13.4.07

Þunglyndi

Í dag mun ég kafna.
Ég er ekki alveg búin að gera það upp við mig hvort að ég ætli að kafna úr hita eða hósta.
Í nótt vaknaði ég þrisvar sinnum við það að ég náði ekki andanum útaf hóstakasti. Það er ekki töff. Í dag er svo heitt að ég gæti mögulega kafnað úr hita við það að liggja úti í garði.

Styttist óðum í prófin. Ég þarf að fara að gera eitthvað lestrarplan, svona svo ég geti sleppt því að fara eftir því eins og alltaf.
Reyndar veit ekki neitt hvaða próf ég fer í, en giska á að það verði annað hvort Visuelt Varesalg eða Erhvers Ökonomi. Ef ég verð heppin fer ég bara í ensku eða dönsku.
Erum allavega búin að fá að vita hvaða fyrirtæki við eigum að fjalla um og það er ToysRus, sem er skömminni skárra en bestseller helvítið sem við þurftum að kynna síðast.

Kennararnir eru svakalega næs við okkur núna. Um helgina þarf ég að gera skilaverkefni í Visuelt Varesalg, þar sem ég þarf að teikna upp útstillingu í glugga og nota einhverja teoríu í það. Fyrirlestur um það hvernig er að vera útlendingur í Danmörku, og svo skilaverkefni í dönsku.

Hendist í þetta í kvöld, eða morgun. Eða bara hinn daginn.

11.4.07

Helvítis Kellingar

Af einhverjum ástæðum býst ég alveg eins við því að verða kölluð á foreldrafund í framtíðinni útaf svona.
Þeir sem að hafa verið með mér í bíl skilja þetta. Road rage dauðans.

Reyndar gætu svo foreldrar hinna barnana kallað mig helvítis kellingu, því að ég kann ýmislegt betur en að keyra. Er líka örugglega eina manneskjan sem hefur ratað á forsíðu Séð og Heyrt fyrir að vera léleg í að keyra. Og verið aðal umræðuefnið í vinnunni hjá pabba, vegna þessa. En sjaldan fellur eplið langt frá eikinni...

P.S. Ég er ekki ólétt.

Afmælis Jójó

Litli spjallarinn okkar á afmæli í dag, orðinn sex ára. Þannig að hann er svosem ekkert lítill lengur. En þar sem að hann er yngstur af okkur systkinunum og jafnframt eini strákurinn (Yup, greyið barnið á 4 eldri systur.) þá verður hann alltaf litla barnið.
Það hefur aldeilis verið dekrað við þetta barn síðustu 6 árin, sást það best þegar að hann fór ekki að labba fyrr en hann var orðinn 18. mánaða gamall. Það var auðvitað bara vegna þess að hann þurfti ekkert að fara að labba þegar að hann var með 5 kvennmenn á heimilinu sem ruku til í hvert skipti sem að barnið gaf frá sér hljóð.
Núna er hann byrjaður í skóla, farinn að reikna og búinn að læra íslensku stafina og dönsku. Er að læra að lesa núna og það á tveimur tungumálum.

Til hamingju með afmælið, elsku litla skjaldbakan mín.






Hugmyndir

Kannist thid ekki vid ad fá alveg sjúklega goda hugmynd, framkvæma hana og komast svo ad thvi ad thetta var kannski ekkert thad god hugmynd?

Eda er thad bara ég sem geri einhverja bolvada vitleysu og held ad ég sé klárari en ég er?

:)

10.4.07

Leiðinlegt blogg

Mest langar mig að fara til Íslands, ekki seinna í gær. En þar sem að ég er hitabeltisrotta ætla ég nú að láta mig hafa það að vera hérna í 20 stiga hita.
Skólinn er bara að drepa mig úr leiðindum. Er í einhverri hræðilegri skólalægð núna. Mæti bara og er þarna líkamlega, en hugurinn er einhversstaðar allt annars staðar en í Salg&Service eða ErhversØkonomi. Sem er ekki gott. Var svo dugleg alltaf. Ætli maður verði ekki bara að reyna að rífa sig uppúr þessu. Mæta með hausinn með sér í tíma, vinna vel og fara að undirbúa sig fyrir prófið í vor.

