9.5.06

Aldrei kaus ég framsókn



Fór á kosningaskrifstofuna til Sóleyjar móðursystur minnar í föðurætt um daginn, í kommúnistapartý. Auðvitað var dælt í mann merkjum sem á stóð "Ég rokka til vinstri" og svona skemmtilegt.

Hún Sóley sagðist ætla að bíða með að taka "ræðuna" á mig þangað til pabbi væri kominn til Aþenu. Eftir þessa ræðu á ég víst að vera orðin græn í gegn. Hún á góða möguleika, þar sem að ég er ekki neitt eins og er. En hver veit hvort að ég fari bara að leggja í fatlaðrastæði og verði exbé.

Það er búið að vera geggjað veður í Reykjavík síðustu daga. Eða svona geggjað á íslenskan mælikvarða. Enda liggur það í augum uppi að þegar að ég á að vera inni að lesa fyrir eitthvað bjévítans próf, þá er rjómablíða úti. Mér reyndar er búið að takast að gera ýmislegt til að njóta veðurblíðunar. Fór í sund og í langan göngutúr í gær, labbaði alveg út um allt breiðholtið - finnst það nú dáldið vel af sér vikið.

Köttur móður minnar í föðurætt* (sem hún skyldi eftir, alveg óvart heima hjá mér) er farin að fara sjálf út núna, uppgötvaði það einn daginn að hún komst útum eldhúsgluggan og inn aftur. Mikil uppgötvun fyrir svona animal. Enda síðan að hún fór út í fyrsta sinn þá er hún búin að príla inn og útum gluggan líkt og enginn sé morgundagurinn. Greyið. Núna þarf ég að hafa áhyggjur af því að kattarkvikindið láti barna sig.

Best að halda áfram að læra, svo að ég eigi smá möguleika á að ná þessu prófi.

*Móðir mín í föðurætt er Þóra, hún er að sjálfsögðu mamma mín, en til að skilgreina hana frá mömmu verður hún að vera móðir mín í föðurætt, þar sem að hún er mamma mín pabbamegin. Og þá er það nokkuð ljóst að móðursystir mín í föðurætt er systir Þóru

7.5.06

Til hamingju kæru landar!

Loksins settum við Íslandsmetið langþráða
Í dag 07.05.06, tróðum við okkur öll saman, á sama tíma ofaní Salalaugina í Kópavogi.
Fámennt en góðmennt.
Samt var ekki hægt að skipta um skoðun í pottinum, til dæmis.

Í nótt var hið árlega grillpartý hérna í Salahverfinu.
Afrakstur næturinnar eru 3 skemmdir bílar.
En þess má til gamans geta að á síðasta ári kveiktum við í heilli blokk til þess að smala nú saman nágrönnunum og halda almennilegt partý.
Án gríns þá er einhver brennuvargur hérna í blokkinni fyrir aftan. Alltaf allt í björtu báli þarna.
En stuð var það, hitti Höbbu nágranna minn og svona ýmislegt, allir með öl að horfa á bílana brenna.
Mæli með þessu, fá sér einn brennuvarg í hverfið og þið munið öll sameinast og verða bestu vinir.

























































5.5.06

X-Sigmarsdóttir


Ég er að hugsa um að kjósa sjálfa mig í kosningunum sem fara munu fram eftir 22 daga.
Bara X-Sigmarsdóttir, eða eitthvað álíka töff.
Reyndar var ég farin að þjást af mjög alvarlegum valkvíða, því ég vissi/veit ekkert hvaða pakk maður á að kjósa. Maður getur ekki einu sinni kosið eftir því hver er sætastur, því að allir svona kallar eru ljótir, allavega ekki minn tebolli. Nema kannski GMB, hann er nú alveg killer dúllurass.
Var líka að hugsa um að fara í heimsókn á kosningaskrifstofurnar og fá mér pulsu (pylsu, whatever) og helíumblöðrur - Sjá svo bara hvaða pulsa,pylsa væri best og kjósa eftir því. Fannst það dáldið sniðug lausn. Var mjög hamingjusöm þegar að ég ákvað að bera þetta undir Guðmund, stóra frænda minn, hann sagði mér að ég væri virkilega mikið Þvaghænsni að halda það að ég ætti að kjósa. Ég var alveg gáttuð á þessu og spurði hann hvað í ósköpunum væri nú að þessari hugmynd. Hann sagði að við sem værum með lögheimili erlendis myndum ekki kjósa.
Damn, þar fór það.
Valkvíðinn færist bara til næsta árs.
Þið hafið þá heilt ár til þess að sannfæra mig um það hvort ég eigi að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eins og fólk hefur gert í mínum ættum í hundrað ár, eða þá hvort ég eigi bara gefa skít í famelíuna og gerast kommúnisti.

eins og þið sjáið þá hef ég ekki hundsvit á þessu.

