19.2.08
Ha já!
15.2.08
Fyrir þann gamla og Valdísi
Ca 4 kjúklingabringur
Ostasósa
Salsasósa
Rifinn ostur
1 poki Doritos snakk
Aðferð:
Kjúklingabringurnar eru skornar í bita, steiktar á pönnu og kryddaðar vel eftir smekk (finnst best að nota fahitas kryddblöndu).
Doritos snakk er mulið og sett í botn á eldföstu móti. Ostasósan þar ofaná og síðan salsasósan. Síðan eru steiktar kjúklingabringurnar settar þar ofaná og síðan rifinn ostur. Sett inn í ofn í 15-20 mín 200°
Mér finnst líka fínt að hafa bara hreinan smurost í staðinn fyrir ostasósuna. Ég gerði það þegar þið voruð í mat. Þá blanda ég bara saman salsasósu og smurosti og dembi yfir snakkið.
14.2.08
Tilvalið
13.2.08
up-date
Ég held áfram að græða á Íslendingunum sem eru að flytja í burtu. Svo virðist sem þeir keppist um að reyna að toppa hvern annan, sem ég skil svona ekki alveg, en það er nú víst ég sem er að græða þannig að maður kvartar ekki.
Stjáni:
- Copy kort sem maður getur notað í skólanum, kom sér einstaklega vel!
- Jagermaster svitaband á hendina
Bjarni og Arna:
- Vatnskanna
- Straujárn
- Þráðlaus sími
Garðar og Íris
- Örbylgjuofn
Jón Pétur
- Lager af bollasúpum (Enda greyið líklega kominn með ógeð eftir sumarbústaðarferðina þar sem hann svolgraði í sig svona 30 lítrum af þessu)
- Fótboltasokkar og stuttbuxur
- Stóll
- Heimabíó
- Sjónvarp
Víjj, hvað ég hlakka til þegar að næsta fólk flytur :)
Annars er allt frábært að frétta.
Það er reyndar alveg nóg að gera, sem er alveg fínt. Brjálað að gera í verkefninu fyrir Frikka og ég held barasta að þetta sé besti landafræði kennsla sem ég hef fengið í lífinu. En jafnframt sú strembnasta, því þetta er svoldið mikil handavinna, en samt bara gaman svona þegar að er farið að síga á seinni hlutann.
Skólinn byrjaði á milljón og tíu á mánudaginn, og þetta er alveg svaka keyrsla, svona þegar að það er ekki verið að breyta stundartöflunni og eitthvað vesen. En ég er reyndar svo heppin að ég er ekki í Eðlisfræði og Efnafræði þannig að ég mæti klukkan 10 nánast alla daga og er búin fyrr tvisvar eða þrisvar í viku. Annars líst mér bara mjög vel á þetta allt. Erum 8 Íslendingar í bekknum, allir nýfluttir nema ég, þannig að við reynum svona að hjálpast að með námið, sem er fínt.
Sem sagt allt komið á blússandi sving, eins og pabbi orðaði svo skemmtilega.
Svo er ég komin með herbergisfélaga. Jón Pétur flutti inn á mánudaginn og ætlar að vera fram á þriðjudag, þá flytur hann til Íslands. Voðalega notalegt að búa svona tveir einstaklingar í öllu þessu plássi :) Ég, hann og Jólarósin sem er enn á lífi unum okkur nú samt bara vel þarna saman.
Þorrablót á laugardaginn og mikið stúss sem fylgir því, ég ásamt öðrum kjéllingum úr stjórninni erum að fara að baka rúgbrauð ofaní 200 mans á morgun. Hressandi!!
Jæja, held að allir séu löngu hættir að lesa núna, svo best að slútta þessu.
10.2.08
8.2.08
Fyrir ári..
6.2.08
...
Verið stillt.
29.1.08
Ég poppa til að gleyma
Núna eru fræðingarnir ýmist að flytja heim eða þá bara að update-a búslóðina. Þá kemur sér vel að geta bara hringt í mig og látið mig fá dótið. Nýtist mér og þau sleppa við að fara ferð á haugana.
Það sem ég er búin að græða síðan fyrir viku síðan er
- Straujárn (Svo nú fer ég að sofa alltaf í straujuðum rúmfötum eins og í Grundó)
- Vatnskönnu (Því ég ætla að drekka meira vatn og minna coke)
- Þráðlausan síma (Því það er nauðsynlegt að geta talað í síman á klóinu)
- Örbylgjuofn (Ég poppa til að gleyma)
Nú vantar mig bara sófa..
28.1.08
Bleikir þríhyrningar
En þetta hlýtur nú að ganga yfir.
Sem betur fer styttist í Florida og "krúsið" um Karabískahafið :) Ekki nema 5 mánuðir mínus 2 dagar :)
25.1.08
En ætla nú bara að segja til hamingju allir og skemmtið ykkur í partý-inu í kvöld.
-Sjálf ætla ég að passa drekann. Hendast með hann á McDonalds og svo ætlum við að horfa á video og fá okkur popp.
22.1.08
Jæja gott fólk!
Mér finnst ég ekkert lítið fyndin að hafa samið þennan brandara alveg sjálf. Verst að Stjána greyinu finnst ég ekki jafn fyndin, því hann á eina önn eftir af byggingarfræðinni.
