Mér er svo illt í hendinni að ég get bara pikkað með einari.
Bólgin og ég held eg verði að fara uppá slysó í myndatöku, til að tjékka hvort að um beinbrot sé að ræða.
Vildi óska þess að ég hefi bara dottið eða meitt mig á einhvern eðlilegan hátt.
En, nei. Ég varð reið útí kerru (smábarnakerru) sem að ég var að smella saman (vildi ekki smellast) svo ég bara bombaði í hana. Það virkaði en ég sit uppi með ónýta hendi.
Líður dáldið kjánalega. Ef einhver spyr "hvað kom fyrir" þá segi ég að ég hafi rotað karlmann í boxi...
Slasaður Froggie
3 ummæli:
Og eruð þið Einar mikið saman í pikkinu?
Einar er ímyndaði unnustinn hennar Guðrúnar.
Hann var svo vænn að hjálpa mér að pikka því ég er svo slösuð
Æi klaufi, ekki gott:(
Skrifa ummæli