14.1.08

Nýtt ár, nýjar áherslur..

Svona til að vera ekki svona döll alltaf þá er ég að hugsa um að gera doldið flippað í ár. Er að hugsa um að halda með Manchester United núna. Hvað segir fólkið um það?
Ég nefninlega á Manchester treyjuna og finnst algjör synd að geta ekki notað hana, sem ég get augljóslega ekki ef ég held með Arsenal.
Eina sem ég hef áhyggjur af er það að pabbi afneiti mér. Og mamma líka. Má ekki við því, er að verða tvítug eftir akkúrat tvo mánuði og á von á stórum gjöfum. Verður ekki mikið um stórar gjafir ef að ég svíkist um fótboltalið.
En á móti kemur að móðurbræður mínir, föðurbróðir og strákarnir hérna úti halda með Manchester, svo það gæti kannski stækkað gjafirnar frá þeim að ég skuli halda með þeirra liði. Svo er annað í þessu. Ég á ekki og hef aldrei átt Arsenal treyju. Bara sængurföt.

Maður spyr sig!!!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

OOOOJJJJJJJ!!!!!
Ekki gera það kristín...ekki.
Það er ekkert ógeðslegra ef að halda með manutd. Það er æði að halda með Arsenal, miðað við það, þó að það sé vibbi.
Mundu að þetta er stórt skref og þetta mun verða á mannorði þínu alla æfi.

Gúa sagði...

Áfram Kristín Alma!!! Við pabbi skulum kaupa meiri Manchester United dót handa þér. Greinilegt að Arsensal aðdáendur hafa ekkert gefið þér....
þinn frændi, Tómas Orri

Unknown sagði...

Nú líst mér á þig. Auðvitað ferðu að halda með Man.utd.

Nafnlaus sagði...

Afhverju verðuru ekki soldið spes og heldur með þúst eikkuru sem enginn heldur með eins og hmm nú veit ég notla ekkert um fótbolta hm já leverkausen (hvernig sem það er skrifað) Já mér líst betur á það