Köggli kláraði í dag og erum við því komin með fjóra byggingarfræðinga í litlu stórfjölskylduna, ekki amalegt það. Fyrir eigum við svona einn lögfræðing, eða lögfræðínu (KVK). Vantar ekki fræðingana!
Svo á næstu árum bætist svo við hópinn annar Byggingarfræðingur, Viðskiptafræðingur, Uppeldisfræðingur, Framleiðslutæknifræðingur og Markaðsfræðingur.
Gaman að þessu.
Nú er það bara útskriftin hjá pjökkunum og svo er það bara að fylla alla gáma af flatskjáum, sófasettum og Rosendahl matarstellum svo fræðingarnir geti flutt til Íslands og byrjað að borga námslánin :)
18.1.08
Fyndnast í heimi
Hvernig er hægt að finna uppá svona ógeðslega-tussu-mellu-fyndnu? Fröken Feministi. Maður verður að vera gjörsamlega sneiddur öllum húmor til að finnast þetta ekki fyndið.
16.1.08
Jamm og jú
Held að mér sé farið að hlakka til að byrja í þessum nýja skóla. En get samt ekki gert upp við mig hvort að mér eigi að hlakka til eða kvíða fyrir eða hvað. Kannski útaf því að það er enn smá óvissa með framhaldið. Líka í sambandi við Lín. Ef Lín-konan sem ég meilaði á fyrir viku síðan les þetta þá er hún vinsamlegast beðin um að svara mér!!!
Annars þá fann ég þessa líka fínu stjörnuspá á netinu og þetta lýsir mér bara alveg nokkuð vel. Allavega í augnablikinu. Þetta er nú samt eitthvað voða mikið djók. En samt soldið fyndið.
Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.
Gaman að þessu!
Best að ég fari bara að sofa í hausinn á mér, þetta er alveg drullu leiðinleg færsla!!!
14.1.08
Nýtt ár, nýjar áherslur..
Ég nefninlega á Manchester treyjuna og finnst algjör synd að geta ekki notað hana, sem ég get augljóslega ekki ef ég held með Arsenal.
Eina sem ég hef áhyggjur af er það að pabbi afneiti mér. Og mamma líka. Má ekki við því, er að verða tvítug eftir akkúrat tvo mánuði og á von á stórum gjöfum. Verður ekki mikið um stórar gjafir ef að ég svíkist um fótboltalið.
En á móti kemur að móðurbræður mínir, föðurbróðir og strákarnir hérna úti halda með Manchester, svo það gæti kannski stækkað gjafirnar frá þeim að ég skuli halda með þeirra liði. Svo er annað í þessu. Ég á ekki og hef aldrei átt Arsenal treyju. Bara sængurföt.
Maður spyr sig!!!
7.1.08
Jájá, einhverjir danir, sponsaðir af fjallraven bak og fyrir og upp og niður fara í ferðalag til Íslands og gera allt það skemmtilega. Sofa í tjaldi, fara í hvalaskoðun, hestbak, skoða íslenska náttúru, fara í jarðböð, éta ógeðslega girnilegan og djúsí grillmat og ég veit ekki hvað.
Langaði að grenja. Þurfti aðeins að slá mig og minna mig á að það er korter síðan ég kom frá Íslandi og ekki nema 10 vikur í að ég fari þangað aftur.
Samt greinilega ekki allir jafn áhugasamir og ég um að horfa á litla Ísland í danska sjónvarpinu, því þegar ég nefndi þetta við einn vin minn, þá sagði hann "Það eru samt svo flottar kellingar í myndinni á TV3!"
Myndin sem var í gangi þar þegar ég skipti um stöð til að athuga (Já, ég held ég sé að verða lesbísk á að umgangast þessa strákorma.) þá var það myndin Bring it on..again eða eitthvað álíka spennandi.
3.1.08
Bækur
Ég var allavega að taka til hérna hjá mér, og fann heilu staflana af bókum, sem ég hef ekki klárað. Og núna er ég akkúrat að lesa Joachim Boldsen -Ærlig talt! Ég er að verða komin um miðja bók og ég er að segja ykkur það, Ósagt eftir Eyvind Karlson ásækir mig í svefni og segir "lestu mig, lestu mig"!
Held það sé bara í lagi að fara að leggja mig inn fljótlega.
2.1.08
Grundómyndir
Ég lagið mig alla fram í að vera spastísk á öllum myndunum, ég held að ég sé ekki svona ljót og asnaleg í alvöru sko. Vona ekki allavega.
Frosið vatn
29.12.07
Ertu með klofinn góm?
28.12.07
Blassaður
26.12.07
Gleðileg jólin!
Núna erum við að horfa á Portsmouth - Arsenal, svona meðan við meltum hangikjötsskammt númer 59 þessi jólin.
Rosisky er búinn að vera helvíti sprækur í leiknum og okkar menn spila samt full þröngt. Núna finnst okkur samt að það ætti að taka Adebayor útaf, hann er ekki að gera rassgat. Henda Bentner, dananum inná í staðinn. Hann er svo ungur og sætur, enda pabbi er búinn að panta hann fyrir tengdason. Spurning hvað Salka gerir í því. Ég ætla allavega ekki að fá mér danskan mann!!!















