4.8.06
Hver þarf að sofa þegar að það er svona gaman?
Ég er annars á leiðinni í heljarinnar road trip á eftir. Ég og Brynja Rún ætlum að skella okkur norður og vera þar fram á sunnudag, koma þá heim og djamma rækilega í bænum, svona one last time áður en ég fer heim aftur á þriðjud.
Langar ekki að hugsa um það einu sinni að ég sé að fara, meeeeen hvað það verður erfitt...
En ég er farin, reyni að drepast ekki í sveitinni.
31.7.06
Sigur Rós



Við hér í Kórsölunum ákváðum að skella okkur á Sigur Rósar Tónleikana sem að voru haldnir á klambratúninu í kvöld. Auðvitað þurfti maður að gera sig tilbúinn, þið vitið, klæða sig rétt og vera samt vel til hafður og ekki of útilegulegur.
Hér eru myndir af annars vegar Pabba sem að vildi reyna að fitta inn og vera með Sigur Rósar húfu, dáldið ArtýFartý. Svo var það hún Þóra sem að var meira í því að vera klædd í hlébarðamunstur, máluð um augun og með nýlagað hár. (það var reyndar altalað á tónleikunum hvað hún var fín...segir hún.) Katla gerði ekki mikið til að undirbúa sig, enda fór hún bara í pass til ömmslu sinnar. En hún kann samt öll lögin.
Það náðust ekki myndir af mér í undirbúningnum, en þar sem að það var bara 18 stiga hiti þegar að við lögðum af stað þá þurfti ég að fara í síð ullarnærföt og kraftgalla á tónleikana. Svo rúllaði ég um tónleikasvæðið, gat ekki labbað sökum ofklæðnaðs.
Tussugóður Tónleikur. Get ekki beðið eftir næsta.
26.7.06
Yes you did, Mr. Hopkins

Ætla bara að koma mér beint að efninu, engar lélegar afsakanir fyrir bloggleysi eða Footlooseferðum.
Rakel mín og Benni eru búin að eignast svona litla sveskju. Fæddist 14 Júlí, eftir 12 daga bið, takk fyrir takk. En stjörnurnar láta víst bíða eftir sér, það þekki ég nú.
Svaka sæt - finnst voða gaman að sofa þegar að ég kem í heimsókn samt, eins og alltaf skilst mér.
Til hamingju dúllurnar mínar, þið eigið eftir að upplifa næstu átján árin, svefnlaus og áhyggjufull :)
Ég er annars búin að gera mikið síðan ég dritaði inn hérna síðast.
Var til dæmis í fríi í vinnunni á föstudaginn í góða veðrinu. Fékk Sölku lánaða og við skelltum okkur í útréttingar. Svo heimtaði barnið ís svo ég fór með hana niðrí samskip til Óskars og lét hann bjóða barninu ís. (alltaf að spara) Skilaði henni svo heim þegar hún var næstum klístruð við gólfið niðurfrá, hennti henni inní bíl hjá pabba sem að brunaði með sinni kokteilfamelíu á Snæfellsnes í tjald. Restinni af deginum eyddi ég á Austurvelli með Guðrúnu og hennar fylgifiskum og sleikti sólina. Bókstaflega. Vaknaði upp við vondan draum klukkan sjö, þegar að ég fattaði að það var búið að bjóða mér í leikhús klukkan átta. Brunaði heim, náði í litlu systir útá nes til ömmu og afa og við skelltum okkur á Footloose. (Gummi bauð okkur, en var svo veikur þannig að hann komst ekki)
Þetta var alveg fínt, ekkert stórkostlegt, en ágætt. Voru eiginlega tveir karakterar þarna sem redduðu sýningunni gjörsamlega, held að þið sem hafið séð þetta vitið hvað ég á við.
Fór svo í allskonar matarboð og ég veit ekki hvað og hvað um helgina.
Þetta er það eina sem ég hef gert, fyrir utan að vinna, vinna og vinna.
Mörkin í næstu viku, kvíðinn farinn að gera vart við sig....
Bæjó
12.7.06
Froggie Schumacher
Nú bíð ég bara eftir að Séð og Heyrt hafi samband...
