16.1.08

Jamm og jú

Æji hvað ég er eitthvað glær. Hið árlega skammdegisþunglyndi virkilega farið að segja til sín. Er alltaf glær af þreytu og þyrfti að sofa svona 20 tíma á sólarhring ef vel ætti að vera. En er samt svona að hugsa um að reyna að koma svefninum mínum í nokkuð rétt form svona á næstu dögum og sjá hvort að þessi síþreyta lagist ekki. Svo gengur víst ekki að sofna klukkan 4 og 5 á nóttunni þegar að skólainn byrjar í febrúar.
Held að mér sé farið að hlakka til að byrja í þessum nýja skóla. En get samt ekki gert upp við mig hvort að mér eigi að hlakka til eða kvíða fyrir eða hvað. Kannski útaf því að það er enn smá óvissa með framhaldið. Líka í sambandi við Lín. Ef Lín-konan sem ég meilaði á fyrir viku síðan les þetta þá er hún vinsamlegast beðin um að svara mér!!!
Annars þá fann ég þessa líka fínu stjörnuspá á netinu og þetta lýsir mér bara alveg nokkuð vel. Allavega í augnablikinu. Þetta er nú samt eitthvað voða mikið djók. En samt soldið fyndið.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

Gaman að þessu!

Best að ég fari bara að sofa í hausinn á mér, þetta er alveg drullu leiðinleg færsla!!!

14.1.08

Nýtt ár, nýjar áherslur..

Svona til að vera ekki svona döll alltaf þá er ég að hugsa um að gera doldið flippað í ár. Er að hugsa um að halda með Manchester United núna. Hvað segir fólkið um það?
Ég nefninlega á Manchester treyjuna og finnst algjör synd að geta ekki notað hana, sem ég get augljóslega ekki ef ég held með Arsenal.
Eina sem ég hef áhyggjur af er það að pabbi afneiti mér. Og mamma líka. Má ekki við því, er að verða tvítug eftir akkúrat tvo mánuði og á von á stórum gjöfum. Verður ekki mikið um stórar gjafir ef að ég svíkist um fótboltalið.
En á móti kemur að móðurbræður mínir, föðurbróðir og strákarnir hérna úti halda með Manchester, svo það gæti kannski stækkað gjafirnar frá þeim að ég skuli halda með þeirra liði. Svo er annað í þessu. Ég á ekki og hef aldrei átt Arsenal treyju. Bara sængurföt.

Maður spyr sig!!!

7.1.08

Frábært! Maður er rétt svo búin að sætta sig við að nóa konfektið, íslenska appelsínið, vatnið og útisundið er ekki til í Danmörku. Maður er við það að taka Haribo, Faxi kondi, kalkvatn og ógeðs innisundlaugar í sátt þegar að þeir snillingarnir í sjónvarpinu sýna einhvern þátt um Ísland.
Jájá, einhverjir danir, sponsaðir af fjallraven bak og fyrir og upp og niður fara í ferðalag til Íslands og gera allt það skemmtilega. Sofa í tjaldi, fara í hvalaskoðun, hestbak, skoða íslenska náttúru, fara í jarðböð, éta ógeðslega girnilegan og djúsí grillmat og ég veit ekki hvað.
Langaði að grenja. Þurfti aðeins að slá mig og minna mig á að það er korter síðan ég kom frá Íslandi og ekki nema 10 vikur í að ég fari þangað aftur.

Samt greinilega ekki allir jafn áhugasamir og ég um að horfa á litla Ísland í danska sjónvarpinu, því þegar ég nefndi þetta við einn vin minn, þá sagði hann "Það eru samt svo flottar kellingar í myndinni á TV3!"
Myndin sem var í gangi þar þegar ég skipti um stöð til að athuga (Já, ég held ég sé að verða lesbísk á að umgangast þessa strákorma.) þá var það myndin Bring it on..again eða eitthvað álíka spennandi.

