29.11.12

Kvöldið...

Lalalaaa :)
Ég fór á svo frábæra jólatónleika í kvöld að ég bara verð að segja ykkur frá því. Ég er algjör sökker fyrir jólatónleikum og finnst þetta ómissandi partur af undirbúningi jólanna að skella sér með góðu fólki á tónleika. Nú í ár eru nokkrir söngvarar að ferðast um landið (kalla tónleikaferðalagið Jólin alls staðar) fyrir jólin og halda þessa dásamlegu tónleika. Þetta eru þau Guðrún Árný, Jogvan, Guðrún Gunnars og Regína Ósk. Þetta var bæði hátíðlegt og líka hresst og skemmtilegt - svo skemmir ekki fyrir að þau eru öll miklir húmoristar, við Rakel vinkona mín flissuðum allavega oft eins og smástelpur milli laga ;)
Tónleikarnir sem ég fór á voru þeir fyrstu í röðinni og voru haldnir í Ólafsvíkurkirkju. Ég veit að það verða tónleikar í Stykkishólmi á föstudaginn og svo veit ég ekki meira, en þið getið fundið ykkur miða á miði.is.

Ég fór í fötum á tónleikana og þar sem ég málaði mig og allt ákvað ég að smella af mynd. Ég er nokkuð viss um að ég fái ekki verðlaun fyrir þessar speglapósur mínar en þær verða duga. Kannski fáið þið aðra mynd á morgun því ég er að fara í klippingu - sé að það veitir svo sannarlega ekki af, er komin með algjöran ljónamakka :)

Speglapósa
Mary Poppins skórnir mínir :)

Trefill - Farmers Market
Peysa//Buxur - H&M
Bolakjóll (orðskrípi ég veit) - Forynja
Mary Poppins skór - Zara
Úr - DKNY
Hringur - gamall frá tengdó

27.11.12

Kókosolía

Ég veit að það eru alltaf allir að tala um hvað kaldpressuð kókosolía sé frábær en ég bara verð að gera það líka. Þessi olía hefur oft bjargað mér með svo margt, eins og núna þegar það er byrjað að kólna frekar mikið þá þornar húðin á mér rosalega og ekkert bodylotion dugar til að næra húðina. En ef ég ber á mig kókosolíu af og til þá helst húðin mín silkimjúk og ég verð ekki eins og slanga í hamskiptum um leið og það frystir. Ég klíni olíunni líka í hárið á mér reglulega og nota sem djúpnæringu, gerði mikið kraftaverk fyrir hárið á mér þegar ég var með mjög sítt og mikið litað hár. Núna set ég hana aðalega í hársvörðinn á mér og sef með hana yfir nótt, því hársvörðurinn á mér þornar líka eins og líkaminn í svona kulda - svo heyrði ég að Khloe Kardashian beri kókosolíuna í hársvörðinn til að fá þykkara og fallegra hár :) Einnig eru margar konur sem nota olíuna til að fjarlægja maskara og þar af leiðandi nudda henni vel í kringum augun og nota sem augnkrem í leiðinni.

Á þessu heimili er ein krukka af þessari dásemd á baðherberginu og ein í eldhúsinu. Því olíuna má líka nota í matargerð. Ég nota hana mikið þegar ég vinn með sykurmassa og svo set ég oft eina skeið útí hafragrautinn minn á morgnana :)

Mæli með að allir skelli sér á eina krukku eða svo.



Jólatré

Við erum búin að vera miklum pælinum með jólatré. Við höfum alltaf verið með ekta tré, en þar sem við verðum ekki heima milli jóla og nýárs þá erum við að hugsa um að sleppa því í ár. JP vill kaupa sígrænt jólatré, en ef við gerum það þá veit ég að það verður ekki aftur ekta tré hérna hjá okkur á jólunum og það finnst mér ómögulegt - jájá, ég er frekjudós en mér finnst ekkert voða jólalegt við tré sem þarf að setja saman. Sennilega er þetta uppeldið, en í minni fjölskyldu eru allir með alvöru tré.

Allavega þá sá ég þetta efni í IKEA. Doldið töff að hengja svona upp á vegg og raða svo gjöfunum fyrir neðan á aðfangadagskvöld... ;)


22.11.12

Smáatriðin skipta máli

Ég rakst á skemmtilega mynd á facebook síðu Epal í gær. Þar var búið að líma skrautlímband utan um sprittkerti sem voru svo sett í glæran kertastjaka. 
Þar sem ég er sjúk í skrautlímbönd og kerti þá varð ég að prufa. Ég hef sankað að mér þessum límböndum hér og þar uppá síðkastið og virðist alltaf kippa með mér einu ef þau verða á vegi mínum, þó ég hafi ekki neitt sérstakt hlutverk í huga fyrir þau blessuð.

