7.12.08
Jólakortadrama
Ég stakk svo uppá að við myndum senda út kort með mynd af bílnum hans (Rottunni* sem hann keypti sér sem vinnubíl og er búin að eyða öllum sínum frítíma í að dúlla við síðan) svona sem málamiðlun. Honum fannst ég ekki fyndin.
Annars eru bara 4 dagar í heimferð. Fer ekki vestur fyrr en 20 des ca. því ég er að fara að hjálpa Þórdísi aðeins í Friis og co. Gaman að því.
Svo það ætti að vera tími til að hitta einhverja í Reykjavíkinni.
4.12.08
Jól
Það er annars sól hjá mér. Í alvörunni sko. Eða var í dag að minnsta kosti. Núna er bara myrkur, enda klukkan að verða hálf þrjú. Ég bara datt í smá les og er núna að plotta smá með Villa Mágkallinum mínum á msn. Erum svo flippuð.
Búin að ákveða hvar jólin verða. Þau ætla að vera í Grundarfirði þetta árið, nánar tiltekið á Grundargötu 69. Verðum bara tvö heima (ég og Jón Pétur) í megakósí rólegheitum. Fólk er nú eitthvað að hafa áhyggjur af því að það verði einmannalegt hjá okkur og svona, en ég hef nú enga trú á því. Ég er nefninlega skemmtilegri en margir halda.
Hinsvegar held ég að við getum alveg ákveðið núna að við verðum með annari hvorri stórfjölskyldunni á næsta ári, þar sem ég hef fengið það stórkostlega hlutverk að sjá um jólamatin.
Er að pæla í að biðja einhverja í tengdafjölskyldunni að hafa ríflegt í jólamatinn því það mun verða mjög líklegt að við birtumst á tröppunum hjá þeim, sársvöng eftir að mér tekst að klúðra hamborgarahryggnum á einhvern skemmtilegan hátt, sem á ekki að vera hægt.
Við ætlum svo að koma í bæinn á jóladag og soga í okkur smá menningu. Eða menningu og ekki menningu, ætlum í hangikjöt og laufabrauð á S1 og örugglega slatta af jólaboðum.
Og passa Auði krúttrassgat á annan í jólum.
Áramótin eru óráðin. Ég á flug klukkan 8.00 á nýársmorgun svo það er spurning hvað við gerum.
Í sambandi við jólakort. Þá má senda það bara strax til Grundarfjarðar (ef þið ætlið að senda mér/honum/okkur jólakort yfir höfuð), þar sem ég fer til Íslands eftir viku og verð ekkert aftur í Danmörku fyrr en í janúar.
Jón Pétur Pétursson
Kristín Alma Sigmarsdóttir
Grundargata 69
350 Grundarfjörður
Það er ennþá óráðið hvort þið fáið jólakort frá mér/okkur. Ég er að reyna að fá Jón Pétur til að senda út kort með mynd af okkur með jólasveinahúfu. Gengur ekki vel. Skil þetta ekki :)
2.12.08
Eigið góða aðventu, elskin mín!

1.12.08
Sérdeilis skemmtilegur jólafrokost þar sem ég kom öllum á óvart (mér sjálfri þó mest) og drakk bekkjarbræður mína alla með tölu undir borðið. Ákavíti rúlar. Er mikið stolt af þessu og hef sagt hverjum sem vilja og vilja ekki heyra frá þessum miklu gleðitíðindum.
Þetta var minn fyrsti julefrokost frá því ég flutti hingað og þótti mér ákaflega skemmtilegt að aðaldæmið þarna var lifrakæfa á rúgbrauð! Danir éta þetta daglega, skildi ekki alveg af hverju þeir hafa þetta með í julefrokostinum, en komst að því þegar þetta var borið fram. Lifrakæfunni hafði verið hvolft úr álbakkanum á eldfast fat, sett bacon ofaná, sveppir á kanntinn og inní ofn.
Talandi um að lifa á brúninni!
Endaði aftur í bænum á laugrdaginn og var það öllu sveittara djamm þar sem ég endaði með typpateygjuna hennar Ágústu á hausnum og tók Tjernobyl barnet intenst á dansgólfinu á Hekken.
Skemmtilegt það.
