17.3.07

A-Manneskja dauðans!

Mamma og Gúmmípabbi minn eru í einhverri "menningarferð" á Ítalíu. Þannig að ég er búin að vera heima með Eyjólf minn síðan á Miðvikudaginn. Búið að vera alveg ofboðslega hugglegt hjá okkur og erum við búin að brasa margt saman , systkinin.
Það er bara einn galli á þessu. Það er alveg pain in the ass fyrir mig að vakna með barnið. Hann vaknar alltaf eins og Reynir Pétur. Svo glaður og talar algjörlega útí eitt. Mér líður stundum eins og ég sé með Hemma Gunn á spítti, munnræpan er svo mikil.
Þetta væri samt ekki mikið mál að höndla ef að ég væri ekki svo mikil B-manneskja að ég sprengi eiginlega skalan og fer eiginlega bara yfir í að vera Þ-manneskja og hef ALLTAF verið.
Þannig að þegar við Jójó litli erum að gera okkur klár í skóla og leikskóla þá þarf ég að bíta í tunguna á mér til þess að segja ekki eitthvað hræðilegt. Því það er ekki nóg með það að ég sé hrikaleg B/Þ manneskja, heldur er ég svo morgunfúl að kölski má vara sig. Þetta vita ALLIR sem hafa einhverntímann umgengist mig fyrstu 2 tímana eftir að ég vakna, alveg frá því að ég var lítil. Og Salka Systir er eins. (Hvaðan skildum við hafa þetta? Ha, Pabbi?)
En allavega þá var Vilborg mín að passa Jójó í gærkvöldi svo ég kæmist í afmæli til hennar Vinnie, hún lét hann fara að sofa klukkan 22.00 og barnið var vaknað klukkan 08.00 í morgun. "Góóóóóóóðaaaaan daaaaaaagiiiiiinnnnnnn Kriiiiiiiistííííííín, það er kominn DAAAAAAAGUR" vaknaði ég við í morgun.
Þess vegna er ég nú vöknuð, búin að klæða og fæða barnið, planta honum fyrir framan barnaefnið, taka til, setja í vél, búin að lesa netið, svara smsum frá fylleríis liðinu sem ég beilaði á klukkan 2 í nótt til þess að vakna með barninu og er að fara út að láta hundinn pissa. Klukkan er ekki orðin 10.00 á laugardagsmorgni. Svo ætlum við Jójó að leyfa unglingnum henni Vilborgu að sofa (Eitthvað sem ég hef skilning á) og skella okkur í sund.
Hressleikinn er alveg að gera útaf við mig..

Vá hvað ég ætla mér aldrei að verða svona A-manneskja.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert ekki A manneskja

Nafnlaus sagði...

litla litla litla HRESSA stelpa! sé þig fyrir mér i anda... æðarnar byrjaðar að tútna útur enninu á þer kl.8 um morguninn í þynnkunni;)