8.2.06

Í morgun fór ég í sturtu.
Eftir vinnu fór ég í bað.
Núna þarf ég að fara aftur í sturtu eða bað því að ég anga eins og öskubakki. Sem er ekki töff.
Ég sem sagt skrapp á kaffihús núna í kvöld með elskulegum vinkonum mínum og núna er ég með klemmu á nefinu því að það er svo vond lykt af mér, samt er ég ekki í fötunum sem að ég var í á kaffihúsinu.
En mikið ofboðslega var gaman. Það vantar ekki.
Næst ætla ég á reyklaust kaffihús. Og kaffihús sem að selur ekki áfengi. Þá held ég að það sé ekki mikið annað í boði en lífrænt ræktaða kaffihúsið, en það er (er mér sagt) staður þar sem að Rauðhærðar, vinstrisinnaðar grænmetisætur hanga saman og mótmæla virkjunum og álverum.
Ekki mitt "thing"
Allavega, ég er að vinna á "Karlavinnustað" eða ég er allavega eina stelpan í augnablikinu. Ég pældi mikið í þessu áður en að ég byrjaði, bjóst við svona karlrembubröndurum og eitthvað. En fyrsta daginn átti ég nokkur svona samtöl...
StrákurA: Í hvaða stjörnumerki ertu?
Ég: Fiskur
StrákurA: Jááá, er það?
Ég: Já
StrákurA: Ég er meyja
Ég: Jájá
StrákurA: Já, meyjan og fiskurinn eru mjög ólík, Meyjan er meira svona skipulögð og allt verður að vera fullkomið, en Fiskurinn er meira svona ímyndunarveikur og ævintýragjarn, en OKKAR merki passa samt sem áður mjög vel saman, þrátt fyrir að vera ólík, kærustupar í þessum merkjum eiga svona ástríðufullt samband og þannig.
Ég: Jáhá, það er bara svona, verst að ég trúi ekki á þetta stjörnumerkjabull. (Varð að ljúga einhverju)
StrákurA: Horfði á mig eins og ég væri hálfviti og tölti burt

Áhugavert finnst ykkur ekki?

Svo var annar tappi sem að spurði mig hvort að ég notaði MASKARA, halló, hvað varðar þig um það vinurinn? Ég sagðist nú gera það oftast, allavega þegar að ég færi útúr húsi og svona.
Þá spurði hann: "En þú ert ekki mikið fyrir varaliti?"
Greinilega einhver skápahommi þarna á ferð, því að hann var ekki að grínast og svo fór hann og lamdi í vegginn og öskraði svoldið.. "Já, vinur, þú ert ótrúlega mikið karlmenni núna.." (hugsaði ég sko)

En já, núna eru þessir drengir/kallar farnir aðeins að láta eins og þetta á að vera, eins og í dag þegar að ég var í mat og sat auðvitað með 10 köllum/strákum á borði þegar að einn kemur og segir: "Verði ykkur að góðu drengir, og verði ÞÉR að góðu ungfrú"
Skondið.

Svo ætlum við Salka að skella okkur í leikhús um helgina, ég fékk auðvitað 3 leikhúsmiða gefins í dag. Þeir sem að hafa áhuga á að koma með okkur Sölku á Ronju um helgina, látið mig vita, það verður magnað stuð :)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

haha stina min! þú ættir að skrifa bók! þu lifir svo áhugaverðu lífi elskan;)

Nafnlaus sagði...

haha styð þetta her fyrir ofan!

pfhh vond lykt? ekki kom hun frá mér(A) held þú notir bara eivkað rangt ilmvatn:)
en rosalega gaman að hitat þig í gær elskan:D

Nafnlaus sagði...

Nú er átak í gangi þar sem ég var að frétta að það væri dónó að kíkja á síður og ekki kvitta þó það væri ekki meira en einn broskarl.