Um daginn fór ég og Gummi í matarboð til ömmu.
Þar sátum við á rassgatinu einu megin við eldhúsborðið og skófluðum í okkur Kartöflum, Hrognum og ýsu, af bestu lyst. Enda hvorugt bragðað þennan herramanns mat síðan sautjánhundruð og Súrkál.
Hinu megin við borðið sat amma svo sveitt og horfði skelfingu lostin á okkur "samlokurnar" éta og hafði áhyggjur af því að það væri ekki til nóg af kartöflum eða að við fengjum ekki nóg að borða. Það rúlluðu svo tvær manneskjur út í bíl klst seinna, gjörsamlega afvelta.
Var búin að gleyma hvað hrogn eru ógeðslega góð. (MÉR FINNST ÞAÐ)
Á Mánudaginn kom appelsínugulur kall niður í vinnu til mín. Greinilega hafði vilst litla greyið, labbaði inn, eins og hann væri búin að skíta uppá bak, appelsínugulur eins og fyrr segir, 165 á hæð, í púma hettupeysu sem var greinilega máluð á hann og svo var hann að smjatta á prótein "súkkulaði".
Ég rak upp stór augu og starði bara, með hökuna niðrí gólfi, að sjálfsögðu. Gat svo loksins ropað uppúr mér einhverju sem að minnti smá á "get ég aðstoðað" en hann vissi ekki mikið, litla greyið. Vissi eiginlega ekki hvort að ég gæti aðstoðað eða ekki, sagðist vera að ná í eitthvað og vissi ekki hvað það var og sagði svo eitthvað á Gilzenegger/SilviuNótt máli sem að ég skildi ekki þó að ég hafi sagt 5 sinnum "HA?!" Þá brá ég á það ráð að segja "Sjitt, sjáðu, það er gaur þarna með ekkert TAN og engar strípur" og benti svona út í loftið, sá appelsínuguli leit við og ég hef líklega aldrei verið svona fljót að standa upp og rjúka upp á 4 hæð. Faldi mig þar í 30 min, þá sá ég litla appelsínugula manninn rölta út og setja upp sólgleraugun. (Það var nefninlega svo mikil sól þarna klukkan hálf sjö um kvöld.)
Í dag kom hann svo aftur. Hann sagði "Ert þú að vinna hérna?" eins og við hefðum bara aldrei sést áður, og ég sagði "nei, komdu aftur á laugardaginn". Hann fór.
Vona að ég sjái hann ekki aftur, án þess að vera leiðinleg, þá bara þoli ég ekki svona vitalusar týpur. Það voru svona 30 vindstig á milli eyrnana á honum, greyinu.
2 ummæli:
hahaahha má þetta?
þú ert bara sjálf dúlla;)
Skrifa ummæli