22.2.08

Aldrei kaus ég Framsókn!?

Mikið ofboðslega finnst mér íslensk pólitík eitthvað sandkassaleiksleg þessa dagana.

Er ekki lýðræði á Íslandi lengur?
Er Össur Skarphéðinsson ekki farinn sooooldið langt yfir strikið?

Í næstu kosningum ætla ég bara að kjósa Framsókn. Því Guðni Ágústson sagði að ég væri falleg stúlka þegar hann kom og var veislustjóri á þorrablótinu okkar síðustu helgi.



Svona leit ég út þegar ég hitti Guðna. Veit ekki hvað greyið maðurinn hefur haldið :)

21.2.08

Love will keep you warm..

Mikið ofboðslega leiðist mér útlenska sem ég skil ekki.
Sko, ég sit nefninlega uppí skóla og það eru einhverjir frakkar (eða jakkar) að tala við aðra frakka á skype eða eitthvað. Sitja tveir í sitthvorri tölvunni og blaðra eins og enginn sé morgundagurinn. Fáið ykkur headset fólk!
Síðan eru öðruvísi útlendingar að éta einhverjar gamlar matarleyfar úr kantínunni. Ojbarasta! Frekar myndi ég borða ælu sem hefði kúkað á súrt hey heldur en að borða gamlan mat úr þessari kantínu, eiginlega heldur ekki nýjan, ef útí það er farið - Ógeðs fólk og ógeðs kantína.
Gleðileg færsla maður.
Er í tilvistarkreppu dauðans.

------

Mamma elti Jón Pétur til Íslands í gær. Kom við hjá Stjána í leiðinni. Ótrúlegt með mömmu, hún á 5 börn en verður samt að vera mamma allra. Því 5 börn og hundur er jú ekki nóg :)
Meðan hún er á Íslandi þá ætla ég að stjórnast á litlu greyjunum. Held þeim finnist það ágætt. Mér finnst það allvega fínt, þá hefur maður allavega nóg fyrir stafni.

-----

Kræst hvað Pernille Rosendal er ógeðslega töff gella.

Varð bara að koma því að, því ég er í einhverju "nostalgíu" kasti að hlusta á Swan Lee..

20.2.08

Jemundur minn!

Ég er koffín fíkill.
Ætlaði að reyna að komast í gegnum daginn án þess að fá mér coke eða kaffi. Dó næstum.
Endaði með því klukkan 18:00 að ég fékk mér coke og var það einungis til þess að ég myndi ekki ráðast á systkini mín. 18:03 var ég orðin ljúf sem lamb.
Síðan drakk ég smá meira coke þegar ég fór að passa bróðurson minn, hann Gunnar rúsínukrúttrass. Svo tapaði ég mér alveg í gleðinni þegar að ég fór hingað uppí skóla um 10 leytið. Kaaaaafffffffiiiiiii!!!!!! :)

Taka tvö á morgun..

19.2.08

Ha já!


Jón Pétur farinn heim að sparka í tuðru fyrir vestan og pínu tómlegt hérna hjá okkur í Hrossanesi. Allavega búið að vera það í dag, en við verðum fljót að gleyma. Allir nema mamma, því hún virðist ekki ætla að sætta sig við að það séu allir að flytja frá henni þannig að hún ætlar að drífa sig til Íslands á fimmtudaginn til þess að kíkja á liðið og athuga hvort það sé ekki í lagi með alla.

Ég sjálf virðist ekki vera með jafn mikinn aðskilnaðarkvíða þannig að ég á ekki pantað far heim fyrr en eftir rúmar 3 vikur, eða 13 mars. Lendi eftir miðnætti þannig að næst þegar þið sjáið mig verð ég búin að vera tvítug í nokkra klukkutíma.

