæli:
Skrifa ummæli