6.7.06
Crazy
*Það er allt á fullu hjá mér þessa dagana.Vinna og svo sef ég þegar að ég er ekki að vinna.
*Óstjórnleg þreyta hefur gert vart við sig hjá mér uppá síðkastið. Þarf að sofa í minnst 10 tíma á nóttu og leggja mig aðeins í svona 1-2 klst þegar að vinnudegi lýkur.Skil þetta ekki.Held að þetta sé skammdegisþunglyndið sem heldur bara að það sé velkomið núna, þar sem að það er alltaf grámyglulegt. Skammdegisþunglyndið er velkomið í janúar/febrúar - þá er hægt að tækla það þar sem að það er önnur hver manneskja í alheiminum sem að þjáist af því, svo maður fer bara til doksa og fær smá prósak. Í júlí er öllu erfiðara að tækla þunglyndið.Hræðilegt ástand.
*Skötlaðist útum allan bæ á ömmu og afa bíl um daginn. Amma var með, mjög róleg. Kom svo og ætlaði að skila bílnum og ömmu til afa, og fá mér eldaðan mat. Afi heilsaði ekki, en spurði bara "hvað margar rispur" náfölur í framan. Svo kíkti hann á bílinn og kom aðeins húlitaðri inn.Át hjá þeim og afi fékk smám saman aftur á sig manneskjulegan lit. Svo þurfti ég nú að komast heim svo að ég og amma ætluðum í bíltúr. Ég ákvað að vera kurteis og bjóða afa með í bíltúr. Han afþakkaði pent og sagði að í reglunum stæði að það mætti nú ekki hafa fleiri en einn farþega með sér. Ég sagði að það væri nú ekki rétt. Hann var fljótur að hugsa og sagði að það mætti alls ekki keyra með ellilífeyrisþega, Amma benti honum á að hann væri nú faktískt ekki "Þegi" ennþá. Þá lagðist hann niður og þóttist sofa - Afi deyr ekki ráðalaus.
Reyndar skil ég ekki hvaða áhyggjur maðurinn hefur. Þessi bíll sem að þau eiga er sko sá besti í heimi til að keyra, hann segir við mann þegar að maður er að fara að bakka á eitthvað og ef maður er kominn of nálægt. Voða skemmtilegir svona bílar sem að tala við mann, þá er maður ekki eins einn þegar að maður er úti að keyra. Samt kannski líka krípí, á sinn hátt.
Viðurkenni reyndar að ég er ekki besti bílstjóri í heimi, en svona er þetta þegar að maður er að taka þetta bílpróf núna á gamalsaldri. Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja.
*Nú er salkan mín í Svíþjóð. Hún var ekki viss hvert hún væri að fara til útlanda, vissi bara að hún ætlaði í flugvélina og í flugfreyjuna. Hún spurði mig svo hvert hún væri nú að fara, ég sagði nú til Svíþjóðar - hún varð alveg brjáluð og sagðist sko ekki vera að fara í neitt þríhjól!!
(Þríhjól-Svíþjóð, same shit þegar að maður er 3ára ;))
Svo gat ekki sagt svíþjóð, þannig að hún sagði bara "Sss-sjóð". Svoddan brandarakerling.
*Rakel mín var sett á sunnudaginn. Það er ekki komið barn ennþá. Ætli það komi nokkuð fyrir jól?
*Hvað ætli það séu margir sem tóku út sumarfríið sitt akkúrat meðan HM var/er? Ég veit um nokkuð marga, en þið?
*Þetta var useless blogg í boði frogz.is
**Berrössuð**
Djamm um helgina??
Verið í bandi, I need some Djamm ;)
30.6.06
Kötlubarnið var í pössun hjá mér í heila tvo tíma.