Mikil tilhlökkun, því kvöldið 14. mars (afmælisdaginn minn) ætla Sálin hans Jóns míns að halda uppá 20 ára afmælið sitt líka, svo í staðinn fyrir að halda brjálað partý þá ætla ég að skella mér bara í höllina ásamt fríðu föruneyti og gera allt vitlaust. Meeen hvað verður ruddalega gaman!!


Annars er allt í fínu formi bara. Skólinn alveg á skrilljón og það er sko engin afslöppun. Þorrablótið búið og var alveg ógeðslega skemmtilegt. Svo núna er fundarfrí í stjórninni í held ég alveg rúmlega viku.

Sumarið kíkti við í síðustu viku. Allt að verða grænt bara :)



Jæja, best að hætta þessu rugli, og koma sér af stað í smá vinnu :)


15.2.08

Fyrir þann gamla og Valdísi

Uppskriftin er svona, alveg megahega einföld..

Ca 4 kjúklingabringur
Ostasósa
Salsasósa
Rifinn ostur
1 poki Doritos snakk

Aðferð:

Kjúklingabringurnar eru skornar í bita, steiktar á pönnu og kryddaðar vel eftir smekk (finnst best að nota fahitas kryddblöndu).
Doritos snakk er mulið og sett í botn á eldföstu móti. Ostasósan þar ofaná og síðan salsasósan. Síðan eru steiktar kjúklingabringurnar settar þar ofaná og síðan rifinn ostur. Sett inn í ofn í 15-20 mín 200°

Mér finnst líka fínt að hafa bara hreinan smurost í staðinn fyrir ostasósuna. Ég gerði það þegar þið voruð í mat. Þá blanda ég bara saman salsasósu og smurosti og dembi yfir snakkið.

14.2.08

Tilvalið

Finnst tilvalið að birta mynd af jólarósinni sem er tveggja og hálfs mánaða í dag. Ég er sem sagt buin að setja nýtt met í uppihaldi blóma í fjölskyldunni. Fyrir utan ömmu.
Hún er alveg í þrusu stuði og hress sem fress (blómið sko) Fær vatn að drekka öðru hvoru og síðan finnst virðist hún líta best út þegar hún fær afgangs coke, eða annað gos. Skil þetta ekki alveg.
Hér er ein artý ljósmynd sem ég tók af henni um daginn. Held ég þurfi að fara að þurrka af kvikindinu..




13.2.08

up-date

Ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg.
Ég held áfram að græða á Íslendingunum sem eru að flytja í burtu. Svo virðist sem þeir keppist um að reyna að toppa hvern annan, sem ég skil svona ekki alveg, en það er nú víst ég sem er að græða þannig að maður kvartar ekki.

Stjáni:

  • Copy kort sem maður getur notað í skólanum, kom sér einstaklega vel!
  • Jagermaster svitaband á hendina

Bjarni og Arna:

  • Vatnskanna
  • Straujárn
  • Þráðlaus sími

Garðar og Íris

  • Örbylgjuofn

Jón Pétur

  • Lager af bollasúpum (Enda greyið líklega kominn með ógeð eftir sumarbústaðarferðina þar sem hann svolgraði í sig svona 30 lítrum af þessu)
  • Fótboltasokkar og stuttbuxur
  • Stóll
  • Heimabíó
  • Sjónvarp

Víjj, hvað ég hlakka til þegar að næsta fólk flytur :)

Annars er allt frábært að frétta.
Það er reyndar alveg nóg að gera, sem er alveg fínt. Brjálað að gera í verkefninu fyrir Frikka og ég held barasta að þetta sé besti landafræði kennsla sem ég hef fengið í lífinu. En jafnframt sú strembnasta, því þetta er svoldið mikil handavinna, en samt bara gaman svona þegar að er farið að síga á seinni hlutann.

