16.3.07

Stóra Tillamálið

Í gær sat ég hérna í mestu makindum í sófanum, með tvo kíló af nammi og með því og var að spjalla á msn. Þegar að gæludýrið gaf frá sér öskur um að það væri komið nýtt skilaboð. Ég ákvað að standa upp og ná í kvekindið, enda ekki á hverjum degi sem að maður fær skilaboð (Reyndar fæ ég nokkur á dag frá Abdul, en það telst ekki með). Ég hoppaði af gleði þegar að ég sá að þetta var myndskilaboð, en reyndar úr óþekktu númeri.
Skilaboðið hét "Den". Þegar að ég opnaði skilaboðið brá mér heldur betur í brún. Þetta var mynd af einhverjum tilla og textinn sem fylgdi með var "Hann hlakkar svakalega mikið til" (á dönsku).
Ég var að sjálfsögðu við það að láta lífið úr forvitni og fletti númerinu upp á Krak og Gulu síðunum en fann ekkert.
Mikið svakalega vona ég að þetta sé einhver sem er að senda í vitlaust númer, því ég bara höndla ekki að hafa fleiri geðsjúklinga á eftir mér.

Ég er með þessa mynd inní tölvunni, en kann nú ekki við að pósta henni hingað. Við erum nokkur búin að reyna að leysa þessa ráðgátu en ekkert gengur. Enginn kannast við þennan typpaling. En allir þeir sem eiga hvítar Björn Borg nærbuxur liggja undir grun...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég veit hver þetta er sko múhahaha

Nafnlaus sagði...

Hahaha!

Ég myndi nú ekki státa mig af því að þekkja þennan typpaling.

Nafnlaus sagði...

þetta er Gummi í byrginu með "lille ven"

Inga Rós sagði...

Hahaha smekklegt! Geðveikt óþægilegt þegar maður fær sms úr óþekktu númeri! Fékk um daginn sms af siminn.is : árshátíð á poolstofunni á morgun og þú ert makinn minn.
Hvað er málið? ;)

Nafnlaus sagði...

hahahaha! vá ég sá fyrir mér Byrgisgæjann þegar ég las þetta!!! LILLE VEN!!!;)