Myndin frá facebooksíðu Epal
Safnið stækkar með hverri Reykjavíkurferðinni

Föndrið mitt :)
Það er líka hægt að nota rafmagnsteip, ég prufaði það líka og setti svart teip utan um tvö kerti. Það kom rosa vel út.
 Mér finnst þetta frábær hugmynd og þetta gerir furðu mikið fyrir annars venjulegt sprittkerti í glærum stjaka. Sé fyrir mér að þetta gæti til dæmis verið hluti af fallegum borðskreytingum fyrir veislur eða bara til að lífga uppá dimm vetrarkvöld :)
 Fljótlegt og ódýrt!



20.11.12

Jólapakki

Fékk "jólagjöf" um helgina frá Byggingarfræðingnum. Við vorum búin að ákveða að sleppa jólagjöfum til hvors annars í ár þar sem við erum að fara út til Danmerkur og ætlum frekar að fara með jólagjafapeninginn í H&M. En sumir eru sætir og ákváðu að gefa mér þennan. :)

Þetta er ekki ég samt ;)

13.11.12

Af því ég er svo mikil blúnda..



Þetta sett er nú bara úr H&M!





7.11.12

Jón í lit

Get ekki ákveðið mig hvaða lit ég eigi að fá mér af honum Jóni. Hallast mest að gylltum eða svörtum. Ástæðan fyrir að ég vil fá mér svona? Af því að mamma var alltaf með mynd af Jóni Sigurðsyni uppi á vegg þegar við bjuggum í Danmörku - börnin hennar skyldu sko ekki missa tengslin við Ísland.. ;)


5.11.12

Outfit of the day

Ég lét loksins verða að því að kaupa mér vínrauða flík. Er búið að langa í eitthvað í þessum fína lit síðan snemma í haust og lét loks verða að því þegar ég fann einn bol á 3.990kr - gjöf en ekki gjald!
Hef ekki verlsað mér mikið uppá síðkastið þar sem við erum að spara fyrir Köben, ætla aðeins að bæta í fataskápinn minn í þeirri ferð get ég sagt ykkur!
Allavega þá var ég í nýja bolnum þegar við fórum á Landnámssetrið að borða um helgina. Hann er nú bara mjög venjulegur en ég er svo léleg að ganga í litum að mér finnst þetta góð viðbót við annars frekar svartan fataskáp :)



Peysa og Buxur - H&M
Bolur -Blómsturvellir 
Síður hlírabolur - VILA
Skór - Zara
Úr - Triwa

Helgin

Dásamleg helgi að baki. Fórum með góðum vinum í Borgarnes og gistum á Icelandair hótel Hamri sem var mjög gott, alltaf gott að fara á hótel :)
Við fórum í mjög skemmtilegan leik sem gekk útá að leysa hinar og þessar þrautir. Við stelpurnar áttum meðal annars að finna Bjössaróló og taka mynd af okkur þar og kaupa trúðaís fyrir fullorðinn einstakling í Hyrnunni. Strákarnir þurftu að mynda mannlegan pýramída með tveimur öðrum, ganga um í fötunum sínum á röngunni og fleira fyndið.
Fórum út að borða um kvöldið á Landnámsssetrið og mér fannst maturinn ÆÐI en fræðingurinn minn var ekki á sama máli en við erum líka eins og svart og hvítt. Ég allavega mæli með þessum stað, en ekki fræðingurinn.. ;)

Að gefa manni trúðaís í Hyrnunni :)

Að finna Bjössaróló

Allur hópurinn úti að borða!


 Elsku litli Hrappurinn minn átti svo þriggja ára afmæli á laugardaginn. Hann eyddi afmælisdeginum í Ólafsvík hjá Ásdísi og fjölskyldu meðan við foreldrarnir höfum það huggulegt á hóteli og drukkum freyðivín :)

2.11.12

Börn alkóhólista

Æj fékk pínu sting í hjartað þegar ég horfði á Kastljós kvöldsins. Pabbi hefði eiginlega alveg eins getað tekið viðtal við mig, ég sá sjálfa mig alveg svakalega í henni Tinnu. Við erum svo sannarlega ekki ein í heiminum, börn alkóhólista.
Hraðfréttirnar eru svo í seinni hluta þáttarins, ögn léttara efni :)

31.10.12

Levis

Ég er svo (ó)heppin að eiga mömmu sem býr í Kanada og á oft leið yfir landamærin til Bandaríkjana. Óheppin vegna þess að ég hitti hana allt of sjaldan, heppin því hún er dugleg að sendast út um allar trissur eftir hinu og þessu góssi sem mig bráðvantar. Um daginn fékk ég til dæmis sent ca 16 stykki af handsápum úr Bath and bodyworks - hver þarf ekki á svoleiðis fíneríi að halda?