Við gerðum allskonar saman. Það var mjög gaman hjá okkur. Spjölluðum mikið saman og ég er ekki frá því að barnið hafi sagt "Kristín Alma" og fleira. Nú auðvitað talaði hún líka smá um pólítík og efnahagsmál. Annars var það mest bara Agúuuh og fruss. Við lékum okkur svo saman í dágóða stund á leikteppinu með gíraffann og páfagaukinn, vorum í leik með þeim alveg þangað til að Katla ákvað að pissa 3 lítrum í bleyjuna og krafðist þess að ég myndi skipta á henni. Þegar að því verkefni var lokið þá skellti ég barninu í alklæðnað frá 66°norður, en reyndar sleppti ég treflinum, svona útaf því að það er hásumar og hlýtt úti eftir því. Barnið hraut úti í klukkustund, tæplega. Þá vildi hún koma aftur inn í fjörið. Nema hvað að þá var svengdin farin að segja til sín og barnið var ekki sátt við að vera kjurr í fanginu á mér, svo ég skellti Kötlunni í apapokann og gekk um gólf með hana, málaði mig, fékk mér kvöldsnarl, hlúði að sárlösnum kettinum og ýmislegt fleira. Á meðan Agúúúúaði barnið í pokanum og slefaði örlítið yfir mig, pokann og sjálfa sig. Merkilegt að hún skuli virkilega halda að hún geti troðið báðum krumlunum uppí sig í einu. Dáldið vitlaus svona lítil börn.
Móðirin kom svo heim og barnið var fyllt af mjólk. Eftir það lá hún í sófanum og frussaði, þar sem að það er það nýjasta hjá henni, frussa útum allt. Komumst að því að hún er hin fínasta latte maskína, þar sem að hún freyðir mjólkina - Ekki allir sem eiga svona sniðugar Kötlur.
Helgin framundan. Ég verð að vinna á laugardag og svo tek ég að mér Almarsdætur á sunnudag. Maður er alltaf í börnunum.
Reyndar ætluðum við Inga Rós að fá smá útúr þessari helgi og kíkja útá lífið annað kvöld. Hjálmar á NASA og svona, gæti verið að maður kíkji aðeins á það.
Barna og skemmtana- Froggie
28.6.06
Dáldið hræðilegt
Bólgin og ég held eg verði að fara uppá slysó í myndatöku, til að tjékka hvort að um beinbrot sé að ræða.
Vildi óska þess að ég hefi bara dottið eða meitt mig á einhvern eðlilegan hátt.
En, nei. Ég varð reið útí kerru (smábarnakerru) sem að ég var að smella saman (vildi ekki smellast) svo ég bara bombaði í hana. Það virkaði en ég sit uppi með ónýta hendi.
Líður dáldið kjánalega. Ef einhver spyr "hvað kom fyrir" þá segi ég að ég hafi rotað karlmann í boxi...
Slasaður Froggie
27.6.06
3,5

Hljóp 3,5 kílómetra áðan.
Sá hvítar doppur þegar að ég kom inn.
Þegar að ég náði svo loksins andanum þá varð ég voða montin.
Ætla að skella mér í pottinn, því að það er mjög mikilvægt fyrir svona langhlaupara eins og mig að hvíla sig vel eftir hvert og eitt hlaup.
Ömmu fannst mikilvægara að ég fengi mér nú eitthvað hollt þegar að ég væri búin að hlaupa þessi ósköp og pressaði ávaxtasafa fyrir mig.
Kv, Froggie afreksíþróttakona
24.6.06
Timburmenn
Ígær var svaka stuð. Kastaði mér uppí sófa og horfði á Beverly Hills með Arsenal sængina. Ætlaði að horfa líka á Melrose place en var sofnuð löngu áður en það byrjaði.
Vaknaði klukkan 7.45 búin að sofa í 11 tíma.
Þetta hefði kannski verið afsakanlegt hefði ég verið með háan hita eða þá að þetta hefði verið mánudagskvöld eftir langa og stranga vinnu eða djamm helgi.
Ekki hægt að afsaka að sofa svona yfir sig á Föstudagskvöldi.
Nema að það sé bara svona gott að sofa með Arsenal sængina hennar Sölku?
22.6.06
21.6.06
Flaug út á laugardagsmorgun. Tók reyndar á mig örlítin krók og flaug til Oslo og þaðan yfir til Sjöppen. Fyrsta skiptið mitt í Oslo, ekki svo slæmt. Drakk goslaust pepsimax og keypti mér Samsonite dót á skít á priki.