X-Sigmarsdóttir er farin að sofa í hausinn á sér

3.5.06

Ég fíla DillaDilla

Er búin að vera með þetta lag á heilanum alla helgina.
Gerði þau skemmtilegu "Mistök" að fjárfesta í Madagascar fyrir Sölku.
Æðisleg mynd, á ensku.
Glötuð á Íslensku.
Í lagi á sænsku.
Salka er búin að syngja hástöfum alla helgina "Ég fíla DillaDilla"
Man reyndar, þegar að ég sá þessa mynd úti í Ameríku með April, þá var ég með sama stefið "I like to move it, move it" á heilanum í 27 daga á eftir.



ÉG FÍLA DILLA DILLA!!!!!!

30.4.06

Sænskar Skólastelpur og Helgarpabbar

Get ekki sofið, bara alls ekki.
Lögleg afsökun, sem ég hef núna.
Var mjög þreytt eftir erfiðan dag og sofnaði yfir einhverri leiðinlegri mynd á Rúv, þar sem meðal annars var fertugt fólk að leika 18 ára menntaskólakrakka í sleik. Geðslegt. Svo þegar að þau voru ekki í sleik, þá dönsuðu þau ballett eða voru á ballettæfingum, held að þetta hafi verið ballettæfingar, leit samt út eins og kynlífsorgía, dáltið spes bíómynd til að sýna svona klukkan 20.00 á laugarsdagskvöldi. Enda sofnaði ég bara og svaf til 23.00
En núna er klukkan orðin 04.00 og ég get ekki sofið, af hverju? Jú, ég er að fara ótrúlega fínt á morgun, út að borða og allskonar og ég hef enga hugmynd í hverju ég á að fara. Af hverju er svona erfitt að ákveða í hvaða dressi maður á að fara? Ég er ekki búin að hugsa um þetta nema í svona viku og nú, 17 tímum fyrir dinner, hef ég ekki ennþá ákveðið í hvaða nærbuxum ég ætla.
Ætlaði að fara í Kringluna í dag, sem ég og gerði, eða svona má segja það allavega. Kom inn, heyrði ekkert nema sænsku, já, Kringlan troðin af sænskum skólastúlkum, í karrýgulum uppháum kuldaskóm með lopaleystana uppá hné og buxurnar girtar uppí handakrika.
Ég fór rúntinn sem ég tek alltaf í Kringlunni, 17-centrum-gs-Oasis-Retro-all saints og fleiri.
Kem inn, fórna höndum yfir öllum sænsku skólastúlkunum og yfirþyrmandi magninu af helgarpöbbum, hver með minnst 5 organdi krakka. Stappaði í mig stálinu og tróð mér í gegnum þvöguna. Var komin þar sem að Centrum á að vera, ætlaði að labba inn, en greip í tómt - "Hér opnar Kultur fyrir menn!"
Þrátt fyrir mikil vonbrigði sá ég ekki fram á það að geta gert neitt í málinu þannig að ég ákvað að kíkja inní 17. Mikið ofboðslega er sniðugt fyrirkomulagið þarna hjá þeim í NTC, "Ráðum bara fólk í vinnu sem er með greindarvísitölu á við gangstétt" Get svo svarið fyrir það, ég fann mér einn bol þarna, án þess að nokkur af þessum gangstéttarpíum horfði svo mikið sem í áttina til mín.
Svo var ég eitthvað að pæla í hvort hann væri til í öðrum lit, tók mig háltíma að ná sambandi við stelpurnar sem að stóðu allar í hnapp fyrir framan spegilinn og skoðuðu hvor aðra, voru eflaust allar að segja "ohh ég er svo feit" eða "Ohh, ég er svo hvít" (þarf varla að taka fram að þær voru allar vaxnar eins og ljósastaurar, með lappir sem náðu uppað eyrum og appelsínugular eins og Ásgeir Kolbeins í sólsetri)
Jæja, ég náði í skottið á einni þarna og spurði hana hvort hún ætti nokkuð þennan bol í hvítu. Hún leit á mig, svo bolinn og sagði svo þessi feikigáfulegu orð "Ég veit það ekki" svo snéri hún sér aftur að hinum gangstéttarstelpunum.
V-Æ-R-I-R-Ð-U TIL Í AÐ A-T-H-U-G-A?
Jú, haldiði að hún hafi ekki bara farið inná lager og tékkað á þessu fyrir mig, en ég lét mig bara hverfa, þar sem að ég fann að IQ-ið mitt var farið að lækka eftir því sem mínútunum leið þarna í þessari búllu.
Eftir þetta, var ég orðin svo pirruð að ég gat ekki meira af þessu Kringlu ævintýri mínu.
Keypti samt DVD, en fer samt ekki mikið í honum grand út að borða - Þó hann sé skemmtilegur.

