11.12.07

Strákastelpa

Ég verð seint talin dama. Þó að ég sé afskaplega góð í því að ganga um á 18 cm hælum, í pilsi (án þess að það sjáist í nærbuxurnar) og vera með gloss svona eina kvöldstund eða svo, þá dugar það einfaldlega ekki til.
Hef heldur aldrei verið þessi prinsessustelpa. Þó að ég hafi nú heimtað gullkjóla og silfurskó í lange baner þegar að amma og afi fóru til ameríku þegar ég var 4 ára. Þá var ég fín í þessum kjólamúnderíngum í korter. Svo var ég bara komin á sokkabuxurnar og nærbolinn, mátti ekkert vera að því að vera fín.
Man að þegar ég fermdist var voða mikið í tísku að vera í ljósbleikum, ljósbláum eða hvítum kjólum. Ég hefði ekki látið sjá mig dauða í svoleiðis, enda fermdist ég í kolsvartri buxnadragt. Lét mig samt hafa það að vera á einhverjum voða stelpulegum skóm, en jesús minn, ég mun aldrei gleyma verkjunum sem ég var með í fótunum eftir að hafa skakklappast á þeim frá klukkan 11.00 til að verða 20.00 um kvöldið.
Svona síðustu ár hef ég reyndar alltaf verið meira og meira dömuleg. Enda að verða 20. ára og það kannski þýðir ekki annað. Ég er voða dugleg að vera í pilsum, kjólum og stígvélum svona hversdags. Svo þegar það er eitthvað spari, þá dressar maður sig upp í eitthvað voða fínt, sléttar hárið, setur eyeliner og fer í hæla. Voða fínt. Brussast um á þessu þangað til ég kem heim. Þá nánast undantekningalaust ríf ég mig úr öllum fötunum og vill helst bara vera á nærbuxunum og uppáhalds fótboltatreyjunni minni (Eða einu, því pabbi klikkar allaf á að gefa mér Arsenal búninginn.) og chilla þannig. Ok, er nú samt oft í buxum, en mjög svo ekki dömuleg svona heima.
Dömuleikinn er samt eitthvað að fara af mér aftur, held að það sé vegna þess að ég umgengst svo mikið af strákum. Og stelpurnar sem ég umgengst eru ekki mikið að ræða glossa og sléttujárn, þannig að ég er öll að skríða til baka í að verða eins og strákur bara. Strákur með naglalakk.
Hélt nú að þetta slyppi alveg til hjá mér, þangað til að við vorum að skoða einn af 300 auglýsingabæklingunum sem koma innum lúguna í hverri viku. Þar rak ég augun í eitthvað sem ég hefði ALDREI rekið augun í áður, ef það væri ekki fyrir allt fótboltavitið sem ég er komin með í hausinn. Allt í lagi, það er svosem ekki mikið en ég get svarið fyrir það að ég er farin að kunna muninn á vítaspyrnu og rangstöðu.
En þetta sem greip mig má sjá á þessari mynd:
(getið smellt á myndina til að gera hana stærri)



Af hverju er Liverpool dótið ódýrara en hitt?
Lélegra lið?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þekki þig ekki neitt en les þig alltaf þú ert fjári góður penni, en ég held að nike sé dýrara en adidas og svo er man utd ekki neitt drasl

Kristín Alma sagði...

Takk fyrir það, nafnlausi vinur minn. Annars datt mér nú alveg í hug að það væri einhver skýring fyrir þessu. Fannst þetta bara voða fyndið, því Liverpool er ekki mitt lið ;)