Næsta sem mig bráðvantar eru nýjar gallabuxur og þar sem ég er mjög hrifin af Levis Curve ID þá var ég að hugsa um að senda múttu af stað í leiðangur í Levis outlet og finna á mig buxur. Fyrir þá sem ekki þekkja Levis Curve ID þá komu þeir út með þessa línu í fyrra (að ég held) og hún er gerð með það í huga að passa kvennlíkamanum, sama hvort við séum epli, pera, stundarglas eða hvað þetta heitir nú allt. "Designed to flatter a woman's natural shape". Þeir segja að þetta snúist ekki um stærð heldur snið sem passi líkama okkar. Mér skilst að buxurnar komi í þremur gerðum Slight curve, Demi Curve og Bold curve. Ég er til dæmis Demi Curve og svo velur maður bara snið, ég á "slim leg" sem eru bara frekar venjulegar en það er hægt að velja allskonar, skinny, boot cut og svo framvegis. Ég er ekki með nettasta rassinn í bransanum en mér finnst þessar buxur passa mér vel og svo er alltaf kostur þegar buxurnar ná uppfyrir lífbein en mér finnst ekki fallegt þegar konur/stelpur eru í buxum sem ná varla yfir rassaskoruna á þeim. Þessar buxur eru líka til í mjónu stærðum bara svo það sé á hreinu, þetta eru sem sagt ekki einhverjar bollubuxur ;)
Mér finnst svo gaman að Levis sé komin út með þessa línu, ég hef alltaf verið mjög hrifin af gallabuxunum þeirra en bara dáðst að þeim í fjarska svo það er gaman að eiga loksins svona fínt. En ég er líka bara svo hrifin af þessari línu því það eru ekki allar konur vaxnar eins og 14 ára fermingardrengir eins og margir gallabuxnaframleiðendur virðast halda.

Mæli með að skella sér í mælingu, það var alveg ótrúlega almennileg stelpa sem afgreiddi mig og mömmu þegar við fórum og létum mæla okkur. Ljóshærð stelpa, hávaxin og var í Levis búðinni í kringlunni. Þið megið samt ekki vera feimnar við þetta og reynið að sjá það fyndna í þessum aðstæðum þegar þið troðið ykkur í buxur sem þið eruð vissar um að séu tveimur númerum of litlar ;)
Þetta er status sem ég skrifaði á facebook þegar ég var komin heim í nýjum buxum:

Ég og afgreiðslustúlkan í Levis í Kringlunni áttum saman huggulega stund í mátunarklefanum í dag. Ég lá á gólfinu meðan hún tróð mér í níðþröngar brækur og svo tókst okkur í sameiningu að renna upp og hneppa. Hún sannfærði mig um að brækurnar myndu víkka svo nú sit ég hér hamingjusöm í rándýrum nýjum buxum, með kramið móðurlíf og næ ekki andanum! En mjög hamingjusöm með nýju buxurnar því þær eru jú Levis!!

26.10.12

Kona fer til læknis

Spurning um að henda inn smá bloggi. Það hefur ekki mikið gerst síðustu vikuna þar sem ég hef þurft að halda mig mest megnis heima vegna furðuflensu. Ég er enn að berjast við að drukkna ekki í eigin hori og tala þar af leiðandi eins og æðstistrumpur. Gaman að því.

