29.4.07

Get ekki beðið...


Það styttist.

Ljóti karlinn Helgi

Það er alveg með ólíkindum hvað fólki virðist finnast eðlilegt að einhverjum útlendingi sé veittur íslenskur ríkisborgararéttur eftir einungis 15 mánaða dvöl á Íslandi. Allavega ef að þessi tiltekni útlendingur er tengdadóttir Jónínu Bjartmarz.
Svo talar fólk ekki um annað hvað Helgi Seljan hafi verið dónalegur og leiðinlegur við Jónínu í Kastljósi á föstudaginn. Jónína svaraði engum spurningum af ráði. Hún tuðaði bara og snéri útúr. Helgi spurði og Jónína svaraði.. ekki.
Fólk sakar Helga um að vera bara að klína svona "rugli" uppá Jónínu vegna komandi kosninga. Af hverju ætti hann að vera að því? Svo að fólk hætti við að kjósa framsókn og kjósi frekar Helga?
Nei, mér finnst kúkalykt af þessu. Fyrst það er góð og gild ástæða fyrir að stelpan fékk þennan ríkisborgararétt bara sísvona, af hverju þá ekki að gefa hana upp?
Fááááránlegt að veita útlendingi sem hefur verið hérna í ár ríkisborgararétt. Fáránlegt.

Aldrei kaus ég Framsókn.

28.4.07

Kastljós

Ég hef oft íhugað að hella mér útí pólitík. Stofna jafnvel minn eigin flokk og hendast á þing. Eins og Ómar Ragnarsson. En þar sem að ég er hræðilega léleg í að bulla og enn lélegri í að ljúga þá gengur það ekki. En ég er svolítill snákur í mér, þannig að það væri líklega hægt að þjálfa mig upp í að svíkja.
Skil ekki þessa Íslandshreyfingu. Yrði eitthvað skrautlegt ef þeir kæmust til valda. Fíla heldur ekki þessa Henry Ford dýrkun í Ómari. Er Henry Ford í flokknum eða?


Vorkenndi Helga Seljan alveg ótrúlega mikið í gær. En hló samt pínu. Ekki af honum samt heldur kjánalátunum í viðmælandanum. Dásamlegt.

Fleira var það ekki.

26.4.07

Sumarið er tíminn!

Æji kannist þið ekki við svona daga, þegar að það er komin 25 stiga hiti klukkan 11.00 og glampandi sól og það síðasta sem maður vill gera er að vera með nefið ofaní skólabókum?
Svo klukkan 12.00 kastar maður bókunum frá sér, gefur skít í lærdóm og leggst útá verönd með iPodinn til að "vörka tanið". En það er of heitt í garðinum svo að eftir klukkutíma er maður klístraður af svita og sólarvörn. Þannig að maður ákveður bara að fara á ströndina og flatmaga þar restina af deginum?
Æji þið vitið hvað ég á við, er það ekki?
Allavega svona var dagurinn hjá mér í dag. Heitt! Heitt! Heitt!

Skaðbrenndist annars í dag. Ekki útaf sólinni heldur af því að ég eldaði í kvöld. Gerði alveg rosa gott lasagne og mun líklega alltaf bera það utan á mér, á hendinni það er að segja.

Ég er núna að borga sektina fyrir að hafa farið á ströndina í dag. Verð örugglega að læra þangað til að ég fer í skólann í fyrramálið. En það er allt í lagi, get sofið allan daginn á morgun á ströndinni...

Vona að þið hafið það gott í stinningskuldanum og súldinni heima.

25.4.07

Búin að kjósa í fyrsta skipti í lífinu..

"Þú verður bara mynda þér sjálfstæða skoðun á þessu og fylgja henni," hefur verið sagt við mig nokkuð oft síðustu daga. Nema 'frænka mín', Kristín Tómasdóttir. Hún sagði bara: Ef þú kýst ekki Vinstri Græn þá hætti ég að vera móðursystir þín í föðurætt.

