Ég veti ekki hvernig þetta blessaaða blogg á eftir að líta út því að ég er í annari tölvu og hún er neð skrýtnu lyklaborði. En þið bara reynið að geta í eyðurnar ef að þetta er eitthvað skrýtið.
Síðustu dagar hafa bara verið rólegir hjá mér, reyndar allt á fullu í skólanum og þess háttar. Karl faðir minn komst í hið merka morgunblað DV um helgina þar sem sagt var frá því að hann ætlaði að mæta galvaaskur í Kastljósið á Þriðjudaginn eftir mánaðar fæðingarorlof. Það var víst fólk útí bæ farið að halda að hann væri hættur vegna þess að hann hvarf bara af skjánum. En hann er mættur aftur og allt gengur sinn vanagang.
Á föstudaginn fór ég bara í skólann eins og vanalega og aldrei þessu vant var bara gaman. Sérstaklega í Lestur og Framsögn, það voru svona kappræður og ég var bara alveg að missa mig. Þetta virkaði þannig að Rósa (kennarinn) skipti okkur niður í 2 lið og svo fengum við viðfangsefni til að vera á með eða móti. Viðfangsefnið var auðvitað lýtaaðgerðir, og ég náttúrulega þurfti að vera í hópnum sem var á með lýtaaðgerðum! Það er bara eins og að neyða sjálfstæðismann yfir í vinstri græna. Ég er alveg hrikalega mikið á móti lýtaaðgerðum nema þegar það er verið að laga eitthvað LÝTI eins og er oft gert í Extrime make over þar er nefninlega verið að hjálpa fólki því að það þorir ekki útúr húsi vegna þess að það er svo hræðilega "ljótt" , því er ég alveg hlynt. En þegar að glæsilegar konur á bestaa aldri eru að fara í fitusog(það er eiginlega ekki neitt til að soga), varafyllingu, andlitslyftingu og þess háttar þá held ég aað það sé ekki alveg allt í lagi. þetta er bara alveg útí hróa hött. Ég er þá auðvitað að tala um hana Ruth Reginalds, ég get ekki séð nein LÝTI á henni. Ég held að ef hún myndi kannski fara í húðhreinsun, líkamsrækt, Tannviðgerðir og láta gera eitthvað við hárið sitt yrði hún alveg bara stórglæsileg. Af hverju fer hún ekki bara í breytt útlit í ísland í bítið? Það væri alveg nóg fyrir hana, að fá ný föt og nýtt make up og þess háttar.
En já ég er komin "pínu" útaf sporinu eftir skóla var ég bara í feitu tjilli og svo um kveldið fór ég útá seltjarnarnes með Ingu Rós og Ástu, það var nefninlega eitthvað ball. En ég hitti náttúrulega alla krakkana sem ég var með í skóla í den. Ótrúlega gaman að hitta alla aftur og sjá hvað þau hafa stækkað. En ég hitti auðvitað Viktoríu og það var bara snilld við erum ekki búnar að hittast ótrúlega lengi, en við erum samt eins og verstu kjaftakellingar á msninu. Svo þegar ég kom heim kl 11 þá fórum ég og Helga aðeins út og enduðum svo heima hjá Ingu,vorum þar í smá stund og sórum svo á rúntinn og það var alveg mergjuð snilld.
Nú svo var leigardagurinn algjörlega feitt chill og ég gerði ekki niett nema horfa á video uppí rúmi og svo kl 5 fór ég til Pabba og Birnu því að þau voru að fara eitthvað útá lífið og ég og amma skiptum með okkur vöktum þar sem að ég var að fara að passa í Klettás um kvöldið.
og núna er kl orðin 4 um nóttt og ég er enn að passa, en það er allt í góðu því að ég er bara í tölvunni og svona allskonar, Var að lesa vouge áðan og svona ýmislegt sem maður gerir sér til dundurs á laugardagskvöldi.
en ég er farin bless bless
Engin ummæli:
Skrifa ummæli