Jájá, eins og janúar sé nú ekki nógu leiðinlegur mánuður að maður fari ekki að vera veikur ofaní allt annað þunglyndi. Ég er að drukkna í mínu eigin hori. Sem er ekki töff. Rautt nef, fljótandi augu, hausverkur og beinverkir. Svaka hot að vera með hor í öllum skúmaskotum í hausnum og geta ekki andað nema með herkjum og þá gegnum munninn.
En þetta hlýtur nú að ganga yfir.
Sem betur fer styttist í Florida og "krúsið" um Karabískahafið :) Ekki nema 5 mánuðir mínus 2 dagar :)
1 ummæli:
hehe... þú átt alla mína samúð... ég er nefnilega í nákvæmlega sama pakka :/ ojj
Skrifa ummæli