Fór til læknis í síðustu viku útaf einhverjum breytingum í öðru brjóstinu. Vissi að læknirinn okkar hér á Hjara væri ekki við svo mér datt ekki annað til hugar en að það væri einhver miðaldra krúttlæknir í gallabuxum og hlaupaskóm (eða klossum, það er ekki hægt að vera læknir án klossa) að leysa af. En nei, daginn sem ég fer til læknis til að láta skoða á mér brjóstin (ég fer mjög sjaldan til læknis og hvað þá útaf einhverju öðru en til að fá nýjan skammt af ofnæmislyfjum) er Brad Pitt að leysa af á Hjara Veraldar. Drepið mig ekki! Okei, kannski ekki Brad Pitt en ég myndi alveg segja að þetta hafi verið semí Dr. McDreamy, eða allavega ekki miðaldra krúttkall í gallabuxum og hlaupaskóm heldur svona þrítugur, myndar drengur, huggulegur til fara og tjah bara alls ekki það sem ég átti von á.
Nú þar sem hann birtist í dyrunum og kallar nafnið mitt þá fór margt í gegnum huga minn. Fyrsta var að hlaupa út - veit ekki af hverju ég hætti við það, virðist fín hugmynd þegar ég pæli í þessu núna eftirá.  Annað var að þykjast ekki heyra/þykjast ekki heita Kristín Alma - það hefði ekki gengið upp vegna þess að konan í móttökunni veit hvað ég heiti og hver ég er. Þriðja var að finna uppá einhverri annari ástæðu fyrir að ég væri mætt til læknis, datt mér þá helst í hug að þykjast vera með verk í hnénu - var fljót að eyða þeirri hugsun þegar ég fattaði að ég væri víst með órakaðar lappir og ég gæti nú ekki farið að ota svoleiðis órækt að greyið drengnum.
Ekki datt mér eina sekúndu í hug að þykjast bara vera komin til að láta hann tjékka á þessari flensu/kvefi/whatever sem ég var þegar komin með þarna og það var ekki fyrr en hann spurði mig þegar við vorum búin að stúdera brjóstin á mér í korter hvort ég væri nokkuð lasin? Döhh..
Svo hringdi vekjaraklukkan mín í miðju viðtalinu, mjög classy, en þeir sem þekkja mig vita að ég sef frekar fast svo það er mjög erfitt að vekja mig (fólk hefur líkt því við að reyna vekja einhvern upp frá dauðum) og því er hringitóninn sem vekur mig ekki lag með Michael Buble. Skil reyndar ekki ennþá af hverju vekjaraklukkan hringdi þarna á þessum tíma en það er nú annað mál.
Ég lifði þetta af, get svo sannarlega þakkað fyrir að vera heilbrigð en er sennilega með varanlegt ör á sálinni eftir þessa lífsreynslu og vona að ég þurfi ekki að rekast á kauða aftur í lífinu, en til þess þarf ég að vera dugleg að forðast þyrlu landhelgisgæslunar skilst mér.

Kannski að ég taki líka fram að þessi læknir var mjög almennilegur og virkilega faglegur, ekkert hægt að kvarta undan honum, ég er nokkuð viss um að hann geti lítið að því gert að vera ungur, myndarlegur og ekki í klossum :)

23.10.12

Furðuflensa

Ég er búin að vera í ruglinu síðustu daga og hef ekki einu sinni opnað tölvuna mína, bara mókað í sófanum með iPadinn og sængina. Ákvað eftir að vera búin að éta óhóflegt magn af verkjalyfjum til þess að koma mér í gegnum dagana að hætta þessu rugli, leggjast uppí sófa og vera bara veik. Held að það sé að virka því nú er ég búin að liggja til skiptis uppí rúmi og sófanum frá því seinni partinn í gær og mér líður aðeins betur. Nema andlitið á mér er að springa svo það er spurning hvort hausinn á mér sé fullur af hori.. :)
Fræðingurinn er á sjónum svo ég á einn mjög vanræktan hund. En greyið er búinn að vera svo góður og virðist hafa skilning á þessu ástandi móður sinnar og sættir sig við mjög hægfara og stuttar gönguferðir og mikinn svefn. Hrappur er reyndar sjúkur í sængur og hefur alltaf verið. Hann fær ekki að fara inní herbergin hér heima svo hann er sennilega bara mjög kátur með að fá að liggja í mjúkri sæng allan daginn. Skondin skrúfa.

Tryggasti vinurinn :)

18.10.12

Jebb, jebb. Mikið að gera í skólanum núna. Fyrri lota að klárast núna svo það er mikið um kannanir og verkefnaskil. Ég náði mér í hálsbólgu, höfuðverk og slappleika svona til að vera alveg hress og fersk í lærdómnum. Alveg týpískt þar sem ég verð ALDREI veik! Held ég eigi skilið kók og súkkulaði... ;)






16.10.12

Voff

Nýr hundur í fjölskyldunni. Fengum lítinn cavalier "frænda" um helgina og við fræðingurinn viljum helst flytja inn til mákonu minnar og fjölskyldu, svo spennt erum við.
Hrappur fékk að hitta Astró litla í kvöld og það gekk ótrúlega vel enda einstaklega prúðir hundar hér á ferð...

