24.3.07

Allskonar

Ég veit ég er pínu sein að koma með þetta en
Ó MÆ GAD hvað fólk er klikkað. Það er eins gott að gegna, allavega svona ef maður vill halda augunum. Iiiidjók.

Lífið gengur sinn vanagang hérna í Danveldinu.
Ég er reyndar búin að ganga í gegnum tvær rosalegar ástarsorgir á stuttum tíma og er ekki viss um að ég geti elskað aftur, ALDREI.
Fyrra skipitð var það hann Abdúl sem hryggbraut mig. Hann hætti að senda mér sms fljótlega eftir afmælið mitt í síðustu viku. Hræðilegt alveg.
Ég var fljót að jafna mig því að ég hafði jú Boldsen (Fyrir fólk sem er fáfrótt, þá er Joachim Boldsen í danska landsliðinu í handbolta og ég er/var ótrúlega ástfangin af honum).
Sú naðra sveik mig aldeilis á afmælisdaginn hennar Kötlu og eignaðist barn. Lítil stúlka sem fékk nafnið FLEUR!!! Greyið barnið.
Þannig að ég er aldeilis búin að taka súkkulaðiáts, grenjumynda og "Það vill mig enginn" pakkann á einni viku.

Sumarið er alveg að fara að koma held ég. allavega er sólin voða dugleg að glenna sig og það fer alveg uppí 15 stiga hita hérna á daginn. Ekki leiðinlegt það, og maður farinn að hjóla eins og geðsjúklingur. Enda verið að æfa fyrir Tour De France.

Fór að passa á Larsen-setrinu í gær. Herra Larsen lét mig sverja þagnareyð, þannig að ekki get ég bloggað um það hvernig herra Larsen gerir sig reddý fyrir partý.
Hinn 4 mánaða Fróði Larsen var bara í stuði. Drakk hálfan líter af þurrmjólk (ekki í einu samt) og svaf svo eiginlega bara allann tímann. Ekki alveg sömu sögu að segja með Systir hans hana Evu Maríu, enda barnið lasið og búin að fá verkjalyf. Hún vakti og horfði á þýskann skemmtiþátt frameftir öllu kvöldi. Barnið skilur ekki orð í þýsku.
Ég kom svo heim til mín klukkan 5 í morgun, ekki í fyrsta skipti sem maður gerir það svosem. En ég er ekki frá því að það hafi verið betra að koma heim angandi af ungbarnaælu og með rassvasann fullann af peningum heldur en stinkandi af reykingar og áfengislykt og veskið tómt :)

Litla sæta frænka mín hún Alma Diljá Almarsdóttir á svo afmæli í dag og fær hún þrusu afmæliskveðjur frá stóru frænku sinni hérna í baunaveldinu.

Meira var það ekki. Ég er farin niðrí bæ að versla í H&M.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Kristín Alma mín,
Takk fyrir afmæliskveðjuna til Ölmu Diljár. Hún skemmti sér rosa vel á afmælisdaginn....fyrst var stelpupartý um daginn og svo var fjölskyldan um kvöldið. Söknuðum þín. Bið kærlega að heilsa mömmu þinni og fjölskyldu í útlöndum. Gúa

Nafnlaus sagði...

Málar kallinn sig?? haha
veit amk að það fara 3 túpur af geli fyrir svona kvöld.