22.1.08

Jæja gott fólk!

Allir voru byggingarfræðingar nema Stjáni, hann var bjáni!

Mér finnst ég ekkert lítið fyndin að hafa samið þennan brandara alveg sjálf. Verst að Stjána greyinu finnst ég ekki jafn fyndin, því hann á eina önn eftir af byggingarfræðinni.
Köggli kláraði í dag og erum við því komin með fjóra byggingarfræðinga í litlu stórfjölskylduna, ekki amalegt það. Fyrir eigum við svona einn lögfræðing, eða lögfræðínu (KVK). Vantar ekki fræðingana!
Svo á næstu árum bætist svo við hópinn annar Byggingarfræðingur, Viðskiptafræðingur, Uppeldisfræðingur, Framleiðslutæknifræðingur og Markaðsfræðingur.
Gaman að þessu.
Nú er það bara útskriftin hjá pjökkunum og svo er það bara að fylla alla gáma af flatskjáum, sófasettum og Rosendahl matarstellum svo fræðingarnir geti flutt til Íslands og byrjað að borga námslánin :)

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þið eruð nú aldeilis heppinn....allir fræðingarnir. Innilega til hamingju!!
Bestu kveðjur frá ömmu Stínu

Nafnlaus sagði...

Til hamingju allir nýir fræðingar. Hvernig andi vilt þú svo verða Kristín þegar við erum búin að vera fræðingar. Allir geta verið
e-r andi, kærandi, teiknandi, þroskandi, hlaupandi, ríðandi og Einar náttla mógðandi eða skjótandi á alla. Ég ætlað verða græðandi, drekkandi og hlæjandi. En þú?

Brynja Björk sagði...

Nú hlæja allir að mér en here goes. Ég veit hvað byggingaverkfræðingur er, en hvað er byggingafræðingur, og hver er munurinn?

Kristín Alma sagði...

Villi: Ég veit ekki. Markandi? Talandi væntanlega lík :)

Brynja: Ekki skammast þín. Ég veit það ekki heldur. Ég veit bara að þegar maður er að læra byggingafræði þá talar maður mikið um detail 1 og 2 og Autocad. Svo er maður mikið í skólanum og talar svo svoldið um sökkla og loftræstikerfi. Svo er maður aðeins meira í skólanum, helst fram á nótt.
Mér finnst bara töff að eiga svona fræðinga ;)

Nafnlaus sagði...

naumast að maður fær afmæliskveðjur!:)

Nafnlaus sagði...

fræðingar verða að eiga Rosendahl með smá blöndu af Evu Solo og Arne Jacobsen með Samsung ívafi og Brown og AEG on the side.
Ég er talandi fræðingur og byggingafræðingurinn valdi sér að vera elskandi

kv.
Brekamamma

Nafnlaus sagði...

ég ætla vera skvettandi mér finnst það fínt!!!!!!!
Við erum ekkert smá fræði familía úje Jólaboðin verða spes!!!!!!!!!jÁ SVO vil ég halda afram að vera húseigandi