Ég með Astró og Bjarma bróðir hans

Hrappur og Astró að hittast í fyrsta sinn

13.10.12

Góð geymsla fyrir naglalökk..

Jæja eins og áður hefur komið fram þá voru naglalökkin mín og bara það sem fylgir nöglum almennt að sprengja af sér baðskápinn. Svo ég ákvað að mála kryddhillu úr IKEA hvíta og skella öllu nagladótinu í hana. Á eftir að hengja herlegheitin upp, en það verður gert þegar bjútíhornið mitt verður græjað (sem fyrst því Fræðingurinn minn er pínu þreyttur á hálsmenum, hárspennum, varaglossum og öðru góssi útum allt hús).
Ég er ánægð með útkomuna og fannst ég ansi sniðug þarna! Þetta varð líka til þess að ég tók rækilega til í safninu góða og fækkaði lökkunum um heilan helling - nú get ég farið að kaupa fleiri :)


Þessi hilla kostaði heilar 795kr og ég gat sett hana saman sjálf!
Málað á eldhúsgólfinu :)
Lét skrautlímband á hilluna því mér fannst það fallegra
Ég er sjúk í skrautlímbönd...

11.10.12

Nude Home

Ég er bara pínu ánægð með fyrsta eintakið af Nude Home sem kom út í dag. Mér finnst þessi vefútgáfa bráðsniðug en verð að viðurkenna að mér finnst mikið betra að setjast niður með tímarit í höndunum og lesa. Eins með bækurnar, er ekki að gúddera þetta Kindle dæmi, vil bara hafa bók í höndunum og flett blaðsíðum og brett uppá hornin þó það sé bannað! Ég er svo níræð inní mér.
En blaðið er fínt, hvort sem ég sé níræð eða ekki :)


10.10.12

Mosi

Mér finnst þessi baukur svo sætur. Væri til í að eignast hann. Tilvalinn undir ferðasjóðinn :)



8.10.12

Kaupmannahöfn

Ég vaknaði eitthvað öfugsnúin eins og svo oft á mánudögum. Ákvað samt að láta daginn ekki allan fara í mánudagsfýlu og pirring yfir veðri svo ég bókaði flug til Kaupmannahafnar fyrir okkur Byggingarfræðinginn í desember.
Þetta var kannski ekki alveg svona, við erum búin að vera á leiðinni til DK lengi og ákváðum núna um daginn að skella okkur út í jólafríinu. Ætlum að gista á hóteli og ákváðum að vera ekki alveg á einhverju farfuglaheimili svo við ætlum að prufa hotel twenty seven sem er nýtt/nýlegt hótel á mjög góðum stað í borginni. Hlakka til að prufa þetta.
Hvað er svo must að gera/skoða/borða/drekka/kaupa í Kaupmannahöfn? Hvar eru bestu Genbrugsbúðirnar og Tyrkjabúllurnar? Ef einhver sem hefur búið í/komið til Horsens les þetta og þekkir til í Köben (halló Stjáni frændi) hvar er hægt að fá pizzur eins og á Delons?!

Við Byggingarfræðingurinn kynntumst í bænum Horsens á Jótlandi og bjuggum þar í nokkur ár áður en við fluttum hingað á Hjara Veraldar, við erum því ekki að fara í túristaferð heldur meira svona nostalgíuferð einhverja. Byggingarfræðingurinn ætlar í THansen, Harald Nyborg og Bilka meðan ég fer í H&M, Genbrug og Bahne. Svo ætlum við í Tivoli, fá okkur tómatsnakk, tivolistangir, McDonalds og Tyrkjabúllukebab.
Æj kannski ekki alveg, ætlum bara að njóta lífsins saman og tala dönsku :)

Naglalakk

Ég keypti mér um daginn segul naglalakk. Það virkar þannig að maður lakkar neglurnar með venjulegum hætti og heldur þar til gerðum segli yfir nöglinni í smá stund - held samt alveg 30 sekúndur og það kemur munstur á neglurnar. Þetta segul-lúkk er ekki alveg minn stíll svo ég sleppi segulpartinum. Liturinn er alveg rosalega fallegur og mér finnst hann einmitt eiga vel við haustið þegar dekkri neglur taka við af björtum og neon lituðum nöglum sumarsins. Lakkið er frá Depend og er númer 6009. Þið fáið mynd, en það ber að taka fram að ég er ekki nagla/handamódel ;)