Nú eftir að ég var búin að koma mér í gegnum skandinaviu þvera og endilanga, búin að rífast við 34 starfsmenn SAS og Icelandair, Búin að setja upp leikrit á flugvellinum hérna heima þar sem nokkuð mörg tár og veik frænka komu við sögu, eftir að hafa setið við hliðiná illa lyktandi þjóðverjum á leið til Oslo, eftir að lítil krumpuð kona var næstum búin að stela símanum mínum og eftir að ég lamdi litlu krumpuðu konuna og fékk símann aftur þá var ég loksins komin til Sjöppen. Þar var mannsæmandi loftslag, töttugu og femm stiga hiti og sól. Gummi og Kristín náðu í mig, ég setti upp sólgleraugun (loksins) og við brunuðum á vestur jótland, eða í gegnum alla danmörku.
Þegar að við komumst á leiðarenda biðu Amma, Afi, Mamma, Pabbi2, Systkinahrúgan, Fróði (hundurinn minn.) Óskar, Lija, litlufrændaskrímslin tvö eftir okkur í þessu líka svaka stóra sumarhúsi sem var með einkasundlaug, heitum potti, gufu, stórum garði og huge hvítri strönd
rétt við. Æðislegt. Ótrúlega gaman að hitta alla, sérstaklega mína famelíu sem ég hef ekki hitt í hálft ár. Þetta var æðislegt út í gegn, bara slakað á, sofið til hádegis,farið út að skoða ströndina og kíkt í legoland, svo var komið heim og maður lagði sig aðeins. Voðalega ljúft.
Ég þakka kærlega fyrir mig og legg til að þetta verði árlegur viðburður. Hvað segiði um að hittast næst á spáni? Hafið það sem best og vonandi getið þið skemmt ykkur jafn vel án mín.
Ég, Gummi og Kristín brunuðum svo í hádeginu á þriðjudag til Sjöppen aftur. Komum þangað um fjögurleytið þannig að við Kristín skelltum okkur á strikið, sem er handan við hornið frá staðnum sem þau búa á. þægilegt að eiga svona vel staðsetta ættingja. Ég setti evrópu met í fatakaupum innanhús án atrenu, keypti 2o kíló af fötum, slatta af skóm, töskur, glingur og aðrar nauðsynjar. Takið eftir því að ég verslaði allt þetta í tvem búðum. Geri aðrir betur.
Var mætt útá kastrup 22.00 og flaug svo heim klukkan 22.50.
Dröllu fallegt fólk í vélinni á leiðinni heim, en ég var látin sitja fyrir framan heila íslenska fjölskyldu. Börnin töluðu dönsku við hvort annað og görguðu. Mamman og pabbinn voru full.
Ég fékk gjöf frá systkinum mínum þegar að ég var að fara. Það var froskabangsi, því þeim finnst ég svo mikill froskur. Þau lesa ekki bloggið mitt - þetta var sætast í heimi :)
17.6.06
Farvel Kalda frón

Froggie.is er farin til Danaveldis að hitta stórfjölskylduna í huge sumarhúsi einhversstaðar á vesturströndinni. Fékk sendan miða á e-mail í fyrradag í boði Gummi group. Ákvað að skella mér.
Flogið í nótt til Köben og keyrt þaðan með Gumma og Kristínu.
GamanGaman.
Vona að ég geti notað sólgleraugun mín þar.
Gleðilegan 17.júní.
Ef einhver nennir þá má hann sækja mig útí Leifsstöð klukkan 23.55 á þriðjudagskvöld. Það eru allir sem ég þekki í útlöndum...
Verið góð hvort við annað...
13.6.06
Dæmigerður Íslendingur
Ég ákvað nú samt að gera eitthvað sniðugt úr deginum og skella mér í sund. Það var reyndar alveg ógeðslega þægilegt að liggja í pottinum, hálf berrassaður, innan um 176 aðra berrassaða einstaklinga og láta rigninguna dúndrast á andlitið á sér, eftir að hafa synt marga kílómetra.
Þegar að ég var komin uppúr ákvað ég að fara út í stuttum gallabuxum og opnum skóm, því ég hélt að rigningin myndi ganga yfir. Kannski full mikil bjartsýni. Ég þurfti að labba tvo metra undir berum himni og á þeim tíma rigndi svo að ég hef aldrei kynnst öðru eins. Orðatiltækið "það rigndi eins og hellt væri úr fötu" fölnaði við hlið þessarar dembu.