Skólinn byrjaði á milljón og tíu á mánudaginn, og þetta er alveg svaka keyrsla, svona þegar að það er ekki verið að breyta stundartöflunni og eitthvað vesen. En ég er reyndar svo heppin að ég er ekki í Eðlisfræði og Efnafræði þannig að ég mæti klukkan 10 nánast alla daga og er búin fyrr tvisvar eða þrisvar í viku. Annars líst mér bara mjög vel á þetta allt. Erum 8 Íslendingar í bekknum, allir nýfluttir nema ég, þannig að við reynum svona að hjálpast að með námið, sem er fínt.
Sem sagt allt komið á blússandi sving, eins og pabbi orðaði svo skemmtilega.

Svo er ég komin með herbergisfélaga. Jón Pétur flutti inn á mánudaginn og ætlar að vera fram á þriðjudag, þá flytur hann til Íslands. Voðalega notalegt að búa svona tveir einstaklingar í öllu þessu plássi :) Ég, hann og Jólarósin sem er enn á lífi unum okkur nú samt bara vel þarna saman.

Þorrablót á laugardaginn og mikið stúss sem fylgir því, ég ásamt öðrum kjéllingum úr stjórninni erum að fara að baka rúgbrauð ofaní 200 mans á morgun. Hressandi!!

Jæja, held að allir séu löngu hættir að lesa núna, svo best að slútta þessu.

10.2.08

Fyrir Þóru..!

Var að taka til í tölvunni og fann fullt af baby-myndum af Kötlu. Algjört feitabollurassgat sko!








8.2.08

Fyrir ári..

Vá hvað margt getur breyst á einu ári. Hérna erum við Íris á leiðinni á djammið í lok janúar 2007.
Ýmislegt gerst síðan þarna..!
Íris er til dæmis komin með mann, hús, station og hjólbörur.
Ég.. tjah, fékk mér skjaldböku og skilaði henni aftur.


6.2.08

...

Jájá, tölvan mín er komin á gelgjuna. Gerir ekkert sem hún er beðin um. Þess vegna er eitthvað lítið um blogg..

Verið stillt.

29.1.08

Ég poppa til að gleyma

Játs, ég er svo að græða feitast á þessum fræðingum mínum. Núna eru þeir allir að losa sig við dót og gömul heimilistæki svo ég er fengin til að hirða allt. Enda vantar mig ennþá allskonar svona bú-hluti, þó ég sé búin að búa ein í næstum ár.
Núna eru fræðingarnir ýmist að flytja heim eða þá bara að update-a búslóðina. Þá kemur sér vel að geta bara hringt í mig og látið mig fá dótið. Nýtist mér og þau sleppa við að fara ferð á haugana.
Það sem ég er búin að græða síðan fyrir viku síðan er
  • Straujárn (Svo nú fer ég að sofa alltaf í straujuðum rúmfötum eins og í Grundó)
  • Vatnskönnu (Því ég ætla að drekka meira vatn og minna coke)
  • Þráðlausan síma (Því það er nauðsynlegt að geta talað í síman á klóinu)
  • Örbylgjuofn (Ég poppa til að gleyma)

Nú vantar mig bara sófa..

28.1.08

Bleikir þríhyrningar

Jájá, eins og janúar sé nú ekki nógu leiðinlegur mánuður að maður fari ekki að vera veikur ofaní allt annað þunglyndi. Ég er að drukkna í mínu eigin hori. Sem er ekki töff. Rautt nef, fljótandi augu, hausverkur og beinverkir. Svaka hot að vera með hor í öllum skúmaskotum í hausnum og geta ekki andað nema með herkjum og þá gegnum munninn.
En þetta hlýtur nú að ganga yfir.

Sem betur fer styttist í Florida og "krúsið" um Karabískahafið :) Ekki nema 5 mánuðir mínus 2 dagar :)

25.1.08

Vá, útskriftin búin. Í júlí 2004 virtist þessi dagur vera eitthvað svo ofboðslega langt í burtu. Almáttugur minn, hvað ég vissi ekki hvernig ég átti að haga mér þarna í útskriftinni áðan. Hvort ég ætti að grenja eða hlæja eða hvað. Svo ég og mamma sendum þeim öllum bara "Rock on" þegar þeir tóku á móti skírteininu. Fékk svo óneitanlega kjánahroll niðrí rassgat þegar að nafn eins tiltekins Byggingarfræðings var kallað upp og hann bara að dúlla sér í IKEA. Vandræðalegt.