Er að hugsa um að reyna að vinna svolítið á kvöldin á næstunni. Þá er aldrei að vita nema maður kíki á klakann eina helgi eða svo í Maí. Maður má allavega láta sig dreyma. Kemur í ljós hvernig fer.

Litla krílið mitt er komið með heiftarlegt alnæmi. Bara spilar ekki lögin. Það er búið að reyna að restarta. Láta hann tæma batteríið og hlaða uppá nýtt og ég veit ekki hvað og hvað en allt kemur fyrir ekki. Hann neitar að spila lögin. Svo núna þarf ég að ræða við apple um að fá nýjann. Ég get ekki verið án hans. Dagurinn í dag var hræðilegur og mér fannst eins og ég væri nakin. Sem er ekki gott og heldur ekki hot.

"Ég er með vottorð"

Fór til tannlæknis í dag og sú var ekki beint ánægð.
Ég er víst búin að skemma í mér bitið með þessu tyggjóáti mínu. Krossbit OG eitthvað annað bit. Vissi ekki að það væri hægt að hafa mörg bit í einu. Hún allavega tók mót af tönnunum og svo sjáum við á mánudaginn hver útkoman verður.
En það verður víst ekki hægt að kalla mig "braceface" eða neitt þannig. Þetta er bara einhver topsecret aðgerð. Og engar spangir.

Og já, ég má halda áfram í tyggjóinu, bara ekki 3 pakka á dag...

9.4.07

Aldrei aftur..!

Skil ekkert í þessu. Í morgun/dag þegar ég vaknaði hringsnérist herbergið. Og það ekkert lítið. Kannski var ekkert góð hugmynd að drekka aftur eftir tveggja mánaða pásu.
Púha.

8.4.07

Tár

Veit ekki hvort að það var söknuðurinn eða bara það að ég var að rífa af mér einhvern fílapenslaplástur, en ég fékk mörg tár þegar að ég sá þessa færslu á kötlugosinu.
Sjá allt þetta fallega fólk þarna í Kórsölunum. Þetta er bara rugl.

Nú græt ég ennþá meira því að það er svakalegt teiti hérna í kvöld. Eða kannski ætti maður ekkert að vera að fegra þetta neitt. Það er Fyllerí hérna í kvöld.
Ekkert sorglegt við það. En ég þarf að taka til, raka á mér lappirnar og vera í pilsi í kvöld. Sorg.

En ég er samt glöð í hjartanu.


Blaaa!

Græðgin var svo mikil að ég nánast gleypti málsháttinn. Skyrpti honum útúr mér og las á hann. "Ánægjan er auði betri" - Nokkuð til í því svosem.
Held reyndar ég sé vaxin uppúr þessu páskaeggjadæmi. Fátt spennandi við þetta. Ég ætla bara að fá mér gulrót og fara svo út að hlaupa.
------
Gleymdi alltaf að segja frá því að ég skrapp aðeins í smá road trip hérna síðasta sunnudag. Stjáni og Jón Pétur rifu mig upp á rassgatinu fyrir allar aldir og eftir 3 tíma svefn. Og út fór ég, svefndrukkin og með hreiður í hnakkanum. Held að ég hafi náð að halda geðvonskuni í skefjum, eða ákvað bara að segja ekki neitt, nema það yrði talað við mig. Þannig var það fram að hádegi. Svo fór ég að mala.
Ferðinni var annars heitið á Skagen, sem er nyrðsti tangi Danmerkur að mér skilst. Þar mætast líka tvö höf. Eða tveir sjóar eins og ég orðaði það svo skemmtilega. Sum sé hægt að standa í tveim höfum í einu. Létum okkur nægja að horfa bara samt.
Aldeilis skemmtilegur sunnudagsbíltúr, allavega ekki hægt að kvarta. Étinn hamborgari í Friðrikshöfn, (Nú er ég eins og fjölmiðlarnir) skoðuð einhver kirkja sem átti að vera grafin í sandinn, (hefði ekki fyrirgefið sjálfri mér ef ég hefði sleppt því að skoða hana.) svo komið við í Árósum á leiðinni heim, rölt um borgina og étinn McDonald's ís.
Nú er ég allavega búin að sjá rjómann af Danmörku, svo ég get bara farið að pilla mér heim.