3.1.08

Bækur

Einu sinni var ég algjör bókaormur. Hakkaði í mig hverja bókina af fætur annari og fór létt með það. Sú er ekki raunin í dag. Ég er alltof löt við að lesa bækur og enn latari við að klára þær. Það er nefninlega þannig með mig að ég byrja á bókunum, les þær alveg á met-tíma þangað til ég er komin að síðustu köflunum. Þá hætti ég bara og byrja oftast á einhverri nýrri bók og sama sagan endurtekur sig. Flestir eiga akkúrat erfiðast með að byrja á því að lesa bækur. Ég hef ekki klárað bók síðan ég man ekki einu sinni hvenær.
Ég var allavega að taka til hérna hjá mér, og fann heilu staflana af bókum, sem ég hef ekki klárað. Og núna er ég akkúrat að lesa Joachim Boldsen -Ærlig talt! Ég er að verða komin um miðja bók og ég er að segja ykkur það, Ósagt eftir Eyvind Karlson ásækir mig í svefni og segir "lestu mig, lestu mig"!
Held það sé bara í lagi að fara að leggja mig inn fljótlega.

2.1.08

Grundómyndir

Myndavélin mín varð eftir á Íslandi, ásamt danska símkortinu mínu, málingardótinu mínu og bara eiginlega öllum fötunum mínum. Svo það eru Grundómyndir í boði Villa bróður (hans JP).
Ég lagið mig alla fram í að vera spastísk á öllum myndunum, ég held að ég sé ekki svona ljót og asnaleg í alvöru sko. Vona ekki allavega.


Frosið vatn
Villi líklega að segja eitthvað voða fyndið

Klifraði yfir hliðið, sem var svo ekki læst!!!!

Kirkjufellið á sínum stað
Grundarfjörður
Bústaðurinn frægi

Ég var svo hot á sleðanum að snjórinn bráðnaði!

29.12.07

Ertu með klofinn góm?

Komin heim úr sveitinni. Voða notó að fara svona í sveitina að tjilla, sofa í straujuðum sængurfötum og borða hrygg í hádeginu.


En annars er ég bara á leiðinni útá Keflavíkurflugvöll eftir 3 tíma eða svo. Þaðan er förinni svo heitið til danaveldis.

Æji hvað verður gott að komast heim og sofa í almennilegu rúmi. Efri kojan er ekki töff lengur, ég er að verða tvítug for crying out loud. Að skrönglast þarna upp og niður tvisvar á dag er bara doldið off.


Samt búið að vera voða gott að vera á Íslandi, búin að hafa það voða notalegt í faðmi fjölskyldunar. Dúllast með Sölku systir og svona. Fór í sund og bað eins eins og enginn væri morgundagurinn og er líklega komin með sundfit milli tánna.


Át er líkleg orðið keppnisgrein, allavega miða við fjölskylduboðin þessi jólin. Ég er líka komin með myndarlegt munnangur eftir að hafa þambað jólaöl og étið nóakonfekt nánast nonstop í 4 daga.

Gamanafessu!


Jæja, ætla að fara að taka síðasta baðið áður en ég fer heim.

Myndin er af Sölku, með gelgjusvip dauðans!

28.12.07

Blassaður

Jájá, ég er bara komin í sveitina að sjilla í 9 stiga frosti.

Vona að ég hitti Gísla göngutúr og Kibba Rabba.

26.12.07

Gleðileg jólin!

Ætla bara að segja frá því að ég er búin að hafa það alltof gott um jólin. Bara afslappelsi og át í faðmi fjölskyldunar. Við pabbi búin að dúlla okkur saman hérna heima milli jólaboða. Sátum til að mynda saman inní eldhúsi klukkan 01.00 í nótt og átum kókópöffs.
Núna erum við að horfa á Portsmouth - Arsenal, svona meðan við meltum hangikjötsskammt númer 59 þessi jólin.
Rosisky er búinn að vera helvíti sprækur í leiknum og okkar menn spila samt full þröngt. Núna finnst okkur samt að það ætti að taka Adebayor útaf, hann er ekki að gera rassgat. Henda Bentner, dananum inná í staðinn. Hann er svo ungur og sætur, enda pabbi er búinn að panta hann fyrir tengdason. Spurning hvað Salka gerir í því. Ég ætla allavega ekki að fá mér danskan mann!!!