Ég hef legið yfir heimasíðum flokkana síðustu viku. Bara svona tjékka á hverjir hafa lofað hverju og svikið hvað. Og svo hverju er búið að lofa að svíkja núna. Verð að segja að ég var búin að rokka frá vinstri til hægri og aftur til baka soldið mörgum sinnum áður en að ég komst að niðurstöðu.

Ég fór og kaus í dag. Fannst þetta ótrúlega spennandi. Labbaði út höfðinu hærri, búin að kjósa í fyrsta skipti í lífinu. Og þarna á þessu augnabliki sem ég krotaði bókstafinn á kjörseðilinn fannst mér ég vera orðin fullorðin. Loksins.

Kannski að bæta því við svona í lokin hvað ég kaus. Ég kaus rétt - en Kristín Tómasdóttir er ekki móðursystir mín í föðurætt lengur. Á eftir að sakna hennar :)

24.4.07

Tvífarar


23.4.07

Heilsa 2007 (Aftur)

Já, í dag átti sko aldeilis að taka upp gamla og góða siði. Heilsa 2007 byrjaði aftur, eftir smá pásu. Smá pásu kalla ég 3 mánuði.
Allavega, allt fór á fullt í morgun, byrjað á að fá sér hollan morgunverð og taka vítamín. Í hádeginu var það svo salat, beygla og coke zero. Í kaffinu var það svo hrökkbrauð með einhverjum heilsuosti sem bragðaðist eins og plast. Í kvöldmat var svo einhver agalega heilsusamlegur kjúklingaréttur. Drakk alveg heil ógrynni af vatni og eyddi þar af leiðindum lunganum úr deginum á klósettinu - eða að hlaupa á klósettið alveg í spreng.
Klukkan 20.00 var ég orðin svo geðvond að það var ekki nokkrum manni bjóðandi að vera nálægt mér. Svo ég fór í bíó.
Rankaði við mér þegar að ég var nánast búin með stóra kók, hálfan stórann popp poka og búin að ræna súkkulaði af sessunautnum.
Þegar heim var komið fór ég að læra smá. Þannig að það var mjög nauðsynlegt að fá sér smá PepsiMax og smá súkkulaði.

Eruði viss um að súkkulaði sé ekki lífsnauðsynlegt? Ég held að það sé eitthvað í súkkulaði sem við getum ekki lifað án. Nei, bara pæling.

Á morgun er það svo hreyfingin. Miða við daginn í dag verður hreyfing morgundagsins að labba útí bíl, teygja mig eftir meira nammi eða lyfta 2 lítra kókflösku.

Ammælis!

Vilborg Unnur litla systir mín á afmæli í dag. Orðin 14 ára.
Vilborg er ein af þeim sem fæddist gargandi og gargaði sig í gegnum fyrsta árið. En var reyndar alveg róleg og góð á köflum.
Þegar að hún var orðin ársgömul þá breyttist hún í lítinn terrorista. Orkan sem fór í að garga fór í prakkaraskap og var barnið ekki hrætt við neitt. Annað en stóra systir.
Núna er hún þessi rólega í systkinahópnum. Þessi góða, þessi sem gerir aldrei neitt af sér og þessi sem er duglegust að hjálpa til á heimilinu.
Hún er æði. Bara flottust!

Til hamingju litla mín!


Við í spassakasti í Tivoli ferð síðasta sumar.


Vilborg í gær.

22.4.07

Flosi

Þetta er Flosi.
Hann er skjaldbaka.







Eigandinn er farinn í praktík til Íslands svo ég tók litla greyið í fóstur á meðan. Held reyndar að það fóstur muni teygjast eitthvað svolítið mikið lengi.
Skjaldbakan hét ekki neitt, svo það var rifist um það hérna í heilann dag hvort að hún ætti að heita Mosi, Snati eða Flosi. Ég vann. Næst á eftir kom Eyjólfur með nafnið Snati og mamma skít tapaði með Mosa nafnið.
Hann heitir sem sagt Flosi í höfuðið á Írisi. Hljómar kannski svolítið bjánalega í eyrum ykkar, en hún Íris getur ekki munað nöfn og kallar Fróða (heimilishundinn) Flosa og Ingibjörgu, Margréti.
Þess má geta að Fróði er skíthræddur við Flosa litla. Stóð í gærdag fyrir utan herbergið mitt og gelti. Í dag þorði hann reyndar að kíkja aðeins innfyrir dyrnar, en honum lýst ekkert á þetta kvikindi sem er búið koma sér vel fyrir inní herbergi.