Þessa mynd tók JP af okkur Stjána.
Þetta er ljót mynd. En eina sönnunin fyrir því að ég hafi farið á skagen.
------

Njótið þess sem eftir er af páskunum. Merenerið ykkur í bjór og farið í sleik. Fagnið Jesús - eða ekki.

7.4.07

Ammælis!

Pabbahönkið mitt á afmæli í dag. 2 ár í stóra fertugsafmælið.
En hann ber aldurinn vel, karlinn og er oftast frekar Hipp og Kúl pabbi.
Hafðu það gott gamli minn.


Til hamingju..!!


Faðir minn er aldeilis ekki sá eini sem á afmæli í dag.
Einar og Hjalli Horsensbúar eru líka árinu eldri í dag og óskar Froggie.is þeim hjartanlega til hamingju með daginn.

6.4.07

Son of a hunk

Samkvæmt þessu er karl faðir minn hvorki meira né minna en aðalhönk Kastljóssins og kynþokkafyllsti pabbinn.
Áhugavert.

Þegar að ég mynda-googlaði orðið "hunk" fékk ég þessar niðurstöður.

Jup, that's my daddy.

5.4.07

Kæra dagbók

Fólk kann ekki gott að meta og sagði síðasta blogg leiðinlegt. Nú er komin pressa á að þetta blogg verði fyndið. Finnst það afar ólíklegt þar sem að ég er pirruð. Því að það er bara hálftími síðan ég vaknaði og ég vaknaði ekki fallega. Hrökk upp með andfælum 5 mín áður en ég átti að vera komin að passa Breka Dreka töffara. Af hverju vaknaði ég ekki við símann minn eins og eðlilegt hefði verið?
Jú, einmitt vegna þess að síma kvikindið mitt er kominn með unglingaveikina og núna er það nýjasta að sleppa því bara að láta vekjaraklukkuna hringja. Og nei, ég sef ekki bara svona fast eða að ég slokkvi á henni í svefni. Óþolandi. Bætir ekki morgunhressleika minn.

Nenni ekki að tala við ykkur. Er í fýlu.

2.4.07

Svo fínt

Svo flott þessi herferð.
Flott föt, flott börn, flott land og flott Íslenskt veðurfar.
Allt svo flott.

Annars er bara 17 stiga hiti og sól hér. Ekkert til að vera að öfundast útí svosem. Svo hlýtt og gott.


30.3.07

Ekkert illa meint..

...En þegar að vinir mínir, kunningjar, félagar og bara eitthvað fólk útí bæ kallar mig STÍNA, þá langar mig til þess að naga af því hausinn.
Ég er ekki Stína. Ég er Kristín Alma Bergmann Sigmarsdóttir, kölluð Kristín eða Kristín Alma.

Annars var ég bara að koma af djamminu. Fyrir klukkan eitt. Ég er öflugasti djammarin í Horsens. Núna ætla ég að henda í vél, fá mér að éta og fara uppí rúm að sofa.

Mætti halda að ég væri að skríða í áttrætt, en ekki tvítugt.

Gætum vid fengid ad heyra eitthvad íslenskt?