Það fer svo nokkuð fáum orðum um sunnudaginn. Ég svaf. Enda gömul kerling.
Jæja, communication að byrja. Ekki nema 4 tímar af Helle Svendsen. Epli augna minna :)
28.11.08
Samúð óskast

18.11.08
Harmsögur
Endaði með því þegar ég var næstum því búin að hósta upp lifrinni í þriðja sinn þann klukkutímann að ég hringdi í lækninn. Hún vildi, mér að óvörum endilega fá mig í heimsókn og hlusta mig. Lungun á mér möluðu eins og kettlingur þannig að ég hélt að ég yrði bara send heim með panodil og sagt að sofa. Neinei, ég send í flýti uppá spítala í allskyns rannsóknir og pot.
Byrjaði á því að stripplast um allt þarna á nærbuxunum einum fata til þess að fara í röntken. Er mjög viss um að konan hafi verið lesbísk og að nota sér aðstöðu sína, því ég var að fara í röntken til að finna út hvort að það væri eitthvað að lungunum í mér. Síðast þegar ég vissi þá voru þau staðsett í brjóstkassanum, en ekki rasskinnunum.
Jæja, ég lifði þetta af, enda mjög svo ekki spéhrædd og fannst þetta því lítið mál að vippa mér úr öllu til þess að græja þetta. Fór bara að pæla í þessu eftir á að þetta gæti nú varla átt að vera svona.
Næst var ég send í blóðprufu. ég var búin að reikna út að það tæki svona 10 mínútur tops, og ég myndi ná strætó uppí skóla korteri seinna. Bjartsýni, myndi ég kalla þetta.
Fyrst þurfti maður að taka númer! Bara eins og á pósthúsinu. Jæja, ég tek númer og það eru 10 á undan mér. Það líður nú ekki svo langur tími, þá er ég kölluð upp og beðin um að setjast á stól. Bretti upp peysuna og kellingin strekkir ól utan um hendina til þess að fá æðina fram. Það gekk ekki. Þá prufaði hún að strekkja betur. Það gekk ekki. Þá prufaði hún að stinga og hún hefði fengið meira blóð með því að stinga nál í stein. Jæja, hún gefst ekki upp og reyndi að fá æðina fram á hinum handleggnum. Það gekk ekki svo ólin var strekkt betur. Gekk ekki neitt svo hún náði í aðra ól til að strekkja utanum hendina á mér. Þegar þarna er komið við sögu þá leið mér eins og hendin á mér væri að springa. Loksins stakk konugreyið og það gekk ekki neitt að stinga. Hún stakk og stakk þangað til að ég var orðin eins og gatasigti þarna og ekkert gekk. LOKSINS náði hún að stinga á helvítis æðina og þá var partý! Glasið fylltist á núll einni og hún tók nálina út. Þá sprautaðist blóð yfir allt þarna og konu greyið réði ekki neitt við neitt og þær voru komnar 3 þarna til að reyna að stoppa þessi ósköp. Meðan var ég í hláturskasti og gat ekki hjálpað.
Núna er ég enn marin á hendinni. Ég hef aldrei fengið annað eins mar! Ég er eins og gæjarnir þarna í blueman show, marið er svo stórt.
En ég fékk pensilín og er held ég aðeins byrjuð að skríða saman. Tími kominn til, er ekki að nenna þessum slappleika lengur.
Ég kem heim til Íslands 11 desember. Langar mikið á Frostrósatónleika. Hver vill með? (Langar nú mest í höllina, en kyngi kannski stoltinu og fer í Ólafsvík bara..)
3.11.08
Blogg
6.10.08
30.9.08
Hóst og hnerr
Jón Pétur kemur á morgun. Verður líklega bara kominn um það leyti sem ég kem heim úr skólanum. Hlakka mikið til. Hann er líka með kvef og hósta svo við verðum fín hérna saman. Það er samt búið að plana þessa daga sem hann verður alveg í drasl. Bara fínt. Matarboð og partý frá fimmtudegi til sunnudags. Ekki slæmt.
Stjáninn okkar er líka að koma og ég hlakka nú ekkert minna til þess. Langt síðan maður hefur séð hann.
Ætla að elda eitthvað með miklum hvítlauk í kvöld. Veit bara ekki hvað, komið með hugmyndir..