Jæja, ég orðin blaut aftur og fötin líka, eins gott að ég var með handklæði í töskunni. Kíkti við í Smáralind, pælingin var sú að ég myndi kaupa mér einhver viskuleg föt, skó eða eitthvað sem að gerði gagn á þessu blauta landi.
Nei, ég kom út með Dolce og Gabbana sólgleraugu. Bráðnauðsynlegt að eiga svoleiðis í blíðunni hérna á Íslandi. Hefði betur keypt mér vöðlur, örugglega hægt að fá einhverjar súper góðar og flottar vöðlur fyrir sama pening - MIKIÐ meira notagildi.
Í dag var í fyrsta skipti sem að ég hef farið út með gleraugun. Labbaði úr vinnunni og útí matarbúð í hádeginu. Svo tók ég á mig extra krók á leið heim úr vinnunni, fór niður laugarveginn, svo það væri nú hægt að nota gersemina eitthvað.
Nú er ég hjá ömmu og afa, nema þau eru ekki heima. Er búin að fara í pottinn og liggja þar eins og skata. Svo gott, best í heimi.
10.6.06
Litlu-skrímsla-blogg




Já, þetta blogg verður tileinkað litlum börnum útum allan heim og foreldrum ungra barna, sem ég dáist að.
Passaði litla skrímslið mitt í gær, hún var ekki jafn stillt og vanalega, eða reyndar bara þreytt og ekki sátt við að vera sett í pössun í heilar 40 mín. En svo var núðlunni okkar bara skellt í bað og þá varð hún sátt og sofnaði í stólnum sínum.
YNDI þetta barn.
Nú, eins og flestir hafa tekið eftir, þá er óléttan að ganga og greinilegt að þegar að vorvindarnir fóru að blása að það hafi borist eitthvað annað en birkifræ með þeim. Best að passa sig, því að ég held að þetta sé smitandi. Get svarið fyrir það, það er önnur hver kona á Íslandi ólétt. Mjög skæð pest. Þori ekki út, ef maður á það á hættu að smitast.
Fékk einmitt óléttufréttir númer 37 áðan, hitti fyrrverandi vinnufélaga úr Samskip sem sagði mér það að þau hjónin ættu von á litlu kríli. Loksins :)
Gaman Gaman.
En jæja, best að fara að sofa í hausinn á sér, þarf að vinna eins og mófó næstu vikur til að eiga fyrir öllum sængurgjöfunum, eins gott að maður er á sérdíl hjá BabySam...
6.6.06
Partý stand er líklega það sem einna helst hefur einkennt síðustu daga.
Þrítugsafmælið hjá Gumma var auðvitað ekki af verri endanum og ekki neitt venjulegt partý þar á ferð skal ég segja ykkur. Mætti klukkan 5 í mínu fínasta pússi, með gloss og allt. Þá var matur sem undirbúinn var af meistarakokkum, auðvitað. Gott vín og engar djöfuls knorr sósur skal ég segja ykkur. Svo klukkan 20.00 var svo partýið, þjónustufólkið merkt, huge banner á húsinu, golfkúlur fyrir alla, merkt, hljómsveit, flæðandi áfengi, bjór í fiskikörum, sem voru full af ís og ég veit ekki hvað og hvað. Mjög gaman og ég vil nota tækifærið hérna til að þakka kærlega fyrir mig!
Sunnudaginn var svo BS djamm, og það ekki af verri endanum. Byrjað á að borða saman á Ítalíu, mjög góður matur og fín þjónusta. Svo var farið heim til Elfu, setið og spjallað fram yfir miðnætti. Þá tíuðum við okkur í bæinn, fórum á Sólon, Hressó og Pravda. Enduðum með einhverjum ameríkönum í einhverju "vip" herbergi á pravda. Get svarið fyrir það, ALDREI ALDREI AFTUR (á pravda)! Var lokuð inní rými með 1000 aflituðum, appelsínugulum karlmönnum, 50 gellum sem voru með svo mikið sílicon í hinum ýmsu líkamspörtum að það kæmi mér virkilega ekki á óvart ef einhverjar þeirra væru í heimsmetabók ginnes - Svossem kannski gott að fylla uppí það sem hægt að er fylla uppí til að tómarúmið í hausnum verði ekki jafn áberandi. En hvað veit ég, bráðgáfaður kvennmaður með ekta brjóst, glötuð pía? (lennti sko í atviki inná Pravda, þar sem tvær svona píur komu við sögu, svo vitlausar!)