Já, hefdi átt ad tuda adeins meira um thessa ritgerd sem ég var ad gera um Samsøe&Samsøe. Var ad fá hana til baka. Var med hædstu í bekknum og fékk 9+ takk fyrir.
Kennarinn vildi ólmur tala vid mig eftir tímann og spurdi mig hvort ad ég væri nokkud ad gleyma íslenskunni, thví thad væru svo rosalegar framfarir á danska ordafordanum hjá mér á stuttum tíma. Ég vildi nú meina ad ég taladi alveg sæmilega íslensku. Thá vard hann gladur og sagdi mér ad passa vel uppá tungumálid mitt. Ágætt ad thad sé til dani sem virdir thad ad ég tali módurmálid mitt, thó ad ég búi í odru landi.
Kennararnir sem ég var med fyrsta veturinn eftir ad ég kom til DK voru nefninlega ekki par sáttir vid thad ad ég skyldi tala íslensku, hvort sem thad var vid adra íslendinga í skólanum eda heima hjá mér. Theim fannst ad ég ætti bara ad tala donsku. Líka heima hjá mér.
Heima hjá mér er tolud íslenska. Nema thegar ad thad eru danir í heimsókn. Ég tala íslensku vid íslendinga, nema thad séu danir med okkur.
Ég tala donsku í skólanum og donsku vid dani.
Ætti ekki annad eftir en ad fara ad tala vid íslensku vini mína donsku, tala donsku vid systkini mín (sem er frekar algengt hérna úti reyndar, ad íslensk systkini tali bara saman á donsku) eda mommu og pabba á donsku.

29.3.07

Kristín skoðar heimin

Mér var tilkynnt það í morgun að ég væri að fara að skella mér til London með bekknum mínum. Í fjögurra daga Studietur. Ekki slæmt. En auðvitað kom það svo uppúr dúrnum að skipulags-sjúku danirnir væru að plana þetta þannig að við förum ekki fyrr en á miðri næstu önn. Eða í viku 40 eins og danirnir segja (Byrjun Okt).
En þetta er ágætt.
Svo er hugsanlega, kannski, mögulega spánarferð í bígerð, svo ég verð aldeilis orðin veraldarvön þegar að þetta ár er á enda.

Það er svo fyndið hvað maður fær alltaf sömu viðbrögðin frá fólki þegar að maður er að tuða um að manni langi til útlanda. "Hva, þú býrð nú í útlöndum, getur bara komið til íslands ef þú vilt fara eitthvað." Vissulega er það rétt að ég búi erlendis. En það þýðir ekki að hér sé tívolí, verslunarferðir og máltíðir á fínum veitingastöðum daglegt brauð. Síður en svo. Líf mitt hefur ekkert mikið breyst þó að ég búi hérna, þetta er alltaf bara sama gamla rútínan og heima. Ég vakna bara klukkan 7 á morgnana og mæti í skólann eins og aðrir. Fer í vinnu og vinn heimilisstörf. (Ok, geri ekki mikið af því, en samt)
Maður þarf bara stundum smá tilbreytingu frá hversdagsleikanum. Hvort sem maður búi á Florida eða í Kína.
Svo er ég bara þannig gerð að ég vil sjá heiminn og ferðast...


28.3.07

Alltaf að læra eitthvað nýtt

Jámms.
Það var svo heitt í dag að okkur fannst nauðsynlegt að kæla okkur niður og enduðum á að skella okkur á vit ævintýrana í miðbæ Århus.
Markmið ferðarinnar var að kaupa eitthvað og að sjálfsögðu gera eitthvað agalega menningarlegt.
Byrjuðum auðvitað á að hendast í H&M. Það var þá sem að ég uppgötvaði hvað það hefur gert mér gott að búa hérna í Danmörku.
Hver kannast ekki við það að um leið og komið er inn fyrir þröskuldinn á H&M hellist yfir fólk einskonar djöfullegur andi og maður þeytist um alla búð vel á þriðjahundraðinu og týnir til hverja flíkina á fætur annari þangað til að maður sér varla hvert maður er að fara fyrir fatahrúguni í fanginu. Sviti á enni, náladofi í í hendi og verkir í fótum. Oftar en ekki eru raddböndin svolítið sköðuð. En það er einungis ef að maður ferðast í hóp. Þá er nauðsynlegt að kalla á milli fatasláa, sérstaklega ef maður er Íslendingur. (Það er efni í heilt blogg, hversu mikið og hátt Íslendingar tala/garga sín á milli í búðum erlendis. Hata það.)
Svo hendist maður í mátunarklefann og mátar svona það helsta. Sveittur og oftar en ekki er maður búinn að vera það lengi inní búðinni að maður er alveg í pissuspreng og kannski í stressi að reyna að ná öllum hinum búðunum í bænum áður en lokar. (Það er einmitt öllum H&M ferðunum að þakka/kenna að ég vinn best undir pressu.)
Eníveis. Ég er hætt þessu. Ég fer stundum í H&M en fæ aldrei svona köst eins og ég gerði þegar að ég komst bara í þetta tvisvar á ári. Núna fer ég í H&M og kaupi kannski ekkert. Og ef ég færi í H&M eftir langtíma dvöl á Íslandi þá myndi ég ver skotfljót, því ég hef komið í svon margar svona búðir að maður er komin með ákveðna leiktækni...
Í dag fór ég í tvær stórar í Århus og tuðaði meira að segja yfir að einhverjar buxur kostuðu 200 danskar krónur. Og að ég gæti ekki fengið taxfree. Verður ekki danskara.

