Hehemm...Ég hef ekki skrifað lengi og ku það vera vegna alvarlegrar skrifleti og prófanna! Sá gamli er farinn að kvarta yfir því að ég bloggi bara aldrei núorðið. Hann segir að ég sé með svokallað Aumingjablogg en hann nennir nú ekki einusinni að blogga yfir höfuð þannig að, mér er sama hvað honum finnst.
Það hefur ekki mikið drifið á daga mína upp á síðkastið. Það er búið að vera allt allt á fullu í skólanum og það voru próf uppá hvern einasta dag, og plús það þá voru´heimsóknir í menntaskóla höfuðborgarsvæðisins og skrapp ég í Kvennaskólann við fríkirkjuveg og leist bara nokkuð vel á. Einnig fór ég í Versló í Janúar og leist mér líka rosalega vel á han. Ég ætla að sækja um í fyrsta val og Kvennó í annað, Versló er nefninlega nær og þá þarf maður bara að taka strætó í 10 min í staðin fyrir 20 min í kvennó.
ÉG er líka komin í viku vetrarfrí og það er alveg ekkert smá gott, en svo eftir vetrarfrí er svo mikið að gera þannig að áður en ég veit af verður komið páskafrí og þáer bara að setja sig í stellingar með námsbó í hægri og páskaegg í vinstri og læra eins og brjálæðingur fyrir samræmduprófin sem byrja 3 Maí.
Æji þetta blogg er komið útí vitleysu sökum þess að ég er tiltölulega nývöknuð og hef ekki fengið nien lyf við skrifleti.
ble ble í bili
Engin ummæli:
Skrifa ummæli