Þið fáið myndir, nenni ekki að skrifa meira. Tók 146 myndir á tveim dögum. Fríða Margrét er á þeim flestum ásamt Baldri Frey. Greinilegt að þau yngstu finnst skemmtilegast að láta mynda sig!!
Villi og Svanhvít hress
Alma Diljá og Baldur Freyr

Emil og Sonja

Ein lítil Katla við stórt borð

Baldur Freyr

Fríða Margrét og Kristín Alma
Ronja komin með jólakrulluband um hálsinn

Pabbi og Salka

Maja Melasól


Pabbi að elda steikina

Frumlegasta jólagjöfin í ár, frá Kötlu og Þóru

Pabbi og Baldur Freyr

Almar, Alma Diljá, Tómas Orri og Fríða Margrét

Fríða Margrét sætasta

Almar og Fríða Margrét

Salka og Fríða Margrét

Aftur

Baldur Freyr svaf úti í góðum fíling

Baldur Freyr og Kristín Alma

24.12.07

Pleh

Sérdeilis skemmtilegt að það hafi allt verið hvítt þegar ég vaknaði í morgun. Dreif mig í sund og lá þar í tvo tíma. Í pottnum. Voða notó að fá hlussusnjókorn í andlitið og vera með kroppinn á bólakafi í sjóðandi heitu vatni. Ahhh.
Vann síðasta daginn í BabySam í dag. Skondið að vinna á aðfangadag, því meðan ég stóð og var að afgreiða taubleyjur og ömmustóla þá var til dæmis jólagrauturinn hjá mömmu. En lifi af að hafa misst af því, hefði líka misst af því þó ég hefði ekki verið að vinna. Fékk mér bara kókópöffs í staðinn.
Annars er ekki mikið stress hérna í Kórsölum. Það eru túrbójól hérna þetta árið og er heimilið lýst upp með jólaseríum. Kötturinn kominn með jólaslaufu um hálsinn og er ekki frá því að hún sé minna grumpy en venjulega. Ætlum bara að fara með pakkana núna og ég ætla að kíkja á ömmu Stínu. Síðan er bara að græja sig, skella í sig einhverju með miklu koffíni og halda jólin. Markmið jólanna í ár er að reyna að halda sér vakandi fram yfir pakkaopnun og reyna að ná í kaffi til Almars og Gúu í kvöld. Annars sér maður bara hvað batteríin duga, efast um að þau fleyti mér svo langt :)

Er farin að hlakka til að geta sofið út á morgun og verið í náttfötunum. Allavega svona milli jólaboða. Horfa á næturvaktina og gera ekki rassgat fyrr en 27.des
Hlakka líka rosa mikið til að fara út aftur. Komast heim til mín :)

22.12.07

Smá svona

Það er ógeðslega gott að fara í sund eldsnemma á morgnana. Þá er alveg dimmt og ógeðslega kósý að vera í pottinum og slappa af meðan gömlu kallarnir ræða um pólitík. Sérstaklega gott ef að það er rigning mmmm. Elska að fara í sund á Íslandi. Þarf svo að fara í Bláa lónið ef einhver er game?

Það er líka gott að drekka Appelsín. Stelpurnar í vinnunni gera suddagrín af mér. Ég fer með amk 3 súperdósir á einum vinnudegi. Svo stúta ég svona einni eða tveim heima. Pissa líka á kortersfresti. Verð örugglega búin að drekka upp lagerinn hjá Egils á Þorláksmessu.

Kíkti í heimsókn í Samskip í gær. Varð fyrir MIKLUM vonbrigðum. Hvað varð um alla sætu strákana sem voru alltaf að vinna þarna? Ekki einn eftir! Hvað er það? Ekki einu sinni Diddi, þá er það nú slæmt..Hnjéhnjéhnjé :)
Dí maður. Var að vona eftir að þessi rauðhærði sæti sem ég var einu sinni ógeðslega skotin í og roðnaði niðrí rassgat þegar að hann var í kílómeters radíus við mig væri enn að vinna þarna. Sjii man ég hitti hann á djamminu og þorði ekki að líta í áttina að honum, hvað þá tala við hann! Steik :)