En í heildina var nú ótrúlega skemmtilegt þetta kvöld, mjög vel heppnað. Takk fyrir síðast skvísur.
Í gær átti (lang)Amma Ragga svo níræðisafmæli, að því tilefni var liðinu smalað saman í flottan dinner á skólabrú. Þarna vorum við samankomin, börnin hennar, barnabörn og svo við Skúli, tvö elstu langömmubörnin. Svaka gaman, voða flottur matur, vín, flott fólk og ræður. Amma Ragga er bara svo mikill töffari að ég held að ég eigi töffuðustu langömmu í heimi, gamaldags er nú varla til í orðabók þeirrar gömlu.
Hafdís frænka sagði við mig, Jæja Kristín Alma mín, það er nú meira hvað þú ert ORÐIN falleg og yndisleg stúlka. Fór heim á bömmer yfir því að hafa verið svona ljótt og glatað barn.
Þetta var reyndar ekki það sem hún átti við, sagði svo að ég hefði nú alltaf verið þetta, bara orðin meiri dama núna heldur en fyrir 10 árum.
Svo verður meira partýhald með gömlu 24-25 júní - útí sveit, þar sem að ég hef ekki komið síðan að beljan sleikti á mér eyrað forðum daga, verð að horfast í augu við óttann.
Áðan hitti ég svo Helgu á Oliver, fengum okkur að borða og planið var nú að spjalla saman, en það varð eitthvað minna af því þar sem að Helga var nánast óviðræðuhæf, bæði því hún var svo upptekin af matnum og svo þegar að hún leit upp frá disknum þá var það til að kíkja aðeins á danska barþjóninn og segja svo "frígging heitur gaur" Ég er ekki sammála. Sagði henni að allir væru svona sætir í Danmörku. Nú skyndilega vill hún ólm koma í heimsókn til Danmerkur. Skrýtið.
Lifið vel.
1.6.06
Afmælisfólkið
Nýkomin heim af Seltjarnarnesinu gamla og góða, fór þangað beint eftir vinnu.
Mættum nokkur í Sævargarða 1 til að skúra skrúbba og bóna fyrir veisluna á laugardaginn. Voum á 100 að þrífa, við kvennsurnar inni að þurrka af og svona en karlarnir úti að þrífa glugga og ditta að hinu og þessu. Þegar að þrifunum lauk þá vorum við í því að skipuleggja hvar hvað ætti að vera, vorum nú reyndar með smá fyrirmæli frá afmælismanninum, en samt sem áður þurfti að sjá þetta allt fyrir sér, hvar hljómsveitin eigi að vera, hvernig væri best að hafa borðhaldið þarna fyrst, þegar að við famelían erum bara og svona allskonar. Svo sagði afmælismaðurinn að það kæmu svona fiskiker (að mér skilst) full af ís á laugardaginn, hvernig svosem í fjandanum þeim verður komið fyrir þar sem þau eiga að vera, en ég ætla samt að horfa á það - verður spennandi. eða ekki?
Ok, þetta er svona líka leiðinlegt blogg - endum þetta á afmæliskveðjum til vandamanna.
Litla systir á afmæli í dag, SiggaSoffa litla orðin 12 ára gömul. Finnst mjög stutt síðan ég sá hana fyrst, fannst hún nú ekki sæt, verð ég að viðurkenna, bara lítil krumpuð og eins og kínverji, með voða mikið svart hár - En hún er nú þvílík myndardama í dag, Til hamingju með afmælið krútta!
Best að óska Guðmundi Óskarssyni líka til hamingju með stórafmælið, orðinn 3o ára, Til hamingju með það! Þess má til gamans geta að Gummi er einmitt guðfaðir SigguSoffu, ekki amalegur guðfaðir sem hún á, stelpan.
P.S. Hérna er svo mynd af boðskortinu sem ég fékk, dáldið öðruvísi, það verður ekki annað sagt.