En ætla nú bara að segja til hamingju allir og skemmtið ykkur í partý-inu í kvöld.

-Sjálf ætla ég að passa drekann. Hendast með hann á McDonalds og svo ætlum við að horfa á video og fá okkur popp.

22.1.08

Jæja gott fólk!

Allir voru byggingarfræðingar nema Stjáni, hann var bjáni!

Mér finnst ég ekkert lítið fyndin að hafa samið þennan brandara alveg sjálf. Verst að Stjána greyinu finnst ég ekki jafn fyndin, því hann á eina önn eftir af byggingarfræðinni.
Köggli kláraði í dag og erum við því komin með fjóra byggingarfræðinga í litlu stórfjölskylduna, ekki amalegt það. Fyrir eigum við svona einn lögfræðing, eða lögfræðínu (KVK). Vantar ekki fræðingana!
Svo á næstu árum bætist svo við hópinn annar Byggingarfræðingur, Viðskiptafræðingur, Uppeldisfræðingur, Framleiðslutæknifræðingur og Markaðsfræðingur.
Gaman að þessu.
Nú er það bara útskriftin hjá pjökkunum og svo er það bara að fylla alla gáma af flatskjáum, sófasettum og Rosendahl matarstellum svo fræðingarnir geti flutt til Íslands og byrjað að borga námslánin :)

18.1.08

Fyndnast í heimi

Guð minn góður hvað ég fékk næstum nýrnasteina af hlátri þegar að ég sá þetta.

Hvernig er hægt að finna uppá svona ógeðslega-tussu-mellu-fyndnu? Fröken Feministi. Maður verður að vera gjörsamlega sneiddur öllum húmor til að finnast þetta ekki fyndið.

16.1.08

Jamm og jú

Æji hvað ég er eitthvað glær. Hið árlega skammdegisþunglyndi virkilega farið að segja til sín. Er alltaf glær af þreytu og þyrfti að sofa svona 20 tíma á sólarhring ef vel ætti að vera. En er samt svona að hugsa um að reyna að koma svefninum mínum í nokkuð rétt form svona á næstu dögum og sjá hvort að þessi síþreyta lagist ekki. Svo gengur víst ekki að sofna klukkan 4 og 5 á nóttunni þegar að skólainn byrjar í febrúar.
Held að mér sé farið að hlakka til að byrja í þessum nýja skóla. En get samt ekki gert upp við mig hvort að mér eigi að hlakka til eða kvíða fyrir eða hvað. Kannski útaf því að það er enn smá óvissa með framhaldið. Líka í sambandi við Lín. Ef Lín-konan sem ég meilaði á fyrir viku síðan les þetta þá er hún vinsamlegast beðin um að svara mér!!!
Annars þá fann ég þessa líka fínu stjörnuspá á netinu og þetta lýsir mér bara alveg nokkuð vel. Allavega í augnablikinu. Þetta er nú samt eitthvað voða mikið djók. En samt soldið fyndið.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

Gaman að þessu!

Best að ég fari bara að sofa í hausinn á mér, þetta er alveg drullu leiðinleg færsla!!!

14.1.08

Nýtt ár, nýjar áherslur..