Ég er annars bara að vinna í BabySam í Smáralindinni eins og hefur komið fram nokkrum sinnum. Endilega kíkið í heimsókn þangað :)
Svo er Íslenska númerið mitt bara sama og venjulega 848-5313 - Finnst líklegt að ég kíki á djammið á laugardagskvöld (22.12.2007), látið heyra í ykkur.
Ætla að koma mér í bælið, er að fara að hitta Almar föðurbróðir og hans "hyski" í fyrramálið. Verður gaman að sjá þau. Sérstaklega Baldur Frey, þar sem ég sá hann síðast þegar hann var 2 mánaða!!

20.12.07

Hressandi!

Maður situr í sófanum, alveg nývaknaður í morgunfýlunni og les moggan á netinu (er bara ekki að fatta þetta með að mogginn komi inn um lúguna hérna ásamt DV og Fréttablaðinu..) þegar helv.. kötturinn kemur rennandi blautur inn og byrjar að nudda sér uppvið mann.
Núna er ég pirruð.
Ætla að fara í útisund í myrkrinu, núna.

18.12.07

Myndir

Nenni ekki að blogga. Ekki séns. Of þreytt. Þið fáið samt myndir. Aðalega af Sölkunni minni.


Ronja fylgist með að allt fari vel fram á MSN

Jólasería a la Sigmar :/
Salkan
Horfa á Tomma og Jenna


Kítlikítl
Salka og Pabbi
Krúttrassgat






17.12.07

Niceland

Jebbsí, flugið gekk smurt. Fyrsta skipti í sögunni sofnaði ég ekki eina sekúndu. Sama hvað hefur gengið á í flugi, þá hef ég alltaf náð að sofa eitthvað. Ekki núna.
Þessvegna var ég alveg búin á því þegar ég lennti og keyrði á milljón heim í Kórsali. Held án gríns að ég hafi verið í 25 mínútur frá flugvellinum og uppí Kórsali. Þurfti mjöög oft að hægja mikið á mér, því mér fannst ekki við hæfi að keyra á 90, enda síðasta sem ég keyrði í DK var á hraðbrautinni á 140. En ég komst lifandi heim.
Heima beið mín svo einn Pabbi og ein Ronja. Ronja er voðalega skotin í mér, er búin að prufa að leggja sig í tölvutöskunni, ferðatöskunni, undir sænginni minni í nótt og núna liggur hún hálf ofaná tölvunni. Sem sagt, víkur ekki frá mér. Undarlegt, mér finnst hún svo leiðinleg, greyið.

Það var erfitt að vakna í morgun. Gerði mér ekki grein fyrir að það væri dimmt hérna til 15.00 á daginn. Ég þori ekki út, held að ég týnist bara.

Annars er voða gott að vera kominn til Íslands. Hlakka mestast til að hitta Sölku systur samt, get ekki beðið eftir því. Veit samt ekki hvenær það verður, því að ég er að vinna í Smáralindinni eins og mófó fram að jólum. En þið vitið þá allavega að þið getið fundið mig í BabySam í Smáralind.
Og já, ég er með danska númerið mitt, allavega þangað til að ég græja íslenska númerið, gleymdi kortinu úti, snillingur, ég veit!

16.12.07

Iceland calling!

Farin til Íslands.
Ætla að hafa það huggó í vélinni og horfa á Önnu Pihl season 2 :) Er orðin vel spennt að fara í flugið, því Anna Pihl er sko besta vinkona mín. Ég ætla að banna það að það verði grenjandi ungabörn og fólk með rápsýki við hliðiná mér.
Ekkert spennt að koma til Íslands, en ætli fiðrildin komi ekki í magan þegar ég er komin útá Kastrup. Myndi halda það.
Treysti á að pabbi eigi eitthvað annað að borða fyrir mig en hrökkbrauð og ost. Held að ég sé ekki að ljúga þegar að ég segi að það sé það eina sem ég er búin að éta í viku. Allavega nánast. Svimar líka af næringarskorti. iiiidjók.

Well, hætt þessu tuði. Verið stillt.