30.5.06
Mikið hefur nú ekki skeð síðan síðast. Jú við skitum uppá bak í Júróvisjón. Ekki í fyrsta skiptið og ekki það síðasta. Svo var það feministinn Kristín Alma sem að horfði á aðalkeppnina. Hlýtur að hafa verið mjög heitt í Aþenu - Allir bara berrassaðir. Bókstaflega á rassinum. Meira að segja gellan sem að fékk allar millurnar til að dressa sig upp ákvað að mæta bara á nærbol og stígvélum. Töff.
Reyndar toppuðu Bretar kvöldið með barnakláminu, aldeilis flott hjá þeim. Júróvísjón sökkaði feitt þetta árið, gjersamlega gleited dæmi - Fyrir utan danska lagið að sjálfsögðu, gå denmark.
Kosningar riðu yfir landið síðustu helgi. Allir sigurvegarar eins og komið hefur fram einu sinni eða tvisvar. Get ekki ákveðið hvort ég eigi að vera Kommatittur eða Sjalli. Sem er mjög spes. Finnst margt af því sem að Vinstri Græn eru að gera mjög frábært og æðislegt. Annað glatað. Eins með Sjálfstæðisflokkinn. Finnst þeir vera með hausinn alltof mikið inní síns eigins rassgati - mættu alveg kíkja út við og við.
Hmm. Massa mikið að gera um helgina er á fullu við að finna mér date til að taka með mér í þrítugsafmæli á laugardag. Hangi á Sólon á kvöldin og á Subway niðrí Faxafeni milli 13-14 alla daga til að finna útúr hvern ég eigi nú að taka með mér, ekki getur maður mætt einn í svona samkvæmi. Það er bara lummó.
(ætti kannski að finna mér betri staði til að hugsa á?)
Mamma á afmæli í dag, 22 ára þessi elska, óska afmæliskonunni til hamingju með það.
Lifðu í lukku en ekki í krukku.
Lifið heil
17.5.06
Illa útleikin eftir Kötlugos



Katla gerði sér lítið fyrir þegar að ég tók hana í fangið á mánudag.
Gaus 30 lítrum af brjóstamjólk yfir mig.
Þetta er mynd af ælinu.
Lítið bloggstuð, fékk hræðilegar fréttir fyrr í dag. Sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur í Sandgerði.
Guð veri með ykkur á þessum erfiðu tímum.
Eitt af börnunum sem ég var að passa úti í USA, þegar að ég fór þangað sem aupair er að koma til Íslands með mömmu sinni. Hún verður eins árs á morgun, lítla snúllan. (var alveg ný þegar ég fór út) Hún verður hjá mér um alla helgina, og ég ætla að fara með hana í húsdýragarðinn og við ætlum að gera allskonar skemmtilegt saman, hlakka þvílíkt mikið til, finnst ég eiga svo mikið í henni, og þeim systkinum reyndar líka.
En ef að það er einhver sem á Vagn eða svefnkerru sem að ég get fengið lánaða yfir helgina væri það frábært :)
10.5.06
Ohh, þar fóru grillpartýin
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1200723
Annars var ég að ræða við Brynju Rún vinkonu mína.
Fann út að ég væri ekki tilbúin til að vera full time mom, allavega ekki eins og er, þannig að ég ákvað það að það væri fullkomið fyrir mig að fá mér kærasta sem er barn, nei fyrirgefið Á barn. Pælið í hvað það myndi hennta vel, bara vera með kallinn alla daga og svo barnið aðra hvora helgi (Þ.e. ef að móðirin væri með forræði.) og kannski nokkrum sinnum á virkum dögum. Hanga svo aðeins í Smáralind með grenjandi krakkann og kaupa svo ís, fara í bíó og gera ALLT svona til að maður þurfi nú örugglega ekki að eyða svona "mommy and me time" með barninu.
Fullkomið.
Svo ef þið vitið um einhvern svoleiðis, 82-86 módel þá bara bjallið þið í mig.
(Verður samt að standast gæðastuðla (er það orð?) og þær kröfur sem eru settar.)
Kannski að setja þetta í einkamál? Eða barnaland.is?