25.2.06

Í dag fór ég í smáralind.
Var þar í 1 klukkustund og 15 mínútur.
Þræddi allar þær búðir sem að mér finnst áhugaverðar þar og fann ekki eina flík sem að mig langaði í, hvað þá eitthvað annað.
Langaði ekki einu sinni í nammi því að það varu um það bil 300 manneskjur í nammilandi.
Kannski gott, ég veit það ekki.
Á morgun fer ég kannski bara í kringluna, ég hef mjög sterka löngun til að kaupa eitthvað handa mér núna. Því að ég er svo skemmtileg og besti vinur minn og sálufélagi minn.
Já, annað, Linda var þunn í dag svo að hún "gat" ekki farið í Koló með mér eins og við vorum búnar að plana. Helga var Þunn í dag svo að hún beilaði á þessu líka. Inga Rós var þunn í dag OG með Binna. Þau saman voru svona leiðinlegt par og fóru að þrífa bílinn. Reyndar fannst mér það krúttlegt, en ég ætla samt aldrei að verða þannig. (Sjáið að það borgar sig að drekka ekki telpur mínar.)
Óléttan og Gamli maðurinn fóru í verslunarleiðangur og voru ennþá leiðinlegra par en Binni og Inga Rós - Þau fóru saman að kaupa gallabuxur og íþróttaskó. SAMAN!
Þannig að ég ákvað bara að vera þessi leiðinlega unnusta og hlustaði á unnusta minn í útvarpinu og fussaði og sveiaði yfir öllu sem hann sagði, greyið.
Nei, ég er að grínast núna.
Ég hlustaði og Hló að öllu sem að hann sagði, fer nú ekki að breyta útaf þeim ágæta vana.
Eins og þið sjáið þá er ég mjög jákvæð í dag.
Fýlublogg.

4 ummæli:

þórhallur sagði...

hlærðu að mér?? ;)

Kristín Alma sagði...

Já, sérstaklega topp 13 lista dagsins þar sem að var talað um einhverja fokkings Ímyndaða kærustu.
Er ég ekki nógu raunveruleg fyrir þig?

;)

Inga Rós sagði...

hvaða fýlublogg er þetta ;) þú færð bara að joina okkur næst kristín mín :) vorum reyndar eins og hálfvitar að þrífa bílinn...kunnum ekkert á tækin þarna hjá löðri, þannig að það væri kannski bara fínt að hafa fag manneskju eins og þig með næst!

Kristín Alma sagði...

Já, ég er bílaþvottamaður mikill.
Hahaha!!