Svona í lokin, ef að einhver vill koma til mín á morgun og mála mig, greiða og klæða, þá er það alveg guðvelkomið.
Í alvöru, ég er desperat eftir hjálp.
848-5313 - Plíííís

(P.S. Hef ekkert á móti helgarpöbbum eða Svíum.)

28.4.06

Hver á fallegasta barnið í heiminum?

Ég!
Kannski ekki alveg ein, en samt.
Þetta er Katla, orðin 5 vikna, ótrúlega stór og hlottust. (hlottust=flottust)
Alger töffari, fór með mömmu sinni í myndatöku í vikunni
og var með stílista sem valdi dressið og allt.
Töffaðasta barnið :)


















26.4.06

Kærastar

Geta verið óþolandi.
sérstaklega þegar að þeir eru ekki mans eigins.
Núna til dæmis þurfti ég að skemmta mér sjálf í kvöld því að allir eru að kærastast.
Svosem í lagi, ég eldaði og er búin að taka til og þrífa allt hátt og lágt.
Hefði ekki gerst annars, svo kærastar annara eru kannski ekki svo slæmir eftir allt.
Pabbi kíkti í heimsókn til mín hérna í gær, var búin að gleyma hvernig hann leit út, þannig að þegar að ég kom heim úr vinnunni í gær, þá sat bara einhver maður í sófanum mínum og drakk kaffi. Ég auðvitað hélt bara að þetta væri einhver bófi sem ætlaði að ræna allt - Þegar að hann væri búinn að drekka kaffið mitt og lesa blöðin mín.
En þá var þetta bara öldungurinn minn.
En við horfðum saman á leikinn, leikurinn var svo spennandi að ég sofnaði, vaknaði svo upp í hálfleik og ekkert var búið að gerast, þeir lufsuðust bara þarna um eins og skemmdar mandarínur, en þeim tókst samt að vera svo litlir og sætir.
Í morgun þá kvaddi ég svo SAMSKIP fyrir fullt og allt.
Fór og náði í skattkortið mitt og skilaði flíspeysunni góðu, þessari sem var jafn stór og tveggja manna kúlustjald, þið munið.
Kíkti líka á hvort að það væri ekki allt í lagi með drengina, þeir spjara sig ennþá, en greinilega sakna mín rosa mikið, enda enginn sem er þorir að rífa kjaft við þá lengur, eins og Birna sagði. Ætla nú samt að vera með annan fótinn niðurfrá og fylgjast með þeim, þessum elskum.

Jæja, það er löng helgi framundan, ég ætlaði að læra voða mikið um helgina og vonast til að geta staðið við það - allavega reynt að frumlesa efnið og svona.
Annars er planið að djamma og svo var mér boðið út að borða á Sunnudaginn, voða grand og svo verður eflaust djamm eftir það líka.
En ekki á Sólon, perradyravörður með brennandi áhuga á stjörnumerkjum ungra kvenna er ástæðan fyrir því að ég fer ekki þangað aftur.

Jæja, http://sigmarg.blogspot.com er farinn að blogga um nakta karlmenn, spurning um að vera í stíl og birta mynd af Ljungberg...


Ástæðan fyrir að ég held með Arsenal.

22.4.06

Fuglaflensa my ass!

