Ég var svo fegin þegar að Þóra og Pabbi tilkynntu mér það 5 dögum fyrir jól að þau ætluðu að elda hreindýr í jólamatinn en ekki sjóða rjúpur. Hoppaði hæð mína af gleði og þakkaði almættinu fyrir að nú gæti ég loksins haldið gleðileg jól. Með tár í augunum hugsaði ég tilbaka til æskuáranna þar sem að við sátum við borðstofuborðið í S-einum og rjúpuhelvítið borið á borð. Þar sem að það var skylda að borða smá af jólamatnum sem amma hafði staðið sveitt og eldað allan daginn, áður en að pakkar yrðu opnaðir. En ég gat með engu móti komið þessum hræðilega fugl ofaní mig. Endaði með að ég át kartöflur, rauðkál, baunir og sósu í jólamatinn frá 1988-1998. En ALLTAF var reynt að koma ofaní mig þessum ógeðslega hundamat. Það var ekki fyrr en jólin 1999 sem að við fjölskyldan vorum orðin svo mörg að mömmu fannst kominn tími til að við héldum okkar eigin jól. Þá voru gleðileg jól. Hamborgarahryggur í matinn og það gat ungfrúin étið og hefur étið það síðan.
Þegar að ég kom innum dyrnar í Skovglimt áðan, eftir að hafa eytt deginum í flugvél með 15 grenjandi ungabörnum og í lest með heilu sambýli af fötluðum dönum á leið í julefrokost, var mamma mjög glöð. Eitthvað sagði mér að gleðiefnið væri ekki koma frumburðarins til baka eftir 2 vikna dvöl á Ísnum. Ég hafði rétt fyrir mér eins og svo oft áður. Djöfulsins rjúpurnar voru gleðiefnið. Konan var í svo mikilli geðshræringu að hún rétt mumlaði "hæ" og hélt áfram að dansa gleðidans. Geðshræringin var kannski pínu (ó)skiljanleg þar sem að vinafólk frá Raufarhöfn hafði sent okkur/þeim 15 rjúpur og móðir mín hefur ekki fengið Rjúpur síðan árið 1999. Rjúpurnar voru svo affiðraðar og afhausaðar núna áðan og verða svo étnar annað kvöld og engar refjar. Ég spurði mömmu hvort að ég mætti ekki bara éta á Delons, sem er tyrkjabúlla hérna í bæ en fékk svar um það að ég ætti að vera hjá þeim til 00.30. Punktur.
Ég verð bara að treysta á íslenska nammið sem að ég keypti í Bónus í gær. Fínn áramótamatur...
5 ummæli:
Hahaaa :D
Hefðir átt að missa af vélinni, engar rjúpur þá, bara þessi helvitis ógeðslegi ÍS ! ;) hehehe
-KH
Kristín það verður Íslenskur lambahryggur líka, afullaður en óúrbeinaður verði þér að góðu
kv.Valþór gestgjafi
Karen Helga: Það vantar allt kúltúr vit í þig.
Valþór: Ég verð þér ævinlega þakklát fyrir að hafa þennan líka viðbjóðslega GÓÐA hrygg! Ég hélt ég myndi þurfa að éta Appaló lakkrís í matinn.
TAKK FYRIR MIG :)
dugguruggudu.......ég veit ekki betur en að frá því að þú varst smábarn hefurðu ráðið því hvar þú ert á hátíðum.........og þú valdir oss.
Köstum ekki perlum fyrir svín, segi ég nú bara. Ekki óttast að ég muni reyna að þvinga þig til að éta rjúpur.
Skrifa ummæli