14.12.07

Jááá, það er að koma svo mikið jól, Hemmi minn!

Vona að fólk hafi gert sér grein fyrir að þetta var grín með að ég gæti ekki byrjað að pakka útaf því ég vissi ekki í hvora töskuna ég ætti að pakka í. Ætla að pakka light í þetta skiptið því ég á von á stórum og hörðum pökkum þetta árið. Því verður bakpokinn fyrir valinu. Brynja, mér er alveg sama hvað þér finnst, enda þarftu ekki að sækja mig!!
12 tímar í að ég leggji í'ann og bakpokinn er tómur. Ég er reyndar búin að raða í kringum hann 15 skópörum og veiðibolnum góða. Enda eina sem er hreint. 3 stórir Ikea pokar fullir af óhreinum fötum og óhreinatauskarfan full samt er fataskápurinn fullur af hreinum fötum. En nú hugsa ég eins og sannur námsmaður. Tek bara með mér skítugu fötin og fæ pabba til að þvo af mér, alveg gratis í staðinn fyrir að vera að borga 14 kr fyrir eina þvottavél. Maður getur fengið einn og hálfan bjór fyrir þann pening á skólabarnum.
Nei, ætli ég dröslist ekki í þvottahúsið á eftir og þvoi svona smá, svo að pabbi haldi ekki að ég sé alveg ófær um að sjá um mig sjálf og svipti mig sjálfræði, veitti svosem ekki af stundum..
Í morgun þegar ég vaknaði átti ég eftir að kaupa tvær jólagjafir (sem verða eftir hérna í Horsens) núna á ég enn eftir að kaupa þær. Þetta voru hinar fullkomnu jólagjafir fyrir báða aðila, en finn ekki þessa hluti. Gef þeim bara geit eða eitthvað :)
Annars er ég bara núna að hugsa hver eigi að hugsa um jólarósina mína. Hvort ég eigi ekki bara að vökva hana duglega áður en ég fer og svo sér hún bara um sig sjálf eða hvort að ég eigi að fá Jón Pétur eða Hjalla til að koma hingað einu sinni á dag og gefa greyinu að drekka. Ég er nefninlega alveg hrikalega stolt af því að vera búin að halda í þessu lífinu í tvær vikur. Alein. En þetta er jafnframt eina jólarósin í evrópu sem fær bara afgangs kók og sódavatn að drekka. Held ég hafi aldrei splæst í ferskvatn fyrir hana. Samt er hún alveg agalega hress, held ég.
Jæja, skórnir raða sér ekki sjálfir í bakpokann..

13.12.07

Valkvíði

Jæja, ég get ekki byrjað að pakka. Af hverju ekki? Get ekki ákveðið í hvaða tösku ég á að pakka niður í. Smart, ekki satt?

Valið stendur á milli venjulegrar ferðatösku og svona túristabakpoka.

Kostirnir við ferðatöskuna:
  1. Er Samsonite
  2. Í stíl við tölvutöskuna
  3. Lúkkar betur
Gallarnir við ferðatöskuna:
  1. Frekar klossuð
  2. Meiri líkur á að ég komi með yfirvikt til baka
  3. Ógeðslega leiðinlegt að druslast heim með þunga ferðatösku í lestina
Kostirnir við túristabakpokann:
  1. Þægilegt að geta verið með allt draslið á bakinu (sérstaklega þegar ég fer frá Nörreport til Kastrup)
  2. Myndi segja að ég kæmi ekki með yfirvikt til baka, því maður nennir ekki að vera með 30 kíló á bakinu, hlaupandi til að ná lest og þess háttar.
  3. Ekkert að því að vera í hettupeysu og strigaskóm á leiðinni, því bakpokinn er hvort eð er ljótur.
Gallarnir við túristapakpokann:
  1. Leiðinlegt að vanta eitthvað sem er á botninum og þurfa að kafa eftir því
  2. Passar engann veginn við tölvutöskuna mína og hvað þá handfarangurstöskuna. Guð hjálpi mér ef mig langar að taka Gucci með mér í handfarangur..!
  3. Get ekki verið í fínum fötum og með naglalakk á leiðinni.
Hvað á ég að velja?

