29.1.08

Ég poppa til að gleyma

Játs, ég er svo að græða feitast á þessum fræðingum mínum. Núna eru þeir allir að losa sig við dót og gömul heimilistæki svo ég er fengin til að hirða allt. Enda vantar mig ennþá allskonar svona bú-hluti, þó ég sé búin að búa ein í næstum ár.
Núna eru fræðingarnir ýmist að flytja heim eða þá bara að update-a búslóðina. Þá kemur sér vel að geta bara hringt í mig og látið mig fá dótið. Nýtist mér og þau sleppa við að fara ferð á haugana.
Það sem ég er búin að græða síðan fyrir viku síðan er
  • Straujárn (Svo nú fer ég að sofa alltaf í straujuðum rúmfötum eins og í Grundó)
  • Vatnskönnu (Því ég ætla að drekka meira vatn og minna coke)
  • Þráðlausan síma (Því það er nauðsynlegt að geta talað í síman á klóinu)
  • Örbylgjuofn (Ég poppa til að gleyma)

Nú vantar mig bara sófa..

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú barasta stórgræðir á öllum þessum fræðingum, ha??

Ekki slæmt - en þú þyrftir kannski að sækja um tveggja herbergja íbúð á kollegíinu til að koma þessu öllu fyrir..... hvar ætlar þú til dæmis að hafa þennan sófa??

Nafnlaus sagði...

það mætti halda að þú værir hætt, ég vil fá daglegar færslur til að stytta mér stundir vinkona:)

Nafnlaus sagði...

Ég er sammála Helgu Lovísu :)

-KarenHelga