10.2.04

Góðan Dag, Kvöld eða what ever....
...jamms ég hef eiginlega gert voðalega lítið af mér síðan ég skrifaði síðast. Allaveg ekki mér en kannski af einhverjum öðrum. já á Fimmtudaginn var svo leiðinlegur dagur þangað til í stærðfræðinni í síðustu tvem tímunum (13:50 - 15:10) versti tími til að vera í tvöfaldri stærðfræði. En svo gerðist það að þegar um það bil 23 og hálf min voru búnar af tímanum kemur ekki hann Stymmi (var í tíunda í fyrra, ER í uppáhaldi hjá Kristínu Bjarna) og hún var svo ánægð að hún fór til hans og kyssit hann og talaði við hann (við vorum allur bekkurinn undir nákvæmlega engu eftirliti og vorum bara að tala og svona) þangað til það var um það bil hálftími eftir af tímanum þá spurði einhver hvort við mættum fara og hún bara já elskurnar mínar!! Og svo setti hún einhver skítlétt dæmi fyrir heima og við bara jæja og fórum heim. Þetta er í eina skiptið sem ég hef þakkað guði fyrir hann styrmi. En núna þá bið ég bara alla sem voru í stærðfræði hjá kristínu bjarna einhverntíman að koma í þessa tvo tíma og hielsa uppá hana skvísuna.

Á föstudaginn var ekki neitt merkilegt held ég, eða jú hann Ingvar beib átti afmæli og hann var hvorki meira né minna en 17 ára, Kagglinn nettur á því. En allavega ég óska honum nú til hamingju með Afmælið. Þið sjáið hann samt örugglega keyra um bæinn bráðum á kagganum. allir að vera heima næstu mánuðina. ekki samt útaf honum því ég er líka að fá æfingaleyfi og Guð minn góður annar hver ljósastaur í borginni eiga eftir að vera nett skakkir þegar Tjúttlingurinn fer að dræfa. já á föstudagskvöldið þá var dragkeppni niðrí skóla og Það var bara fyndið hvað sumir lögðu á sig fyrir þetta.

Á laugardaginn gerði ég ekki niett ég bara nennti ekki að gera neitt, ég reyndar ætlaði niðrí kringlu að hitta hana viktoríu sem er að vinna þar. en svo bara var eitthvað svo kósý að vera bara heima þannig að ég fór ekki neitt. Svo var bara eitthvað lítið gert um kvöldið.

Sunnudagurinn var bara venjulegur bara lesa og eitthvað, fór reyndar að passa um kveldið en annars bara eikki neitt sko.

svo er bara búið að vera skóli og þess háttar hjá mér. Alveg voðalega lítið að gerast hjá mér þessa dagana.

jæja best að koma sér í lúllið, ég er alveg að leka niður úr þreytu. bæjó spæjó

Engin ummæli: