Jámms.
Það var svo heitt í dag að okkur fannst nauðsynlegt að kæla okkur niður og enduðum á að skella okkur á vit ævintýrana í miðbæ Århus.
Markmið ferðarinnar var að kaupa eitthvað og að sjálfsögðu gera eitthvað agalega menningarlegt.
Byrjuðum auðvitað á að hendast í H&M. Það var þá sem að ég uppgötvaði hvað það hefur gert mér gott að búa hérna í Danmörku.
Hver kannast ekki við það að um leið og komið er inn fyrir þröskuldinn á H&M hellist yfir fólk einskonar djöfullegur andi og maður þeytist um alla búð vel á þriðjahundraðinu og týnir til hverja flíkina á fætur annari þangað til að maður sér varla hvert maður er að fara fyrir fatahrúguni í fanginu. Sviti á enni, náladofi í í hendi og verkir í fótum. Oftar en ekki eru raddböndin svolítið sköðuð. En það er einungis ef að maður ferðast í hóp. Þá er nauðsynlegt að kalla á milli fatasláa, sérstaklega ef maður er Íslendingur. (Það er efni í heilt blogg, hversu mikið og hátt Íslendingar tala/garga sín á milli í búðum erlendis. Hata það.)
Svo hendist maður í mátunarklefann og mátar svona það helsta. Sveittur og oftar en ekki er maður búinn að vera það lengi inní búðinni að maður er alveg í pissuspreng og kannski í stressi að reyna að ná öllum hinum búðunum í bænum áður en lokar. (Það er einmitt öllum H&M ferðunum að þakka/kenna að ég vinn best undir pressu.)
Eníveis. Ég er hætt þessu. Ég fer stundum í H&M en fæ aldrei svona köst eins og ég gerði þegar að ég komst bara í þetta tvisvar á ári. Núna fer ég í H&M og kaupi kannski ekkert. Og ef ég færi í H&M eftir langtíma dvöl á Íslandi þá myndi ég ver skotfljót, því ég hef komið í svon margar svona búðir að maður er komin með ákveðna leiktækni...
Í dag fór ég í tvær stórar í Århus og tuðaði meira að segja yfir að einhverjar buxur kostuðu 200 danskar krónur. Og að ég gæti ekki fengið taxfree. Verður ekki danskara.
Ferðin heppnaðist annars vel. Slúttuðum þetta í Magasin þar sem að ég óverdósaði af rakspíra, ákváðum svo að borða international mat og fórum á McDonalds í hámenningarlegan tveggja rétta málsverð. Mög gott.
Bounty og kók á hraðbrautinni á leiðinni heim.
Ég verð södd fram yfir páska..
4 ummæli:
uuuu.....ertu að tala um stúlkuna mína sem fær bílinn annan hvern dag til þess að "rétt skreppa" í HM.....??
Veistu að þetta var ótrúlegt í gær, við Einar vorum bara í sjokki að þú skyldir ekki versla einn hlut.
Mamma: "Rétt ad skreppa í H&M" Já, helduru ad eg fari svo thangad..hihihi
Stjáni: Já, ég lét ykkur kjéllingarnar bara um thetta.. múhaha! Djók!!
Ég fór í gær og í dag í HM hér í útlandinu og verslaði nú bara svolítið.. merkilegt hvað sömu bolir eru flottari í útlöndum og að maður fær ekkert samviskubit að eyða peningum í útlöndunum heldur!
Skrifa ummæli