Þetta eru lélegar myndir. En nennti ekki að taka hann uppúr búrinu og eitthvað vesen.

19.4.07

Áiii

Við vorum eitthvað að ræða stjörnuspá áðan. Svo kem ég heim og ætla aðeins að lesa moggann. Nei þarf ekki helvísk stjörnuspáin mín að poppa upp. Ef þetta kom ekki eins og blaut tuska í andlitið á mér þá veit ég ekki hvað.


Fiskar:
Ef þú getur ekki byrjað á því í dag og heldur ekki í kvöld, hvenær þá? Eftir 17 ár viltu ekki vera að pæla í hvað þú gerðir í staðinn. Byrjaðu núna!


Oj, ég ætla ekki að vera einhver sveitt-þreytt-feit, einstæð og reykjandi Fella-mamma eftir 17 ár. Á örorkubótum, barnabótum og eiga 3 börn með 5 mönnum.
Hugsandi um að ég hefði kannski getað drullast til að opna bók í staðinn fyrir að horfa á 18. þáttinn af Desperate Housewifes, niðurhala tónlist til að setja á iPodinn og drekka sykurkók.
Oj oj oj. Sé þetta fyrir mér. Ætla að læra og er svo farin í megrun á mánudaginn..

(Samt geðveikt góður Despó þáttur.)

Gleðilegt sumar!

Já, þá á sumarið víst að vera gengið í garð á klakanum. Líklegt. Fólk hefur eflaust bara tekið þetta á hefðinni, mætt á hátíðarhöld í sínu bæjarfélagi í gamla góða kraft gallanum og lúðrasveitin ekki getað haldið á trompetunum og túpunum, því vindurinn fór upp í 30 metra á sekúndu og - Got to love it!

Annars hef ég aldrei skilið þetta með að hafa sumardaginn fyrsta í apríl. Hvaða rugl er það? Það er jafn skrýtið og ef við myndum allt í einu halda jólin í júlí.
Þetta ruglaði mig nú aldeilis mikið þegar að ég var barn. Man eftir að við fengum alltaf sumargjafir frá ömmu og afa á S1. Eitt árið fékk ég einhvern gasalega flott sumarföt. Stuttermabol og gallapils að mig minnir. Amma sagði að ég yrði nú aldeilis fín í þessu í sumar. En ég vildi ekki bíða, það var jú sumardagurinn fyrsti svo ég dreif mig í gallann, alveg rígmontin í fínu fötunum. Svo átti að fara út að leika. Mamma reyndi hvað hún gat að fá mig til að klæða mig í önnur föt og að minnsta kosti fara í úlpu og einhver útiföt. Ég þvertók fyrir það og hélt því statt og stöðugt fram að það væri komið sumar. Mamma gafst upp á endanum og leyfði mér að fara út að leika í sumarfötunum. Ég kom inn með bláar varir og nokkur kalsár á tánum eftir 1-2 mín.

Þegar ég var 9 ára upplifði ég sumardaginn fyrsta á Raufarhöfn, þar sem ég bjó í einn vetur. Þá var skrúðgöngunni aflýst vegna þess að það var ófært.

Vona samt að þið hafið átt góðann dag. Ég sjálf hafði það fínt. Fór í skólann og skoraði mörg, mörg stig útá kökuna sem ég gerði fyrir bekkinn. Þó að þetta hafi ekki verið lagkaka...