12.12.07

Jájájá

Vóts. Alltof stutt í brottför. Kem heim á sunnudagskvöld til að gera föður minn gráhærðan/ari. Drasla svoldið til í Kórsölum, svelta köttinn og ræna bílnum til að fara út um miðjar nætur.
Hlakka ótrúlega mikið til og er með endalaust af fiðrildum í maganum, því ég hef ekki komið til Íslands í fjóra mánuði. Það er bara alltof langur tími án Sölku og pabba. Þegar maður er farinn að sakna Ronju líka þá er ástandið nú orðið slæmt.
Geri fastlega ráð fyrir að BabySam muni verða heimili mitt frá 17.des og fram að jólum. 24-26 ætla ég að vera með fjölskyldu og vinum, borða góðan mat og LESA. Hlakka ótrúlega mikið til að lesa bækurnar sem voru að koma út fyrir jólin. Spilakvöld koma líka til greina :)

27-29 des vil ég helst hafa forræði yfir Sölku. Við þurfum nefninlega að systrast aðeins, kíkja í sund, kúrast uppí sófa með Arsenal sængina og horfa á litlu hafmeyjuna 22 (Litla hafmeyjan 2) eins og krílið myndi segja. Síðan ætla ég að kíkja aðeins útfyrir borgina og uppí sveit, eða ekki sveit heldur nafla alheimsins eins og einhverjir strákar sem ég þekki myndu kalla það.
Svo ætla ég í sund, sund, sund, sund. Og í pottinn hjá ömmu og afa. Vegamót. Kíkja út á lífið með Brynju og lemja ráptuðrur með Chanel og Gucci töskunum okkar. Vesturbæjarís. Bæjarferð með ömmu. Heimsóknir. Mmmmm hvað ég hlakka til.

Reyndar er eitt sem böggar mig, að vera bíllaus 17-24 des. Ekki séns, verð að redda mér bíl.






11.12.07

Strákastelpa

Ég verð seint talin dama. Þó að ég sé afskaplega góð í því að ganga um á 18 cm hælum, í pilsi (án þess að það sjáist í nærbuxurnar) og vera með gloss svona eina kvöldstund eða svo, þá dugar það einfaldlega ekki til.
Hef heldur aldrei verið þessi prinsessustelpa. Þó að ég hafi nú heimtað gullkjóla og silfurskó í lange baner þegar að amma og afi fóru til ameríku þegar ég var 4 ára. Þá var ég fín í þessum kjólamúnderíngum í korter. Svo var ég bara komin á sokkabuxurnar og nærbolinn, mátti ekkert vera að því að vera fín.
Man að þegar ég fermdist var voða mikið í tísku að vera í ljósbleikum, ljósbláum eða hvítum kjólum. Ég hefði ekki látið sjá mig dauða í svoleiðis, enda fermdist ég í kolsvartri buxnadragt. Lét mig samt hafa það að vera á einhverjum voða stelpulegum skóm, en jesús minn, ég mun aldrei gleyma verkjunum sem ég var með í fótunum eftir að hafa skakklappast á þeim frá klukkan 11.00 til að verða 20.00 um kvöldið.
Svona síðustu ár hef ég reyndar alltaf verið meira og meira dömuleg. Enda að verða 20. ára og það kannski þýðir ekki annað. Ég er voða dugleg að vera í pilsum, kjólum og stígvélum svona hversdags. Svo þegar það er eitthvað spari, þá dressar maður sig upp í eitthvað voða fínt, sléttar hárið, setur eyeliner og fer í hæla. Voða fínt. Brussast um á þessu þangað til ég kem heim. Þá nánast undantekningalaust ríf ég mig úr öllum fötunum og vill helst bara vera á nærbuxunum og uppáhalds fótboltatreyjunni minni (Eða einu, því pabbi klikkar allaf á að gefa mér Arsenal búninginn.) og chilla þannig. Ok, er nú samt oft í buxum, en mjög svo ekki dömuleg svona heima.
Dömuleikinn er samt eitthvað að fara af mér aftur, held að það sé vegna þess að ég umgengst svo mikið af strákum. Og stelpurnar sem ég umgengst eru ekki mikið að ræða glossa og sléttujárn, þannig að ég er öll að skríða til baka í að verða eins og strákur bara. Strákur með naglalakk.
Hélt nú að þetta slyppi alveg til hjá mér, þangað til að við vorum að skoða einn af 300 auglýsingabæklingunum sem koma innum lúguna í hverri viku. Þar rak ég augun í eitthvað sem ég hefði ALDREI rekið augun í áður, ef það væri ekki fyrir allt fótboltavitið sem ég er komin með í hausinn. Allt í lagi, það er svosem ekki mikið en ég get svarið fyrir það að ég er farin að kunna muninn á vítaspyrnu og rangstöðu.
En þetta sem greip mig má sjá á þessari mynd:
(getið smellt á myndina til að gera hana stærri)