28.9.08
Kósíheit par exelans
Skildum reyndar ekkert í því að það voru þrjár tómar hvítvínsflöskur á borðinu þegar við vöknuðum. Það er okkur enn hulin ráðgáta...
Takk fyrir mig snúlla, þetta var æði :)
Gærkvöldið fór í dorm fyrir framan sjónvarpið. Danir ættu að skammast sín fyrir að hafa svona lélegt sjónvarpsefni á boðstólnum um miðja helgi!
Þannig ég hékk yfir facebook þangað til ég gat ekki meira. Slökkti ljósið og fór að sofa.
Í dag hef ég gert mest lítið. Dröslaði mér reyndar í sturtu, búðina, í pulsuvagninn og svo er ég núna loksins komin í skólann. Þarf að skila einhverju verkefni á miðvikudaginn. Held það sé best að klára það af sem fyrst vegna einbeitingaskorts sem mun hrjá mig frá og með morgundeginum til og með 20 október.
Á erfitt með að koma orðum að þessu verkefni. Er um samskipta strategíur í fyrirtækjum á alþjóðamarkaði.. Plehh, er líka orðin svo gleymd í tungunni að ég veit ekkert hvort þetta sé rétt þýtt hjá mér, hljómar gáfulega í það minnsta.
Hvað varð um það að mæður hefðu læri eða hrygg í matinn á sunnudögum og byðu afkvæmum sínum í mat? Móðir mín situr heima að strjúka piparsveininum (skrifa Batchelor ritgerð) og ég svelti á meðan. Hnuss.
24.9.08
7 dagar
Það hefur nú samt asnalega lítið á daga mína drifið, hef eytt megninu af tíma mínum í skólanum og hefur tíminn því gjörsamlega flogið áfram. Það er að koma haustfrí eftir 2 vikur, man ekki til þess að þessi tími frá skólastarti og fram að haustfríi hafi nokkurntímann liðið svona hratt, og er þetta þó fimmta haustfríið mitt í DK.
Jón Pétur er að koma til mín (og Eyjólfs, sem heldur ekki vatni yfir komu JP) 1 okt og ætlar að vera í nokkra daga. Hlakka mikið til og vona að það verði rólegra í þessum blessaða skóla eftir daginn í dag svo ég geti séð hann eitthvað.
Síðan kem ég ásamt fríðu föruneyti til Íslands seint að kvöldi 9 október. Við erum nefninlega að fara á reonion og svo er skírn hjá Auði 12 október. Ég ætla svo að fara til Grundarfjarðar og liggja í dvala þar þangað til 20 okt þegar ég fer út aftur. Hlakka ofsa til.
Við Íris byrjuðum að "æfa" sund í síðustu viku. Þetta er eitthvað voksenhold, sem er einu sinni í viku. Ótrúlegt fjör og enginn sem vill synda í hringi þar! Mjög gott að komast svona út að hreyfa sig af og til. Í gær vorum við með froskalappir (svömmefödder, maður er alltaf að læra ný og ný orð) og þutum alveg áfram með vindinn í hárinu í hálftíma.
Ekki mikið að frétta annars, bara same old. Langar mikið að dettaíða um helgina, svona ef það er einhver sem vill joina. Er að pæla í að gera það hvort sem ég þarf að vera ein eða ekki..
12.9.08
Hressandi!
Ég sit því hér og svitna núna. Hvort það er af áhyggjum af því að ég skilji þetta ekki eða útaf því að ég var að drekka hálfan líter af heitu kaffi og er í tveim peysum með trefil, veit ég ekki.
Kannski ég fái mér vatn.
Næstu tvo tímana er Erhversökonomi, veit heldur ekki hvernig þið viljið þýða það en það er ekki alveg uppáhaldsfagið mitt. Akkúrat af því það eru tölur involved.
3 verkefnaskil í næstu viku. Einnig mjög hressandi. Þýðir að ég þarf að lesa um 300 og eitthvað blaðsíður um helgina. Ásamt því að lesa fyrir önnur fög og eyða sunnudeginum í að grilla SS pylsur ofaní nýbúana hérna í Horsens.
Mér þykir ákaflega leiðinlegt að ég hafi ekki neitt annað að blogga um en skólann. En svona er þetta.