...Fuglahræðusyndromið er miklu verra.
Ákvað að snooza dáldið oft í morgun, þannig á endanum var bara tími til að annað hvort mála sig eða fara í sturtu, ég valdi að fara í sturtu.
Mætti í vinnuna, með óblásið og ósléttað hár í einhverju afbrigði af hnút, í strigaskóm, gallabuxum og pólóbol, ómáluð og mér leið furðuvel.
Allt gekk eins og í sögu þangað til að það kom hádegismatur. Þá ákvað ég að ég væri ekkert svöng og fékk mér bara kaffi, en ákvað svo að ég væri svöng svo ég ákvað að skjótast inná kaffihús í Smáralind og fá mér örlítið að borða.
Good idea, Kristín Alma, Good idea.
Var búin að gleyma að ég var ekki vel til höfð eins og vanalega.
Þá byrjaði katastroffið.
Síminn hringdi rétt þegar að ég var að koma inn, og ég var í einhverjum æðibunugangi að drekka kaffi, hélt á einhverju dóti og var þvílíkt að rífast í símann og veitti veruleikanum litla athygli þegar að ég er í dyrunum á kaffihúsinu og BANG!
Labbaði í fangið á the cute dude.
Ég dó.
Er ekki búin að sjá hann lengi, en hugsaði nú til hans hérna í gær eða fyrradag.
God damn it hvað ég er stupid að halda að ég kæmist upp með það að fara út eins og fuglahræða.

Honum var samt ekkert svo brugðið, held ég, vona ég - Kvaddi hann svo bara, fyrir fullt og allt

20.4.06

Seltjarnarnes-Garðabær-Kópavogur

Tók þennan rúnt áðan.
Með háaldraðan, dauðhræddann föður minn í framsætinu og litlu börnin, Sindra og Sölku í aftursætinu.
Tók ekki nema 35 mínútur að fara frá Seltjarnarnesi og skötla börnunum heim til sín í Garðabæinn og svo fara heim í Kópavoginn - MORÐ
Komst að því að það er ekki gott að keyra, eða bara gera eitthvað "gáfulegt" yfir höfuð þegar að maður er nýkominn úr mat hjá afa og ömmu. Grill og meððí, Ís og meððí og kaffi og meððí. Get eiginlega ekki pikkað á lyklaborðið fyrir seddu.
Vonast nú til að vera komin með þetta bílpróf 8 maí, vegna þess að þá fer öldungurinn til Aþenu með Silvíu og ég get fengið bílinn - right.
Annars er allt fínt að frétta, fékk reyndar ekki mikil viðbrögð útá þessa kattaauglýsingu, skil það ekki, þetta er eðalgripur.
5 mánaða læða, heitir ekki Ronja og er voðalega blíð og góð. Svakaleg kelirófa og er svona people person, greyið.
Megið koma heim til mín og skoða hana ef þið viljið, bara láta vita áður. (Ég er ekki í skránni, held ég)
Jæja, best að fara að skila myndunum sem ég tók fyrir svona ári síðan, og borga skuld.

Hver vill eiga?




Ekki vera feimin!

19.4.06

Búin að taka út syskursjokk mígrenið sem maður fær alltaf þriðja í páskum.
Viðbjóður.
En ég bara gerðí mér lítið fyrir og svaf í meira en tólf tíma svo ég er sem ný manneskja núna.

Ökuskóli tvö í kvöld.
hringið í 112 ef þið verðið ekki búin að heyra í mér fyrir klukkan hálf tíu, þá hef ég líklega dáið úr leiðindum...

17.4.06

MATUR



Ég eldaði áðan.
Eitthvað sem ég hélt að ég kynni alls ekki og gæti ekki.
En, ég reyndist nú hafa einhverja dulda hæfileika og mallaði eitthvað úr því sem ég fann í ísskápnum.
Þetta var svo gott að þið trúið því ekki.






Vil líka þakka Helgu fyrir frábæra nótt, þar sem að við hétum Kristín T og Eva Dögg.
Gaman að heita eitthvað "annað".
Ljótir karlmenn og fullar stelpur í sleik var það helsta sem varð á vegi okkar, en við litum bara framhjá þessu og dönsuðum fram á rauðan morgun.