Af hverju er Liverpool dótið ódýrara en hitt?
Lélegra lið?

10.12.07

Æjj, mig langar í 99% af fötunum í Júníform. Búin að liggja yfir þessu í allt kvöld og gráta. Ég á EKKI 2 milljónir til að kaupa þetta allt!!!

Annars er ég hress, en þið?

4.12.07

NEI NEI NEI!!!

Það á að banna svona endi á Desperate housewives!
Verður þetta verkfall aldrei búið, eða hvað er málið?

Hmm, annars skulda ég víst færslur alveg hægri vinstri. Einhverra hluta vegna þá hefur þetta blessaða blogg mitt setið á hakanum, síðustu daga. En núna reynum við nú að bæta það upp.

Má til með að segja ykkur eina skemmtisögu af sjálfri mér.
Það var nú barasta þarsíðasta laugardag sem ég reif mig á lappir um 8 leytið og hennti mér í sturtu. Svo þreytt að ég varla stóð í lappirnar. Var að fara að passa Brekann milli 9 og 13 og þá dugar ekki að vera þreyttur, því barnið á það til að vera uppum alla veggi og þess á milli standa ofaná sjónvarpinu. Svo ég dreif mig í langa sturtu, skrúbbaði mig bak og fyrir, þangað til ég angaði eins og rósarunni, eða meira svona eins og sápuverksmiðja, en það er annað mál. Ég er eitthvað þarna að dunda mér í sturtunni við að raka á mér fótleggina og djúpnæra hárið, þegar ég hugsa með mér að nú skyldi ég aldeilis gera mér dagamun og tríta mig ægilega þegar að ég kæmi undan heitri sturtunni.
Nú þegar undan sturtunni er komið, þurrka ég kroppinn og nýþvegna hárið og ákveð að núna sé sko dagurinn fyrir sparikremið. Sem er eingöngu borið á líkamann eftir svona góða sturtu, því þá verður maður svo silkimjúkur frískur í húðinni. En jæja, hvað um það. Ég teygi mig eftir kremtúbunni, orðin öll spennt að fá að setja á mig þetta sparikrem. Maka þessu á mig í mikilli flýti og hugsa með mér að það sé nú eitthvað öðruvísi lyktin af þessu heldur en mig minnti. Hugsaði svo bara með mér að ég hefði líklega ekki borið það á mig í svo langan tíma að ég hreinlega mundi ekki hvernig lyktin hefði verið. Nú ég er búin að maka þessu guðdómlega kremi mínu á allan líkaman, fer svo að klæða mig, bursta og greiða. Enn finnst mér ég angandi af einhverri skrýtinni lykt, sem var nú samt góð, bara ekki svona kremlykt.
Ég fer og sinni Brekanum meðan móðirin var á fyllerí/þunn í köben og faðirinn að mennta sig. Við Bjarni fáum okkur svo hádegismat saman og erum bara þarna í góðu chilli, ég horfi á Greys og hann á fótboltaleik. Síðan skunda ég heim á leið. Ennþá hálf undrandi á þessari miklu lykt sem var af mér.
Kem innum dyrnar heima hjá mér, þá var orðið bjart í öllu herberginu og ég sé mér til skelfingar að þetta fegrunarkrem sem ég var að bera á mig var í raun Piz Buin sólarvörn númer 8!!!