Gæti reyndar aldeilis sagt ykkur að ég er að koma til Íslands eftir minna en mánuð. Hlakka mikið til. Reunion hjá Byggingarfræðingunum. Ég og mamma sem sagt að fara saman með mönnunum okkar. Voða krúttlegt :)
Síða bara Grundó. Ætli ég reyni samt ekki að kíkja í bæinn líka.
Pleeh, nóg kómið af hangsi, sérstaklega pointless hangs því ég er bara e-ð að röfla. Setti inn fullt af myndum á Fésbókina. Veit ekki hvernig þetta virkar, held þið verðið að vera á Facebook til þess að geta séð. Svosem ekki mikið að sjá, það eru 4 manneskjur á þessum myndum. Ég, Jón Pétur, Sölkus og Kötlus. Áhugavert.
----
Update klukkan 13.05
Arna segir að þetta heiti Viðskiptalögfræði og Viðskiptahagfræði. Yndislegt.
P.S. Victoria í bekknum mínum sagði við mig áðan "Ej, Kristin! Du ser da rigtig død ud"!!! Fokkíng kaupmannahafnari. Spurning um að henda á sig andlitinu áður en maður mætir í skólann. Er fólk hætt að kunna meta au natural útlit..?
2.9.08
Tilli
Þessi gaur skemmti okkur á ströndinn heilann dag í Barcelona. Hann lá þarna rétt hjá okkur tótallý á sprellanum í sólbaði. Svo þegar hann fór í sjóinn eða stóð upp klæddi hann sig í þessar líka fínu borubrækur.
Njótið vel.
31.8.08
Klukk
Fjörgur störf sem ég hef unnið á um ævina:
- Dvalarheimilið Fellaskjól
- Baby Sam
- Samskip
- Kirkjuból
- Birdget Jones
- The Royal Tenenboums
- Sex and the city
- Fuglastríðið í Lumbruskógi
- Seltjarnarnes
- Raufarhöfn
- Garðabær
- Horsens
- Greys Anatomy
- Desperate housewives
- Friends
- Klovn
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Santa Pola
- Frankfurt
- Barcelona
- Baltimore
Fernt matakyns sem ég held upp á:
- Súkkulaði
- Popp
- Mömmu Soffíu Lasagne
- Mömmu Þóru Pasta
- Urban
- Metro express
- Vikublaðið Þeyr
- Kig ind
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
- Grundarfjörður
- Laugarvegur 38
- Krít
- Tailand
- Mamma
- Inga Lóa
- Ingibjörg Elín
- Hjalli
Þar hafiði það.
Ég hef það annars sæmilegt bara. Skólinn að byrja á fullu á morgun og ég að rembast eins og rjúpan við staurinn að gera eitthvað CV á dönsku, gengur mjög hægt, svona ykkur að segja. Veit heldur ekki alveg hvar ég ætla að sækja um vinnu, en það hlýtur að reddast.
Við Íris erum að fara að æfa sund. Fyrsta æfing á þriðjudaginn og mikil tilhlökkun í gangi. Verður örugglega bara mjög fínt, þó að ég komist kannski aldrei á héraðsmót eins og sumir sem ég þekki :)
29.8.08
Menntun er fjárfesting í framtíðinni
Nú hef ég komist að því hvað er í raun og veru átt við með þessu. Ég er að fara að kaupa 9 bækur sem eru allar svipaðar á þykkt og símaskráin. Er búin að reikna út hvað þetta kostar og það er ekki nema yfir 3.500 DKK!! Samkvæmt genginu þessa stundina eru þetta rétt tæpar 60.000 ISK. Þetta er fyrir utan stílabækur og möppur, sem er slatti af líka. Þetta er bara ein önn.
Hressandi!
Tók lestrarpróf í gær á dönsku í einhverjum studieteknik kúrs og les að meðaltali 19 línur á tveim mínútum. Ég ætla sem sagt ekki að gera neitt annað í vetur en að lesa. Getið ímyndað ykkur hvað ég er sló að lesa á dönsku "fræðimáli" því þessar 18 línur þarna miðast við einhverja auðvelda grein í einhverju blaði...
Þess ber að geta að ég les mjög hratt á Íslensku - er ekki algjör slúbert.
