14.3.07

Fyrir 19 árum!

Fæddist þetta litla og reiða grjón.
Dáldið flippað að hugsa til þess að maður hafi einu sinni verið u.þ.b. 50 cm og 15 merkur, í dag er ég orðin 173 og hálfur sentimetri og aðeins meira en 15 merkur.







Í dag held ég uppá 19 ára afmælið mitt.
Já, í dag er einmitt ár síðan að ég fékk leyfi til að keyra í Danmörku, spila í spilakössum og kaupa tóbak. Guði sé lof. Hef keypt sígarettur 2 sinnum, bæði skiptin fyrir Lindu sem varð 18 ára 1. október og mátti ekki kaupa sjálf. Aldrei spilað í spilakassa í lífinu samt. Eitthvað sem ég verð að prufa fyrir 20 ára afmælið. Þá fer ég full í spilakassa. (Má maður ekki annars kaupa áfengi 20 ára á Íslandi?)
Annars er fínt að frétta. Búin að heyra danska afmælissönginn full oft í dag reyndar svo hann glymur í hausnum á mér. 2 skyndipróf í skólanum, sem er auðvitað bara eitthvað til að vera með leiðindi á afmælisdaginn minn, það eru aldrei skyndipróf í Danmörku.

Reiða grjónið..

8 ummæli:

Ragga Rokkar sagði...

Til hamingju með daginn elsku frænka ;)
Eigðu góðan dag !!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með næstum því stórafmælið :)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með ammmælið sæta mín....:*:*:*

Kv. Kittz og Jaki :)

Nafnlaus sagði...

Hammó með Ammó

Nafnlaus sagði...

Hvað fékkstu í afmælisgjöf frá Abdul?

Nafnlaus sagði...

til hamingju enn og aftur.. og jú mikið rétt. það er 20 ára í ríkið hér.. En þú verður víst ekki til staðar til að fara fyrir mig!Hvaða dónaskapur er það nú? vonandi áttiru góðan dag

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið skvísa!

Frændurnir eiga það sameiginlegt að líta út eins og fermingardrengir á myndunum af sér með frumburðinn ;)

Nafnlaus sagði...

hey girlíó! smaa hvort þu hafir fengið fallegu afmæliskveðjuna frá mér í smsformi á afmælidaginn (svo væmið!) eða ekki.. þá ætla ég að skila þer smá afmæliskveðju

"Til Lukku með daginn GAMLA! vona að þu sért byrjuð að æfa botsía taktana þvi að ég held að það sé tímabært að við förum að pannta okkur tima á elliheimili;).. haha hrukkurnar nokkuð farnar að segja til sin? neiiiiiiiii barað sprella! Innilega til hamingju með daginn sæta min (þrátt fyrir að það séu komnir 9 dagar sidan þá núna:S)... vona að þu hafir ÁTT góðan dag! farðu svo að dröslast á klakann!!!;) lots of love, Linda"