13.4.06

Ég hef aldrei verið náttúrubarn.
Ég er svona antífjallageit og hef alltaf verið.
Alveg sama um hvað þetta fjall heitir og hvernig það varð til, ekki ætla ég uppá það.
Alveg sama hvort að Raufarhöfn sé á suðurlandi eða norðausturlandi, það er skítakuldi þar.
Hef semsagt aldrei haft neinn áhuga á náttúru, þó að maður lufsist nú í útilegur við og við, enda er það bara sjarmerandi og gaman, en mér er nokk sama hvort ég liggi á tjaldsvæðinu á Selfossi eða í Ásbyrgi, allt eins-sama tjaldið.
Ég er heldur ekki mikið fyrir að fara útí sveit.
Leiðinlegt, vond lykt og kalt.
Svipað og í Breiðholti.
Fer heldur ekki þangað.
Eftir að ég flutti erlendis hef ég lesið um Íslenska náttúru í erlendum tímaritum og útlendingar hafa sagt mér frá ýmsu um náttúruna okkar.
Stundum skammast ég mín ögn, þegar að ég veit ekki hvar Hvannadalshnjúkur er og hef ekki komið þangað. Svo verður mér alveg skítsama. Svo fæ ég gríðarlegt samviskubit yfir því að vera svona skítsama, barnið mitt á líklega aldrei eftir að koma annað heldur en Reykjavík-Garðabær, og það bara á páskum og jólum. Því ég efast nú um að ég muni nenna að búa á íslandi með barn-bara koma heim í fríum. Barnið mitt verður útlenskt.
Mun ekki vita neitt um uppruna sinn.
En það getur samt lesið blogg afa síns, sem nýtur töluverðra vinsælda samkvæmt séð og heyrt.
(Og ekki finnst honum það leiðnlegt.)

10.4.06

Myndarleg

Já gott fólk ég er búin að fjárfesta í þessari líka rosalegu snilldar græju.
Myndavél.
Síðan að ég fékk vélina í hendurnar í gær er ég búin að vera myndaóð.
Búin að taka myndir af nánustu ættingjum og vinum, örfáar af kettinum, 600 af kötlu og nokkrar af íþróttasíðu morgunblaðsins, lyklaborðinu á tölvunni, Bíl sem að keyrði framhjá húsinu hennar ömmu í gær og síðast en ekki síst morgunkorninu sem að Salka át í morgun.
Samtals eru þetta um milljón og tvær myndir.
Reyndar hefur aðal myndaefnið verið ég sjálf, sem er einstaklega sorglegt, þar sem að ég er með afbrigðum ekki snoppufríð og ómyndvæn manneskja.

















































6.4.06

TIL HAMNINGJU MEÐ AFMÆLIÐ PABBI MINN!!!


Hafðu það sem best.


xxx


p.s. Hvað gefur maður 37 ára unglingi í afmælisgjöf?

4.4.06

Skynsami froskurinn

Bauð mér í mat áðan.
Heima hjá Kötlu og Þóru.
En það var reyndar Kristín (Hekla) sem að fór í döfulls búðina og kaupaði sósulit og aðra basic hluti sem að maður þarf til að búa til pottrétt með piparosti og hrísgrjón.
Hún stóð sig eins og hetja í eldhúsinu, en hefði nú ekki náð svona langt ef að ég og Garður hefðum ekki verið henni til halds og trausts.
En okkar hlutverk var að sitja við eldhúsborðið og skera niður grænmeti.
Garður skar 5 sveppi og ég heila papriku, hálfa A-gúrku OG piparost.
Við bættum líka Íslandsmet í grænmetisskurði, innanhúss án atrenu.
Ekki slæmt.
En svona í alvöru þá langaði mig bara að þakka Kristínu (Heklu) fyrir matinn, og reyndar Þóru líka.

Um helgina var sólin komin grunsamlega hátt á loft og ég farin að hnerra - sem er vorboði.
Í morgun vaknaði ég og það var allt á kafi í snjó, hérna uppá heiðinni sem að ég bý á.
Leiðinlegt að búa svona uppá heiði.

Jébb.
Þessi vika verður líklega mjög erfið.
Þarf að keypa afmælisgjöf fyrir farmand.
Veit EKKERT hvað ég á að kaupa fyrir hann, blessaðann.
Kannski að ég bjóði honum bara í ísbíltúr?
Eða kaupi bensín á bílinn?

By the way.
Hvað þarf maður að vera gamall til að ráða sjálfur hvað er í bílnum þegar að maður er að keyra?
Hingað til þá hef ég ekki mátt ráða því sjálf hvað ég hlusta á.
Er það ekki bílstjórinn sem að ræður?
Er ég kannski bara óþarflega lin við manninn í framsætinu?
Well, kannski á hann það skilið að velja tónlist, þar sem að ég keyri eins og asni.

Eða hvað?

31.3.06

Blablabla.
Helgarfrí mitt byrjaði klukkan 17.00 í dag.
Endar klukkan 10.00 í fyrramálið.

Ég er svo þreytt að ég gæti sofið endalaust núna.
Ætla að skella mér í sund, tæma hugann og fara að sofa.