Ferðin heppnaðist annars vel. Slúttuðum þetta í Magasin þar sem að ég óverdósaði af rakspíra, ákváðum svo að borða international mat og fórum á McDonalds í hámenningarlegan tveggja rétta málsverð. Mög gott.
Bounty og kók á hraðbrautinni á leiðinni heim.
Ég verð södd fram yfir páska..

27.3.07

Ekkert að frétta. Ekkert að ske.
Eða jú, Zygmarr er alltaf fyrstur með fréttirnar.
Geðheilsa mín er af skornum skammti þessa dagana.
Algjörlega komin með uppí kok af Horsens. Fínn bær og allt það, en er með einhvern vorfiðring í kroppnum og langar burt í smá tíma. Sjá nýtt fólk og nýja staði. En það er víst ekki í boði og ekki er mikill áhugi hjá fólki að skella sér í ferðalag með mér, þannig að ég verð bara hérna í Horsens að bora í nefið. Var reyndar að íhuga að skella mér bara til Svíþjóðar. Ein. En það er er ekki að slá í gegn hjá yfirvöldum hér á bæ.
Nú, það er að koma apríl og ég hef ekki fengið nein svör um sumarvinnu. Áhugavert. Ég verð bara atvinnulaus í kvennahlaupsbol og Rúmfatalagersflíspeysu í sumar. Það er líka töff. Þá getum við bara gleymt Þjóðhátíð og öllu þessu skemmtilega sem átti að ske í sumar.
En hey það er sól. Og ég kann að fara heljarstökk á trampólíninu. Og ég fór í klippingu í dag. Fékk mér svona týpuklippingu sem ég á aldrei eftir að nenna að blása og greiða nema þegar að ég fer í bæinn. En verð allavega töff þá.
Og Amma og Afi eru í heimsókn. Allir fengu Íslenskar bækur frá þeim. Ég fékk að sjálfsöðgu matreiðslubók. Framandi og Freistandi. Nokkuð ljóst að amma veit að ég er ekki mikið í að elda slátur og hrútspunga. Æðisleg bók.
Best að halda áfram að lesa menningardoðrantinn sem ég keypti mér um daginn. Aldeilis merkilegar bókmenntir sem maður les. Shopaholic in New York. Ekki segja neinum.

26.3.07

Vaknaði í morgun og gat varla staðið fram úr rúminu fyrir bakverkjum. Hélt að nú væri aldurinn farinn að segja til sín og ég þyrfti eitthvað agalegt heilsu-spring-air-neverturn-betra bak rúm. Þegar að verkurinn lagaðist ekkert eftir heita sturtu var mér hætt að litast á blikuna. Það var vont að sitja, standa, liggja, hlaupa, ganga, hjóla, hoppa, hreyfa hendurnar og eiginlega hræðilega erfitt að hreyfa sig yfir höfuð.
Fattaði svo núna áðan að ég er ekki orðin svona gömul að IKEA rúmið mitt sé orðið of lélegt fyrir mig. Nei, verkurinn er í raun ekki bakverkur heldur harðsperrur. Og hvernig fær maður harðsperrur í bakið?
Prufið að eyða heilum sólardegi á huge trampolíni og sjáið hvað gerist daginn eftir.

Vil ekki vera leiðinleg, en í gær var fyrsti í grilli hérna í Hrossanesinu. Sól og blíða...