Svona til að vera ekki svona döll alltaf þá er ég að hugsa um að gera doldið flippað í ár. Er að hugsa um að halda með Manchester United núna. Hvað segir fólkið um það?
Ég nefninlega á Manchester treyjuna og finnst algjör synd að geta ekki notað hana, sem ég get augljóslega ekki ef ég held með Arsenal.
Eina sem ég hef áhyggjur af er það að pabbi afneiti mér. Og mamma líka. Má ekki við því, er að verða tvítug eftir akkúrat tvo mánuði og á von á stórum gjöfum. Verður ekki mikið um stórar gjafir ef að ég svíkist um fótboltalið.
En á móti kemur að móðurbræður mínir, föðurbróðir og strákarnir hérna úti halda með Manchester, svo það gæti kannski stækkað gjafirnar frá þeim að ég skuli halda með þeirra liði. Svo er annað í þessu. Ég á ekki og hef aldrei átt Arsenal treyju. Bara sængurföt.

Maður spyr sig!!!

7.1.08

Frábært! Maður er rétt svo búin að sætta sig við að nóa konfektið, íslenska appelsínið, vatnið og útisundið er ekki til í Danmörku. Maður er við það að taka Haribo, Faxi kondi, kalkvatn og ógeðs innisundlaugar í sátt þegar að þeir snillingarnir í sjónvarpinu sýna einhvern þátt um Ísland.
Jájá, einhverjir danir, sponsaðir af fjallraven bak og fyrir og upp og niður fara í ferðalag til Íslands og gera allt það skemmtilega. Sofa í tjaldi, fara í hvalaskoðun, hestbak, skoða íslenska náttúru, fara í jarðböð, éta ógeðslega girnilegan og djúsí grillmat og ég veit ekki hvað.
Langaði að grenja. Þurfti aðeins að slá mig og minna mig á að það er korter síðan ég kom frá Íslandi og ekki nema 10 vikur í að ég fari þangað aftur.

Samt greinilega ekki allir jafn áhugasamir og ég um að horfa á litla Ísland í danska sjónvarpinu, því þegar ég nefndi þetta við einn vin minn, þá sagði hann "Það eru samt svo flottar kellingar í myndinni á TV3!"
Myndin sem var í gangi þar þegar ég skipti um stöð til að athuga (Já, ég held ég sé að verða lesbísk á að umgangast þessa strákorma.) þá var það myndin Bring it on..again eða eitthvað álíka spennandi.

3.1.08

Bækur

Einu sinni var ég algjör bókaormur. Hakkaði í mig hverja bókina af fætur annari og fór létt með það. Sú er ekki raunin í dag. Ég er alltof löt við að lesa bækur og enn latari við að klára þær. Það er nefninlega þannig með mig að ég byrja á bókunum, les þær alveg á met-tíma þangað til ég er komin að síðustu köflunum. Þá hætti ég bara og byrja oftast á einhverri nýrri bók og sama sagan endurtekur sig. Flestir eiga akkúrat erfiðast með að byrja á því að lesa bækur. Ég hef ekki klárað bók síðan ég man ekki einu sinni hvenær.
Ég var allavega að taka til hérna hjá mér, og fann heilu staflana af bókum, sem ég hef ekki klárað. Og núna er ég akkúrat að lesa Joachim Boldsen -Ærlig talt! Ég er að verða komin um miðja bók og ég er að segja ykkur það, Ósagt eftir Eyvind Karlson ásækir mig í svefni og segir "lestu mig, lestu mig"!
Held það sé bara í lagi að fara að leggja mig inn fljótlega.

2.1.08

Grundómyndir

Myndavélin mín varð eftir á Íslandi, ásamt danska símkortinu mínu, málingardótinu mínu og bara eiginlega öllum fötunum mínum. Svo það eru Grundómyndir í boði Villa bróður (hans JP).
Ég lagið mig alla fram í að vera spastísk á öllum myndunum, ég held að ég sé ekki svona ljót og asnaleg í alvöru sko. Vona ekki allavega.


Frosið vatn
Villi líklega að segja eitthvað voða fyndið

Klifraði yfir hliðið, sem var svo ekki læst!!!!

Kirkjufellið á sínum stað
Grundarfjörður
Bústaðurinn frægi

Ég var svo hot á sleðanum að snjórinn bráðnaði!