20.2.06

Ég ætla að skrifa bók.
Hún á að heita "Stelpan sem að dó úr morgunþunglyndi".
Ég verð aðalpersónan.
Já, ég er kannski að kjafta frá, en ég held að það muni koma að því einn daginn að ég muni hreinilega deyja úr þessum fjanda.
Fyrir ykkur sem að ekki þjáist af þessu morgunþunglyndi, þá lýsir það sér þannig að maður er svo geðvondur á morgnana að maður ræður ekki við eitt né neitt. Ef að einn lítill hlutur fer úrskeiðis hjá mér á morgnana þá bregst ég hin versta við og sparka í hluti, grýti hlutum í gólfið, öskra á fólk og skelli hurðum. Morgunþunglyndi er svona eins og Anorexía og Alkahólismi. Þú skilur þetta ekki nema að þú hafir lennt í þessu sjálfur.
Ég er morgunþunglynd alla virka daga, ca. milli 06.30-11.00. (Þetta er eins og auglýsing á útvarpsþætti.)
Ég mun láta ykkur vita ef ég finn lækningu við þessu.

Um helgina gerði ég mjög margt sniðugt.
Passaði til dæmis elskulegu frændsystkini mín í Stekkjarflötinni.
Þegar að litla stýrið sofnaði horfðum við stóru börnin á Shrek2. Maður hefði haldið að 17 ára og 11 mánaða gömul stelpa myndi hætta að fíla þessa mynd eftir X mörg skipti. En svo er ekki og ég hló eins og vitleysingur með krökkunum. Minnti mig óneitanlega mikið á Ameríkuna. Þar sem að Shrek og Shrek2 voru í spilun 24/7.
Gaman.
Laugardagsnóttina lennti ég í þessum líka svaka rökræðum við velölvaðann dreng. Sem vildi ekki trúa mér að orðið "Lorta" væri tekið úr dönsku. Fyrir þau ykkar sem ekki vita hvað Lorta á að þýða þá er það að skíta. Allavega sagði hann mér það, þessi prúði drengur að það væri barasta ekki töff að segja "Ég er að fara að skíta" heldur ætti maður að segja "Ég er að fara að Lorta" En það er einmitt orð, tekið úr dönsku. Í Danmörkunni segjum við sko Lort, og það er skítur. Hann vildi ekki trúa mér. En minnti mig þó á að ég ætti að segja "Lorta" en ekki "Skíta" í framtíðinni.
Hann kann að halda uppi samræðum við dömurnar þessi piltur.
Segið svo að Fullt fólk geti ekki verið skemmtilegt...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Stína mín, ég á eitt gott ráð við morgunólund. Það er nægur svefn, sem þýðir að maður verður að fara tímanlega í rúmið þegar vakna þarf snemma. Góða nótt elskan mín.amma Stína

Nafnlaus sagði...

Amma Stína hefur rétt fyrir sér. Þú ættir kannski að prófa það að fara snemma að sofa....bara svona einu sinni..hmm. Hvaðan skildir þú annars hafa þessa morgunólund?

Kristín Alma sagði...

Halló, Halló.
Ekkert svona.
Mætti halda að þið væruð gengnar af göflunum.
Annars veit ég ekki hvaðan ég fékk þetta morgunþunglyndi. Gæti hugsanlega spurt föður minn.