Í gærkvöldi var ég sjoppuleg.
Í dag er ég annað hvort mygluð eða lumma, ég veit ekki alveg hvort, en ég held að ég endi með að vera bara bæði.
Útgangurinn á mér er alveg hræðilegur. Ég er með blautt hárið(var að koma úr sturtu..), sem þýðir að það er nánast krullað og þegar að maður horfir framan á mig þá er eins og ég sé með sítt að aftan. Svo er ég í ljótum, víðum joggingbuxum, hvítum hlírabol og svörtum brjóstahaldara - Mér finnst þetta ekki smart, en whatever, vona bara að það komi enginn í heimsókn.
Ég hitti Linduna í gær, við fórum á Hressó og fengum okkur Lunch. Mjög gaman hjá okkur eins og vanalega. Við erum svo góðar saman við Linda. Fundum ekki Bankastræti, þannig að við enduðum á Tryggvagötu. Komumst svo að því að Tryggvagata og Bankastræti er örugglega ekki einu sinni í sama póstnúmeri. Svona erum við klárar, við Linda.
Það er komin kossageit á heimilið, minnstan okkar er komin með þetta. Gasalega ógeðslegt, vellandi sár og svona, en þetta er allt í meðhöndlun. Vorkenni bara grey barninu, man þegar að ég fékk þetta, ekki gaman.
En hún er nú spræk og segir bara "Sérru, saddna er kossageitin" svo segir hún "Ég er rugluð" bara krútt þetta barn!
En jæja, ég ætla að hætta að vera lumma, klæða mig, laga hárið og skella mér út.
Já og Karen Helga mín, Til Hammara með Ammaran stelpa - Þú verður jafngömul mér alveg í einn mánuð...vúhú!! ;)
5 ummæli:
hehe gestur numer 3000 ;D en whatever=)
eigum við að gera eikvaaaðð á sunnudagskvöldið?=) lattu mig vita elskan:)
Takk fyrir það elskan mín..;)
reyndi að hringja i u..bjóða þér í smá teiti..en helv síminn þinn er i ruglinu..=/ hlakka til að sja u og ég rukka u um afmæliskossinn minn..;)
-KarenHelga
þú ert bara ekki með rétta númerið apakötturinn þinn!
En já, endilega skríddu hingað í siðmenninguna og láttu sjá þig í kópavoginum...;)
haha við erum menningarlegustu manneskjur íslands! ættum að stofna "the icelandic turist inoformation center"... where you will find places that you didnt know that excisted in iceland - það er kannski þvi að við finnum ekki alla túrista staðina;)
(aulahlátur!)
en mer fannst nu best þegar við vorum að leita af blómabúðinni og þu lékst túristann... "dú you nó ver BANKASTRÆTI is?"
ahhhhh "blómálfurinn" ...ætli það sé blómabúð???;) i wonder! hahaha
Það ætti að vera gerður raunveruleika þáttur um okkur Kristin! ekki spurning! *sjá suma detta á svelli og svonna skemmtilegheit* haha;*
Sniðugt þetta með " útlendinginn " Húmoristinn og reddarinn saman í einum pakka. Klár varstu.
Sjámust,
amma Stína
Skrifa ummæli