Dóni get ég verið.
Gleymdi að Óska Guðbjörgu og Skúla til hamingju með litlu prinsessuna.
Hún fæddist á Laugardagskvöldið.
Ég hlakka voða mikið til að sjá hana-Er örugglega eitt fallegasta barn Íslandssögunar. Einhversstaðar rétt á eftir mér.
Til hamingju með litla skottið kæru Guðbjörg og Skúli!
Nú, Kristín netfrænka mín er búin að nefna litla stúfinn sinn.
Hann á að heita Ísak.
Til hamingju með nafnið Ísak, litli sæti :)
Ég er um það bil að kafna úr pirring og þreytu núna.
Sem kemur nú ekki oft fyrir.
BarbaÞóra segir að ég sé lík pabba í skapinu núna. Greyið ég.
BarbaPabbi segir að ég sé leiðinleg og þreytt.
Ég á mjög bágt núna, það er allt ömurlegt. Hver kannast ekki við það.
En það er eitt sem að ég skil ekki, Af hverju fær maður aldrei bara að vera pirraður og þreyttur í friði? Þetta kemur fyrir mig svona 5 sinnum á ári og það verða allir einhvernveginn svo hissa þegar að ég tek uppá að vera brjáluð í skapinu af pirring. Allir að tuða yfir því, þó að ég segi ekki orð. En það versta er þegar að einhver segir við mann "Er maður svoldið pirrípú?" gæti misþyrmt manneskju sem að segir svona við mig þegar að ég er pirruð.
Alltaf sama sagan.
En ég er öll að koma til, líklega því að ég er lokuð inní herbergi, að drekka coke light úr tveggja lítra flösku og að hlusta á Ampop.
Mig langar að giftast öllum þeim þarna úr Ampop. Þeir hljóma svo vel. Þeir eiga svo bara að standa við rúmgaflinn og syngja mig í svefn á hverju kvöldi.
Ég vil eiga þá, það er betra en að giftast þeim.
Ætli það sé hægt að kaupa þá á e-bay eða eitthvað?
Ampop strákar mínir!
Ef þið sjáið þetta viljið þið þá vinsamlegast hafa samband við mig í síma 848-5313 og ég skal kaupa ykkur. Þið eruð svo sætir og hljómið einstaklega vel.
kv. Kristín Alma.
En annars líður mér vel.
og restinni af fólkinu hérna.
Ég keyri bara eins og brjáluð kona hérna um reykjavík og bíba á crazy ökumenn - Því ég er nefninlega svo ótrúlega klár og alls ekkert brjáluð.
Ég er farin að perrast í Guðrúnu á msn.
Sé ykkur.
8 ummæli:
það er ekkert verið að nefna "the sexual intercourse part" heima hjá mer? þu ert nu meiri sorakonan;)
Ég vildi bara ekkert að fólk myndi vita af því.
En Þú komst því til skila að við erum laumuperrar og já...
En, er það þá ekki næst heima hjá mér, föstudagskvöld??
grr
hey.. það var ekkert minnst á mig í þessari færslu ;)
Jú, en bara svona óbeint.
Það stendur þarna að ég ætli að kaupa ampop og giftast þeim.
Þýðir það þá ekki að ég sé að stunda framhjáhald?
eða ætlarðu bara að vera með?
heyhey..hvað er þetta "En, er það þá ekki næst heima hjá mér, föstudagskvöld??" ..ég hélt kannski að u ætlaðir að koma til mín og vera yfir helgina? hhff..
Þótt ótrúlegt sé þá er ég EKKI að vinna núna um helgina..=D hehe
-KarenHelga
Ampop menn eru sjálfselskir í rúminu og ég vil ekki koma nálægt svoleiðis eigingirni!!
Það er ekki skrýtið að maður sé hoktjónaður á sálinni eftir nokkur svona msn kvöld.
þú ert algjör dúlla ,,frænka''..
kveðja Kristín, hihi ætlaði að segja frænka.. Þá fór ég að hugsa um blæðingar..... og ég hætti við... vildi bara minnast á þetta... get ekki hætt að skrifa...þú verður svo að fara koma í party til mín:)
Skrifa ummæli