Af hverju langar mann alltaf að gera það sem að er bannað?
Púkinn og engillinn sitja á öxlunum á mér, tosa og toga í mig til skiptis, þannig að ég er orðin alveg lost.
En ykkur að segja, þá er ég búin að komast að niðurstöðu.
Hún er rétt-og ég verð ekki skömmuð.

30.3.06


Ég er alveg að verða geðveik.
Mjööög stutt í það.
En reyndar ekki mikið eftir í þessu "ástandi"

Annars er flott að frétta fyrir utan það.
Ég held ég sé að verða sundsjúk.
Ég sem hélt að ég hefði breyst í antisundista eftir að ég flutti til Danmerkur.
En, svo álpaðist ég í sund hérna eitt kvöldið og núna er ég komin í áskrift.
Búin að eignast sundvin í vinnunni og allt. (Sjá mynd)
En þetta er voða notalegt að synda smá og dorma svo í pottinum og hlusta á gömlu kallana ræða um pólitík og veðurfar.
Gamangaman.
Ætla einmitt núna að skella mér í laugina, svo til kötlu og ef að guð lofar verð ég bara komin heim fyrir klukkan 12.00 í kvöld
Hver veit?

26.3.06

En yndislegur dagur, finn það á mér.
Sólin skín inn um gluggana, kötturinn á þörfinni, ryk í Kórsölunum og Jolene í græjunum.
Ég á joggurum og hlírabol, með hárið í tagli, búin að krema mig alla, svo ég verði sæt.
Mjög tilgangslaus aðgerð, því ég er á leiðinni í sund, ætla að ná mér í freknur.
Ég skutlaði okkur pabba um allt í gær, sem var mjög gaman, því ég réð tónlistinni, leiðinni og allt.
Mikil völd.
Sérstaklega ef að maður er bara 18 ára.
Hefði ekki viljað gera þetta 17 ára.
En hvað ég er skynsöm stúlka.

Í gær var ég voða mikil dama.
Alveg frá því að ég vaknaði og þangað til að ég fór að sofa.
Var á hælum, með blásið og sléttað hár og með gloss.
Tilefnið var 3 ára afmælið hennar Sölku minnar Sigmarsdóttur.
Kannski ögn undarlegt afmæli - en frábært engu að síður.
Súpa af fólki, úr öllum áttum.
Mér fannst bara gaman samt að hitta alla.
Í dag verður annað afmæli, 7 ára afmæli hjá Ölmu Diljá Almarsdóttur.
Það verður ekki svona mikil súpa af allskonar fólki úr öllum áttum, þar eru aðstæður kannski aðeins öðruvísi.
En það verður líka gaman, eflaust, hef ekki hitt mikið af því fólki lengi.
Í dag ætla ég að:
Fara í sund
Smáralind að kaupa eitthvað flott handa litlu frænku
Fara í afmæli hjá litlu frænku.
Knúsa Kötlu og jafnvel Þóru - Sakna þeirra.

Katla fékk Gulu.
Það var spurning um hvort að það þyrfti endurskoða pabbamál hennar.
Því að hún var eins á litin og Ásgeir Kolbeins.
Og líka með svona dökkt hár.
Þetta fannst mér fyndið.
Því hún var heiðgul, eins og Ásgeir Kolbeins á góðum degi.
Hún Katla mín er enginn trefill, fyrst var hún gul og núna er hún búin að fara í ljós líka.
Aglaznegger væri stoltur af henni núna.

23.3.06

Ekkert að ske

Líf mitt snýst um 2-3 hluti þessa dagana.
Vinna-Katla
Stundum Sæta gaurinn í vinnunni líka.
Mjög nauðsynlegt að ég hugsi um hann og horfi á hann af og til þangað til að ég frétti að hann sé alveg Gay as Christmas, giftur eða bara bæði.
Svona strákar eru ekki á hverju strái, allavega ekki á mínum stráum.
Annars er allt gott að frétta.
Katla er búin að vera alger lufsa.
Með gulu og nennir ekki að drekka eða opna augun, sefur bara útí eitt.
En hún er reyndar öll að braggast núna og var voða góð í dag/kvöld þegar að stóra systir var að lummast með hana.
Ég sendi móðurbræður mína í Mission til þýskalands að kaupa myndavél handa mér.
Fæ hana um helgina, ætla að vera dugleg að taka myndir af Kötlu svo þið getið séð alla þessa fegurð og dásemd!