18.4.07

Svo myndarleg

Í dag æfði ég mig að vera húsmóðir.
Foreldrafólkið er að borða með Stuðmönnum og Sálinni fyrir morðfjár í Kaupmannahöfn. Gott hjá þeim.
Ég var sett í það hlutverk að passa hús, börn og hund. Gefa börnum Hakk og Spaghettí í matinn, láta Fróða pissa og koma gelgjunum í rúmið á réttum tíma. Klukkan er tólf núna og gelgjurnar ekki sofnaðar.
Ég eldaði Hakk og Spaghettí fyrir greyin mín.
Útbjó svo kjúklingarétt og bauð Einari og Írisi í mat. Já, þegar maður tekur sig til þá er nú ekki mikið mál að elda tvær máltíðir á einum klukkutíma.
Núna er ég bara að bíða eftir að skúffukakan sem ég var að taka útúr ofninum kólni, svo ég geti sett á hana krem. Var svo að spá í að henda í eina sjónvarpsköku, svona fyrst maður er byrjaður.

Þið kíkjið svo bara í köku og mjólk hingað í Skovglimt á morgun - Allir velkomnir.
Þættinum hefur borist bréf.

Fékk meil frá kontakt kennaranum mínum áðan. Þetta meil var sent á allan bekkinn.

Så kan i godt spænde hjelmen.

Der er kontaktlærertime på torsdag d. 19 april. Kl 13.00 i lokale 602.
- det forlyder at Kristin er bagermester, - det bliver godt, vi har f.eks aldrig fået lagkage – mon det bliver denne gang ?

Hilsen, Lars Henrik

Við höfum sem sagt haft það fyrir reglu að koma með köku í þessa tíma. Því þetta er svona hyggetime. Núna er komið að mér, greyið fólkið veit ekki hvað það er að biðja um.


Ekki séns að ég komi með lagköku, það er ógeðslegt - Svo ég tók bara útlendinginn á þetta og sagðist ekki kunna að baka þannig.
Spurði hvort ég ætti ekki bara að koma með sjónvarpsköku, en nei, þeim fannst það ekki nógu spennandi. Spurðu hvort ég kynni ekki að baka bananaköku. Danir!

Þau geta bara étið það sem úti frýs þá!

17.4.07

Bara smá

Mamma hefur miklar áhyggjur af því að ég sé þunglynd. Hún spurði mig um daginn hvort að ég væri í ástarsorg, skuldaði pengina og ég veit ekki hvað og hvað.
Ég er reyndar búin að vera eins og hálfgerð vofa uppá síðkastið. En er ekki í ástarsorg, skulda ekki og er ekki í dópi eða rugli , þó að ég dansi ekki og syngji einhverstaðar útá túni allan liðlangan daginn og segi hvað allt sé dásamlegt og yndislegt eins og Pollýanna á spítti.
Er bara með skólaleiða á mjög háu stigi, eiginlega á svo háu stigi að mig langar bara að hætta. Hef engann áhuga á því sem ég er að gera og er bara eitthvað löt.
Ég er alveg búin á því í hausnum þegar að ég kem heim, þrátt fyrir að vera ekki mikið dugleg að læra. Held reyndar að það sé bara danskan sem er að þreyta mig svona. Eftir skóladaginn þá kem ég heim, leggst uppí rúm, dreg sængina upp fyrir höfuð og ligg þar. Í 3 tíma.
Núna er reyndar ekki mikið eftir af kennsludögum. Mánuður eftir af kennslunni. Síðan eru það bara verkefnavinna, framleggingar og skemmtilegheit. Próf í lok júní og svo kem ég á Íslandið, atvinnulaus því það vill mig enginn.

16.4.07

Brekinn minn átti afmæli í gær. Og óska ég honum innilega til hamingju með að vera búinn að vera til í heilt ár.
Hendi með tveim góðum af okkur. Ég eins og einstæð móðir í Breiðholtinu í moggabol. Vantar bara sígó og féló.