Þessi fylgir með í lokin. Uppáhöldsin mín á Grundfirskudögunum. RAUÐIR!
26.8.08
Háskóli
Kemst varla fyrir heima hjá mér vegna þess að ég á svo mikið af fötum. Samt er ég næstum farin að gráta því ég á ekkert til að fara í á morgun, fyrsta daginn minn í háskóla!
Sem sagt, frá og með morgundegiunum verð ég nemandi í markaðshagfræði. Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að fara í eitthvað nám sem innihéldi hagfræði í titlinum. Enda er það nú meira "markaðs" sem heillar mig.
Fór í sund í dag, sem er eiginlega mjög frásögurfærandi því ég fer aldrei í sund hérna. Hef farið þrisvar. Það var allt á einni viku núna í febrúar. En þetta er sem sagt í fyrsta skipti sem ég mátti vera að því að synda og komst ég að því að ég kann ekki að synda á dönsku. Stelpa sem stoppaði mig sagði að ég ætti að synda í hringi en ekki fram og til baka. Ég var ein á brautinni og sá ekki að þetta skipti nokkru máli, en það var greinilega stelpunni sem var tveim brautum frá mér hjartans mál að ég synti í hringi. Gafst því upp á að díla við tófuna og fór í pottinn eftir 500 metra.
Jæja, það er víst ekkert meira til að segja frá. Best að fara í háttinn svo ég verði ekki með bauga niður á tær í skólanum á morgun :)
25.8.08
Svo er enginn laukur þar..
Ætla frekar bara að reyna að útbúa einhverja myndasíðu sem ég get þá bara linkað á. Hef reyndar ætlað mér það lengi, en ég er bara svo hrottalega tæknifötluð að það situr alltaf á hakanum því mér finnst þetta allt vera svo ó-iddíoddprúf. Sjáum hvað setur.
Ég kom heim frá Barcelona á föstudagskvöld, eftir ótrúlega skemmtilega ferð með Pabba, Móður minni í föðurætt, flestum systkinum mínum þeim megin og Ömmu Ölmu (eða ÖlmuÖlmu eins og Salkan segir). Átti ótrúlega góðan tíma með þeim. Takk fyrir mig!
Stoppaði voða stutt í Reykjavík. Rétt náði að kíkja á nýju frændsystkinin mín. Auði og litla Pjakk Óskarsson. Yndisleg. Jón Pétur brunaði líka í bæinn til að kveðja mig og skutla mér á flugvöllinn, en við náðum samt að horfa á Bjarka hlaupa 42 km í maraþoninu, kíkja í sund og snuddast í einhverju allskonar.
Sólarhring eftir að ég lenti í Keflavík var ég mætt þangað aftur á leiðinni til DK. Súrt, en Anna og Örn voru samt að fara út líka ásamt fleiri Horsens búum svo maður var ekki alveg einn í heiminum.
Síðan ég lenti í Horsens hef ég nú bara alveg verið að andast úr þreytu, bara eins og ég hafi ekki sofið í allt sumar. Sem er reyndar alls ekki raunin, því ég sef svo vel og mikið í Grundó að það hálfa væri hellingur.
Þetta var annars mega gott sumar. Þrátt fyrir að það hafi byrjað mjög seint. Efast heldur ekki um að gamlingjarnir mínir séu farnir að sakna mín, svo ég tali nú ekki um vinnufélagana á Dvaló.
Jæja, held ég láti þetta gott heita, verð að fara að koma mér í bælið hvað á hverju, enda síðasti dagur fyrir skólann á morgun. Ætla að eyða honum í eitthvað gáfulegt.

15.8.08
From Paris ti Berlin
1.8.08
Eyjar
Búin að pakka listinn er svona:
- Áfengi
- Sundföt
- Áfengi
- Regnföt
- Áfengi
- Hlý föt
- Miðar í dalinn
- Miðar í Herjólf (one way!!)
- Sólgleraugu
- Bjór
- Sólarvörn
- Gúmmískór
x2!!
Skemmtið ykkur vel um helgina :)
29.7.08
Smáauglýsing
Ef þið vitið um eitthvað þá megið þið hafa samband í síma 848-5313 eða kristinalma@hotmail.com
Blogga síðar, er að fara út að mjólka.