14.4.07

Mikið er erfitt að koma sér í lærdómsgírinn. Ég er búin að vera í allt kvöld að reyna að byrja á verkefninu sem ég ætlaði að klára áður en ég færi að sofa.
Ég er með endalaust vesen.
  • Fyrst þurfti ég að fara í sturtu (Maður getur ekki lært í þynnkulyktinni af sjálfum sér)
  • Svo þurfti ég að fara í náttbuxur og sweatshirt (Lærir ekki í gallabuxum og armani t-shirt)
  • Aðeins að lesa netið (ALLT netið og horfa á fréttir, veður og Kastljós fyrir síðustu 2 vikur)
  • Fá mér kvöldmat, því ég uppgötvaði að það var sólarhringur síðan ég borðaði eitthvað síðast.
  • Aðeins að hvíla mig í sófanum og hlusta á tónlist. (Því ég var ekki búin að hvíla mig neitt í dag. *Hóst*)
  • Skutla eldri borgurum heimilisins á Félagsvistarkvöld (Því ég gæti þurft á bílnum að halda meðan ég er heima að læra)
  • Skutla tvillunum á Blockbuster (Þá er allavega friður til að læra ef þær eru að horfa á video)
  • Aðeins að lesa netið, aftur (Spaugstofan var komin inn, nauðsynlegt að sjá það áður en maður lærir)
  • Fékk óstjórnlega löngun í sódavatn og fór útí sjoppu eftir svoleiðis (Vissi að ég þyrfti að nota bílinn!)
  • Opnaði word skjalið.
  • Skrifaði fyrirsögnina
Þá fattaði ég að mig vantaði tónlist til að læra við. Fór í gegnum hvert einasta lag sem ég er með í tölvunni (ekki nema svona 300 gb) og leist ekki á neitt. það voru 3 lög sem ég vildi hlusta á og ég átti þau ekki. Sníkti lögin frá Bjarna Baun og þurfti líka endilega að fá einn geisladisk víst ég var byrjuð að sníkja þetta. Loksins var tónlistin komin inní iTunes-ið og ég reddý til að massa verkefnið.
Nei, þá datt mér í hug að henda í eina þvottavél.
Hverjar eru líkurnar?

Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta..

...Orgaði ég yfir smekkfulla kirkju fyrir 5 árum. Rétt á eftir var ég næstum köfnuð í messuvíni og oblátu. Svo var haldið partý. Margir pakkar og mikill peningur - á hverja krónu ennþá.

Gottvont

Náladofi er einn af þeim hlutum sem eru góð-vondir. Fékk einn svakalegan áðan. Frá tásunum upp fótleggina, rasskinn og upp undir handakrika. Á sama tíma fékk ég svo sinadrátt í kálfann á hinum fætinum.
Áhugavert, ekki satt?

Aldrei þessu vant er ekkert í fréttum og ekkert slúður.

13.4.07

Þunglyndi

Í dag mun ég kafna.
Ég er ekki alveg búin að gera það upp við mig hvort að ég ætli að kafna úr hita eða hósta.
Í nótt vaknaði ég þrisvar sinnum við það að ég náði ekki andanum útaf hóstakasti. Það er ekki töff. Í dag er svo heitt að ég gæti mögulega kafnað úr hita við það að liggja úti í garði.

Styttist óðum í prófin. Ég þarf að fara að gera eitthvað lestrarplan, svona svo ég geti sleppt því að fara eftir því eins og alltaf.
Reyndar veit ekki neitt hvaða próf ég fer í, en giska á að það verði annað hvort Visuelt Varesalg eða Erhvers Ökonomi. Ef ég verð heppin fer ég bara í ensku eða dönsku.
Erum allavega búin að fá að vita hvaða fyrirtæki við eigum að fjalla um og það er ToysRus, sem er skömminni skárra en bestseller helvítið sem við þurftum að kynna síðast.

Kennararnir eru svakalega næs við okkur núna. Um helgina þarf ég að gera skilaverkefni í Visuelt Varesalg, þar sem ég þarf að teikna upp útstillingu í glugga og nota einhverja teoríu í það. Fyrirlestur um það hvernig er að vera útlendingur í Danmörku, og svo skilaverkefni í dönsku.

Hendist í þetta í kvöld, eða morgun. Eða bara hinn daginn.